Morgunblaðið - 05.12.1985, Blaðsíða 26
vso
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985
2,2 milljónir f prófkjörsbaráttu:
Árni, Vilhjálmur og Júl-
íus kostuðu mestu til
— eftirSigurð
Sigurðarson
Varlega áætlað lítur úr fyrir að
23 frambjóðendur í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins vegna borgar-
stjórnarkosninganna hafi samtals
lagt í kosningabaráttu sína um 2,2
milljónir króna. Þetta þýðir að
meðaleyðsla hvers frambjóðenda
hafi verið um 96.000 krónur. Ellefu
frambjóðendur kostuðu engu til í
kosningabaráttu sinni eftir því
sem best verður séö. Undanteking-
arlítið urðu þeir frambjóðendur
mjög aftarlega.
Ljóst er að sá sem kostaði mestu
til er Árni Sigfússon. Hann mun
hafa kostað til um 215.000 krónum.
Næst mestu eyddi Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, rétt tæpum 200.000
krónum. Júlíus Hafstein kostaði
til sinnar kosningabaráttu um
185.000 krónum.
Af þessum 23 frambjóðendum
kostaði Vilhjálmur G. Vilhjálms-
3,
*ókin er ómissandi fyrir alla,
sem láta sig íslenska myndlist
varða: Listamenn, frœðimenn,
námsmenn, listunnendur og
aðra, sem kunna vilja skil á
menningararfi okkar.
Kynningar-
verO
Glæsilegt
framlag III
íslenskrar
bökadtgáfu
'é^ókin Listasafn íslands
1884-1984 er sérstaklega falleg
listaverkabók og jafnframt
aðgengilegt uppsláttar- og
heimildarrit. Hér er á einum
stað heildarskrá íslenskra verka
í eigu safnsins, æviatriði höf-
unda peirra og ágrip af sögu
listasafnsins. Alls eru í bókinni
167 litmyndir.
Kjörin gjöftil vina og viðskiptamanna innanlands sem utan
ÍFi*
yrst um sinn verður bókin
á sérstöku kynningarverði:
kr.3.705. Pað er gott verðfyrir
mikla bók. Tryggðu þér því
eintak við fyrsta tækifœri.
Listasafn íslands 1884-1984
fæst hjá bóksölum.
Dreifingu annast bókaútgáfa
Arnar & Örlygs.
LISTASAFN
ÍSLANDS
son minnstu til, eða aðeins um
16.000 krónum, en það var lítil
tveggja dálka auglýsing í Morgun-
blaðinu. Næst minnstu eyddi
Guðrún Zoéga, um 32.000 krónum,
og Kristín Sigtryggsdóttir eyddi
um 34.000 krónum. Þeir þrír sem
fyrst var getið voru kjörnir sem
borgarfulltrúar, en Vilhjálmur,
sem nú er varaborgarfulltrúi, lenti
í 18. sæti. Guðrún lenti í 19. sæti
en Kristín aftar.
Kosningabarátta frambjóðenda
í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík er háð á nokkuð hefð-
bundinn hátt. Frambjóðendur
auglýsa fyrst og fremst í Morgun-
blaðinu og DV, og dæmi eru til um
auglýsingar í útvarpi, sjónvarpi
og öðrum fjölmiðlum. Nefna má
að nú auglýsti Jóna Gróa Sigurðar-
dóttir í sjónvarpi kvöldið fyrir
kjördag. Hún lenti í 9. sæti í próf-
kjörinu. Þórir Lárusson auglýsti
einu sinni í Helgarpóstinum í vik-
unni fyrir prófkjör. Hann lenti í
17. sæti.
Flestir frambjóðendur auglýstu
í Morgunblaðinu. Samtals birtust
73 auglýsingar í því blaði, alls 4.949
dálksentimetrar. í DV birtust 30
auglýsingar, alls 3.796 dálksenti-
metrar.
Til kynningar gáfu 17 frambjóð-
endur út bækling eða bréf sem
kjósendur fengu send heim til sín.
Kostnaðurinn við þessa bæklinga
var mismunandi. Árni Sigfússon
og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
kostuðu greinilega mest til sinna.
Árni gaf út 8 síðna blað í dagblaðs-
broti, sem stuðningsmenn hans
leituðust við að dreifa persónulega
til kjósenda. Vilhjálmur gaf út
tvíbrotinn bækling sem prentaður
var í fjórlit öðrum megin, en tvílit
hinum megin. Kostnaður við bækl-
ing sem þennan er margfaldur á
borð við einfaldari bækling í einum
eða tveimur litum. Mestu munar
um litgreiningu, aukna filmu-
skeytingu og fleiri keyrslur í gegn-
um prentvél.
