Morgunblaðið - 05.12.1985, Page 75

Morgunblaðið - 05.12.1985, Page 75
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER1985 75 MÚSÍKFÓLK-TÓNUSTARNEMAR NÝLEIÐ FYRIR ÞÁ SEM VANITAR i HGÁMEÐ KAUPRÉTnNDUM Heimsþekktmerki: Schimmel • Bluthner • Zimmermann • Förster • Rönisch • Hupfeld á þessum nýju kjörum: Fer inn á lang flest heimili landsins! El Salvador-nefndin á íslandi gengst fyrir fjársöfnun á næstunni um allt land til stuðnings sjúkrastöð í Santa Barbara, rétt hjá höfuð- borginni San Salvador í El Salva- dor. Söfnunin er studd af ýmsum aðilum svo sem BSRB og ASÍ auk nokkurra verkalýðsfélaga. Félög þessi munu ekki styrkja söfnunina beint með fjárframlögum heldur sjá um dreifingu upplýsingabréfa til aðildarfélaga sinna. Haukur Már Haraldsson sagði á blaðamannafundi til kynningar söfnuninni að nefndinni hefði borist beiðni frá sjúkrastöðinni um að standa undir rekstrarkostnaði hennar í eitt ár. Hinsvegar treysti nefndin sér ekki til þess en setur sér nú það markmið að safna 400.000 krónum, sem á að nægja fyrir rekstri stöðvarinnar í þrjá mánuði. Stríð geisar enn í landinu og beinast nú loftárásir fyrst og fremst að þeim svæðum, sem að einhverju eða öllu leyti hefur tek- ist að losa sig undan valdboði ríkisstjórnarinnar. „Á þessum svæðum reyna íbúarnir að halda uppi skólastarfi, heilbrigðisþjón- ustu og annarri félagslegri þjón- ustu, sem tilheyrir hinni nýju E1 Salvador sem íbúanna dreymir um,“ að sögn Hauks. Ragnar Stefánsson sagði að heilbrigðisþjónustan væri erfið í landinu og afar skammt á veg komin og hefur stríðið síst bætt ástandið. „Til sveita er t.d. aðeins einn læknir á hverja 25.000 íbúa. Læknadeild háskólans í San Salvador var eyðilögð af stjórnar- hernum 1980 og síðan hafa læknar ekki fengið formlega menntun í landinu. Gegn þessu ástandi hafa íbúar landsins brugðist með því að byggja upp sínar eigin sjúkra- stöðvar og sínar eigin heilsugæslu- sveitir en oft með ómetanlegum stuðningi hjálparsamtaka erlend- is.“ Gerðir hafa verið sérstakir söfn- unarbaukar, sem sendir verða á söfnunarstaði auk þess sem at- hygli manna verður vakin með veggspjöldum um söfnunina. Sér- staklega er þess farið á leit við lyfjaseljendur að þeir gefi þau lyf til söfnunarinnar sem komin eru fram yfir dagstimpil sinn vegna lyfjaskorts þar í landi. Framlög í söfnunina má síðan leggja á gíró- reikning 303-26-10401. Leiðin sem við bjóðum hentar bæði til að kynnast vel hljóðfæri sem ætlunin er að eignast - og létta átakið sem til þess þarf. • Leigusamningur er gerður til a.m.k. 12 mánaða. • Verð hljóðfærisins er óbreytt allt leigutímabilið. • Leigutaki getur gert kaupsamning hvenær sem er á tímabilinu og fengið allt að 6 mánaða leigu dregna frá kaupverðinu. • Mánaðarleigan er 2,2% af útsöluverði hljóðfærisins. MQTO Lampar&iglerhf Suðurgötu 3 Reykjavík Sími91-21830 Píanóstólar og bekkir ávallt í úrvali. Seljum og útvegum blásturs- og strengjahljóðfæri ásamt fylgihlutum frá Mittenwald í V.-Þýskalandi. Vanti ykkur Ijós í húsið eða gler á lampa þá leitið til okkar. Úrval af gæðavöru á hagstæðu verði. Á myndinni eru frá vinstri: Einar Ólafsson, Haukur Már Haraldsson og Ragnar Stefánsson, meðlimir í El Salva- dor-nefndinni. Morgunblaðið/Bjarni Fjársöfnun til styrktar sjúkrastöð í E1 Salvador BOSS KEIMUR FYRIR KARLMENN Clara Laugavegi 15 — Sævar Karl Ólason — Snyrti- vörubúðin Glæsibæ — Elín Hafnarfirði — Rakara- stofan Suðurlandsbraut 10 — Apótek Keflavíkur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.