Morgunblaðið - 04.01.1986, Page 12

Morgunblaðið - 04.01.1986, Page 12
12_______________MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 4. JANÚAR1986 Enginn er lengur óhult- ur fyrir símanjósnum Samt skella ráðamenn vid skolla- eyrum, segir amerfskur þingmaður — eftirívar Guðmundsson New York: Á nýliðnu ári voru njósnarar á alþjóðavettvangi áber- andi þar sem þeim er síst ætlað að halda sig — í sviðsljósinu. Austan hafs og vestan hefir veriö ljóstrað upp um njósnara, sem stundað hafa iðn sína árum saman og jafnvel í tugi ára, á meðan þeir gegndu háttsettum embættum í föðurlandi sínu. Sumir í ráðuneytisskrifstofum sem trúnaðarmenn valdhafa, jafn- vel hátt sem lágt settir innan hers og flota stórveldis. Jafnvel vinaþjóðir hafa ekki losnað við að vinir þeirra og sam- starfsmenn hafi njósnað hjá þeim. Nokkrir njósnarar hafa komið sér undan hegningu með því að flýja land, er „jörðin var farin að brenna undir fótum þeirra", eins og það er kallað, er þeir finna, að það er að komast upp um þá. Þá er að sjálfsögðu leitað á náðir erlendra húsbænda. Njósnari nokkur gaf sig á vald leyniþjón- ustu þjóðar sem hann átti að njósna hjá. Það þótti heldur en ekki feitur biti, því hann ljóstraði upp um samstarfsmenn sína. Það kom mörgum í bobba sem við var að búast. En svo fékk uppljóstrar- inn heimþrá og sneri við sögunni. Sagðist raunverulega hafa verið tekinn með valdi, eftir að honum hefði verið byrluð ólyfjan. Það sást síðast til kauða, að hann fór bros- andi uppí flugvél frá heima- landinu. En engar sögur fóru af því, hvort hann brosti í annað sinn, er hann lenti hinumegin, enda engar myndir teknar fyrir skjáinn við það tækifæri. Farandnjósnarar að verða óþarfir? Menn eru nú farnir að velta því fyrir sér, hvort ekki sé komið að því, að það, sem kalla mætti far- andnjósnara, sem stunda sín myrkraverk á ferð og flugi, eins og James Bond sællar minningar, séu að verða óþörf og úrelt stétt. Nú sé tæknin til öflunar upplýs- inga á laun orðin það fullkomin, að hægt sé að sitja á sama stað og samt að vera að njósna. í bernsku talsímatækninnar kom það fyrir að njósnað var í síma með því að „koma inná línuna". En nú er orðið sími líka að verða úrelt orð, eða öfugmæli, þar sem símtöl þurfa ekki lengur þráð á milli manna. Nú eru samtöl send í gegnum loftið með örbylgju raf- eindatækni. En þótt ekki sé hægt að hlera samtöl manna, sem þann- ig fara fram með því að „koma inná línuna", er aðferð til að hlera samtöl með þartilgerðum raf- eindatækjum. En það er líka hægt að senda útí geiminn raddir manna, sem koma fram sem óskilj- anlegt þrugl nema að móttökutæk- ið sé svo úr garði gert, að það greiði úr ruglinu í mælt mál. Það er sú aðferð til rafeinda- njósna að fela hljóðnema þar sem menn eru á tali. Nokkur ár eru liðin síðan sendiherra Bandaríkj- anna, Cabot Lodge að nafni, burð- aðist inn á fund Öryggisráðsins með stærðar skjaldarmerki þjóðar sinnar, haglega útskorið og gyllt til að sýna hvernig hljóðnema hafði verið komið fyrir í skildinum. En skjaldamerkið haföi hangið í fundaherbergi sendiráðs Banda- ríkjanna í Moskvu, numið hjal manna þar og svo útvarpað til þeirra, sem vildu vita hvað fram fór milli manna í fundaherberginu. Margar slíkar sögur hafa lengi verið á kreiki og eru