Morgunblaðið - 05.12.1985, Blaðsíða 35
MORGUNBLADIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985
35
1‘esMÍ mynd, sem gerð er með aðstoð tölvu, sýnir Voyager 2 nálgast Úranus.
Geimflaugin mun fara næst Úranusi hinn 24. janúar 1986.
Voyager 2 nálgast Úranus
- verður í mestri nánd við plánetuna 24. janúar
Washington, 4. desember. AP.
BANDARÍSKA geimflaugin Voyager 2 nálgast nú Úranus og er það
fyrsta heimsókn geimflaugar til þessarar fjarlægu plánetu, að sögn
geimvísindamanna. Voyager 2 sendir nú daufar myndir af plánet-
unni og fylgitunglum hennar en vandamál sem komu upp varðandi
tækjabúnaðinn um borð eftir að geimflauginni var skotið á loft
1977 hafa verið leyst.
„Viðkoma Voyager 2 hjá Úran,-
usi verður að minnsta kosti jafn
merkileg heimsóknum hans hjá
Júpíter og Satúrnusi", sagði Burt-
on I. Edelson hjá Geimferðastofn-
un Bandaríkjanna. För Voyagers
mun ekki ljúka hjá Úranusi.
Stefna hans hefur verið sett þann-
ie að þegar Voyager fer framhjá
Úranusi mun aðdráttarkraftur
plánetunnar beina honum í stefnu
á Neptúnus en þangað er vonast
til að geimflaugin verði komin í
ágúst 1989.
„Það er svo lítð vitað um Úranus
að vísindamenn munu fræðast
meira um hann á þeim sex klukku-
stundum er Voyager verður næst
Plánetunni hinn 24. janúar en
tekist hefur að finna út á þeim 200
árum sem liðið hafa síðan Úranus
fannst," sagði Edelson.
Úranus er rúmlega 51 þúsund
km í þvermál. Hann er að mestu
úr loftkenndum efnum en er þó
talinn hafa harðan kjarna á stærð
við Jörðina. Er Voyager nær
mestri nánd við hann hinn 24.
janúar nk. munu hinar tvær
myndavélar geimflaugarinnar og
mælitæki senda til jarðar myndir
og tölfræðileg gögn varðandi plán-
etuna, hringi hennar og 'fimm
fylgitungl. Úranus er umkringdur
að minnsta kosti níu hringjum úr
dökku efni. Hringir þessir eru þó
mjög ógreinilegir og vonast vís-
indamenn til að fyrstu myndir af
þeim náist er Voyager fer framhjá
plánetunni.
Bandaríkin:
McFarlane hættir
vegna ágreinings
Wa-shington, 4. desember. AP.
ROBERT C. McFarlane, ör-
yggisráðgjafi Bandaríkjafor-
seta, ætlar að láta af því
starfi. Skýrði Reagan sjálfur
svo frá í dag. Hvorki hann
né McFarlane vildu meira
um málið segja að svo
stöddu.
Haft er eftir heimildum,
að mestu ráði um afsögn
McFarlanes ágreiningur við
Donald T. Reagan, starfs-
mannastjóra Hvíta hússins.
Eru fjölmiðlar þegar farnir
að tilnefna hugsanlegan
eftirmann hans og þykja
tveir menn helst koma til
greina, John M. Poindexter
og Brent Scowcroft, sem var
öryggisráðgjafi Geralds
Fords. Poindexter skipu-
lagði töku egypsku flugvél-
Robert C. McFarlane.
arinnar með ræningja Ac-
hille Lauro um borð og þótti
standa sig vel í því verki.
Filippseyjar:
Breytingar á
heraflanum
Manila, Filippseyjum, 4. desember. AP.
FERDINAND E. Marcos, forseti Filippscyja, hefur hafist handa við að
endurskipuleggja herinn í landinu en ekki er að sjá, að neinar breyting-
ar verði á stöðu Fabians C. Vers, frænda Marcosar og yfirmanns her-
aflans, en sl. mánudag var hann ásamt öðrum hermönnum sýknaður af
morði stjórnarandstöðuleiðtogans Benigno Aquinos.
I gær var tilkynnt, að skipaður
hafi verið nýr yfirmaður sjóhers-
ins og einnig var skipt um marga
héraðsstjóra hersins. Hafa Banda-
ríkjamenn lengi lagt til, að gerðar
verði miklar breytingar á upp-
byggingu filippíska hersins, sem
ekki hefur vegnað allt of vel í
viðureigninni við skæruliða
kommúnista.
Corazon Aquino, ekkja Benigno
Aquinos, hefur ákveðið að bjóða
sig fram gegn Marcosi í forseta-
kosningunum 7. febrúar nk. en
einnig hefur Salvador Laurel, fyrr-
um öldungadeildarþingmaður til-
kynnt framboð sitt. Ýmsir hópar
stjórnarandstæðinga á Filippseyj-
um reyna nú að fá þá frambjóðend-
urna til að taka höndum saman
gegn Marcosi og óttast þeir, að
ella kunni klofningurinn að
tryggja sigur forsetans.
GENGI GJALDMIÐLA
BANDARÍKJADOLLAR lækkaði gagnvart öllum helztu gjaldmiðhim heims
í dag. Er talið, að minni eftirspurn eftir verksmiðjuvörum í Bandaríkjunum
hafi ráðið þar mestu.
Sterlingspundið kostaði í dag
1,4855 dollara (1,4830), en annars
var gengi dollarans þannig, að
fyrir hann fengust 2,5175 vestur-
þýzk mörk (2,5300), 2,09475 svissn-
eskir frankar (2,1115), 7,6775
franskir frankar (7,7225), 2,8360
hollenzk gyllini (2,8495), 1.717,50
ítalskar lírur (1.725,50), 1,38775
kanadískir dollarar (1,3914) og
202,80 jen (203,90).
Gullverð hækkaði og kostaði það
324,50 dollara únsan (322,50).
GILDIHF
Er ekki kominn tími til að halda árshátíðina,
starfsmannahófið eða tækifærisveisluna í
glæsilegum veislusal með þjónustu eins og hún
gerist best?
Reyndu Átthagasal Hóteis sogu og
þú átt í vændum ógleymanlegt kvöld þar sem
veislugestir njóta þess besta sem 1. flokks hótel
býður upp á í mat, drykk, þjónustu og umhverfi,
- fyrir ótrúlega hagstætt verð.
Eitt símtal og þú ert laus við frekari
áhyggjur af undirbúningnum, hvort sem veislan
er 20 eða 200 manna, og getur einbeitt þér að
ræðu kvöldsins!
Við sjáum um allt:
• Matur og drykkur að eigin vali, í öllum
verðflokkum.
• Þjónusta faglærðra manna.
• Hljómsveit, einsöngvari, plötusnúður,
harmóníkuleikari... við útvegum allt sem
henta þykir á góðu kvöldi.
• Skemmtikraftar af öllum stærðum og
gerðum.
• Skemmtilegt kvöld í fallegu umhverfi.
Þetta kostar allt minna en þig grunar
- og það sem meira er; þú þarft ekki
að greiða sérstakt leigugjald fyrir salinn!
Hafðu samband sem fyrst í síma 29900