Morgunblaðið - 05.12.1985, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 05.12.1985, Blaðsíða 76
Ein NOOT AliS SIMMLR FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR. DAGAR TILJÓLA Skaftáin losuð í Antwerpen NÚ STYTTLST óðum í það að skiparekstur íslenska skipafélagsins stöðvist með öllu. Ekki hefur tekist að semja um að Skaftáin losni úr farbanni i Antwerpen. Hins vegar befur verið samið um að skipið verði losað ytra og kemur farmurinn heim með skipi Eimskipafélagsins. Hofsá lýkur lestun á Norðurlöndum á hádegi í dag og siglir síðan heim til íslands. Þegar Hofsáin verður komin til Reykjavíkurhafnar, liggja þrjú af fjórum skipum íslenska skipafé- lagsins þar við festar, og munu gera þangað til gengið hefur verið frá samningum Eimskips og Út- vegsbankans. Fulltrúar Eimskipafélags ís- lands og Útvegsbankans áttu fund í gær, en ekki var gengið frá nein- um samningum, þar sem enn er verið að skoða nánar nokkur atriði. Er talið næsta öruggt að það ráðist ekki síðar en á morgun hver niðurstaða þessa máls verður. MorgunbladiÖ/Júlíus Jólin undirbúin Á dagheimilum og yngri bekkjum barnaskóla keppast krakkarnir þessa dagana við að undirbúa jólin. Er ljósmyndarinn leit inn í Álftaborg í gær var sannarlega ekki setið auðum höndum. Mikill áhugi Norðmanna á þátttöku í fiskeldi hér á landi: Rætt um stofnun 9 stórra eldisstöðva ýmsum sviðum til fjármögnunar. í kjölfar komu Norðmannanna er rætt um stofnun 9 stórra fiskeldis- stöðva ýmist með eða án norskrar fjármögnunar. Steingrímur Hermannsson, for- sætisráðherra, hitti Norðmennina að máli í gær og sagði, i samtali við Morgunblaðið, þann fund hafa verið mjög áhugaverðan. „Og ef satt er sem þeir lýstu, þá eru möguleikar til fiskeldis hér á landi gífurlegir. Þeir segja t.d. mun betri möguleika til fiskeldis hér en í Noregi af ýmsum ástæðum. Bæði vegna þess að hér sé betra og hreinna vatn og vegna jarðvarm- ans. Þeir telja markaðinn mjög mikinn — og að það vanti meiri fisk á markaðinn. En ég vil taka fram að hér á landi eru þegar 60 eða fleiri skráð fiskeldisfyrirtæki og menn verða að huga vel að því hve hratt þeir vilja fara í nýja atvinnugrein. Við höfum takmark- að fjármagn — því við þyrftum að leggja í þetta töluvert eigið fé — en það var engu að síður mjög áhugavert og uppörvandi að heyra hve áhugi Norðmannanna er mik- ill.“ Steingrímur sagði norsku sendi- mennina hafa lýst því yfir að þeir féllust á að eiga minnihluta í fyrir- tækjunum, en þeir gætu útvegað fjármagn að stærri hluta. „En það er ljóst að Norðmenn taka eitthvað fyrir þá þekkingu sem þeir koma með, fyrir fjármagnið og markaðs- þjónustuna sem þeir veita. Þeir eru ekki að þessu fyrir ekki neitt," sagði Steingrímur. Hann sagði að ekki myndi koma til ábyrgðar ríkissjóðs í þessu sambandi — „heldur er um það að ræða hvort bankarnir treysti sér til að veita ábyrgð fyrir þeim hluta sem að íslendingunum snýr í svona sam- starfi." Það er norska fyrirtækið Drags- nes í Álasundi, sem er tengiliður vegna viðræðnanna við Norðmenn og íslenzka fyrirtækið Isco er umboðsaðili þess hér á landi. Árni Gíslason, eigandi Isco, sagði í samtali við Morgunblaðið, að hér væri verið að ræða um verulegar fjárhæðir og hefðu Norðmenn mikinn áhuga á fjárfestingum í íslenzku fiskeldi. Þeir réðu yfir öllum þáttum þess, fóðurgerð, framleiðslu tækja og búnaðar, sér- þekkingu, markaðsmálum og fjár- mögnun. Engir