Morgunblaðið - 04.01.1986, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. JANÚAR1986
Ráðuneytið frestar
innheimtu vöru-
gjalds af kökum
Innheimtan óframkvæmanleg, segja bakarameistarar
A FUNDI Landsambands bakara-
meistara, sem haldinn var í gær, var
komist að þeirri niðurstöðu að bak-
arar treystu sér ekki til að inn-
heimta vörugjald af kökum sam-
kvæmt ákvörðun fjármálaráðuneyt-
isins.
„Eins og vörugjaldið liggur fyrir
í dag sjáum við ekki nokkra mögu-
leika á að fara að kröfu ráðuneytis-
ins við innheimtuna," sagði Jó-
hannes Björnsson formaður
Landssambands bakarameistara.
„Eftir viðræður við fulltrúa
ráðuneytisins höfum við hafnað
þessum tilmælum, sem eru ákaf-
lega óljós og alls ekki hægt að
vinna eftir. I viðræðunum kom
fram að ráðuneytið hyggst skoða
málið nánar og hafa þar með við-
urkennt að ákvæðið um vörugjald
er ekki nægjanlega skýrt. Það er
því augijóst að fresta verður
álagningu vörugjaldsins. Okkur
bakarameisturum finnst vöru-
gjaldið vera ómakleg árás fjár-
málaráðherra á stéttina. Þarna er
verið að leggja skatt á neytendur
sem við neitum að innheimta
vegna þess að það er ekki fram-
kvæmanlegt."
Lárus Ögmundsson deildarstjóri
tekjudeildar fjármálaráðuneytis-
ins sagði að ákveðið hefði verið að
fresta gildistöku vörugjaldsins
fram til 13. janúar á meðan verið
væri að fara betur ofan í saumana
á framkvæmdahlið málsins. Það
væri lágmarkskrafa að gjaldendur
vissu hvernig þeir ættu að standa
að greiðslum og innheimtu á vöru-
gjaldinu.
Flugslysið út af Reykjanesi:
F-15 talin öruggasta
orustuþota flughersins
EKKERT er vitað um orsakir flug-
slyssins út af Reykjanesi, þar sem
F-15-orustuþota varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli fórst á fimmtu-
daginn þar sem hún var á æfingar-
flugi ásamt tveimur öðrum F-15-
þotum. Flugmaðurinn er talinn af.
Að sögn Friðþórs Eydal, blaöafull-
trúa varnarliðsins, verða engar upp-
lýsingar um orsakir slyssins látnar í
té fyrr en að lokinni rannsókn, sem
gæti tekið a.m.k. mánuð. Það stóð
til að fljúga yfir slysstaöinn í gær,
en það reyndist ekki mögulegt
vegna slæms veðurs.
Friðþór sagði að nú lægi ljóst
fyrir að annar hinna orustuflug-
mannanna hefði orðið vitni að
slysinu. „Hann sá þotuna steypast
í sjóinn og varð ekki var við að
flugmanninum tækist að skjóta
sér út úr flugstjórnarklefanum.
Allar sögusagnir um að flug-
maðurinn hefði sést í sjónum eru
því úr lausu lofti gripnar. Enn-
fremur hefur engin staðfesting
fengist á því að flugmaðurinn hefði
tilkynnt bilun skömmu áður en
slysið varð,“ sagði Friðþór. Stað-
fest hefur verið að áhafnir varnar-
liðsþyrlanna, sem komu á vettvang
skömmu eftir að slysið átti sér
stað á fimmtudaginn, hafi séð brak
úr vélinni í sjónum ogolíublett.
Flugmaðurinn sem fórst var
kapteinn Steve Jessor Nelson, 31
árs, frá Springfield í Oregon-fylki.
Hann var ókvæntur og barnlaus.
Kapteinn Nelson hafði starfað hér
á Keflavíkurflugvelli í 57. orustu-
flugsveitinni frá því í júní 1984.
Hann útskrifaðist frá háskóla
flughersins árið 1978 og hafði síð-
an verið í þjálfun sem orustuflug-
maður. Það eru 12 ár síðan 57.
orustuflugsveitin á Keflavíkur-
flugvelli missti síðast flugvél, en
það var í júní 1973. Þá týndist
F-102 þota í Faxaflóa.
