Morgunblaðið - 04.01.1986, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 04.01.1986, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. JANÚAR1986 Tónlist á íslandi Myndlíst Valtýr Pétursson í Norræna húsinu stendur nú yfir all sérstæð sýning sem nefn- ist Tónlist á íslandi, og eins og nafnið bendir til er hér á ferð sýning, sem gefur yfirlit um sögu tónlistar í landinu allt frá upp- hafi. Nú er ég ekki svo vel að mér í þessari sögu að ég geti dæmt um, hvað nákvæm þessi sýning er og hvað vantar til að allt sé fullkomnað. Það verða aðrir að úttala sig um og því verða þessar línur aðeins til að vekja eftirtekt á skemmtilegri sýningu frá sjónarmiði leik- manns. Þarna getur að líta gömul og sögufræg hljóðfæri, mikið af nót- um og skrifaðri tónlist, fjölda mynda og allt það er tengist tón- list og handbært hefur verið til sýningar. Sumir þeirra hluta sem þarna eru til sýnis eru í eigu opinberra safna eins og Þjóð- minjasafns en ekki var ég þess var að sérstök sýningarskrá fylgdi sýningunni, svo ég tek vara fyrir að rétt sé með farið, en þetta atriði er auðvitað nokk- ur galli á svo fróðlegri sýningu. Að vísu eru allir hlutir vel merkt- ir en það er nú einu sinni þannig að maður vill gjarnan hafa eitt- hvað í höndunum til að styðjast við. Af hljóðfærum má nefna fiðl- una hans Þórarins Guðmunds- sonar, þverflautu Sveinbjarnar Egilssonar rektors og píanóið, sem nemendur Péturs Gudjohn- sens gáfu honum, að ógleymdu gamla orgelinu úr Dómkirkjunni eða réttara sagt reytunum af fyrsta orgeli kirkjunnar, og svo er það grammófónninn með stóru trektinni sem sumir segja, að sé ef til vill fyrsta diskótekið hér á landi. Meira mætti til tína en nægilegt er komið að sinni. Myndirnar eru margar og skemmtilegar. Karlakórar, lúðraþeytarar, söngkvartettar og strengjakvartettar, hljómsveitir alls konar og ég veit ekki hvað. Skrípamyndir eru þarna af fræg- um söngvurum og tónlistar- mönnum. í sem fæstum orðum allt sem augað girnist á þessu sviði. Sérstaklega hafði ég skemmtun af mynd þar sem Páll ísólfsson er að stjórna starfs- mannakór Ríkisútvarpsins, og fremstir eru þar í flokki Helgi Hjörvar, Magnús Jónsson (dós- ent) og Jónas Þorbergsson, óborganleg mynd sem margir munu hafa gaman að. Mynd af kvöldvöku í Mývatnssveit mætti og benda á. Þannig mætti lengi telja en þetta verður að nægja hér. Þarna er svo mikill fjöldi mynda að það tekur langan tíma að kynnast öllu sem á boðstólum er. Það hefði ef til vill verið enn betra að færri myndir hefðu verið á veggjum og efast ég ekki um að þá hefðu hlutirnir orðið eftirminnilegri, en hvað um það. Næst er að benda á mikið af nótum sem yrði of langt mál að telja hér, en allt er þetta forvitni- legt og öll salarkynni Norræna hússins undirlögð. Ég hafði mikla ánægju af að sjá þessa sýningu, en vil enn taka það skýrt fram, að hér er það leikmaður sem fjallar um hlutina en ekki tónlistarmenntaður maður. Það er því opið fyrir sér- fræðinga að fjalla um þessa sýn- ingu þrátt fyrir þessar línur. Svo þakka ég fyrir skemmtilega stund með þessum lúnu myndum ogfallegu hljóðfærum. Ljóð hafa tvær hendur Bókmenntir Jóhann Hjálmarsson Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson: JARÐIJÓÐ Myndskreyting: Guðjón Davíð Jóns- son. Fjölvaútgáfan 1985. Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson hefur sent frá sér nokkrar ljóðabækur, hina fyrstu Ósánar lendur (1977). Auk þess hefur komið frá honum skáldsaga og barnabók. Hann er einnig höfund- ur söngtexta. Þótt Jarðljóð geti varla talist bók sem kemur á óvart ber hún þess merki að um framför hafi verið að ræða í ljóðagerð Aðal- steins Ásbergs. Ljóð hans eru nú mun hnitmiðaðri en áður, betur byggð. Einkum er það lokakaflinn, Víðátta, sem sýnir að hófsöm túlk- un höfundarins dugar honum vel. Til dæmis í ljósi eins ogTvíund: Ljóð hafa tvær hendur. Önnurgefur hin þiggur. Þessar hendur vinna saman. Þú ertljóð með tvær hendur Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson og inni í þér býr söngur sem endalaust hljómar. Ljóðhafatværhendur aðra harða hinamjúka. Tvær hendur aldrei tómar. Ónákvæmni í orðavali eða öllu heldur ómarkvís málkennd spillir að mínu mati sumum ljóðum Aðalsteins Ásbergs. í fyrrnefnd- um kafla er ljóð sem nefnist Til þín 1. í því er talað um „þetta ljóð/ þessi ómstríðu orð“. Ómstríð orð fann ég ekki í ljóðinu. Sama er að segja um Kvöldljóð sem greinir frá því að allt sem okkur mestu varðar gerist „hægt“. Eitt erindið er svona: „Hægt/ einsog falli/ fimbulský/ til jarðar". Ég á erfitt með að hugsa mér slíkt ógnarský á hægri ferð til jarðar, einkum þegar sagt er að það falli. Fleiri slík dæmi mætti tína til úr Jarðljóðum. En þau eru fyrst og fremst til vitnis um að Aðal- steinn Ásberg þarf að huga betur að merkingu og notkun orðanna. Tveir Ijóðaflokkar Jarðljóða, annar í kaflanum Vettvangur og hinn Svið, sanna ekki að höfundin- um láti vel að yrkja löng ljóð. Hann er bestur þar sem hann takmarkað sig hvað mest. Maður hefur á tilfinningunni að sum Ijóð- in séu eins konar söngtextar, samanber f sland og Allt hefur sinn tíma. Léttleiki þessara ljóða sem eru með þeim bestu í bókinni er af þeim toga að þau ná beint til fólks. Svo er um fleiri ljóð bókar- innar. Hvað sem öðru líður eru Jarðljóð mjög geðfelld bók, áfangi á leið höfundar til meiri þroska. Hringekjan heldur áfram Bókmenntir Jóhann Hjálmarsson Dan Turéll: MORÐ í MYRKRI. Jón Gunnarsson íslenskaði. Forlagið 1985. Dan Turéll er meðal kunnari rithöfunda Dana, nýjungamaður í bókmenntum, en hefur eins og fleiri látið það eftir sér að skrifa reyfara. Það ber ekki að harma sé sú bók höfð í huga sem nú er komin út á íslensku og nefnist Morð í myrkri (Mord i morket 1982). Morö í myrkri gerist í Kaup- mannahöfn, nánar tiltekið mið- borginni. Blaðamaður á fertugs- aldri flækist óvænt inn í atburða- rás sem byrjar með morði og leiðir síðan af sér fleiri morð. Morðin tengjast eiturlyfjasölu, vændi og ýmsu öðru sem prýðir undirheima- líf. Að baki eru voldugir menn sem virða mannslíf ekki mikils, en kunna því vel að fá seðlabúnt í hendur. Blaðamaðurinn er klár náungi, ekki beinlínis hófsamur í líferni, en hefur sjálfsvirðingu og sér í gegnum æði margt. Fjölmiðla- heimurinn til dæmis nýtur ekki mikillar virðingar hans. Hann vill ekki dansa með í þeirri samkeppni sem snýst um að selja almenningi æsilegt lestrarefni í formi frétta og fréttaskýringa, efni sem byggist á niðurlægingu og eymd. Morð í myrkri er því öðrum þræði ádeila á æsifréttamennsku í stórborg. Hún er einnig ádrepa sem beinist að lögreglu — og þegar á allt er litið — stjórnvöldum. En hún er líka lofgjörð um hlutina eins og þeir eru, ekki krafa um að hreinsa til. Blaðamaöurinn kann ágætlega við hið spillta umhverfi sitt þrátt fyrir allt. Það er eins konar huggun í eftir- farandi hugleiöingu hans: „Og hvað sem í skærist mundi hringekjan halda áfram. Hótelin mundu opna, þurrka rykið af í skyndi og leigja enn einu sinni út hórdómsflet sín. Mellur yrðu á ferli á hverju kvöldi, eða viðbúnar með handtöskur sínar og mellu- dólgana í grennd. Eiturlyfjasalar yrðu á ferli með allt frá pakistan til prelúdíns á boðstólum, fjár- hættuspilarar mundu auðveldlega finna sér bráð til að féfletta. Bar- þjónar mundu halda áfram að þerra glös sín, opna flösku og þurrka við og við af borðum. Leigu- bílar mundu þeyta flautur sínar, umferðarljós skipta um lit, fólk mundi hittast — og blöðin mundu koma út á hverjum degi.