beinir samningar hefðu enn verið undirritaðir, en búizt væri við því á næstunni. Salmonella í aliöndum VÍÐTÆKAR rannsóknir á aligæs- um og aliöndum, sem boðnar eru til sölu, hafa leitt í Ijós að í aliöndum frá búinu Vilmundarstöðum í Borg- arfirði hefur ræktast sýkillinn Salm- onella typhimurium. f frétt frá Hoil- ustuvernd ríkisins segir að matvara menguð með sýkli þessum sé ósölu- hæf og varhugaverð, enda valdi hann matarsýkingu, sem getur verið hættuleg. Vegna þessa hefur sala á aliöndum frá Vilmundarstöóum ver- ið stöðvuð og fyrirmæli gefin um innköllun vörunnar. Hollustuverndin varar við að því að endur frá búinu geti enn verið til staðar á heimilum, í mötuneyt- um, veitingahúsum og víðar. Fólki er bent á að athuga merkingar á öndum í geymslu. Tekið er fram að ekkert hefur fundist athugavert við aligæsir og aðrar aliendur, sem rannsakaðar hafa verið. Á slysstaðnum í Lækjargötu. Maðurinn varð fyrir bflnum nokkru aftar. NORSK sendinefnd hefur síðustu daga verið hér á landi til viðræðna við íslenzk fyrirtæki og ráðamenn um þátttöku Norðmanna í uppbygg- ingu fiskeldis hér á landi. Norð- mennirnir ráða yfir öllum þáttum fískeldis, allt frá sérþekkingu á Ráðist á gjaldkera í dymm Félagsmálastofnunar: Grímuklæddur maður rændi 107 þúsundum Morgunblaöiö/Júlíus Inngangurinn hjá fjölskyldudeild Félagsmálastofnunar í Síðumúla. Ræninginn stóð á bak við dyrnar og réðist á konuna þegar hún kom inn fyrir þröskuldinn. hæð. Hann var í blágrárri nælon- úlpu með skinnkraga á hettunni og var auk þess með trefil fyrir andlitinu. Hans var leitað í gær- kvöldi. GRÍMUKLÆDDUR maður rændi í gær um 107 þúsund krónum af gjald- kera fjölskyldudeildar Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar í dyrum deildarinnar í Síðumúla 34. Hann komst undan og hafði ekki fundist þegar síðast fréttist í gærkvöld, skv. upplýsingum Rannsóknarlögreglu ríkisins. Gjaldkerinn var að koma úr banka um kl. 12:30 í gær og hafði peningana í handtösku. Hún hafði sótt um 100 þúsund krónur fyrir stofnunina og átti að nota þá peninga til að borga skjólstæðing- um fjölskyldudeildarinnar, en hún var auk þess með um 7.000 krónur af eigin peningum í töskunni. Þegar hún kom upp á fjórðu hæð í húsinu, þar sem fjölskyldudeildin er til húsa, voru dyrnar af gangin- um inn á skrifstofunar opnar og sá hún móta fyrir manni n bak við glerhurðina. Skipti engum togum, þegar hún var komin inn fyrir þröskuldinn og ætlaði að loka á eftir sér, að maðurinn réðist að henni og reyndi að hrifsa til sin handtöskuna. Kom til stimpinga á milli þeirra, konan barðist um á hæl og hnakka, en maðurinn hafði betur, náði til sín veskinu og var flúinn þegar sam- starfsmenn á skrifstofunni höfðu heyrt skarkalann og komu fram á ganginn. Konan er ómeidd en var að vonum talsvert brugðið. Ræninginn er meðalmaður á Dauðaslys 1 Lækjargötu FULLORÐINN maður lést í um- ferðarslysi í miðborg Reykjavíkur síðdegis í gær. Hann var á leið aust- ur yfir Lækjargötu á móts við Kokk- húsið á horni Skólabrúar laust eftir kl. 15 í gær, þegar hann varð fyrir bifreið, sem ekið var suður Lækjar- götu. Við það féll hann í götuna. Lífgunartilraunir á slysstað báru ekki árangur og var maður- inn úrskurðaður látinn þegar komið var með hann á sjúkrahús. Hinn látni var Reykvíkingur, fæddur 1911. Ekki er hægt að greina frá nafni hans að svo stöddu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.