Að sögn Friðþórs Eydal er þetta
43. F-15-þotan sem bandaríski
flugherinn missir síðan vélarnar
voru teknar í notkun árið 1974, og
hefur 21 flugmaður farist. Að
meðaltali þýðir þeta að 3,6 þotur
farist á hverja 100 þúsund flug-
tíma. Friðþór sagði að flugherinn
teldi F-15 eigi að síður sína örugg-
ustu orustuþotu.
Unnið að slökkvistörfum í Hafnarfirði síðdegis í gær.
Margunblaðið/Július
Timburhús eyði-
lagðist í bruna
í Hafnarfírði
GAMALT tveggja hæða íbúðarhús
úr timbri viö Tjarnarbraut 15 í
Hafnarfirði gjöreyðilagðist í bruna
í gærdag. Ibúarnir voru fjarver-
andi.
Slökkviliði Hafnarfjarðar
barst tilkynning um að eldur
væri laus í húsinu klukkan 16.24
og var allt tiltækt lið hvatt á
vettvang. Að sögn slökkviliðs-
manna leit í fyrstu út fyrir að
auðvelt yrði að ná tökum á eldin-
um. En þá hvessti skyndilega og
eldurinn læsti sig um allt húsið.
Það var einangraö með sagi og
spæni og breiddist eldurinn út
með einangruninni. Það tók
slökkviliðsmenn rúma tvo tíma
að ráða niðurlögum eldsins og
þurftu þeir að nota mikið vatn
og rífa húsið að innan sem utan
til að komast að eldinum. Talið
er að eldurinn hafi komið upp í
eldhúsinu.
Margeir
enn efstur
MARGEIR Pétursson vann í gær-
kvöldi skák sína við enska stór-
meistarann Plaskett í sjöttu umferð á
alþjóðlega skákmótinu í Hastings í
Englandi. Margeir heldur því enn
forystu sinni á mótinu, hefur hlotið 5
vinninga af 6 mögulegum.
Jóhann Hjartarson gerði jafntefli
við spánska stórmeistarann Bellon
í gær. Áður hafði hann teflt biðskák
sína við Conquest frá Bretlandi og
skildu þeir einnig jafnir. Jóhann
hefur því 4 vinninga og er jafn
Sovétmanninum Mikhailehisin með
4 vinninga. í öðru sæti er Watson
frá Englandi með 4 'k vinning, en
Greenfield er þriðji með 4 vinninga
og biðskák.
í dag teflir Margeir við sovéska
stórmeistarann Balashov, en Jó-
hann við Watson.
Kaupfélag
Svalbarðseyrar;
Öllu starfs-
fólki sagt
upp störfum
Akurey r i, 3. janúar.
ÖLLU starfsfólki Kaupfélags Sval-
barðseyrar, 70-80 manns, var sagt
upp störfum fyrir áramót.
Að sögn Karls Gunnlaugssonar,
kaupfélagsstjóra, eru flestir þeirra
meö þriggja mánaða uppsagnarfrest
og sagði Karl vinnu vera í fullum
gangi hjá fyrirtækinu á öllum sviö-
um.
Eins og fram hefur komið á
kaupfélagið við verulega fjárhags-
örðuleika að etja og hafa forráða-
menn þess rætt við forystumenn
Kaupfélags Eyfirðinga um hugs-
anlega sameiningu eða yfirtöku
KEA á KSÞ á Svalbarðseyri - ell-
egar leigu á fyrirtækinu sem nú
virðist sennilegasta lausnin. Ráð-
gert er að viðræðufundir aðilanna
hefjist að nýju áður en langt um
líður.
Hvaleyri hf. og Samherji hf. hafa niakaskipti á togurum:
Togarinn Maí fer til Akureyr-
ar, en Helgi S. til Hafnarfjarðar
FYRIRTÆKIN Hvaleyri hf. í Hafn-
arfirði og Samherji hf. á Akureyri
hafa haft makaskipti á togarunum
Maí, sem hefur verið í eigu Hval-
eyrar, og togbátnum Helga S, sem
Samherji keypti nýlega af Fisk-
veiðasjóði. Helgi S verður því fram-
vegis gerður út frá Hafnarfirði, en
Maí siglir til Akureyrar þar sem
skipið verður væntanlega tekið til
gagngerðrar viðgerðar. Tryggingar-
mat togarans Maí var í sumar um
97 miiljónir króna, en Helgi S er
metinn á um 70 milljónir. Samherji
greiðir 24 milljónir á milli með yfir-
töku lána, sem á togaranum Maí
hvfla.
