Morgunblaðið - 05.12.1985, Qupperneq 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985
MANN
VINURINN
MIKLI
Bókin um stofnanda Rauða Kross-
ins og fyrsta handhafa friðarverð-
launa Nobels. Bók um ótrúleg örlög
og baráttu. Nú, í fyrsta skipti á ís-
lensku.
RAIHH KROSS ISLANDS
REYKJAVÍKURDEILD.
Sannleikur-
inn bítur best
Svar vid grein Sigrúnar Þorsteinsdóttur
— eftir Harald G.
Blöndal
Það er tilefni greinar þessarar,
að þriðjudaginn 22. október sl.
birtist í Morgunblaðinu grein eftir
Sigrúnu nokkra Þorsteinsdóttur,
undir fyrirsögninni „Svínin éta
afkvæmi sín“.
Þessi ritsmíð Sigrúnar var við
fyrsta yfirlestur sveipuð svo dökk-
um þokubökkum, að örðugt reynd-
ist að ná áttum og samhengi. Um
síðir varð þó ljóst að hér var á
ferðinni ein afkáraleg samsuða
pólitískrar framagirni, sem byggj-
ast átti á líkingamáli, er sótt skyldi
í dýrafræðina.
Ekki tókst þó betur til en svo,
að ósannindi, ranghugmyndir og
smekkleysa sökktu á svipstundu
því pólitíska fleyi, sem hún hugðist
hrinda úr vör út á stormasamt
útháf stjórnmálanna.
Ekki ætla ég að karpa við Sig-
rúnu Þorsteinsdóttur um stjórn-
mál. En þar eð þessi klaufskagrein
hennar grundvallaðist á illa les-
inni dýrafræði, er rétt að veita
henni nokkra tilsögn um þessa
merkilegu skepnu, svínið.
Orðatiltæki
íslenzkan er litríkt mál og orða-
tiltæki ýmis sótt til dýra á láði og
legi. Þannig má bæði fara með lof
og last. Líkingarnar hafa hins
vegar löngum þótt umdeilanlegar.
Mætti nefna til ýmis dæmi:
1) Þú ert nú meiri þorskurinn,
asninn, sauðurinn; um þá, sem
ekki þykja stíga í vitið.
2) Bölvaður hundurinn; þorpar-
inn.
3) Bölvuð rottan; um svikulan
mann og undirförlan.
4) Hann er hænuhaus; um mann
sem stígur ekki í vitið eða þolir
ekki að drekka mikið áfengi.
5) Hún étur eins og skepna, étur
eins og svín; um konu eða mann,
sem éta af mikilli græðgi eða
áfergjulega.
6) Bölvað kvikindið þitt; um vond-
an mann eða illgjarnan. Orðið
kvikindi þýðir annars dýr, skepna.
7) Að vera eins og ljón í búri; vera
órólegur, ókyrr.
8) Að vera ljóngáfaður; bráð-
greindur. N.B. svín eru miklum
mun greindari en ljón.
9) Að vera nautheimskur; um
þann sem ekki stígur i vitið.
10) Það er einhver hundur í hon-
um; hann er í vondu skapi.
Þannig mætti lengi telja. Enn-
fremur rúmlega eitthundrað máls-
hætti sem sækja líkingu í búpening
og aðrar skepnur, en ég læt þetta
duga.
Hid sanna eðli svína.
Þess skal þá fyrst getið, að svín
eru að eðlisfari mjög þrifalegar
skepnur og líður illa, sé ekki hirt
um þau af alúð og natni. Það er
misskilningur að skepnur þessar
séu óþrifalegar að eðlislagi — og
sá misskilningur er vafalaust til
kominn af vondri umhirðu manna.
Svín eru ekki grimmar skepnur.
Þvert á móti eru þau ljúfgeðja,
vinaleg og ákaflega forvitin.
Græðgi svína er engu meiri en
annarra dýra, en þau eru lystug
vel og hafa oft hátt í matmálstíma.
En slíkan klið má og heyra í
mannmörgum stórveizlum.
Svín eru vandmeðfarnar skepn-
ur í allri umhirðu. Manninum svip-
ar til svínanna að því leyti, að
honum hættir til offitu, ef aðgát
er ekki höfð um mataræði.
Rangt er að gyltur ráðist á af-
kvæmi sin og éti þau. Móðurást
gyltunnar er mikil. Varkárni þess-
arar stóru skepnu i umgengni við
afkvæmi sín er ákaflega aðdáunar-
verð.
Blíðlyndi þessara dýra er með
eindæmum. Má nefna sem dæmi,
að fyrir allmörgum árum var grís
einu sinni gæludýr hjá fjölskyldu
einni hér í bæ. Þetta var lítil gylta,
sem hlaut nafnið Rósalind. Hún
var hvers manns hugljúfi. Á kvöld-
in var hún þvegin í baðkari fjöl-
skyldunnar og að því loknu vissi
hún að komið var að náttmálum.
Hún svaf í rúmum barnanna á
nóttunni. Þegar hún stækkaði varð
hún eðlilega heldur fyrirferðar-
mikil í umgengni og varð að hverfa
á fyrri heimaslóð. En sorg barn-
anna og eftirsjá var mikil við þá
brottför.
Hvað veit Sigrún
Þorsteinsdóttir?
Víst er að mannvonska er mikil
í heiminum. Samviskulausir menn
véla og afvegaleiða börn og ungl-
inga með tálbrögðum og gylliboð-
um út í afbrot og eiturlyfjaneyzlu.
Haraldur G. Blöndal
„Víst er að tilfinningalíf
dýranna er engu
ómerkilegra en mann-
anna. Gyltan hefur ást
á afkvæmum sínum og
móðurástin er slík, að
sérhver kona má þykj-
ast fullsæmd af að gera
jafn vel.“
En veit Sigrún Þorsteinsdóttir, að
svín hafa verið notuð víða um heim
til að leita uppi eiturlyf í skipum,
flugvélum og öðrum farartækjum?
Einnig við leit að eiturlyfjum í
varningi ýmsum með afargóðum
árangri.
Veit S.Þ. að vefi úr svínum má
græða í menn? Slíkt hefur verið
gert með góðum árangri víða um
heim.
Veit S.Þ. að merkir áfangar í
sambandi við líffæraflutninga og
höfnun vefja og líffæra hafa náðst
við tilraunir á svínum.
Veit S.Þ. að vefjum og líffærum
svína svipar mjög til mannsins?
Veit S.Þ. að úr svínaskít vinna
Brasilíumenn eldsneyti á bifreiðir
sínar?
Veit S.Þ. að svínið er með al-
greindustu skepnum í dýraríkinu?
Það er t.d. mun greindara en
hundurinn, sem löngum hefur þótt
mikil gáfuskepna.
Veit S.Þ. að svínarækt er bú-
grein, sem ekki nýtur neinna ríkis-
styrkja?
Veit S.Þ. að svínakjöt er ekki
niðurgreitt?
KENWOOD
BESTA
ELDtlÚStlJÁLFm
anna
l
THORN
HEIMILIS- OG RAFTÆKJADEILD
TRAUST MERRI MEÐ ARATUGA REYNSLU A ISLANDI
Fullkomin varahluta- og viðgerðaþjónusta
NMMHMM