enn, enda öllum kunn, sem sækja kvik- myndahús og horfa á sjónvarps- þætti. Jafnvel íslenskir sendiráðs- starfsmenn gætu vafalaust sagt frá reynslu sinni í þessum efnum sem aðrir úr þeirri stétt. Og sumar hlægilegar. Rödd í eyðimörkinni gegn símanjósnum Bandarískur öldungadeildar- maður úr Demókrataflokknum, Patrick Daniel Moynihan, fulltrúi New York-ríkis hefir skorið upp herör gegn símahlerunum. Beinir hann geiri sínum fyrst og fremst að Sovétmönnum í Bandaríkjun- um, sem hann segir, að iðki þetta af miklum ákafa. Hann bendir á, að Rússar velji sér jafnan aðsetur fyrir sendiráð sín og íbúðarhús- næði þar sem hæst ber í byggðar- laginu til að hafa sem besta að- stöðu til símahlerana. Moynihan er formaður öryggis- málanefndar öldungadeildarinnar. Fyrir nokkru sendi hann kjósend- um sínum umburðarbréf, þar sem hann segir sínar farir ekki sléttar til að fá stuðning yfirvalda til að gera ráðstafanir til að stöðva símanjósnirnar, sem hann telur, að enginn sé lengur óhultur fyrir. Hann telur að símahleranir séu brot á mannréttindum og þær séu ólöglegar almennum borgurum. En nú sé svo komið að almenning- ur í Bandaríkjunum megi ekki lengur um frjálst höfuð strjúka á heimilum sínum, né á vinnustað fyrir þessum árásum á einkalíf borgaranna. Öldungadeildarþingmaðurinn er af írskum ættum eins og nafnið bendir til. Var orðinn kunnur fé- lagsfræðingur áður en hann var kjörinn á þing. Hann er ritfær vel eins og svo margir landsmenn hans og fer á kostum í bréfinu. Hér fara á eftir nokkrar glefsur úr því til fróðleiks og skemmtunar. Nelson Rockefeller skýrir frá símanjósnun- um og er áhyggjufullur „Ég var,“ segir Moynihan í upphafi bréfs síns, „skipaður sendiherra hjá Sameinuðu þjóðun- um vorið 1975. Nelson Rockefeller, sem þá var varaforseti, bað mig að líta við hjá sér næst er ég væri á ferð í Washington. Ég gerði það með glöðu geði... Rockefeller sagði mér, aö það fyrsta, sem ég yrði að gera mér ljóst er ég kæmi Allan-skrúfjárnið kostar 12 sent (5 krónur) eða 9.000 dollara (370 þús. kr.) eftir því hver það er sem kaup- ir. til Sameinuðu þjóðanna væri, að Rússar myndu hlera hvert einasta orð, sem ég léti út úr mér í síma, hvort heldur ég væri í einkaskrif- stofu minni í byggingu fastanefnd- ar okkar, eða í sendiherraíbúðinni í Waldorf-turninum. Rússar, sagði hann, hafa komið sér upp einstak- lega fullkomnum símahlerunar- tækjum í þessu skyni, bæði í skrif- stofubyggingu þeirra við 67. stræti og á sveitasetrinu í Glen Cove á Langey. Og það sem mest væri um vert er að þeir hlera símasamtöl frá 22 hæða háhýsi, sem þeir hafa reist til íbúða fyrir sendiráðs- starfsfólk Rússa og fulltrúa frá Sameinuðu þjóðunum. Þaðan gætu þeir fylgst með samtölum yfir alla Manhattaneyju. Ég hélt í einfeldni minni, að hann væri að segja mér leyndar- mál. En hann sagðist hafa verið að reyna að koma þessu á al- mannavitorð. En það væri ekki að sjá að nokkur maður hefði áhuga á þessu. Rockefeller benti á hve hættuleg þessi iðja gæti verið t.d. með því að beita hótunum gagn- vart þeim, sem hefðu talað óvar- lega í síma sinn. Það væri t.d. hægt að nota það til að neyða menn til að njósna fyrir Rússa. „Annars birtum við það sem við heyrðum í símanum." Háttsettur Rússi skiftir lit „Þótt enginn í Washington