Morgunblaðið - 04.01.1986, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. JANÚAR1986
11
Ann Turii Lindstad og Unnur Sveinbjörnsdóttir
Jólatónleikar í Áskirkju
Tónlist
Egill Friöleifsson
Áskirkja 29.12.1985
Efnisskrá: Verk eftir G. Fr. Hándei
Flytjendur: Kammersveit Reykja-
víkur
Einleikarar: Ann Toril Lindstad,
orgel,
Unnur Sveinbjarnardóttir, lágfiöla.
Þá hefur ár tónlistarinnar
runnið sitt skeið, viðburðaríkt
og eftirminnilegt fyrir margra
hluta sakir. Fjöldi tónleika hefur
sennilega ekki verið meiri í
annan tíma og margir þeirra
mjög góðir. Og endaspretturinn
var ekki af lakara taginu. Um
síðustu helgi var opnuð hin
merkasta sýning í sölum Nor-
ræna hússins um tónlist á ís-
landi. Kennir þar margra grasa
og ber þar að finna mikinn fróð-
leik í máli og myndum um tón-
menningu landsins frá fyrstu tíð
til okkar daga. Það var svo
Kammersveit Reykjavíkur sem
rak endahnútinn á þetta tón-
leikaríka ár með ágætum konsert
í Áskirkju sunnudaginn 29. des-
ember sl. þar sem eingöngu voru
leikin verk eftir Georg Friedrich
Hándel, eitt af afmælisbörnum
ársins, en hann, ásamt Bach,
trónir á toppi hins glæsilega
barokktímabils. Þar með hófst
12. starfsár Kammersveitarinn-
ar, en sveitin hefur á þessum
árum sett svip sinn á tónlistarlíf-
ið, aukið á fjölbreytnina og jafn-
an lagt metnað í vandaða og
menningarlega efnisskrá.
Við heyrðum fyrst Concerto
grosso í D-dúr op. 6 nr. 5. Það
voru þau Rut Ingólfsdóttir, Sig-
rún Eðvaldsdóttir og Arnþór
Jónsson, sem „kölluðust áu við
fríðan flokk fiðlunga í þessu
verki, svo úr varð hið ágætasta
eyrnagaman. Largo-þátturinn
var mjög vel leikinn með sínum
hægu, breiðu laglínum.
Ánn Toril Lindstad heitir
ungur norskur organleikari, sem
lék einleik í konsert fyrir orgel
og kammersveit op. 4 nr. 6. Þetta
er ákaflega skemmtileg tónsmíð,
og hljómaði vel þó orgelkrílið í
Áskirkju geti tæpast talist kons-
erthljóðfæri. Ann Toril gerði
hlutverki sínu góð skil. Hún lék
frísklega og ákveðið í góðri
samvinnu við hljómsveitina.
Eftir hlé lék Unnur Svein-
bjarnardóttir einleik í konsertin-
um í h-moll fyrir lágfiðlu og
kammersveit. Og þó leikur henn-
ar væri ekki með öllu hnökralaus
var heildarflutningur góður,
einkum í öðrum þættinum.
Tónleikunum lauk svo með
Vatnasvítu nr. 1 í G-dúr. Tæpast
geta þessir dansar talist til
merkari verka höfundar, en létu
þægilega í eyrum. E.t.v. hefur
hljómur Kammersveitarinnar á
stundum verið safaríkari en í
þetta sinn. Það er hins vegar
tilhlökkunarefni að Kammer-
sveitin fær hinn snjalla Paul
Zukofsky til liðs við sig seinna á
árinu.
Höfundurinn og útgefandinn
Bókmenntir
Siglaugur Brynleifsson
Siegfried Unseld: Der Autor und
sein Verleger. Suhrkamp 1985
Siegfried Unseld er forstjóri
Suhrkamp-útgáfunnar, tók við af
Peter Suhrkamp og nokkru síðar
við sem forstjóri Inselútgáfunnar.
Hann er mikilvirkur höfundur og
meðal rita hans eru: „Hermann
Hesse. Verk und Wirkungsge-
schichte; Begegnungen mit Her-
mann Hesse og Das Tagebuch
Goethes und Rilkes.
í þessari bók birtast ritgerðir
um Hesse, Brecht, Rilke, Walser
og útgefendur þeirra ásamt fyrstu
ritgerðinni um rithöfundinn og
útgefandann, skyldur og tilgang
útgefanda skáldverka.
Unseld rekur skoðanir ýmissa
klassískra höfunda á útgefendum,
og eru þær flestar heldur neikvæð-
ar, og skoðanir síðari tíma höfunda
eru bæði og. „Napóleon var mikil-
menni, hann lét að minnsta kosti
skjóta einn útgefanda", skrifaði
höfundur nokkur í bréfi til út-
gefanda síns. Nú á dögum eru það
einkum höfundar sem verða að
taka afleiðingum samantekta
sinna í þeim ríkjum þar sem rétt-
sýni valdhafa er algjör og allt sem
stangast á við þá réttsýni er til-
ræði við velferð þegnanna og fram-
farasinnuð öfl.
