Morgunblaðið - 05.12.1985, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985
Contadora-ríkin:
Bjartsýni um árangur
af sáttaumleitunum
('artagena, Kólumbíu, 4. desember. AP.
JORGE Abadia Arias, utanríkisráö-
herra Panama, sagöi í gær, þriðju-
dag, aö Contadora-ríkjunum heföi
tekist aó brjótast út úr sjálfheld-
unni, sem þau voru komin í meö
friöarumleitanir sínar í Miö-Amer-
íku.
Arias sagði, að „pólitískur vilji“
til að leysa ágreiningsefni Mið-
Ameríkuríkjanna væri nú til stað-
ar. Hann útskýrði það ekki nánar.
Allan Wagner, utanríkisráð-
herra Perú, sagði, að Contadora-
ríkin (Panama, Mexíkó, Kólumbía
og Venezuela) mundu nú ganga
einhuga til sáttastarfsins, sterkari
en nokkru sinni. Fulltrúar ríkj-
anna hittust fyrst í janúar 1983 á
eyjunni Contadora við Panama í
því skyni að koma á friðarsamn-
ingi milli E1 Salvador, Guatemala,
Costa Rica og Nicaragua.
Perú, Argentína, Uruguay og
Brazilía hafa stutt þessar umleit-
anir frá upphafi.
Contadora-ríkin lögðu fram nýj-
ar friðartillögur í september síð-
astliðnum, en sandinista-stjórnin
í Nicaragua hafnaði þeim. Daniel
Ortega, forseti Nicaragua, sagði
af því tilefni, að í tillögurnar hefði
vantað bann við hernaðarumsvif-
um Bandaríkjanna í þessum
heimshluta.
Noregur:
Þaö kostar að
vera kærulaus
AP/Sfmamynd
Herfangid athugað
Borgarastyrjöldin í Afganistan hefur nú bráöum staðið í sex ár og hafa skæruliðar verð ótrauöir í baráttu
sinni viö her stjórnvalda og her Sovétríkjanna og eru ekki á því aö leggja niöur vopn fyrr en fullur sigur
vinnst, þrátt fyrir aó þeir séu illa búnir vopnum og vistum og þurfi að þola mikið harðræói. Á myndinni má
sjá sovéskan skriðdreka sem skæruliöar hafa tekið herfangi, þar sem vélvirki undirbýr hann fyrir átökin við
sovéska herliðið.
()sló, 4. desember. Frá Jan Erik Laure, fréttaritara MorgunblaÓHÍna.
BJÖRN Romsás, 19 ára gamalt ungmenni frá Tretten við Lillehammer, er
ekki með öllu lánlaus maður. Fyrir nokkrum dögum ók hann á bflnum
sínum í veg fyrir járnbrautarlest á fullri ferð og komst lífs af, skráraaðist
ekki einu sinni.
Malta:
Björn dregur enga dul á, að hann
átti alla sök á árekstrinum. Hann
var eitthvað annars hugar og ók út
á brautarteinana við Tretten-
stöðina þótt rauðu ljósin loguðu
og bómurnar væru farnar að síga
niður beggja vegna við teinana.
Þegar hann áttaði sig var allt um
seinan. Hann sá lestina koma á
flúgandi ferð og kastaði sér yfir í
aftursætið. Það varð honum til lífs
því að lestin klippti bílinn snyrti-
lega i sundur um miðu.
Bíllinn hans Björns er að sjálf-
sögðu búinn að vera og vegna þess,
að hann var í algjörum órétti hafa
norsku ríkisjárnbrautirnar afhent
honum reikning upp á 737.000 ísl.
kr. Er hann sundurliðaður þannig:
330.000 kr. fyrir viðgerð á raf-
magnsbúnaði, 165.000 fyrir viðgerð
á lestinni, 110.000 fyrir að flytja
farþegana af árekstursstað, 27.000
fyrir afnot af annarri lest og
105.000 fyrir eftirvinnnu járn-
brautarstarfsmanna.
„Ég vona bara, að tryggingarnar
komi mér til hjálpar," segir Björn,
„ég á sjálfur ekki krónu upp í
skuldina."
