Morgunblaðið - 04.01.1986, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 4. JANÚAR1986
3
Heilsugæslu-
stöðíVesturbæ
reist í Grjóta-
þorpinu
BORGARSTJÓRN sain-
þykkti á fundi sínum sl.
fimmtudagskvöld ályktun
frá heilbrigðisráði um heilsu;
gæslustöð í Vesturbæ. I
ályktuninni er gert ráð fyrir
að komið verði á fót heilsu-
gæslustöð í fyrirhugaðri
byggingu á horni Garða-
strætis og Vesturgötu. Stærð
stöðvarinnar á að vera miðuð
við það að hún þjóni íbúum
Vesturbæjarsvæðis.
Að sögn Páls Gíslasonar borgar-
fulltrúa er gert ráð fyrir því að
heilsugæslustöðin verði um 450
fermetrar og með aðstöðu fyrir 2
til 3 lækna. Páll sagði ennfremur
að þarna væri fyrirhugað að reisa
5 hæða hús með bílageymslu á
neðstu tveimur hæðunum, en
heilsugæslustöðin verður á sömu
hæð og fyrirhuguð þjónustumið-
stöð fyrir aldraða. Á tveimur efstu
hæðunum er síðan gert ráð fyrir
20 til 30 íbúðum. Páll sagði að
nauðsynlegt hefði verið að sam-
þykkja byggingu heilsugæslu-
stöðvarinnar strax svo hægt væri
að hefja framkvæmdir strax á
næsta ári. Skipulagsnefnd hefur
samþykkt bygginguna svo nú er
hægt að fara að teikna húsið, sagði
Þjónustumiðstöð og íbúðir fyrir aldraða ásamt heilsugæslustöð fyrir Vesturbæ við Garðastræti, Vesturgötu og Mjóstræti. Frumdrög, þverskurður og útlit.
Mælikvarði: 1:200. Þannig mun byggingin líta út séð frá Vesturgötu. Neðst er Vesturgata 3, þá hið nýuppgerða hús Vesturgata 5 og hin nýja bygging efst.
Páll að lokum.
Eins og sjá má á meðfylgjandi
myndum þá er búið að ákveða form
hússins en að öðru leyti er hönnun
hússins á frumstigi. Frumdrög þau
sem skipulagsnefnd hefur sam-
þykkt eru eftir arkitektana Hjör-
leif Stefánsson og Stefán Stefáns-
son. Það var framkvæmdanefnd
borgarinnar vegna stofnana í þágu
aldraðra sem lét hefja hönnun
hússins.
Neskaupstaður:
Háhyrning-
arnir leika
listir fyrir
bæjarbúa
Neskaupstaö, 3. janúar.
STÓR háhyrningstorfa lónað
hér um fjörðinn í allan dag
Léku háhyrningarnir listir sín
ar um allan fjörö í góða veðr-
inu, bæjarbúum til óblandinn-
ar ánægju. Háhyrningarnir eru
að elta síld inn í fjörðinn en
slík heimsókn þeirra er frekar
óvenjuleg.
Nú eru skipin sem óðast að
tygja sig til veiða. Magnús fór
af stað í dag. Beitir fer vænt-
anlega í kvöld og Börkur ein-
hvern næstu daga, en unnið
hefur verið að stækkun lest-
arrýmis hans á Seyðisfirði.
Togararnir fara út aðra nótt.
Allharður árekstur varð
hér í dag er tveir fólksbílar
skullu saman. Slys urðu ekki
á fólki en bílarnir eru.stór-
skemmdir. Áreksturinn' varð
hér skammt innan við bæinn.
Sigurbjörg
HANN GILDIR VIÐA
VINNINGSMÐINNILANDAPARÍS
VINNINGARNIR ERU HUNDRAÐ TAISINS OG HVER VINNINGSHAFIHEFUR
FRJÁIST VAL MILU ALLRA EFTIRTAUNNA FERÐA:
Krossanes
seldi í Hull
KROSSANES SU seldi í Hull á
föstudagsmorgun 66,5 tonn fyrir
3.639.800 krónur, eða krónur 54,71
á kílóið. Aflinn var aðallega þorsk-
ur. Ekki bárust fregnir af fleiri söl-
um íslenskra fiskiskipa á fostudag-
inn.
7 daga ferö fyrir fjóra. hvaöan sem er af
landinu. Gisting á nýju hæöinni á Hótel
KEA. Morgunveröur atta morgna. Kvöld-
veröur fyrir 4 í Sjdttanum og miöar á
sýningu hjá Leikfélagi Akureyrar. Bíla-
leigubíll allan tímann og 700 km akstur
innifalinn.
SKÍDAÆVINTÝRI í AUSTURRÍKI
Tveggja vikna dvöl fyrir tvo í paradís
skiöafóiksins. Sölden í Austurriki. Gisting
og morgunveröur á Hótel Sport Alm.
5 daga skíöakennsla innifalin.
VEGLEG VIKA í NEW YORK
7 daga ferö fyrir tvo. Gisting á hinu
þekkta hóteli New York Penta. Sigling í
kringum Manhattan eyjuna, ásamt 2 leik-
húsmiöum á t.d. Cats.
SÓLSKINSDAGAR Á KANARÍEYJUM
10 daga Kanaríeyjaferö fyrir tvo. Dvaliö i
2ja herbergja íbúöum í hinu glœsilega
íbúöahóteli Barbacan Sol. Gisting og
morgunveröur á Hótel Pulitzer í
Amsterdam eina nótt á hvorri leiö.
ER ÞINN MIDI LÍKLEGUR TIL VINNINGS?
VARLA NEMA ÞÚ BORGIR HANN
Loðnuskip á
leið á miðin
LOÐNUSKIP eru nú að búast aftur
til veiða eftir jólaleyfi loðnusjó-
manna. Fyrstu skipin héldu á miðin
á föstudaginn og var búist við að
flest loönuskip yrðu komin á sjó nú
um helgina.
L A N D A P A R * I s
H A p p D R A T T I / E R N D \ R I