Morgunblaðið - 04.01.1986, Qupperneq 16
16________
New York:
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. JANÚAR1986
AP/Símamynd
Górilluvinur grafinn
Bandaríska konan Dian Possey, sem kannaði lifnaðarhætti sjald-
gæfra górilluapa á Visoke-fjallinu í Rwanda, var jarðsett í grafreit
skammt frá rannsóknarstöð hennar á fjallinu. Hún var greftruð á
nýjársdag við hlið górilluapa, sem veiðiþjófar felldu árið 1977.
Dian Fossey fannst myrt á annan dag jóla. Leit að banamanni
hennar hefur engan árangur borið, en ekki er þó lokið yfirheyrslum
yfir um 50 mönnum, sem störfuðu í rannsóknarstöð hennar í Visoke-
fjallinu. Lagt hafði verið til Fossey margsinnis með sveðju.
Móðir Teresa opnar
gistiheimili fyrir
alnæmissjúklinga
í kosningunum tókst Þjóðar-
flokknum næstum að tvöfalda
fylgi sitt. Lyfti Westerberg flokkn-
um úr 8 í 14%. Og fylgisaukningin
hefur haldið áfram. Samkvæmt
skoðanakönnunum nýtur flokkur-
inn nú fylgis yfir 20% kjósenda.
Minnsti stjórnarandstöðuflokkur-
inn er þannig allt í einu orðinn
stærstur hinna borgaralegu
flokka.
í skoðanakönnun þeirri, sem
nefnd var hér í upphafi, þar sem
fram kemur, að Westerberg nýtur
trúnaðar 47% aðspurðra, kom Olof
Palme næstur á eftir með 32%,
kommúnistaleiðtoginn Lars Wern-
er með 18%, og Ulf Adelsohn, leið-
togi Moderataflokksins, með 16%.
Að því er Miðflokkinn varðar eru
tölurnar ómarktækar, þar sem
Thorbjörn Fálldin lét af embætti
flokksleiðtoga, meðan á könnun-
inni stóð.
New York, 3. janúar. AP.
NVLEGA opnaði friðarverðlauna-
hafinn og nunnan Móðir Teresa
gistiheimili fyrir alnæmissjúklinga í
New York. Er það til húsa í Green-
wich Village.
Þá hefur Móðir Teresa farið
fram á aðstoð Edwards Kochs
borgarstjóra við að útvega bújörð
í nágrenni borgarinnar, þar sem
unnt verði að hýsa fanga með
alnæmi. Vill hún, að um 50 fangar,
sem eru langt leiddir af völdum
sjúkdómsins, verði leystir úr haldi
og vistaðir þar í umsjá hennar.
Er hugmynd Móður Teresu í
samræmi við starfshætti systra-
reglu hennar, sem annast um
178.000 holdsveikisjúklinga víða
um heim.
Móðir Teresa sagði nýlega í
viðtali í bandarísku sjónvarpi, að
alnæmissjúklingar væru rétt eins
og annaö fólk „börn Guðs og þarfn-
ast umhyggju og umönnunar".
Nýlega voru þrír fangar með
alnæmi á lokastigi látnir lausir og
Móðir Teresa: Alnæmissjúklingar
eru einnig börn Guös og þarfnast
umhyggju og umönnunar.
London, 3. janúar. AP.
BANDARÍKJADOLLARI hækkaði
talsvert í Evrópu í dag eftir að Sat-
oshi Sumita, bankastjóri Japans-
banka, sagði að gengi dollarans ætti
að vera stöðugt í ár og vera um 200
japönsk jen.
Gjaldeyrismarkaðir í Tókýó
voru lokaðir í dag, en þegar gjald-
eyrisverslun lauk í London í dag
kostaði dollarinn 202,35 jen. í gær
kostaði dollarinn 199,35 jen í Lon-
don og var það fyrsta sinni síðan
1979 að gengi dollara fór niður
fyrir200jen.