virt- ist hafa áhuga á þessu máli var mér öðruvísi farið", heldur Moyni- han áfram. „Ég var nýkominn frá Indlandi, þar sem maður lærir fljótt, hvað það getur verið þýðing- armikið að vita hver er á hnotskógi eftir manni. Palestínumenn höfðu nýlega kálað Cleo Noel (insk: sendiherra) í Khartoun nokkrum vikum eftir að ég kom (til Ind- lands) og ég var augsýnilega næst- ur á listanum. Um það leyti, sem ég var að ljúka starfi mínu í New Delhi, var mér orðið ljóst, að það var fyrst og fremst indversku öryggisvörðunum, sem gættu mín, að þakka að ég fór frá Indlandi á fyrsta farrými í flugvél í stað þess að vera sendur í kassa í vörulest- inni.“ „En hvað um það. Sex mánuðum síðar, þann 5. desember 1975, bað starfsmaður fastanefndar okkur um áheyrn. Hann kom inn, lokaði dyrunum vendalega á eftir sér, og skýrði mér frá því, að Arkady Nikolaevich Shevchenko, aðstoða- raðalforstjóri Sameinuðu þjóð- anna, hefði sagt Bandaríkjamanni hjá Sameinuðu þjóðunum, að hann hefði í hyggju að svíkja lit og leita hælis í Bandaríkjunum. Útilokað, Shevchenko æðsti rússneski embættismaðurinn hjá S.Þ. Skjólstæðingur Gromykos, sem tók hann með sér á fundi hjá Polituburo. 47 ára að aldri og þegar talað um hann sem væntan- legan aðstoðarutanríkisráöherra Rússlands. Hann yrði æðsti emb- ættismaður í sögu Sovét Rúss- lands, sem flýði úr stöðu. Beita? Vafalaust. Og þó. Það er ekki hægt að nota mann eins og Shevchenko sem beitu! Við urðum að komast að sannleikanum og það gerðum við. Það gekk. Enda notuðum við ekki fóninn. Ég fór að taka uppá því, að hitta menn að máli á ís- knattleikjum í Madison Square Garden. Það kann að hafa gert gæfumuninn. En hvað um það. Shevchenko leitaði hælis (á laun til að byrja með). Og nú, á þessu ári tíu árum síðar, segir hann frá því í bók sinni „Skilið við Moskva". Þar er einn kafli, sem ég vildi óska aö Rockefeller hefði lifað til að lesa. Hann skrifar um verkefni, sem honum voru fengin til að byrja með hjá S.Þ. og sívaxandi fjölda KGB manna sem voru sérfræðing- ar þjálfaðir í vísindanjósnum: „í Glen Cove,“ skrifar hann, „var fjölgunin furðuleg. Þegar ég kom til Bandaríkjanna í fyrsta sinni 1958 voru 3 eða 4 sérfræðingar í samgöngumálum á vegum KGB með pjönkur sínar. Þeir komu sér fyrir í vistarverum fyrrverandi þjónustufólks í rishæð. En 1973 voru sérfræðingarnir, sem önnuð- ust símahleranir, orðnir að minnsta kosti 12 talsins og höfðu þá lagt undir sig alla rishæðina eins og hún lagði sig. Hafurtask þeirra var svo umfangsmikið að þeir urðu að koma því fyrir í öðru af stærri gróðurhúsunum, sem ekki voru í notkun sem slík. En annað starfsfólk mátti ekki koma í gróðurhúsið." Á þökum sveitaset- ursins í Glen Cove, háhýsinu í Riverdale og húsnæði fastanefnd- ar á Manhattaneyju eru skógar af loftnetum til þess að hlusta á símasamtöl bandarískra borgara. Jimmy Carter lætur sér fátt um finnast „Það næsta sem skeði, skal ég segja ykkur,“ heldur Moynihan áfram, var að ég var kominn í Öldungadeildina, en Nelson Rocke- feller genginn. Mér fannst ég standa í dálítilli skuld við hann. Því var það, í upphafi Cárter- stjórnarinnar, að ég lagði fram frumvarp, og efni þess var eftirfar- andi: Hvenær sem forsetinn hefir ástæður til að halda ... að ein- staklingur, sem öðlast hefir