Morgunblaðið - 05.12.1985, Síða 17

Morgunblaðið - 05.12.1985, Síða 17
pmi HaaMassa .s HTjoAauTMMia.aiaAjavíuofloM Bl 17 MORGUNBLADIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985 Ferðalag að hefjast Bókmenntlr Jóhann Hjálmarsson Einar Melax: SEXBLAÐASÓLEY (misþyrmt af kú). Medúsa 1985. Þetta er dálítið sérkennilegt kver, innbundið eins og um úrval ljóða gamals sveitaskálds væri að ræða. Einar Melax hefur lengi starfað með Medúsahópnum þar sem frjáls súrrealismi er boðaður. Kver Einars Melax er snoturt, myndskreytt og ágætlega frf- merkt. Ljósmyndir njóta sín vel f svarthvítri gerð. En það eru líka þokkalegustu textar í kverinu, til dæmis eftirfar- andi ljóð: Ferðalag hófst í dag um furður veraldar. Mér finnst eitthvað hátíðlegt við þessi pils og lúðra. Þeir skreyta umhverfið. Einar Melax Sinclair QL128 K tölvan á nánastallt sameiginlegt með miklu stœrri tölvum nema verðið: "| 3.500,— krónur fyrir tölvuna og fjóra hugbúnaðarpakka. Einar Melax er sparsamur f textagerð sinni. Hann sendir frá sér dálítil erindi sem eiga að tjá hugsun hans og reynslu. Bókin verður ekki heilleg sem slík, en kallar á hugrenningar eins og bóka er siður. Það eru alls ekki vondar hugrenningar. Eftirfarandi texti gæti sagt ýmislegt um tilgang hans. Hvað er ég að gera hér? nefnist téxtinn: „Svar: óljóst./tilgangur: mis- heppnaður/(leiðinlegur m/púður- sykri)./frammistaða: aðeins of/ snöggleg virðing og feimni./niður- staða: vítaverð/tilraun til skemmtunar." f smáljóði er þetta orðað svo að gleði okkar sé sorgleg, en skondin. Einar Melax er eitt þeirra ungu skálda sem eru að prófa sig áfram, leita að orði til að tjá hug sinn. Víða í Sexblaðasóley kemst hann vel að orði, hnyttilega og gerir þær kröfur til lesenda að hann geti í eyður, yrki með. Nú er að sjá hvort úr verði lag svo að einhverjir flauti með. Þú svalar lestrarþörf dagsins ájsjöum Moggans! Sinclair QL tölvan er allt þaö sem hinn reyndi tölvunotandi leitar að, en einnig skemmtilegur félagi og kennari fyrir byrjandann. Þegar þú færö þér QL þá ertu að gera sérlega hagstæð kaup. Tölvunni fylgja nefnilega fjórir hugbún- aðarpakkar, - þér að kostnaðar- lausu. Samanlagt eru þeir á svipuðu verði og tölvan! MEÐ ÍSLENSKUNA Á HREINU Lyklaborð Sinclair QL er gert fyrir (slendinga. Hugbúnaðarpakkinn er fullkomlega aðlagaður íslensku máli og ritvinnslan er jafn íslensk og þjóðsög- urnar! Þannig eiga góðar tölvur að vera. ÖFLUG OG NOTADRJÚG TÖLVA Sinclair QL er 128 K, og má stækka í 640 K. Hún hefur létt lyklaborð í ritvélarstíl og með aðstoð 2ja inn- byggðra míkródrifa er hægt að spila allt að 90 K forrit inn á smásnældu (snæld- ettu) á aðeins 6 sekúndum, - og svo auðvitað sækja það þangað seinna. Forritunarmál QL er hið öfluga Super- basic. QL-in hefur yfir að ráða 8 lita háupplausnargrafík, ellefu tengimögu- leikum við jaðarbúnað m.a. við prent- ara, modem og allt að 63 aðrar QL tölvur. Að sjálfsögðu er hægt að tengja hana við sérstakan skjá eða venjulegt sjónvarp. FJÓRIR HUGBÚNAÐARPAKKAR Þú getur byrjað að notaSinclairQLstrax því fjórir hugbúnaðarpakkar fylgja: Ritvinnsluforrit af bestu gerð, forrit fyrir grafík, félagaskráeða „spjaldskrá" og áætlunargerð fyrir heimilið. Hefurðu fengið nægju þína af tækni- upplýsingum? Taktu þá smáhvíld en hafðu síðan samband við okkur í tölvudeild Heimilistækja. Við lumum á fleirum handa þér! Heimilístæki hf TÖLVUDEILD - S/ETÚNI8 - SÍMI27500 MMht MMht smfit -saumasniðið slær í gegn, nákvæmt og ódýrt og svo einfalt. Hundruö mismunandi pappírssniö mundu þurfa til þess að sníöa allar þær gerðir og stærðir sem þú getur búiö til meö aöeins einu ^(ÍPÍNlFIT Jólagjöfin hennar í ár! Heildsölubirgöir: nft(tflR/rapi Fyrsta og eina stillanlega endurnotaöa saumasniöiö í veröldinni. Umboðsmenn óskast víða úti á landi. Suöurgötu 14, 124 Reykjavík. pósthólf 4230, Sími 622415. QOTT PÓLK

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.