Morgunblaðið - 22.10.1985, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 22.10.1985, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLADID, ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER1985 SVAR MITT eftir Hillv Graham Áég að þegja? í mörg ár hef ég átt leyndarmál, sem ég hef ekki sagt manninum mínum. Er mér skylt að segja honum það og súpa seyðið af því? Ég hef talað við Guð um þetta og iðrazt þess, og ég er fús að játa synd mína fyrir eiginmanni mínum. En ég óttast, að það hafi slæmar afleiðingar. Vinsamlegast hjálpið mér. Biblían segir: „Ef vér játum syndir vorar (fyrir Jesú Kristi), þá er hann trúr og réttlátur, svo að hann fyrirgefur oss syndirnar og hreinsar oss af öllu ranglæti." Menn geta orðið ofsafengir í viðbrögðum sínum, þegar játaðar eru fyrir þeim syndir á siðferðissviðinu. Ég held, að yfirleitt sé nóg að játa þessa synd fyrir Guði, nema svo margir viti um hana, að hún muni berast makanum til eyrna. Ég skil, að sektarkenndin sé eins og farg, er þér hafið brotið sjötta boðorðið, og þér reynið að losna við hana. Guð veit, að þér eruð fús að segja manni yðar allt af létta, og hann veit, að þér iðrizt af ein- lægni vegna syndar yðar. Sumt fólk heldur, að þessi synd sé sú, sem ekki verður fyrirgefin. En það er misskilningur. Það er alvarlegt mál að rjúfa hjónabandseiðinn. Þó kennir Biblían skýrum stöfum, að unnt sé að öðlast fyrirgefn- ingu á þeirri synd. Við sjáum í Nýja testamentinu, að Jesús fyrirgaf mörgum, sem drýgðu þá synd, og hann fyrirgefur yður. Ef til vill brutuð þér af yður fyrir löngu, jafnvel áður en þér genguð Kristi á hönd. Þá tel ég hæpið að afhjúpa þetta ljóta leyndarmál fyrir manni yðar. En sé því svo farið, að þetta hafi nýlega átt sér stað og að hjónaband yðar geti beðið hnekki, ef þér þegið, væri yður kannski ráðlegt að segja manni yðar frá þessu. Guð hefur fyrirgefið yður. Nú skulið þér fyrirgefa sjálfri yður. t Eiginmaður minn og faöir okkar, HAFSTEINN DAVÍOSSON, Urðargötu 18, Patreksfiröi, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 24. október kl. 16.30. Minningarathöfn um hinn látna veröur í Patreksfjaröar- kirkju laugardaginn 26. okt. kl. 13.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélag fslands. Erna Aradóttir, Hafdis Hafsteinsdóttir, Helga Hafsteinsdóttir, Vilborg Hafsteinsdóttir, Davíð Hafsteinsson, Esther Hafsteinsdóttir og Haukur Hafsteinsson. Maöurinn minn, faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi, EINAR GUÐBJARTSSON Efstasundi 6. Veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 23. október kl. 10.30. Skúlína Haraldsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Útför eiginmanns míns, fööur, tengdafööur og afa, JÓHANNS KRISTINSSONAR, Sporðagrunni 3, Reykjavfk, sem lést í Landakotsspítala 13. október, veröur gerð frá Fríkirkjunni ídag, þriöjudaginn 22. októberkl. 13.30. Sigríður H. Pórðardóttir, Jóhann G. Jóhannsson, Jóhann Petter, Guölaug I. Jóhannsdóttir, Elín Ingunn, Mats Hjelte, Emma Mathilda. Minning: Jóhann Kristins- son sölumaður Fæddur 9. janúar 1913 Dáinn 13. október 1985 Við kveðjum í dag góðan vin og mætan starfskraft, Jóhann Krist- insson, sem lézt á Landakotsspít- ala að morgni sunnudags 13. októ- ber. sl. Jóhann kom til starfa hjá fyrir- tækinu H. Ólafsson & Bernhöft á haustdögum 1933 og hefur því starfað hjá fyrirtækinu í 52 ár. Jóhann starfaði alla tíð sem sölu- maður hjá fyrirtækinu og vann sér hylli og virðingu viðskiptavina sinna, enda var hann prúðmenni mikið, léttur í lund og hafði skemmtilega kímnigáfu. Það er óvenjulegt að menn eigi jafn lang- an starfsaldur að baki hjá einu og sama fyrirtækinu og Jóhann átti, og sýnir það hollustu hans, ekki einungis við húsbændur sína, held- ur einnig við fyrirtækið sjálft og samstarfsfólk sitt. í litlu fyrirtæki tengjast menn sterkari böndum en í þeim stærri og þetta verður eins og ein fjölskylda og í þeirri fjöl- skyldu var Jóhann hrókur alls fagnaðar og deildi örlátlega af sinni hjartagæsku og kímni. Það var ekki sjaldan sem hann hafði einn brandara í pokahorninu að morgni dags til þess að koma fólki í gott skap á drungalegum vetri eða til þess að koma hlátrasköllun- um af stað í kaffitímanum. Það voru til fleiri hliðar á Jó- hanni Kristinssyni en þær sem sneru eingöngu að starfi hans. Hann var mjög vel lesinn maður um land og þjóð, þekkti flóru landsins og dýralíf betur en marg- ur, enda hafði hann ferðast víða um landið. Hann þekkti einnig himinhvolfið fyrir ofan okkur því hann var mikill áhugamaður um stjörnufræði og eyddi oft björtum vetrarkvöldum í að skoða þá fegurð sem þar er. Jóhanns er sárt saknað af