Morgunblaðið - 05.12.1985, Qupperneq 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985
t
Móöir okkar,
GUÐRÚN EINARSDÓTTIR,
Lækjargötu 18, Akurayri,
er látin.
Stella Stefánsdóttir,
Stefán Þorgeirsson,
Einar Þorgeirsson,
Pátur Þorgeirsson.
t
Eiginmaöur minn
FREDRICK R. DALY
varð bráökvaddur aö heimili sínu í Washington, laugardaginn
30. nóvember.
Svala Benediktsson Daly.
t
Systir mín, móöir okkar, tengdamóöir og amma,
INGVELOUR STEFÁNSDÓTTIR,
Silfurgötu 15, Stykkishólmi,
veröur jarösungin frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 7. des-
ember kl. 14.00.
Rútuferö veröur frá BSÍ um morguninn. Þeim sem vildu minnast
hennar er vinsamlegast bent á St. Fransiskuspítalann i Stykkis-
hólmi.
Eyjólfur Stefánsson,
Guðlaug Ágústsdóttir, Guómundur Kolb. Björnsson,
Snorri Agústsson, Helga Steingrímsdóttir,
Pétur Ágústsson, Svanborg Siggeirsdóttir,
Eyþór Ágústsson,
Valdímar Ágústsson,
Stefán Ágústsson
og barnabörn.
t
Hjartkaer eiginkona min, móöir okkar, tengdamóöir og amma,
ELÍN SIGRÚN AÐALSTEINSDÓTTIR,
frabakka 8, Reykjavík,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 6. þ.m. kl.
15.00. Jarösett verður í Gufunesgrafreit.
Guöbrandur Guömundsson,
Guömundur Guöbrandsson,
Sigriöur Guöbrandsdóttir, Konráó Konráósson,
Björk Guöbrandsdóttir, Sveinn M. Sveinsson,
Vigdfs Edda Guöbrandsdóttir,
Aöalsteinn Hólm Guöbrandss.,
Þuríöur H. Guöbrandsdóttir
og barnabörn.
t
Útför eiginmanns míns og fööur okkar,
MAGNÚSAR PÁLMASONAR
fyrrverandi bankarítara,
Safamýri 54,
fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 6. desember kl. 13.30.
Guóbjörg Erlendsdóttir,
Kristín Magnúsdóttir, Sigurbjörg Magnúsdóttir,
Erla Magnúsdóttir, Hrafnhildur Magnúsdóttir.
t
Faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi
ÞORSTEINN HANNESSON,
Laugateig 3,
verður jarösunginn frá Laugarneskirkju föstudaginn 6. desember
kl. 13.30.
Ásdís Þorsteinsdóttir, Wolfgang Stross,
Hrefna Þorsteinsdóttir, John Milner,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
JÓNÍNA STEINUNN JÓNSDÓTTIR
frá Ekru,
Efstasundi 43,
sem andaöist 26. nóvember veröur jarösungin frá Fossvogskirkju
í dag, fimmtudaginn 5. desember kl. 3 e.h.
Guóbjörg Jónsdóttir,
Jón Jónsson,
Þorgeröur Jónsdóttir.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
GUÐRÚNAR GUOMUNDSDÓTTUR,
Bárugötu 31.
Hafsteinn Jónsson,
Áróra Pálsdóttir.
Minning:
Þórarínn Kristjáns-
son, Patreksfirði
Faeddur 4. október
Dáinn 26. nóvember 1985
Er mér var tilkynnt að vinur
minn og félagi væri dáinn, setti
mig hljóðan. Hvers vegna hann,
sem gneistaði af lífsfjöri og krafti
eldhugans og átti svo margar
framtíðaróskir enn óuppfylltar, að
þar var lífsstarf og framtíðarsýn
til margra ára óplægður akur?
En vegir guðs eru órannsakan-
legir og ekki okkar að dæma um
hans vilja, þó nærri sé höggvið og
fólk í blóma lífsins kvatt til starfa
í guðs ríki. Sagt er, að „þeir deyi
ungir, sem guðirnir elska".
Tóti, eins og hann var kallaður
af vinum og félögum, var öllum
sem honum kynntist ógleymanleg-
ur fyrst og fremst vegna þess iífs-
fjörs, sem af honum lýsti, og þess
áreiðanleiks og hreinskilni sem
hann tamdi sér, og var honum
vegvísir á lífsieiðinni. Stundum
virtist hann hrjúfur og kaldur og
umlokinn brynju, sem enginn sá
gegnum. Það var aðeins þegar
honum fannst ómaklega að sér eða
sínum vegið og særðist þá gjarnan.
