Morgunblaðið - 22.10.1985, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER1985
Alexandcr Stefánsson félagsmílaráöherra við opnun sambýlis fyrir fatlaða að Klettahrauni 17 í Hafnarfiröi.
Svæðisstjórn Reykjanessvæðis:
Leikfélagið Baldur
á Bíldudal 20 ára
LEIKFÉLAGIÐ Baldur á 20 ára
afmæli á þessu hausti. í tilefni af
því efnir félagið til hátíöarsýningar
laugardaginn 2. nóvember nk.
Ákveðið hefur verið að sýna brot
úr flestum staerri verkum sem fé-
lagið hefur sett á svið frá stofnun
þess, en þau eru orðin fjölmörg,
má þar nefna: „Þrír skálkar",
„Maður og kona“, „Skuggasveinn",
„Skjaldhamrar", „Tobacco Road“
o.fl.
Margir burtfluttir Bílddælingar
koma heim til að taka þátt i þess-
ari hátíð með því að klæðast sínum
gömlu gervum og leika á ný, en
sumir þeirra hafa jafnvel ekki
stigið á svið í allt að 18 ár.
Leikstjóri sýningarinnar er
Þröstur Gunnarsson en hann er
ungur Bílddælingur sem útskrifað-
iti 'ir Leiklistarskóla íslands síð^
asi iíð vor.
Kói og 3ja manna hljómsveit
undir stjórn Gísla Bjarnasonar
flytur lög úr leikverkunum og
önnur sem flutt hafa verið á ars-
hátíðum félagsins í gegnum árin.
Þannig verður reynt að rifja upp
það eftirminnilegasta sem félagar
í Baldri hafa gert á þessum 20
árum.
í prentun er veglegt afmælisrit
og kemur það væntanlega út dag-
ana fyrir hátíðina, ritstjóri blaðs-
ins er Hafliði Magnússon.
Það »ná segja að undirbúningujsr
hafi staðið yfir frá því í vor, en
nær þó ekki hámarki fyrr en þann
25. október þegar burtfluttir Bald-
ursfélagar mæta til æfinga.
(ír frecutilky nningu l
Nýtt sambýli fyrir
fatlaða tekið í notkun
NÝTT sambýli fyrir fatlaöa aö Klettahrauni 17 Hafnarfíröi, hefur verið tekið
í notkun. Sambýlið er á vegum svæöisstjórnar Reykjanessvæöis í málefnum
fatlaöra og er þetta annað sambýliö sem þessir aöilar koma á fót. I þessu
nýja sambýli er rúm fyrir sjö fatlaöa einstaklinga.
Að sögn Þórs Þórarinssonar
framkvæmdastjóra svæðisstjórn-
ar, fullnægja heimilin tvö hvergi
nærri þeirri þörf, sem er fyrir
hendi. Nú þegar eru á milli 40 og
50 einstaklingar á biðlista, sem
óska eftir að komast að i sambýli
fyrir fatlaða en talið er að það séu
að minnsta kosti 1.200 manns, sem
svæðisstjórninni er ætlað að
þjóna.
Samkvæmt lögum um málefni
fatlaðra sem svæðisstjórnir starfa
eftir þá er þeim ætlað að leysa
vanda fatlaðra á því svæði sem
þeir sjá um. Sambýlin eru áfangar
í markvissri uppbyggingu sambýla
á svæðinu og er gert ráð fyrir að
þessar heimiliseiningar veiti þá
þjónustu sem fatlaðir hafa þörf
fyrir. Þeim sambýlum sem nú hafa
verið tekið í notkun er ætlað að
þjóna einstaklingum sem þurfa
mikla þjónustu. Þar er gert ráð
fyrir að skapaðar séu þær aðstæð-
ur sem líkjast sem mest eðlilegu
lífi og að heimilismenn stundi
atvinnu utan heimilisins. Annað-
hvort á vernduðum vinnustöðum
eða á almennum markaði.
Stefna svæðisstjórnar er að
halda áfram uppbyggingu sambýla
á svæðinu og reyna að koma til
móts við þjónustuþarfir fatlaðra.
Aætlað er að fleiri sambýlum verði
komið á laggirnar í Kópavogi,
Hafnarfirði og Suðurnesjum. Þar
er þörfin sýnilega mest því jafnan
er gert ráð fyrir að sambýlin séu
í heimabyggð þess fatlaða.
Úr sýningu á Tobacco Road 1983.
K®DEN
- og leiðin er Ijós
ÞUVHIJST
meö nýja lorantækiö frá KODEN í farangrinum.
Tækiö er svo lítíð og létt, að þaö hentar vel sem öryggistæki
á ferðalögum t.d. á snjósleðum og jeppum,
einnig fyrir björgunarsveitir.
KODEN LORAN 797
Gefur bér upp staðsetningu þína í lengdar
og breiddargráðum
fjarlægð og stefnu til ákvörðunarstaðar
áætlaðan tíma á ákvörðunarstað
Gerir viðvart ef þú ferð af leið
og þegar þú nálgast ákvörðunarstað
Leiðbeinir bér sjálfvirkt milli staða með notkun minnis
(allt að 60 staðarminnum til þess
að marka leiðina)
Verð: kr. 35.000.- án söluskatts
Einnig til enn minna og ódýrara tæki.
Pér er velkomið að líta inn og
kynnast kostum KODEN LORAN
radiomidun..
Grandagarði 9, 101 Reykjavík, sími (91) 23173