Morgunblaðið - 05.12.1985, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.12.1985, Blaðsíða 1
275. tbl. 72. árg. Maöur handtekinn á Ítalíu: Vildi hann frelsa sjó- ræningjana? Veróna, Ítalíu, 4. desember. AP. LÖGREGLAN á Ítalíu hefur látið hafa eftir sér ad Palestínuraadur sera hún handtók í síðustu viku, kunni að hafa verið á Ítalíu í þeim tilgangi að freista þess að frelsa sjó- raeningjana fjóra sem rændu ítalska skemmtiferðaskipinu Achille Lauro. Aðstoðarsaksóknari í Veróna sem stjórnar rannsókn málsins hefur neitað að staðfesta að þetta sé rétt. Lögreglan fylgdist með mannin- um vikum saman áður en hann var handtekinn og sími hans var einn- ig hleraður. Þegar hann var hand- tekinn fundust í fórum hans bæði sprengiefni og skotvopn. Hann sagði lögreglunni að vopnin hefðu verið ætluð til þess að ráðast á „sýrlensk skotmörk í Hollandi". Þá hefur einnig komið í ljós að maðurinn var staddur á Ítalíu þegar skemmtiferðaskipinu var rænt og að hann hitti Mohammed Abbas, sem Bandaríkjamenn ásaka fyrir að hafa staðið að baki ráninu, í Júgóslavíu eftir að ítalir höfðu sleppt Abbas. Yelena Bonner Frú Bonner í augnskoðun Tórínó, 4. desember. Frá Brvnju Tómer fréttaritara Morgunblaósins. AP. „Ég heyri ekki og ég sé ekki,“ sagði Yelena Bonner, eiginkona sovézka andófsmannsins Andreis Sakharov, við fréttamenn á táknmáli og sendi þeim síðan fingurkoss frá glugga íbúðarinnar, sem hún dvelst nú í í Rómaborg. Frú Bonner fór í itarlega augn- skoðun í dag í borginni Siena, hjá lækni sem gerði uppskurð á augum hennar 1975 og 1977. Hún fer á föstudag til Bandaríkjanna til hjartarannsóknar, en fyrir tveim- ur árum fékk hún hjartaáfall. í för með henni verða sonur hennar, Alexey, og tengdasonur, Efrem Yankelovich. Koma frú Bonner hefur vakið mikla athygli á Ítalíu. Greina fjölmiðlar frá hverju fót- máli hennar, hvenær hún rís úr rekkju, hvað hún snæðir, o.s.frv. f kvöld er sérstök dagskrá í ítalska sjónvarpinu þar sem sýnd verður kvikmynd um Sakharov, sem Jack Gold leikstýrir, en í hlutverki Sakharov er Jason nokkur Rob- ards. 88SIÐUR B STOFNAÐ 1913 FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1985 Prentsmiðja Morgunblaðsins AP/Símamynd Eiffel-turninn i baksýn Jaruzelski, leiðtogi Póllands, gaf sér tíma til að fara í skoðunarferð um Parísarborg. Skoðunarferðin gekk þó ekki hindrunarlaust fyrir sig, því Bateaux Mouches, þekktasta fyrirtækið sem rekur skoðunarbáta á ánni Signu, neitaði að flytja hann og varð hann því að fara í skoðunar- ferðina með bát smærra fyrirtækis. Pólland: Hæfni allra háskóla- kennara endurmetin Varsjá, 4. desember. AP. RÍKISSTJÓRN Póllands hefur fyrirskipað háskólum í landinu að taka til endurskoðunar hæfni allra háskólakennara í landinu, bæði hvað snertir stjórnmálaskoðanir og menntun. Kemur þetta í framhaldi af því er nær 50 háttsettir háskólamenn voru settir úr embættum sínum í síðustu viku. Samkvæmt upplýsingum embættismanna á þessari endur- skoðun að vera lokið í lok þessarar námsannar, en henni lýkur í febrú- ar. Háskólakennarar í Póllandi eru um 56 þúsund. Talsmaður menntamálaráðu- neytisins sagði að þarna væri um eðlilega endurskoðun að ræða í framhaldi af breytingum á lögum um æðri menntun, sem pólska þingið samþykkti í sumar. Fyrsta skrefið hefði verið að gera breyt- ingar á yfirstjórn skólanna og nú væri komið að kennurunum. Há- skólakennarar hafa látið í ljósi ótta um að þessar breytingar felist í því að reka þá kennara sem styðja Samstöðu, hina bönnuðu verka- lýðshreyfingu Póllands. ' Einn þeirra sagði að þessi endurskoðun væri þeim öllum hættuleg, því hún snerti ekki einungis hæfni þeirra, heldur siðferðileg og þjóðfélagsleg viðhorf þeirra. Roman Ciesielski, fyrrverandi formaður menntamálaráðs Pól- lands, sagði að ráðgjafanefnd um æðri menntun, hefði haft önnur sjónarmið hvaða þessa