Hann hafði viðkvæma lund. En
fyrstur var hann ávallt til sátta,
og sættist þá heilum sáttum. Hálf-
velgja var honum ekki að skapi.
Nú sakna margir vinar í stað og
stórt skarð er höggvið í vinahóp-
inn, sem ekki verður fyllt. En
minningin um góðan dreng mun
þar hjálpa til og verða huggun
harmi gegn.
Sérstaklega vil ég þakka vini
mínum samfylgdina frá æsku til
hinstu stundar, og þá ekki síst það
samstarf, sem við áttum í félags-
málabaráttunni í hálfan annan
áratug og allan þann stuðning sem
hann veitti mér í hita leiksins.
Stuðningur hans var ómetanlegur,
sem erfitt verður að þakka sem
skyldi úr því sem komið er. Er ég
nú minnist hans verður mér hugs-
að til eftirfarandi kvæðis Magnús-
ar frá Skógi.
Þaö leynir sér ekki, aö vetur er Kenginn í Rarö,
Kulnað og falliö er laufskrúðið - bjarkanna prýöi,
á farfuglavængi sést blika við bláfjallaskarö,
til blíðheima suðrænni hrekur þá vetrarins kvíði.
Við gætum með fuglunum svifið í suðrænni lönd
og sólar þar notið i vetrarins áhyggjuleysi,
en íslendingseðlið við landið sitt bindur þau bönd,
sem bresta ei sundur, þótt náttúruhamfarir
geysi.
Hver íslenskur þegn, sem því eðli er traustur
ogtrúr,
hann trúir á grómagnsins hækkandi
farsæludaga,
og veit það, að hretviörin breytast í blæþýða skúr
svo bjarkimar skrýðastog lifnar um tún og haga.
En í slandingseðlið á meiri og voldugri mátt,
það meitlar úr gaddinum hjartanna blíðustu
strengi,
og tengir hið grimma og Ijúfasta saman í sátt,
og sólina eygir, þó myrkrið að huganum þrengi.“
Börnum, tengdabörnum, ior-
eldrum, systkinum og vinum sendi
ég samúðarkveðjur. Guð styrki
ykkur og blessi. Minningin um
góðan dreng mun verða ykkur
huggun í harmi.
Hjörleifur Guðmundsson
Það var að kvöldi 26. þessa mán-
aðar að mér barst sú harmafregn
að Tóti frændi væri dáinn. Við svo
skyndilegt og ótímabært andlát
nákomins frænda og æskuleik-
félaga er manni að vonum brugðið.
Úr fylgsnum hugans streyma
fram minningar frá æskuárunum.
t
Eiginmaöur minn, faöir okkar, sonur, bróöir og mágur,
ÞÓR KRISTJÁNSSON,
Lundarbrekku 10,
veöur jarðsunginn frá Bústaöarkirkju föstudaginn 6. desember
kl. 13.30.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á liknarstofnanir.
Elínborg Þórarinsdóttir og börn,
Kristborg Benediktsdóttir, Kristján Oddsson,
Benedikt Kristjánsson, Rósa Kristjánsdóttir,
Sigríóur K. Kristjánsdóttir, Jökull Sigurósson,
Már Kristjánsson, Halla Ásgeirsdóttir,
Oddur Kristjánsson, Hafdis Siguröardóttir.
t
Þökkum innilega sýnda samúö og vinarhug viö lát og útför
mannsins míns, fööur og afa,
ÞÓRDAR JÓHANNS MAGNÚSSONAR
frá Flateyri,
Vallartröö 3, Kópavogi.
Anna Trygg vadóttir,
Tryggvi Magnús Þóróarson,
Agnes Þöll Tryggvadóttir.
t
Þökkum auösýndan vinarhug viö andlát og jaröarför móður okkar,
KRISTÍNAR EINARSDÓTTUR
frá Seyöisfirði.
Jón örn Ingvarsson, Guðbjörg Guömundsdóttir,
Ólafur Ingvason, Ásta Þórólfsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför,
GERDAR GUÐMUNDSDÓTTUR
hjúkrunarkonu,
Akurgerði 9, Reykjavík.
Sérstakar þakkir eru til lækna og starfsfólks gjörgæsludeitdar
Borgarspítalans.