Neila að framselja
Egyptum ræningjann
VallelU, Möllu, 4. desember. AP.
YFIRVÖLD á Möltu telja að menn-
irnir, sem rændu eypsku farþegaþot-
unni 23. nóvember, séu Palestínu-
menn og engar vísbengingar hafi
fundist því til sönnunar að Líbýu-
menn hafi komið nálægt flugráninu,
að því er talsmaður Möltustjórnar,
Paul Mifsud, sagði í dag. Mifsud
kvað ennfremur flugræningjann,
sem liföi af árás egypsku storm-
sveitarinnar, ekki verða framseldan
Egyptum.
„Þetta var ákveðið á þeim for-
sendum að Möltubúar og Egyptar
hafa ekki gert samning sín á milli
um að framselja glæpamenn og
morðið (svo!) var framið á Möltu.
Því sjáum við ekkert, sem mælir
á móti því, að réttarhöld í málinu
fari fram hér,“ sagði Mifsud.
Mifsud sagði að rannsóknarlög-
reglan hefði komist að því að flug-
ræningjarnir væru Palestínumenn
og allt benti til þess að þeir hefðu
verið þrír. Þar af liggur einn á
sjúkrahúsi heilags Lúkasar á
Möltu, en farþegar báru kennsl á
lík hinna tveggja og sögðu að þeir
Holland:
Sjómenn sætta sig ekki
við þorskveiðibannið
Wageningen, 4. desember. Frá Eggert H. Kjartam«yni, frétUriUra Morgunblaósinn.
ÞAÐ ER erfitt fyrir hollenska sjómenn og útgerðarmenn að sætta sig
við fiskveiðibannið sem tók gildi nú í lok nóvember. Aðferðir til þess
að komast hjá því að gefa upp aflann eru margar og það er ekki hikað
við að reyna þær.
Ein aðferðin var sú, að sjó-
menn stöfluðu fiskinum í kassa,
■sem voru merktir þýskum fyrir-
-tækjum, og kassarnir síðan gefn-
ir upp sem veiði þýskra sjó-
manna. Þannig voru meira en
2000 tonn af botnfiski seld fyrir
skömmu síðan. Þessi fiskur hafði
verið veiddur af sjómönnum frá
Urk, sem er mikilvægasti út-
gerðarbær Hollands. Nú er það
svo að allan veiddan fisk verður
að skrá í sjávarútvegsmálaráðu-
neytinu. Það eru fyrirmæli Efna-
hagsbandalagsins svo hægt sé að
fylgjast með því hvort aðildar-
löndin fari eftir settum reglum.
Hollenskum sjómönnum og út-
gerðarmönnum finnst að þeim
hafi verið úthlutað alltof litlum
hlut og viðurkenna opinberlega
að þeim sé akkur í því að gefa
upp aflann í nafni annarra í von
um að halda eigin kvóta opnum.
Því svo lengi sem kvótinn hefur
ekki verið fylltur er skipunum
leyfilegt að sigla.
Ástæðan fyrir því að ákveðið
var að banna allar veiðar á þorski
frá og með 23. nóvember síðast-
liðnum var að Hollendingum
jafnt sem öðrum aðildarþjóðum
var kunnugt um að meir hafði
verið fiskað en leyfilegt var og
gefið hafði verið upp. Starfs-
menn hollenska sjávarútvegs-
ráðuneytisins eru dreifðir um
hafnir Hollands þar sem þeir
fylgjast með því að þorskveiði-
banninu verði íramfylgt. Það er
þó erfitt að koma sjómönnum og
útgerðarmönnum í skilning um
að það sé betra að stoppa núna.
Annan daginn eftir að bannið tók
gildi voru tólf skip staðin að
verki og aflinn gerður upptækur.
