Morgunblaðið - 04.01.1986, Síða 5

Morgunblaðið - 04.01.1986, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 4. JANÚAR1986 5 Gagngerar breytingar á rekstri Hollywood GAGNGERAR breytingar eru fyrir- hugaöar á skemmtistadnum Hollywood í Reykjavík nú á næstu vikum. Er þar bæöi um að ræða breytingar á innréttingum svo og rekstrar- og skipulagsbreytingar og aö sögn Olafs Laufdal, veitinga- manns, er ætlunin að höfða til eldri gesta, en þeirra sem sótt hafa stað- inn að undanförnu. Gert er ráð fyrir að þessar breytingar verði komnar til framkvæmda í febrúar næstkom- andi. Öllu starfsfólki Hollywood var sagt upp störfum nú um áramótin og kemur uppsögnin til fram- kvæmda 1. febrúar næstkomandi. Ólafur Laufdal sagði að gripið hefði verið til uppsagnanna til að auðvelda framkvæmd þessara fyr- irhuguðu breytinga og hefði fólk- inu í flestum tilfellum verið boðið önnur störf, í Broadway og á Hótel Borg. Breytingar, eins og þær sem nú væru fyrirhugaðar yrðu hins vegar ekki gerðar nema með nýju fólki. „Rekstur Hollywood hefur geng- ið mjög vel allt frá upphafi og má segja að staðurinn hafi gengið af sjálfu sér nú í átta ár,“ sagði Ólaf- ur. „Ég held samt að nú sé rétti tíminn tii að breyta til, því þegar staður hefur gengið svona lengi, með svo til óbreyttu rekstrarformi, er alltaf hætta á vissri stöðnun. Og ég vil að það komi skýrt fram að þetta er ekki gert vegna rekstrarörðugleika. Hollywood var á síðasta ári fjölsóttasti staður á landinu miðað við sölu aðgöngu- miða. Þróunin hefur hins vegar verið sú, að aldur gesta hefur farið lækkandi og með þessari breytingu vil ég reyna að höfða til aðeins eldri gesta og umfram allt að bjóða upp á eitthvað nýtt og það er ein- mitt hugmyndin að baki þessum breytingum," sagði Ólafur Lauf- dal. Heilbrigðisráðherra hefur gefíð út reglugerð um tóbaksvarnir: „I fundarherbergjum er óheimilt að reykja nema með leyfi allra... “ Heilbrigðisráðherra hefur gefið út reglugerð um tóbaksvarnir á vinnu- stöðum á grundvelli laga um tób- aksvarnir frá 28. maí 1984. í 1. grein segir að markmiðið sé að tryggja aö starfsmenn, sem ekki reykja, verði ekki fyrir skaða og óþægindum af völdum tóbaksreyks á vinnustað sínum. í 2. grein eru ákvæði, sem tak- marka tóbaksreykingar. Þar segir í 2. málsgrein: „í vinnurými, þar sem tveir eða fleiri starfsmenn vinna eru tókbaksreykingar óheimilar, nema skv. samkomulagi starfsmanna og vinnuveitenda og skal þannig frá málum gengið að reykingar valdi ekki óþægindum fyrir þá, sem ekki reykja." I þriðju málsgr. segir: „í kaffi- og matstof- um má heimila reykingar á sér- stökum afmörkuðum svæðum, samkvæmt samkomulagi stjórn- enda og starfsmanna. Þar sem því verður við komið skal húsnæði skipt þannig að annars vegar séu reykingar leyfðar en hins vegar ekki. Þannig skal frá málum geng- ið að reykur berist ekki yfir á reyklausa svæðið." „í fundaherbergjum er óheimilt að reykja nema með samþykki allra viðstadda," segir í 4. málsgr. og sú 5. hljóðar svo: „í lyftum eru tóbaksreykingar óheimilar." Þá er kveðið á um, að séu reykingar leyfðar í búnings- og fataherbergj- um, snyrtiherbergjum og salern- um og á göngum og í forstofu sem ekki er ætluð almenningi til notk- unar skuli haga þeim samkvæmt samkomulagi starfsmanna og vinnuveitenda. Þó sé óheimilt að reykja sé almenningi ætlaður aðgangur að snyrtiherbergjum og salernum, göngum og forstofu. í 5. grein reglugerðarinnar er kveðið á um eftirlit og viðurlög. Þar segir: „Telji starfsmaður regl- ur þessar brotnar og náist ekki að leysa ágreining sbr. 2. gr. 9. tl. getur viðkomandi kært það til öryggistrúnaðarmanns eða örygg- isnefndar á viðkomandi vinnustað. Sætti starfsmaður sig ekki við úrlausn getur hann skotið málinu til Vinnueftirlits ríkisins. Að öðru leyti fer um brot gegn reglum þessum skv. lögum nr. 74/1979.