sam- starfsfólki og biðjum við almátt- ugan Guð um að geyma góðan dreng. Við sendum konu hans, börnum, tengdasyni og barnabörnum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Guido Olafur Haukur og samstarfsfólk. Við mennirnir eigum erfitt með að sætta okkur við ýmislegt. Helst viljum við halda öllu því sem okkur áskotnast, hvort sem það eru áþreifanlegir hiutir eða samband og samskipti við þá, sem okkur þykir vænt um. Við höfum til- hneigingu til þess aðgrípa „eignir" okkar krampakenndu taki, eins og börn sem ekki vilja deila leik- föngum sinum með öðrum, og neita að láta nokkuð það af hendi, sem við höfum náð taki á. Við viljum + Móöir mín og tengdamóöir, SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR Skipholti 18, verður jarösungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 24. október kl. 15.00. Kristinn Guðmundsson, Hulda Valdimarsdóttir. + Útför bróöur míns, ÓLAFS MARKÚSSONAR, fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 24. október kl. 10.30. Einar Markússon. + Móöir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, HALLDÓRA GUDMUNDSDÓTTIR, verður jarösungin frá Fossvogskirkju miövikudaginn 23. október kl. 15.00. Ingibjörg Björnsdóttir, Magnús Ingimarsson, Guðmundur Björnsson, Vilborg Georgsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. Lokað í dag þriöjudaginn 22. okt. e.h. vegna jaröarfarar JÓHANNS KRISTINSSONAR, H. Ólafsson & Bernhöft, Vatnagaröar 18. ekki missa neitt, viljum enga breytingu. Breyting í átt til hins óþekkta er eitt af því sem við mannfólkið hræðumst mest og verjum hvað mestri orku í að forðast. Við þráum að fá að lifa í öryggi þess, sem við þekkjum, og helst af öllu vildum við geta spornað við því að nokkuð af því fólki sem okkur er kært fari endanlega úr augsýn. Það er hins vegar eðli lífs á jörðinni, að ákveðin þróun á sér stað á hverjum degi — hverju andartaki. Tíminn streymir áfram eins og á, sem aldrei stendur kyrr og ekki er eins á neinum tveimur augnablikum. Börn fæðast og fólk deyr, einn kemur — annar fer. Það er sárt fyrir þá sem eftir lifa að horfa á eftir trúnaðar- og ástvinum yfir á það svið, sem ekkert samband er við. Það er erfitt að sætta sig við breytinguna og missinn. Þegar frá líður verður hins vegar auðveldara að sjá mót- læti og sorgir lífsins í víðara samhengi, sem hluta af hinu stór- brotna framstreymi alls þess sem gefið var líf. Dauðinn er það eina sem vitað er að bíður okkar allra, en sjaldan erum við tilbúin til fararinnar eða sátt við að einhver sé frá okkur tekinn. Slíkt er mann- legt eðli. Við kveðjum Jóhann Kristinsson með von um endurfundi við þennan einstaka mann, sem alltaf gleymdi eigin kvölum og nálægum örlögum og spurði af einlægum áhuga frétta af heilsufari lítils snáða vestur í bæ. Jónína Leósdóttir í dag verður gerð frá Fríkirkjunni í Reykjavík útför Jóhanns Krist- inssonar. Fátt er erfiðara en að finna orðum sínum stað þegar kvaddur er gamall og kær vinur. Minningarnar koma upp í hugann hver af annarri. Hálf öld er nú liðin síðan kynni okkar hófust — kynni, sem brátt leiddu til náinnar vináttu sem hefur varað æ síðan. Við vorum í hópi hinna bjartsýnu ungmenna, sem reistu skíðaskála KR hátt uppi i hlíðum Skálafells. Sameigin- leg áhugamál okkar voru skíða- ferðir og ferðalög um landið. Jóhann var hógvær að eðlisfari, en það fór ekki framhjá neinum sem kynntist honum að þar fór maður margfróður og víðlesinn. Þetta kom t.d. skýrt fram í hinum mörgu ferðum okkar víða um landið. Þar var Jóhann, náttúru- unnandinn, hafsjór af fróðleik um jarðfræði, sögu plöntu- og fuglalíf. Að auki voru þær ekki fáar kímni- sögurnar, sem hann sagði okkur á sinn glaðlynda hátt. Snemma á árinu 1978 hófum við vinirnir sunnudagsmorgungöngur ásamt vini okkar Georgi heitnum Lúðvíkssyni. Farið var vítt og breitt um Reykjavík og nágrenni — alltaf hlakkað til að hittast á hverjum sunnudegi, hvernig sem viðraði. En nú er skarð fyrir skildi. Við munum sakna Jóhanns mikið, hann var drengur góður í þess orðs fyllstu merkinu. Hver veit þó nema hann og Georg verði einhvers stað- ar nálægir í morgungöngunum okkar í framtíðinni. Sirrý og börnunum sendum við innilegar samúðarkveðjur. Leó og Franz ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargrcinar verða að berast blaðinu með góð- um fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hlið- stætt með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu til- efni, að frumort Ijóð um hinn látna eru ekki birt á minningar- orðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og mcð góðu línubili.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.