endurskoð- un snerti, heldur en stjórnvöld, en skýrði ekki nánar hvað hann ætti við. Sænskur fjárkúgari handtekinn Stokkhólmi, 4. desember. AP. LÖGREGLAN handtók í gær mann sem hótað hafði að sprengja upp sænskar járnbrautalestir, ef honum væru ekki greiddar fjórar milljónir sænskra króna. Til að sýna að sér væri full alvara, kom maðurinn fyrir þremur sprengjum, sem tókst að finna og aftengja áður en þær sprungu. Maðurinn var handtekinn er hann reyndi að ná í fé það sem hann hafði krafist. Hann hafði fyrst í hótunum um að sprengja lestarnar fyrir um mánuði. Jaruzelski fær kaldar kveðjur í Frakklandi París, 4. desember. AP. ÞAÐ VORU fremur kaldar kveðjurnar sem Jaruzelski leiðtogi Pól- lands fékk er hann kom til Frakklands í dag á leið sinni til Alsír og hitti Francois Mitterrand, forseta Frakklands, að máli, en þetta er í fyrsta skipti sem leiðtogi á Vesturlöndum tekur á móti Jaruzelski frá því herlög voru sett í Póllandi. Stjórnarandstaðan og verka- lýðssamtök mótmæltu heimsókn- inni og stuðningssamtök Sam- stöðu, hinnar bönnuðu verkalýðs- hreyfingar Póllands, efndu til mótmælastöðu við Elysee-höllina, þar sem fundurinn fór fram. Mitterrand varði hins vegar fund sinn með Jaruzelski og benti á að forsenda fyrir skilningi milli þjóða væri sú að þær ræddust við. Fundur Jaruzelskis og Mitter- rands var rúmlega klukkutíma langur og sagði Jaruzelski að honum loknum að hann hefði verið bæði einlægur og notadrjúg- ur. Laurent Fabius, forsætisráð- herra, sagði hins vegar í franska þjóðþinginu að hann hefði haft miklar áhyggjur af þessum fundi og þetta hefði verið erfiðasta málið sem hann hefði fengist við frá því hann tók við embætti fyrir 18 mánuðum. Öll helstu verka- lýðssamtök Frakklands, að und- anskildum þeim sem stjórnað er af kommúnistum, mótmæltu fundinum og lýstu yfir stuðningi við Samstöðu og pólsku þjóðina. Fabius sagði franska þinginu að hann hefði rætt um heimsókn- ina við Mitterrand og Mitterrand sagt að fundurinn þýddi ekki að frönsk stjórnvöld legðu blessun sína yfir stefnu stjórnvalda í Pól- landi, hvað snerti mannréttindi og frelsi borgaranna. Þvert á móti hefði mest allur fundurinn verið helgaður þessum málefnum og þeirri gagnrýni sem frönsk stjórnvöld hefðu sett fram á ástandið í þessum málefnum í Póllandi. Viðbúnaður lögreglu var mjög mikill vegna heimsóknarinnar. Jaruzelski fór inn um hliðardyr á Elysee-höllinni til viðræðnanna við Mitterrand, en það er óvenju- legt þegar um erlendan þjóðhöfð- ingja er að ræða. Frá Frakklandi heldur Jaruzelski til Alsír, þar sem sagt er að hann muni hitta Arafat, leiðtoga skæruliðahreyf- ingar Palestínuaraba, að máli. Nýjar efnahagstillögur ríkisstjórnar Shliiters: Orkugjafar skattlagðir Kaupmannahöfn, 4. desember. AP. RÍKISSTJÓRN Pauls Schlilter lagði fram nýjar tillögur í dag, sem miða að því að rétta við viöskiptahalla ríkisins. Tillögurnar felast í því að auka skatta á orku, minnka opinberar fram- kvæmdir og hafa taumhald á opinberri eyðslu og einkaneyslu. Skattar munu hækka á bensíni, oiíuvörum, kolum og rafmagni. í samræmi við efnahagstil- lögur ríkisstjórnarinnar skor- aði danski seðlabankinn á aðra banka að minnka lán til einka- neyslu. Með aðgerðum sínum vonast ríkisstjórnin til að minnka viðskiptahallann um átta milljarða danskra króna, en hann var áætlaður um 20 milljarðar, sem jafngildir tæp- lega 90 milljörðum íslenskra króna. Schluter sagði á blaða- mannafundi að stjórnin héldi við það markmið sitt að afnema alveg viðskiptahallann árið 1988, en halda jafnframt uppi miklum hagvexti, minnka at- vinnuleysi og halda ríkisút- gjöldum í jafnvægi. Það er ekki ljóst nú hvort minnihlutastjórn Shlúters tekst að fá nægan stuðning í þinginu til að gera þessar til- lögur að lögum. Þær hafa þegar fengið nafnið jólagjöfin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.