í samtali við d’Langstraat,
ritara sjávarútvegsráðuneytis-
ins, kom fram að útgerðarmenn
muni stefna hollenskum yfir-
völdum vegna þess skaða sem
þeir telja sig verða fyrir. For-
svarsmenn þeirra fullyrða að ef
yfirvöld hefðu ekki verið svona
kærulaus síðustu árin við eftir-
litið hefði ekki þurft að koma til
algers fiskveiðibanns. Fram til
þessa hafa samskipti ráðuneytis-
ins og útgerðarmanna verið lík
tveim skeljum hörpudisks sem
eru tengdar einum og sama vöðv-
anum. Ut á við opnuðust þær og
lokuðust á sama tíma. Nú virðist
aftur á móti sem að eitthvað
bjáti á. Það er von því fyrir
hollensk yfirvöld er mikilvægt
að halda uppi góðum samskipt-
um við önnur lönd EB og greini-
legt að þau hafa kosið að spyrna
ekki lengur gegn þrýstingi ann-
arra aðildarríkja.
Dæmi um þá hörku sem er að
færast í leikinn er að fram-
kvæmdastjóri fiskmarkaðarins í
Urk var settur í fangelsi þar til
endanleg rannsókn hefur farið
fram á hans hlut í því að falsa
opinberar skýrslur. Einnig
ákváðu útgerðarmenn og sjó-
menn að þeir myndu sigla á
miðin sama hvað hollensk yfir-
völd segðu. Skipin frá Urk lögðu
því af stað og ekki er ljóst hvað
hollensk yfirvöld muni gera. Að
mati sjómanna eru hollensk yfir-
völd ekki sá aðili sem á að segja
þeim fyrir verkum heldur
„Drottinn". Lögbókin er biblían
og í henni stendur ekkert um
aflakvóta og fiskveiðibann.
hefðu rænt vélinni. Mifsud kvað
fyrri yfirlýsingu yfirvalda um að
borin hefðu verið kennsl á lík
þriggja ræningja rangar. Eins og
málum væri nú komið virtist fram-
burður farþega um að ræningjarn-
ir hafi aðeins verið þrír vera rétt-
ur.
Haft er eftir vestrænum stjórn-
arerindrekum að síðastnefndir
hefðu báðir borið marokkönsk
vegabréf og yfirvöld á Möltu segja
að sá, sem lifði af, hafi verið með
vegabréf frá Túnis í sínum fórum
og þar hafi staðið að hann héti
Omar Marzouki. Stjórnvöld í Túnis
segja að vegabréf hafi aldrei verið
gefið út á þetta nafn í landinu.
Komið hefur fram að tveir hátt-
settir, bandarískir herforingjar
flugu með egypsku stormsveitun-
um, sem gerðu áhlaup á egypsku
farþegaþotuna, til Möltu. Banda-
rísk yfirvöld vilja halda þessu
leyndu af ókunnum orsökum. En
haft er eftir heimildarmanni á
Möltu að Bandaríkjamennirnir
hafi veitt stormsveitarmönnunum
tæknilega aðstoð. í Washington
fékkst uppgefið að tveir embættis-
menn úr bandaríska hernum hefðu
verið með í förinni, en þeir hefðu
hvorki veitt tæknilega aðstoð, né
tekið þátt í björgunaraðgerðinni.
Grikkir lýstu yfir því í dag að
lítill samstarfsvilji Egypta og
Möltubúa stæði rannsókn á flug-
ráninu fyrir þrifum. Vélin var á
leið frá Aþenu til Kaíró þegar
henni var rænt.
„Við sendum lögregluforingja til
Möltu og átti hann að yfirheyra
farþega. En yfirvöld á Möltu neit-
uðu að aðstoða hann,“ sagði ráðu-
neytisstjóri öryggismálaráðuneyt-
isins, Costas Tsimas. „Egyptar
hafa hefdur ekki veitt okkur þær
upplýsingar, sem okkur vantar, og
við verðum að þreifa okkur áfram
í myrkri,“ bætti Tsimas við.
Tsimas staðfesti að fjórir arabar
hefðu verið handteknir á hóteli í
Aþenu á sunnudag, en taldi ólík-
legt að þeir væru flæktir í málið.
„En svo virðist sem þeir séu með
fölsuð vegabréf og því er mál
þeirra í rannsókn," sagði Tsimas
að lokum.