Afstaða útgefandans er þriþætt,
hann verður að taka tillit til höf-
undarins, lesendanna og buddunn-
ar. „Útgáfufyrirtæki eru rekin með
gróðamarkmið fyrir augum, en
jafnframt byggist starfsemi þeirra
á því að gefa út sem bestar bók-
menntir og skáldskap og allur
besti skáldskapur heimsins er ský-
laus í afstöðu sinni með hinu veik-
burða kúgaða gróðasjónarmiði og
öllu því sem fylgir eins og nú
horfir, umhverfiseyðingu og sér-
gæðishyggju. Tvískinnungur hlýt-
ur því að fylgja starfi útgefandas,
„Rollen-Konflikt" sem Di eter E.
Zimmer talar um að geti orðið lítt
þolandi".
Unseld ræðir um stöðu bókar-
innar í tölvuvæddum heimi og þær
spár sem voru mjög uppi fyrir
rúmum áratug eða svo, að bókin
væri búin að vera. Þetta var ekki
nýtt. Um síðustu aldamót var því
spáð að ný tækni í prentun myndi
gera út af við prentun sem listiðn-
að, en einmitt þá voru gefnar út
einhverjar smekklegustu bækur,
sem prentaðar hafa verið. Nú
þegar allt veður í myndböndum,
heimilistölvum og hljómtækjum
og framtíðin er talin munu byggj-
ast á rafeindaiðnaði og tölvuvæð-
ingu eru samskonar spár uppi, um
að bókin sem slík verði algjörlega
óþörf eftir nokkur ár. Marshall
McLuhan spáði því fyrir rúmum
áratug að bókin yrði horfin sem
fjölmiðill um 1980. „Hvað varð um
framvinduna, sem hann spáði?
McLuhan-stofnuninni í Toronto
var lokað einmitt árið 1980“
Tæknin hefur auðveldað fjöl-
földun bókarinnar og hún er nú
handhægasti og ódýrasti fjölmið-
illinn og verður um ókomin tíma-
skeið. Unseld fjallar um bókina
sem fjölmiðil þekkingar og skáld-
skapar í baráttunni fyrir bættum
heimi, húmanisma og skilningi.
Em það hlutverk verður aðeins
rækt þar sem útgefandinn er nokk-
urn veginn frjáls gerða sinna og
„tvískinnungurinn" er viðurkennd-
ur sem forsenda fjölbreytts menn-
ingarlífs.
Unseld segir að bókmenntalegt
útgáfufyrirtæki „miði ekki starf-
semi sína við útgáfu einstefnubók-
mennta, hvað þá metsölubóka, list-
ar yfir metsölubækur dagsins í dag
verða oft grafskriftir yfir þær á
morgun". Fjölbreytni í vali er
aldagömul regla útgáfufyrirtækja,
sem byggist á samskiptum höf-
unda og útgefanda. Höfundurinn
lýsir samskiptum forvera síns,
Peters Suhrkamp, við höfunda og
uppbyggingu fyrirtækisins (Suhr-
kamp) undir stjórn hans og í grein-
arlok telur hann upp þau meginat-
riði, sem hljóti að vera nokkurs
konar leiðarljós útgefanda, sem
áttar sig á ábyrgð sinni og gildi
starfsemi sinnar.
Freud segir einhverstaðar að
skáldið hafi verið fyrsti baráttu-
maðurinn fyrir andlegri einstakl-
ingshyggju í hinu frumstæða
samfélagi frummannsins, þar sem
hin algjöra samfélagshyggja mót-
aði meðvitund hvers einstaklings,
þar sem hópeflið og sameiginleg
meðvitund hópsins réð öllum við-
brögðum. Freud taldi að skáldin
hefðu skapað forsendur menning-
arinnar. Hópeflisstefnur og múg-
hyggja nútímans er jafn andstæð
menningarlífi og hún var í árdaga
og enn er svo að þeir sem afneita
múghyggjunni eru skáld, rithöf-
undar og þeir útgefendur, sem eru
svipaðs sinnis og . útgefendur á
borðviðUnseld.
Meðan kvóti er ekki settur á
útgáfustarfsemi verður hugsun og
skáldskapur ekki fjötraður að
hugmyndum pólitískra hugmynda-
fræðinga um samfélagslega nauð-
syn. Þó eru gerðar tilraunir til
þess að torvelda menningarstarf-
semi þar sem tötra-pólitíkusar
ráða ferðinni, með sköttum og
tollum á andlega starfsemi, skáld-
skap og bókmenntir í gervi bóka-
skatta og tolla og það má eins
búast við því að sömu aðilar færi
sig upp á skaftið og taki að þrengja
að allri þeirri menningarstarfsemi
sem stangast á við þann andlega
kvóta sem þeim hefur hlotnast og
þeim nægir.