Líklega hefur Þórir Lárusson
kostað hvað minnstu til í bækl-
ingagerð. Hann sendi kjósendum
lítið spjald sem var 17 sm á lengd
og 7 sm á breidd.
Frambjóðendur létu sér ekki
nægja að auglýsa og gefa út bækl-
inga. Þeir settu margir hverjir upp
kosningaskrifstofur. Á sumum
kosningaskrifstofanna voru ráðnir
starfsmenn sem þáðu laun fyrir
störf sín. Sá kostnaður er ekki inni
í þeim útreikningum sem birtast
hér, enda erfiðara að sannreyna
hann. Ekki heldur er hér getið um
símakostnað frambjóðenda. Marg-
ir þeirra skipulögðu almennar
hringingar til kjósenda og sáu
stuðningsmenn um þær, frambjóð-
endum að kostnaðarlausu.
Fjármögnun
Mörgum leikur forvitni að vita
hvernig frambjóðendur standa
undir þeim kostnaði sem þátttaka
i prófkjöri leiðir af sér, sé það á
annað borð staðfastur vilji fram-
bjóðenda að kynna sig rækilega.
Langflestir frambjóðendur
greiða kostnaðinn úr eigin vasa.
Ljóst er þó að ýmsir frambjóðend-
ur eiga á að skipa stórum hópi
stuðningsmanna, sem gæta þess
vandlega að frambjóðandinn þurfi
ekki að kosta baráttu sína sjálfur,
nema að mjög litlu leyti. Meðal
þessara lánsömu frambjóðenda
eru Árni Sigfússon, Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, Júlíus Hafstein,
Katrín Fjeldsted, Anna K. Jóns-
dóttir og fleiri. Stuðningsmenn
þessara frambjóðenda standa fyrir
samskotum og öngla saman lang-
mestum hluta útlagðs kostnaðar.
Þessu til viðbótar leggja fjölmarg-
ir stuðningsmenn frambjóðenda
fram ómælda vinnu, bjóða fram-
bjóðendum upp á ókeypis afnot af
síma, húsnæði og jafnvel matföng
Sigurður Sigurðarson
„Borgarfulltrúi er lík-
lega med um 25.000
krónur á mánuöi auk
launa fyrir nefndar-
störf. A fjögurra ára
tímabili þýðir þetta um
1,2 milljónir króna.
MeÖ lánum ættu jafnvel
þeir sem mestu kostuðu
til aö geta greitt kostn-
aöinn úr prófkjörinu.“
fyrir stuðningsmenn á annatím-
um.
Þetta er ekki nýtt í prófkjörs-
baráttu. Margir þekktir stjórn-
málamenn í Sjálfstæðiflokknum
hafa stuðst við slík samskot. Nefna
má Davíð Oddsson, Þorstein Páls-
son, Friðrik Sophusson, Birgi fsleif
Gunnarsson, Albert Guðmundsson
og fleiri. Til gamans má hér geta
þess að sá síðast nefndi hefur ætíð
átt að skipa afspyrnu duglegum
stuðningsmönnum, svo duglegum
að þegar upp hefur staðið eftir
ýmisleg framboð og prófkjör þá
hefur drjúgur skildingur verið í
hagnað. Ýmsir hafa haft það á
orði vegna þessa að hinn svokallaði
„hulduher" Alberts Guðmundsson-
ar sé ekki síður málaliðaher.
Flestir frambjóðenda í síðasta
prófkjöri verða þó að greiða kosn-
ingakostnaðinn úr eigin vasa. Slíkt
er verulegur biti fyrir suma.
Árangurinn er svo slakur að nær
vonlaust er að þeir komist á lista
og verði varaborgarfulltrúar á
launum fyrir nefndarstörf og
fundasetur.
Störf borgarfulltrúa eru þokka-
lega launuð. Borgarfulltrúar og
varaborgarfulltrúar fá fyrir
nefndarstörf föst mánaðarleg
laun. Varaborgarfulltrúar fá að-
eins greiðslu fyrir hvern þann
borgarstjórnarfund sem þeir sitja.
Þeir eru þó allflestir fulltrúar í
ýmsum nefndum á vegum borgar-
innar og fá fyrir það fastar greiðsl-
ur.
Ekki þarf sérlega reiknings-
glögga menn til að sjá, að laun
þeirra sem verða borgarfulltrúar
duga vel fyrir útlögðum kostnaði
í prófkjörinu.
Borgarfulltrúi er líklega með um
25.000 krónur á mánuði auk launa
fyrir nefndarstörf. Á fjögurra ára
tímabili þýðir þetta um 1,2 millj-
ónir króna. Með lánum ættu jafn-
vel þeir sem mestu kostuðu til að
geta greitt kostnaðinn úr prófkjör-
inu. Frambjóðendur renna þó
margir blint í sjóinn í þessum
efnum. Margir eru kallaðir en fáir
útvaldir af háttvirtum kjósendum,
en vogun vinnur... o.s.frv.
