Morgunblaðið - 05.12.1985, Síða 67
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985
67
Gerir þaÖ
vel, sem
hún fæst við
Hljómplötur
Sig. Sverrisson
Madonna
Like a Virgin
Sire/Steinar
Lengi vel hélt ég því fram að
Madonna væri ekkert annað en
ljóslifandi dæmi um poppstjörnu
sem sköpuð væri nánast úr engu.
Stelpa með sæmilega rödd,
„dressuð upp“, auglýst í bak og
fyrir og síðan skellt á breiðskífu
með tilheyrandi auglýsinga-
skrumi, sem hefði rétt eina ferð-
ina hitt í mark. Sumsé: Madonna
væri ekkert annað en afkvæmi
markaðsaflanna sem svo miklu
ráða í poppinu.
Fyrst þegar ég hlustaði á plöt-
una Like a Virgin var ég enn
sama sinnis en síðan vék þessi
skoðun smám saman fyrir stað-
reyndunum. Madonna er reyndar
ekki nema miðlungi góð söng-
kona að mínu mati, hefur hvorki
breitt raddsvið né tiltakanlega
sterka rödd. En hún gerir það
vel, sem hún fæst við, það verður
ekki af henni skafið. Hún semur
líka ágætis lög, þótt ekki eigi hún
hlutdeild í Like a Virgin og
Material Girl. Reyndar er ég ekki
frá því að hennar lög, sem hún
semur í samvinnu við Steve Bray,
séu í það heila tekið betri en
önnur lög plötunnar.
Upptökustjórn á þessari plötu
er í höndum hins velþekkta Nile
Rodgers en ekki get ég sagt að
mér finnist hún neitt sérlega
aðlaðandi, stundum allt að því
flatneskjuleg. Þá finnst mér
undirleikur á plötunni stundum
með allra „simplasta" móti, nán-
ast vélrænn.
Þegar hafa þrjú lög af Like a
Virgin, fyrstu breiðskífu Ma-
donnu, komist inn á topp-10 í
Ameríku ef mér skjátlast ekki.
Þrír aðilar hafa orðið svo frægir
að koma 4 lögum af sömu breið-
skífunni inná topp-10 vestra;
Michael Jackson, Lionel Richie
og Huey Lewis and the News.
Hver veit nema Madonna afreki
slíkt hið sama? Við hlið hinna
þriggja fyndist mér hún samt
ansi fölleit.
TÓNLEIKAR
PASS
í kvöld
1
V^terkurog
k/ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
* *
+ 5
^ STJÖRNUKVÖLD
ír í ÞÓRSCAFE *
★
Anna Vilhjálms.
Einar Júlíusson
Jóhann Helgason
Magnús Þór Sigmundsson Jóhann G. Jóhannsson
Núferhverað
veröasíðasturað
fimP,'fahiðfrá h®ra
f,mmstJörnukvöW.
Pónik og Einar leika
fyrir dansi
Óli og Júlli sjá
um diskótekið
Húsið opnað
kl. 19,00
Pantið borð
í síma 233 33
Baldur Brjánsson
sýnafötfrá
versluninni Tangó
Jólaglögg, jólapakkar
Jólagott - I-Gott - I-Gott
(eðabaranammi)
HOUJWððD
Það er alltaf eitthvað að ske í Hollywood
Opið öll kvöld
v