“ Samkvæmt lögunum eru viður- lög sektir eða varðhald séu sektir miklar eða brot ítrekað og heimilt er að vísa hinum brotlega út, láti hann ekki segjast. Grundarfjöróur: Útgerðarfélag stofnað til til kaupa á Sigurfara II NÝTT útgerðarfélag var stofnað á Grundarfirði í gær, 2. janúar, í þeim megintilgangi að freista þess að kaupa skuttogarann Sigurfara II. Togarinn er nú í eigu Fiskveiðasjóðs, en verður seldur bráölega. Útgerðar- félagið fékk nafnið Siglunes hf. Að sögn Hjálmars Gunnarssonar útgerð- armanns á Grundarfirði var ákveðið aö reyna að safna 30 milljón króna hlutafé. Tæplega 60 aðilar, einstakl- ingar og fyrirtæki, hafa látið í Ijós áhuga og skrifað sig á hlutafélaga- skrá, flestir úr Grundarfirði. Hluta- fjársöfnun stendur til 15 janúar. „Við vitum ekki hvort þessar 30 milljónir nást, eða hvort þær duga í þetta verkefni. Það verður bara að koma í ljós. En það ríkir hér áhugi og almennur vilji til að ná skipinu aftur, enda fylgir því um V.3 af þeim aflakvóta sem hér gæti veiðst," sagði Hjálmar Gunnarsson. Hjálmar sagði Grundfirðingar hefðu átt einstaklega góð áramót, veðurblíða sjaldan verið meiri, eins og segja mætti raunar um árið í heild. „Nú eru menn að byrja að hugsa sér til hreyfings. Runólfur er farinn á veiðar, einn bátur er að beita, sem fer á línuveiðar og ein- hverjir fara til skelveiða næstu daga. Vinna er lítil hér og verður lítil áfram nema eitthvað breytist verulega," sagði Hjálmar Gunnars- son. Skaupið endursýnt SJÓNVARPIÐ hefur vegna fjölda áskorana ákveðið að endursýna Áramótaskaupið, sem sýnt var á gamlársdag. Endursýningin verður í dag, laugardag, og hefst klukkan 18.20. .... ------ Morgunblaðið/Júlíus Ný húsakynni Verzlunar- skólans afhent í dag VERZLUNARSKÓLA íslands verð- ur í dag afhent nýtt húsnæði á Ofanleiti 1 með því að Sigurður Gunnarsson formaður skólanefndar afhendir Þorvarði Elíassyni skóla- stjóra hiö nýja kennsluhúsnæði til afnota við athöfn í nýja skólanum. Athöfnin hefst með því að Ragnar S. Halldórsson formaður Verzlunar- ráðs fslands býður gesti velkomna, en að því búnu flytur Sverrir Her- mannsson menntamálaráðherra ávarp. Er húsnæðið hefur verið af- hent skólastjórn verður það til sýnis. Eftir helgina verður skólastarf- semin flutt úr gamla húsnæðinu við Grundarstíg og munu nemend- ur árdegisbekkja skólans þá koma til skóla á mánudag á venjulegum tíma eða klukkan 08.05, en fram að hádegi verða bifreiðir kennara og nemenda fluttar að nýja skól- anum. Á hádegi koma síðdegis- bekkir skólans og verður þá sam- eiginleg kennslustund og munu kennarar útskýra fyrirkomulag flutninga og kveðja gömlu húsin. Klukkan 12.40, er hringt verður úr síðustu kennslustund, verða flutn- ingabílar komnir á Laufásveg og ber hver nemandi borð sitt og stól í bílana. Síðan ber hver nemandi borð og stól inn í nýja skólann er þangað kemur. Flutningalest skólans mun síð- an ganga frá Grundarstíg fram hjá flutningabílum eftir Laufás- vegi, Hringbraut, Miklubraut, Eskihlíð, Hamrahlíð, Listabraut og á Ofanleiti. Kiukkan 15 er fyrirhugað að hringja til kennslu í síðdegisbekkjum skólans eftir að skólanefnd hefur boðið nemendum gos og kex og kennurum kaffi. Laugardaginn 11. janúar verður síðan hátíðardansleikur í nýja skólanum og fleira sér til gamans gert, m.a. boðhlaup frá Grundar- stíg að nýja skólanum við Ofan- leiti. Tölvustofa Verzlunarskólans nýja. Við eina tölvuna situr Baldur Sveins- son, kennari í tölvufræðum, en hjá stendur Þorvarður Elíasson skólastjóri. Frá og með áramótum verður IKEA-verslunin opin til kl. 18:30 aUa virka daga. Nýr verslunartími IKEA tekur gildi um áramót. Verslun okkar verður framvegis opin sem hér segir: Mánudaga — föstudaga kl. 10—18:30 Laugardaga kl. 10—16 Kringlunni 7 Sími 686650

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.