Morgunblaðið - 05.12.1985, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 05.12.1985, Blaðsíða 3
Kartöflu- uppskeran 37 % minni en í fyrra MÆLINGUM á uppskeru kartöHu- bænda er nú lokið. Markaðshæfar kartöflur reyndust vera 84.383 tunn- ur (8.438 tonn). Um Vt af framleiðsl- unni er hjá bændum á Suðurlandi. Haustið 1984 var kartöfluuppskeran 133.375 tunnur samkvæmt sams- konar mælingum og er uppskeran nú 37% minni en í fyrra. Kartöflu- rækt einstaklinga til heimilisnota er ekki tekin með í þessar tölur, enda ekki vitað hvað hún er mikil. Hún er veruleg í góðum ræktunarárum og hefur stundum verið áætluð allt að þriðjungur heildarneyslu kart- aflna í landinu. Magnús Sigurðsson í Birtinga- holti, formaður Landssambands kartöflubænda, veitti Morgunblað- inu eftirfarandi upplýsingar um framleiðsluna í einstökum héruð- um: Eyjafjörður 16.841 tunna (41.104 tunnur í fyrra), Múlasýslur 410 tunnur (2.060), Austur-Skafta- fellssýsla 4.254 (11.237), Vestur- Skaftafellssýsla, 2.000 tunnur, Þykkvibær 44.555 (þar af 37.501 tunna hjá bændum sem skipta við Pökkunarstöð Þykkvabæjar), Rangárvallasýsla að öðru leyti 2.983 og Arnessýsla 13.340 tunnur. Á Suðurlandi öllu var framleiðslan 62.878 tunnur sem er um % af landsframleiðslunni, en í fyrra var uppskeran á Suðurlandi 78.974 tunnur. Magnús taldi að kartöflurnar myndu duga fram á vor. Hann sagði að töluverðar frostskemmdir hefðu orðið á kartöflunum, og yrði upp- skeran því ódrýgri en ella. Svæðabúmarkið: „Þrffótur- inn“ stendur óhaggaður FYRIRHUGAÐ svæðabúmark var rætt á fundi Framleiðsluráðs land- búnaðarins fyrir helgina. Að sögn Gunnars Guðbjartssonar, fram- kvæmdastjóra Framleiðsluráðs, var þar ekki gengið frá tillögum til ráð- herra um svæðabúmarkið en stefnt að því að afgreiða þær á næsta fundi ráðsins. Svæðabúmarksnefnd fram- leiðsluráðs og Stéttarsambands bænda gerði á dögunum tillögu að fyrirkomulagi svæðabúmarksins, sem í samþykkt var í framleiðslu- ráði og afhent Jóni Helgasyni land- búnaðarráðherra. Tillaga nefndar- innar hefur verið nefnd „þrífótur" vegna þess að þar er gengið út frá því að framleiðslunni verði skipt á milli héraða eftir útkomu þriggja þátta: búmarkinu 1980, framleiðslu þriggja síðustu ára og búmarkinu 1985. Landbúnaðarráðherra, Ey- firðingar og fleiri hafa gert tillögur um nokkuð annan hátt á útreikn- ingunum, þannig að raunveruleg framleiðsla vægi meira en gamla búmarkið og hefur ein þeirra verið nefnd „tvífótur" til aðgreiningar. Spástefnan hefst í dag SPÁSTEFNA Stjórnunarfélagsins hefst f Súlnasal Hótel Sögu í dag. Þar mun Steingrímur Hermannsson for- sætisriðherra flytja framsöguerindi, svo og þeir Sigurður B. Stefánsson hjá Kaupþingi, dr. Þorvaldur Gylfason prófessor og Lára M. Ragnarsdóttir munu kynna spár nokkurra fyrirtækja um þróun efnahagsmila. Eftir kaffihlé verða tvöfaldar pall- borðsumræður, annars vegar milli aðila f atvinnulífinu og hins vegar meðal hagfræðinga. Stjórnandi pall- borðsumræðnanna verður Þórður Friðjónsson efnahagsráðgjafi ríkis- stjórnarinnar. MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985 (idi KARNABÆR VPj I ^ Austurstræti 22, Laugavegi 30, Laugavegi 66, Glæsibæ V Sími frá skiptiborði 45800 Umboðsmenn um allt land:^^^^ Fataval Keflavík — Mata Hari Akureyri — Nína Akranesi — Ram Húsavík — Sparta Sauðárkróki — Adam og Eva Vestmannaeyjum — Eplið ísafiröi — Báran Grindavík — Hornabær Höfn Hornafirði — Lindin Selfossi — Nesbaer Neskaupstað — ísbjörninn Borgarnesi — Þórshamar Stykkishólmi — Viðarsbúð Fáskrúösfiröi — Kaupfél. Húnvetninga Hvammstanga — Kaupfél. Rangæinga Hvolsvelli — Tessa Ólafsvík — Díana Ólafsfirði — Skógar Egilsstöðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.