“ Þýðing Jóns Gunnarssonar er langt frá því að vera vond. Ég held að Jóni gæti tekist að þýða vel. En hvað er þetta mundu að gera í tilvitnuðum texta? Hefði ekki verið betra að sleppa því? Morð í myrkri er skemmtileg saga aflestrar. í henni er fullt af mannlegu kryddi og Dan Turéll tekst vel að laða fram andrúmsloft sem er ósvikið, segir heilmikið um borgina Kaupmannahöfn. Rangt föðurnafn RANGT var farið með nafn Arn- þórs Ingólfssonar aðstoðaryfirlög- regluþjóns í blaðinu í gær, en hann var þar nefndur Óskarsson. Blaðið biðst velvirðingar á þessum mis- tökum. Guðspjall dagsins: Matt.2.: Flóttin til Egyptalands DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.00. Dómkórinn syngur. Organleikari Marteinn H. Friöriksson Sr. Hjalti Guömunds- son. ÁRBÆJARPRESTAKALL: Barna- og fjölskyldusamkoma í safnaöarheimili Árbæjarsóknar kl. 11 árdegis. Sr. Guðmundur Þorsteinsson. ÁSKIRKJA: Barnaguösþjónusta kl. 11.00. Guðsþjónusta kl. 14.00. Sr. Halldór Gunnarsson í Holti pród- ikar. Sr. Árni Bergur Sigurbjörns- son. BÚSTAÐAKIRKJA: Barnasamkoma kl. 11.00. Sr. Sólveig Lára Guömundsdóttir. Guðsþjónusta kl. 14.00. Sr. Sig- hvatur Emilsson, Ásum, prédikar. Organisti Guöni Þ. Guðmunds- son. Sr. Ólafur Skúlason. DIGRANESPRESTAKALL: Barnasamkoma í safnaöarheimil- inu kl. 11.00. Guösþjónusta í Kópavogskirkju kl. 11.00. Sr. Þorbergur Kristjánsson. FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guösþjónusta kl. 14.00. Organ- isti Guöný Margrét Magnúsdótt- ir. Sr. Hreinn Hjartarson. GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 14.00. Sr. Auður Eir sóknarprestur prédikar. Organ- isti Árni Arinbjarnarson. Sr. HalldórS. Gröndal. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11.00. Altarisganga. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Þriöju- dag 7. jan.: — Fyrirbænaguðs- þjónusta kl. 10:30, — Beöiö fyrir sjúkum. LANDSPÍT ALINN: Messa kl. 10:00. Sr. Ragnar Fjal- ar Lárusson. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 10.00. Barnaguðs- þjónusta kl. 11.00. Sr. Tómas Sveinsson. Messa kl. 14.00. Sr. Arngrímur Jónsson. Kl. 17:00 og 21:00 heldur organisti kirkjunnar. Orthulf Prunner, orgeltónleika . Dómkirkjunni og leikur sex só- nötur fyrir orgel eftir J.S. Bach. KÁRSNESPRESTAKALL: Messa í Kópavogskirkju kl. 14.00. Organisti Kjartan Sigur- jónsson. Sr. Guðmundur Órn Ragnarsson. LAUGARNESPRESTAKALL: Laugardag 4. jan.: Guösþjónusta í Hátúni 10b 9. hæö kl. 11.00. Sunnudag 5. jan.: Messa kl. 14.00. Þrlöjudag 7. jan.: Bæna- guðsþjónusta kl. 18.00. Sóknar- prestur. NESKIRKJA: Guösþjónusta kl. 11.00. (Ath. breyttan tíma). Sr. Frank M. Halldórsson. Miðvikudag 8. jan.: — Fyrirbænamessa kl. 18.20. Sr. Frank M. Halldórsson. SELJASÓKN: Barnaguösþjónusta í Seljaskóla kl. 10:30. Barnaguösþjónusta í Ölduselsskóla kl. 10.30. Guös- þjónusta í Ölduselsskólanum kl. 14.00. Sr. Jón Bjarman fanga- prestur prédikar. Þriöjudag 7. jan.: — Fyrirbænasamvera í Tindaseli 3, kl. 18.30. Fundur í æskulýösfélaginu í Tindaseli 3 þriðjudag kl. 20.00. Sóknarprest- ur. FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Almenn guösþjónusta kl. 14.00. Ræöuefni: Valdiö og hin varnar- lausu orö. Fríkirkjukórinn syngur messusöngva Sigfúsar Einars- sonar. Söngstjóri og organisti Pavel Smid. Sr. Gunnar Björns- son. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelf- ía: Sunnudagaskóli kl. 10.30. Al- menn guösþjónusta kl. 20. KFUM/K, Amtmannsstíg: Bænastund kl. 20. Almenn sam- koma kl. 20.30. Ræöumaður sr. Helgi Hróbjartsson. Þáttur frá heimsókn í kristniboösstöövar- nar í Kenýa og Eþíópíu. HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudagaskóli kl. 14. Hjálp- ræöissamkoma hin fyrsta á nýju ári kl. 20.30. Sr. Halldór S. Gröndal prédikar. Hátíðarfórn tekin. VÍÐIST AÐASÓKN: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Sr. Sigurður Helgi Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.