dipló- matíska löghelgi í Bandaríkjunum hafi vísvitandi gerst rafeinda- þefari fyrir erlenda ríkisstjórn, skal forsetinn þegar skipa honum að hætta þeim leik strax og senda hann til síns heima með hraði". Forsetinn var spurður að því á blaðamannafundi hvert hans álit væri á frumvarpinu. „Jæja, sko,“ sagði Jimmy Carter, „vegna ör- bylgju-rafeindatækninnar, sem Þannig lítur það út símatækið, sem kallað hefur verið „öruggt, vinalegt tæki“ gegn símahlerunum. Þetta tæki kostar 10 þús. dollara. Onnur full- komnari gerð kostar 35 þúsund dali. Daniel Patrick Moynihan öldunga- deildarþingmaður. fleygt hefir fram uppá síðkastið hefir það orðið algengt að þjóðir hafa notað sér tæknina. Það er hvorki árás í því né stríð. Það er algerlega einhliða." Hann fjasaði eitthvað meira um þetta og lauk máli sínu með því að segja: „Ég myndi ekki kalla þetta framferði Sovétsamveldisins árásaratriði." „Takk fyrir, höfðingi. Ég sagði aldrei, að þetta væri árásaratriði. En ég sagði, að þetta væru brot á stjórnarskrárrétti bandarískra borgara. Ég fór ekki framá, að hann segði einum eða neinum stríð á hendur. Ég fór framá að hann fylgdi stjórnarskránni, sem hann hefir svarið eið að verja. Sama eið hafa öldungadeilarþingmenn svar- ið.“ Leika sama leikinn „Ríkisstjórnin hafði síðar fyrir- ætlanir á prjónunum. Hún fór að grafa sínar eigin símalínur í jörð. Var stjórninni ljóst að hún var raunverulega að tilkynna, að ríkis- stjórnin hefði hagsmunamál, önn- ur en almenningur í landinu? New York Times taldi að svo hlyti að vera. Blaðiö segir í ritstjórnar- grein: „Þegar deild innan ríkis- stjórnar Bandaríkjanna verður uppvís að ólöglegum símahlerun- um, er ætlast til að ábyrgir lag- anna verðir reyni ekki að gera lögbrjótunum erfiðara fyrir í iðn sinni, heldur segja þeim að hætta. Ef öðruvísi er farið með sovét hlustara, eins og um sé að ræða einhvern leik, þá er það sennilega vegna þess, að við leikum sama leikinn. Við fáum vafalaust mikils- verðar upplýsingar með því að hlusta á Rússa tala saman í síma í Rússlandi. Og kannski eru þær upplýsingar taldar svo þýðingar- miklar fyrir okkur að við snúum blindu auga að, eða verðum heyrn- ardaufir yfir framferði Rússa hjá okkur. Veldur hver á heldur Carter-stjórnin vildi ekki koma nálægt frumvarpi mínu. En nú var ég kominn í þá nefnd innan þings- ins, sem gat kallað yfir sig menn til yfirheyrslu og ég nýtti mér það og gerði ráðstafanir til að kalla fyrir nefndina fulltrúa frá CIA. Ég lagði fyrir hann eftirfarandi spurningu: „Er stofnunin samþykk þeirri skoðun, að þetta „hlutlausa" framferði sé brot á réttindum bandaríkjaborgara samkvæmt fjórðu grein stjórnarskrárinnar þar sem segir m.a.: „Réttur þegn- anna varðandi eigið öryggi, heim- ili, ritað mál og eignir skal ekki skertur". „Nei,“ sagði lögfræðileg- ur ráðunautur CIA. Nei?“ Já það er rétt: „Sjáið þér til, öldungadeild- arþingmaður, fjórða greinin ver yður gegn árás á einkalíf yðar frá yðar eigin ríkisstjórn, ekki erlend- um ríkisstjórnum." SendirádiÖ á hæðinni dregið í sviðsljósiö „Ríkisstjórnir koma og ríkis- stjórnir fara,“ heldur bréfið áfram. En það urðu engar breytingar á afstöðu þeirra til símahlerana Rússa. í lok 1981 ákvað leyniþjón-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.