Sigurgeir Jóhannesson,
Sigurvin J. Sigurgeirsson,
Ólafur Sigurgeírsson, Auöur Ingólfsdóttir,
Ingigeröur Sigurgeirsdóttir, Björn Sæmundsson
og barnabörn.
Ég minnist þess hve gott var að
koma með Tóta heim til Boggu
frænku og Palla, það brást ekki
að þar fengju svangir strákar eitt-
hvert góðgæti til að seðja hungrið
eftir leiki og ærsl úti. Mikil áföll
hafa dunið á fjölskyldunni að
Hlíðarvegi 2. Fyrst verða þau fyrir
óbætanlegu tjóni er snjóflóð féll á
byggðina, Palli hefur átt við erfið
veikindi að stríða, og nú er Tóti
allt í einu burt kallaður. Það er
einlæg ósk mín Boggu og Palla til
handa að þegar sárin taka að gróa,
munibirta ennáný.
Eitt af því fyrsta sem upp í huga
mér kom, þegar ég fór að rifja upp
minningar frá æskuárunum, var
smáferð sem við fórum í frænd-
urnir. Þetta var fyrsta útilega þess
er þetta ritar, ferðafélagarnir voru
Siffi og Tóti. Ekki þætti sú ferð
tilkomumikil í dag, en í okkar
augum var hún ævintýri. Mig
minnir að við höfum verið 11-12
ára gamlir. Þetta var dæmigerð
helgarútilega, einhver ók með
okkur inn á Hlaðseyri, fyrir innan
ána rétt þar hjá sem stóð þvotta-
hús Magnúsar bónda var slegið
upp tjaldi. Var nú unað við leik í
fjöru og um holt og móa. Dagurinn
leið fljótt og fyrr en varði var langt
liðið á nóttu. Skemmst er frá því
að segja, að þegar þreyttir strákar
skriðu í sína svefnpoka var allt
matarkyns uppurið. Við urðum að
leita ásjár hjá Magnúsi og
Guðnýju daginn eftir, þar sem
okkur var heilsað með nýbökuðum
pönnukökum og spenvolgri ný-
mjólk. Þannig var hungurvofunni
bægt frá það sinnið. Margs er að
minnast, af nógu er að taka.
Seinna meir, þegar kom til alvöru
lífsins, fóru strákar eins og títt er
í sjávarplássum, að vinna við fisk-
verkun og það sem til féll. Tóti var
atorkusamur ungur piltur, og mjög
fljótlega var hann orðinn vakt-
formaður við fiskimjölsverksmiðju
H.P.P. á Patreksfirði. Þegar verk-
smiðjustjóri, Kristinn heitinn
Guðmundsson, féll frá, langt um
aldur fram, var Tóta falið að sjá
um stjórnun verksmiðjunnar. Tóti
var þá kornungur maður, en þetta
sýnir best að til hans var borið
fullt traust, þó ungur væri að
árum. Árið 1962 festi Tóti kaup á
íbúð á Aðalstræti 43. Þar stofnaði
hann heimili með unnustu sinni,
Egilínu Guðmundsdóttur.
Tóti og Lillý gengu í hjónaband
þann 6. febrúar árið 1965. Börn
þeirra urðu tvö, Óðinn, fæddur 22.
febrúar 1963, hann stundar nú
nám í verkfræði við Háskóla ts-
lands. Óðinn er heitbundinn Dýr-
leifi Guðjónsdóttur frá Patreks-
firði. Seinna barn þeirra er Kristin
Elínborg, fædd 24. desember 1964.
Kristín býr með Sigurjóni Her-
mannssyni.
Tóti og Lillý slitu samvistum.
Auk þeirra starfa sem áður voru
talin gegndi Tóti trúnaðarstarfi
fyrir Verkalýðsfélag Patreksfjarð-
ar, hann var ritari þess um árabil
og varaformaður frá síðastliðnu
ári. Árið 1979 þegar verksmiðja
sú, þar sem Tóti hefði starfað hart
nær tuttugu ár, var lögð niður hóf
hann störf hjá Patreksfjarðar-
hreppi, þar sem hann starfaði
síðast. Nú þegar frændi minn er
lagður upp í sína hinstu för, á vit
hins ókunna, bið ég þann sem stýr-
ir stjarna her að sefa sorgir þeirra
sem um sárt eiga að binda. Ég og
fjölskylda mín sendum börnum
hans, foreldrum og systkinum
okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Magni Steingrímsson