Aörar baráttuleiöir
Frambjóðendur í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins láta sér ekki
nægja að kosta til auglýsinga og
bæklinga. Þeir setjast margir
hverjir niður og ígrundar greinar
um borgarmálefni og annað sem
tengist stjórnunarstörfum. Les-
endur kíma margir hverjir og velta
því fyrir hvað þessi eða hinn sé
að vilja upp á dekk. Fyrir suma
eru þessi skrif frumraun. Þetta er
þó heiðarleg tilraun til að vekja
athygli, koma á framfæri sjónar-
miðum sem hingað til hafa aðeins
verið viðraðar í tiltölulega fá-
mennum hóp.
Þá birtast alltaf nokkrar greinar
eftir stuðningsmenn hinna og
þessara frambjóðenda. Oft skipu-
leggja stuðningsmenn slík skrif.
Þau hafa ætíð mikil áhrif, sérstak-
lega þegar forystumenn flokksins
í borgarmálum eða landsmálum
eiga hlut að máli. Nefna má að
skrif Geirs Haarde til stuðnings
Árna Sigfússyni og Önnu K. Jóns-
dóttur þóttu hafa mikil áhrif.
Sama má segja þegar Gísli Hall-
dórsson skrifaði til stuðnings Vil-
hjálmi Þ. Vilhjálmssyni.
Um 28 greinar birtust í síðustu
prófkjörsbaráttu. Ýmist voru
þetta greinar eftir frambjóðendur
eða stuðningsmenn þeirra. Sam-
tals voru þetta um 1.760 dsm.
Prófkjöriö gagnrýnt
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík hafa talsvert verið
gagnrýnd að undanförnu. Margir
telja óeðlilegt að fé frambjóðenda
ráði vali kjósenda og þess vegna
sé tími til kominn að hætta próf-
kjörum eða finna þeim nýjan og
ódýrari farveg.
Þessu er iðulega mótmælt. Fé
frambjóðenda í auglýsingum og
bæklingum ráði ekki vali kjósenda,
heldur vekji fyrst og fremst at-
hygli kjósenda á frambjóðendum.
Þetta er rökstutt með því að benda
á þann fjölda sem leggur umtals-
vert fé í kosningabaráttu en er
langt frá því að komast í öruggt
sæti eða varamannasæti.
Rætt hefur verið um að fastar
reglur verði settar um eyðslu
frambjóðenda í kynningarstarfi
fyrir prófkjör. Þannig verði fram-
bjóðendum tryggt fjárhagslegt
jafnræði eins og best verði á kosið.
Þeir sem leggjast gegn þessari
hugmynd, svo og þeirri að leggja
niður prófkjör og færa val á fram-
boðslista flokksins til sérstakrar
uppstillinganefndar, færa þessi
rök fyrir máli sínu: Með prófkjöri
er fullkomlega komið í veg fyrir
að „annarleg" sjónarmið ráði vali
á framboðslita. Frambjóðendum
er í sjálfsvald sett hversu miklu
þeir eyða í kosningabaráttuna. Það
ætti ekki að teljast löstur á fram-
bjóðanda hafi hann yfir miklu fé
að ráða eða öflugum stuðning-
mönnum. Slíkt sé fyrst og fremst
merki um dugnað og hagsýni.
Hafa skal þaö sem
sannara reynist
Samantekt sú sem hér birtist
yfir útlagðan kostnað frambjóð-
enda er byggð á áætlun. Gert er
ráð fyrir að dálksentimetrinn í
Morgunblaðinu kosti 260 krónur,
og ekki sé veittur afsláttur. Á DV
er veittur um 20% aflsáttur frá
sama verði, þ.e. 208 krónur fyrir
dálksentimetrinn.
Kostnaður við bæklinga og
bréfaútgáfuna er mjög hóflega
áætlaður, og miðast við stærð
bæklingsins, litafjölda, o.s.frv.
Yfirlit þetta er fyrst og fremst
unnið til að leiðrétta missagnir og
tröllasögur sem gengið hafa
manna á meðal um tilkostnað
frambjóðenda í þessari prófkjörs-
baráttu. Ekki hefur verið leitað til
frambjóðenda og upplýsingar
þessar bornar undir þá. Sé hér
ekki farið með rétt mál, þá skal
þaö vera sem sannara reynist.
Mjög auðvelt er að reikna kostnað-
inn. Fyrir liggja þær auglýsingar
sem birst hafa, verð á dálksenti-
metrum er opinbert og nokkuð
vandalítið er að áætla annan
kostnað.
Höfundur er blaðmmaður.