„Við gerum þetta fyrst og fremst
til að tryggja hráefnisöflun og
atvinnu við frystihúsið. Maí er með
ónýta vél og okkur hefur ekki
tekist að fá nauðsynlega fjár-
magnsfyrirgreiðslu til að leggja út
í viðgerð á honum,“ sagði Jón
Friðjónsson, framkvæmdastjóri
Hvaleyrar. Hann sagði að líklega
kostaði 55—60 milljónir króna að
gera togarann Maí fullkomlega
upp. Helgi S kemur til Hafnar-
fjarðar um miðja næstu viku.
Hann verður skírður Einir, en
fyrir á útgerðarfyrirtækið togar-
ann Víði, sem áður hét Apríl.
Hvaleyri hf. er í eigu Samherja
hf. (40%), nokkurra eigenda Hag-
virkis (40%), fyrirtækisins sjálfs
(10%) og Jóns Friðjónssonar for-
stjóra (10%). Um 100 starfa hjá
fyrirtækinu.
Forseti íslands veitir
þrjú prófessorsembætti
Bandaríski fiugkapteinninn sem
fórst. Hann hét Steve Jessor Nelson,
31 árs, ókvæntur og barnlaus.
Ekki met-
sölubókin
í MORGUNBLAÐINU í gær
var ranghermt að bók Alistair
MacLean, Njósnir á hafinu,
hafi verið metsölubók síðasta
árs. Hið rétta er að hún var
mest selda bókin dagana 18. til
24. desember samkvæmt könn-
un Kaupþings. Upplýsingar um
söluhæstu bækur ársins 1985
munu liggja fyrir síðar.
FORSETI íslands veitti nú um áramótin þrjár prófessorsstöður við Háskóla
íslands. Einnig veitti mcnntamálaráðherra tvær lektorsstööur og sex dós-
entsstöður við Háskóla íslands.
Forseti íslands veitti Gunnlaugi
Geirssyni embætti prófessors í
réttarlæknisfræði við læknadeild
Háskóla íslands frá 1. janúar.
Aðrir umsækjendur voru Bjarki
Magnússon og Ólafur Jensson.
Þórdísi Kristmundsdóttur var
veitt embætti prófessors í lyfja-
gerðarfræði við læknadeild-lyfja-
fræði lyfsala. Um þetta embætti
sótti einnig Þorsteinn Loftsson.
Embættið var veitt frá 1. janúar.
Þorsteini Helgasyni var veitt
embætti prófessors í bygginga-
verkfræði við verkfræðideild Há-
skóla íslands frá 15. september
1985. Um embættið sótti einnig
Guðni A. Jóhannesson.
Menntamálaráðherra setti
Matthías Viðar Sæmundsson í
stöðu lektors í íslenskum bók-
menntum við heimspekideild Há-
skóla íslands frá 1. janúar til 31.
ágúst. Aðrir umsækjendur voru
Árni Sigurjónsson, Ásdís Egils-
dóttir, Helga Kress, Sigrún Dav-
íðsdóttir og Örn Ólafsson.
Ólöf Þórhildur Ólafsdóttir var
skipaður dósent í frönsku við
heimspekideild frá 1. janúar. Aðrir
umsækjendur voru Hanna Stein-
unn Þorleifsdóttir og Petrína Rós
Karlsdóttir.
Ólafur Steingrímsson var skip-
aður í hlutastöðu dósents í sýkla-
fræði frá 1. janúar 1986 til 30. júní
1990. Enginn annar sótti um stöð-
una.
Baldur Símonarson var skipaður
dósent í lífefnafræði við lækna-
deild frá 1. janúar. Hann var eini
umsækjandinn.
Eiríkur Rögnvaldsson var skip-
aður lektor í íslensku (málfræði)
við heimspekideild frá 1. janúar.
Umsækjendur auk hans voru
Eyvindur Eiríksson, Halldór Ár-
mann Sigurðsson, Kjartan G. Ott-
ósson og Magnús Snædal Rós-
bergsson.
Guðjón Magnússon var skipaður
í hlutastöðu dósents í félagslækn-
ingum við læknadeild frá 1. janúar
| 1986 til 30. júní 1987.