Eins og áður segir rekur Unseld
viðskipti Hesse, Brechts, Rilkes og
Walsers í fjórum ritgerðum, sem
eru hver annarri fróðlegri og hluti
bókmenntasögu þessarar aldar.
?11íin-?'n7n S0LUSTJ LARUSÞVALDIMARS
UU *~I,3/U LOGM JOH ÞOROARSON HDL
Opiö í dag kl. 1 til kl. 5.
Viö Landakotstúnið
Elri hæö og rishæð — tvær íbúöir eöa ein stór. Elri hæöin er 106,6
fm að innanmáli. Rishæöin er um 80 fm. Svalir á báöum hæðum.
Inngangur og hitaveita er sér. Teikning á skrifstofunni. Nánari upplýsing-
ar aöeins þar.
Sérbýli í vesturborginni
Endaraðhús skammt Irá Einimel meö 4ra-5 herb. íbúö á pöllum alls
um 165 fm. Skuldlaus. Laust strax. Eignaskipti möguleg.
Á úrvalsstað í Fossvogi
Einnar hæöar raðhús meö bilskúr 203,9 fm nettó. Glæsileg lóó. Eigna-
skipti möguleg. Teikning á skrifstofunni.
í vesturborginni — hagkvæm skipti
Til kaups óskast góö 2ja herb. íbúö. Skipti möguleg á rúmgóóri 3ja
herb. íbúö á Högunum.
Höfum á skrá
SIMAR
Dularfullir menn - og hestar
Bókmenntir
Jóhanna Kristjónsdóttir
Dick Francis: Hrossakaup
Þýöandi: Þuríður Baxter
Útgefandi: Nótt 1985
Ég skal játa að við lestur á kápu-
síðu um efni þessarar bókar var
þetta svona með hálfum huga sem
ég hóf lesturinn. Þar sagði: „Sögu-
hetjan er ungur bankastjóri, sem
lánar stórfé til kaupa á stóðhesti,
sem unnið hefur glæsta sigra á
veðhlaupabrautinni. Markmiðið er
að nota gripinn til undaneldis. En
fiármunir bankans og framavon-
irnar eru í hættu þegar óvænt er
framið morð og fyrstu afkvæmi
hestsins líta dagsins ljós ... illa
vansköpuð." O, jæja, ekki hljómar
þetta nú sérlega girnilega og býsna
fjarri áhugasviðinu. Fyrir utan að
maður veltir fyrir sér hvort unnt
sé að halda spennu í heilli bók
með afkvæmamálum veðhlaupa-
hests.
En þegar nánar er að gáð og
lestur hafinn reynist kynningin á
kápusíðu töluvert misvísandi og
langtum meiri vefur er ofinn í
sögunni en þar segir. Dick Francis
er lagið að segja sögu og skapa
bara snjallar persónur. Og auðvit-
að kemur í ljós að vanskapnings-
málin eru bara lítið brot af langt-
um umfangsmeira glæpamáli en
við fyrstu sýn skyldi ætla. Svo að
maður verður fljótlega áfjáður í
að reyna að rekja úr þráðunum og
finna lausnirnar.
Dick Francis hefur skrifað
aragrúa spennusagna og á stóran
lesendahóp, sjálfsagt hérlendis
líka, þótt ég muni ekki í bili, hvort
aðrar bækur eftir hann hafa verið
þýddar á íslensku. Þótt Hrossa-
kaup sé læsileg bók hefði ugglaust
mátt velja einhverja ívið alþýð-
legri. En breytir ekki að ágæta
afþreyingu má fá af þessari og
þýðing Þuríðar Baxter sýnist mér
sómasamlega gerð.
1 n iftgttttSA
Gódan daginn! s
Fjölda fjársterkra kaupenda. Margskonar eignaskipti möguleg.
Viðskiptin á árinu 1985
Úr meöaltali seldra eigna. Makaskipti ekki meðtalin.
Útborgun var 87,4% af nafnverði eöa 77,4% af raunvirði.
Viö undirritun kaupsamnings og á næstu 29 dögum greiddu kaupendur
aö meöaltali 33,3% af nafnverði eöa 25,8% af raunviröi.
Afhending var aö meðaltali 89 dögum eftir gerö kaupsamnings.
Útborgun greiddist aö meöaltali á 335 dögum.
Hlutfall raunvirðis var aö meöaltali 118,3% miöaö viö fasteígnamat.
Hlutfall raunvirðis var aö meöaltali 94,5% miöaö viö brunabótamat.
Mióaö er við hækkun lánskjaravísitölu á milli ára sem var rúm 39%
og vexti 5% af verðtryggðum skuldum.
Bestu nýársóskir
þökkum viðskiptin
á liðnu ári.
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 21370
Háaleitisbraut
Til sölu snotur 2ja herb. endaíbúö á jaröhæö (kjallara)
á góöum stað viö Háaleitisbraut. Upplýsingar á skrif-
stofu minni í síma 10260 og utan skrifstofutíma 75104.
Kristinn Einarsson hrl.,
Garðarstræti 11.
ALMENNA
FASIEIGNASALAN