í London kostaði sterlingspund-
ið síðdegis í dag 1,4730 dollara
(1,44885).
Gengi annarra helstu gjald-
miðla var á þann veg að dollarinn
kostaði 2,4640 vestur-þýsk mörk
(2,43775), 2,0685 svissneska franka
(2,0520), 7,5600 franska franka
(7,4850), 2,7785 hollensk gyllini
(2,7565), 1.681,75 ítalskar Iírur
(1.669,50) og 1,40225 kanadíska
dollara (1,40065).
vistaðir á hinu nýja gistiheimili í
Greenwich Village, en þar er rúm
fyrir 14 sjúklinga.
—47 %Svía bera „mikið traust“ til hans
— fylgi Þjóðarflokksins komið yfir 20 %
Stokkhólmi, 3. janúar. Frá Erik Lidén, fréttaritara Morgunblaösins.
SKÆRASTA stjarnan á hinum póli-
tíska himni í Svíþjóð um þessar
mundir er án alls vafa Bengt West-
erberg, leiötogi Þjóðarflokksins.
Samkvæmt nýlegri skoðanakönnun
bera 47 % Svía, án tillits tii flokks-
banda, „mikið traust“ til hans. Er
þetta metárangur.
Skoðanakannanir eins og þessi
hafa verið gerðar í Svíþjóð reglu-
lega um árabil. Á síðustu tólf árum
hefur það aldrei gerst, að nokkur
flokksleiðtoganna kæmist yfir
40%-mörkin.
Bengt Westerberg tók við for-
ystu í Þjóðarflokknum fyrir rúmu
ári. Samkvæmt skoðanakönnunum
var flokkurinn þá í mikilli lægð;
jafnvel ekki fjarri 4%-markinu,
sem er lágmark til að geta átt
fulltrúa á þingi. Og koma Wester-
bergs virtist ekki breyta neinu
verulegu um vinsældir flokksins
fyrst í stað.
Það var ekki fyrr en á enda-
sprettinum fyrir sænsku þing-
kosningarnar í septembermánuði
á síðasta ári, sem breyting átti sér
stað. Allt í einu tóku vinsældatölur
flokksins stefnuna upp á við, og
settu flestir það í samband við
góða frammistöðu Westerbergs í
sjónvarpskappræðum flokksleið-
toganna skömmu fyrir kosning-
arnar.
Danir og Grænlendingar
deila um utanríkismálin
Stjórnin í Kaupmannahöfn lítiö hrifin af vaxandi sambandi Sovétmanna og Grænlendinga
Kaupmannahöfn, 3. janúar. Frá NiLs Jörgen Bruun, GrenUndsfrétUriUra Morgunblaösins.
LARS Emil Johansen, sem fer með sjávarútvegsmál í grænlensku heima-
stjórninni, vill sjálfur ráða því við hverja hann ræöir við morgunverðar-
borðiö, jafnvel þótt um sé aö ræða Sovétmenn. Svarar hann á þennan
hátt þeirri umkvörtum Uffe Ellemann-Jensens, utanríkisráðherra Dana,
að grænlenskir stjórnmálamenn standi í samningaviðræðum við kollega
sína erlendis án þess að fulltrúi danska utanríkisráðuneytisins sé við-
staddur. Eins og kunnugt er fara Danir með utanríkismálin fyrir hönd
Grænlendinga.
Ástæða fyrir óánægju Elle-
mann-Jensens er sú, að Johansen
var fyrir skömmu í Sovétríkjun-
um og átti þá viðræður við sov-
éska embættismenn um fisk-
veiðisamning milli Grænlend-
inga og Sovétmanna. Grænlend-
ingar hafa auk þess farið til
Kúbu til frekari viðræðna við
Sovétmenn. í viðtali við græn-
lenska útvarpið segir Johansen,
að aðeins hafi verið um að ræða
óformlegar samræður yfir morg-
unmatnum auk þess sem Græn-
lendingar fari sjálfir með sjávar-
útvegsmálin eftir að þeir gengu
úr Evrópubandalaginu.
Um þetta stendur deilan, hvort
fiskveiðisamningar við erlend
ríki skuli heyra undir heima-
stjórnina í Grænlandi eða utan-
ríkisráðuneytið í Kaupmanna-
höfn. Ritzau-fréttastofan hefur
það einnig eftir áreiðanlegum
heimildum, að danska stjórnin
sé ekki of hrifin af, að Sovétmenn
fái fótfestu á Grænlandi þar sem
Atlantshafsbandalagið og
Bandaríkjamenn eru með mikil
varnarmannvirki.
Þessu máli tengist það, að
danska utanríkisráðuneytið hef-
ur hafnað beiðni Kanadamanna
um að koma upp ræðismanns-
skrifstofu í höfuðstaðnum, Nuuk.
Kanadamenn höfðu slíka skrif-
stofu þar áður fyrr og þótti orðið
brýnt að opna hana aftur vegna
þess, að nú hefur verið tekið upp
beint flug milli Kanada og Græn-
lands auk þess sem verulegt
samstarf hefur komist á með
eskimóum í löndunum báðum.
Danir vildu hins vegar ekki verða
við ósk Kanadamanna því að þá
hefði verið erfitt að segja nei við
Sovétmenn. Jonathan Motzfeldt,
formaður landstjórnarinnar,
ætlar að taka þetta mál upp á
næsta ríkisfundi, sem svo er
kallaður, fundi hans, Poul
Schliiters, forsætisráðherra, og
Atla Dam, lögmanns Færeyja.
Það eru ekki aöeins grænlensk-
ir stjórnmálamenn, sem gera sér
dælt við risaveldið í austri, held-
ur einnig grænlenska alþýðu-
sambandið og hefur það vakið
litla hrifningu meðal forystu-
manna dönsku launþegasamtak-
anna. Snemma í sumar fór sendi-
nefnd frá grænlenska alþýðu-
sambandinu til Sovétríkjanna og
nokkru síðar var nefnd manna
frá Sovétríkjunum boðið til
Grænlands á afmælishátíð græn-
lensku launþegasamtakanna.
Var þetta gert án samráös við
LO, danska alþýðusambandið,
sem þó kostar að verulegu leyti
starfsemi grænlenska sam-
bandsins.
Vedur
víða um heim
Lægst Hæst
Akureyri -5 hálfskýjað
Amsterdam -3 2 riqninq
Aþena 10 17 heiðskýrt
Barcelona 14 léttskýjaö
Berlín 0 3 skýjað
Brlissel -2 8 rigning
Chicago -2 2 skýjað
Dublín 1 5 heiðskírt
Feneyjar 1 þoka
Frankfurt 3 4 skýjað
Genf 3 9 skýjaö
Helsinki -10 -10 snjókoma
HongKong 15 19 heiðskýrt
Jerúsalem 7 13 skýjað
Kaupmannah. -4 -2 skýjaö
Las Palmas 19 skýjað
Lissabon 11 15 úrkoma
London 3 5 heiöskírt
Los Angeles 15 19 rigníng
Lúxemborg 4 skýjað
Malaga 15 léttskýjað
Mallorca 14 léttskýjað
Miami 20 25 skýjað
Montreal -11 -3 snjókoma
Moskva vantar
New York 0 8 heiðskýrt
Osló -6 -6 skýjað
Paris 5 8 skýjað
Peking -15 -7 úrkoma
Reykjavik 1 úrk. í gr.
Ríó de Janeiro 20 32 akýjað
Rómaborg 1 12 skýjað
Stokkhóimur -17 -1 snjókoma
Sydney vantar
Tókýó 0 6 skýjað
Vínarborg -3 -1 skýjað
Þórshöfn -1 skýjað
Gengi
gjaldmiðla
Metárangur Bengt West-
erberg í nýrri könnun