Morgunblaðið - 04.01.1986, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. JANÚAR1986
17
Gjaldþrotamálið stóra í Noregi:
Var gífurlegum fjár-
munum komið með
leynd til útlanda?
Osló, 2. janúar. Frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunblaðsins.
NORSKI útgerðarmaöurinn með ís-
lenskulega ættarnafnið - Parley
Augustsson - sem nýlega varð gjald-
þrota, hefur að ölium líkindum
komið gífurlegum fjármunum meö
leynd til útlanda og getur féð skipt
tugum milljóna króna, að sögn
norska útvarpsins. Er þess getið til,
að peningarnir hafi verið lagðir inn
á bankareikninga í Sviss og Licht-
enstein.
Aðalfyrirtæki (af um 150 fyrir-
tækjum) Augustsson, Balder In-
vest, var lýst gjaldþrota í maímán-
uði og dró það nokkur hinna fyrir-
tækjanna með sér í fallinu.
Nú eru kröfurnar í þrotabúið
komnar upp í tæpa tvo milljarða
norskra króna, og því um að ræða
stærsta gjaldþrotamál í sögu Nor-
egs.
Einar Koefoed lögfræðingur, sá
er fer með stjórn þrotabúsins,
segir, að það muni ekki koma sér
á óvart, þó að leitt verði í ljós, að
Augustsson útgerðarmaður hafi
komið fjárfúlgum með leynd til
útlanda. En hann leggur áherslu á,
að réttarrannsókn sé ekki hafin
enn að því er þetta varðar. Lög-
fræðingurinn telur víst, að leit að
þessum fjármunum muni brátt
verða hafin erlendis.
Ítalía:
Höfundur sjónvarpsmynda-
flokksins um Verdi látinn
Tórfni, 2. janúu. Frá frétlaritara Morgunblaósins, Brvnju Tomer.
RENATO CASTELLANI, ítalski
kvikmyndaleikstjórinn, sem meðal
annars gerði sjónvarpsþættina um
Giuseppe Verdi, er nú látinn 72 ára
að aldri, en hann hafði átt við mikil
veikindi að stríða undanfarin ár.
Castellani var mikils metinn og
virtur kvikmyndaleikstjóri, en
hann hóf að vinna fyrir sjónvarp
um 1970. Fyrsta verkefni hans
fyrir sjónvarp var þáttaröð um líf
og starf Leonardo da Vinci, sem
hann gerði 1971. Þættina um
Verdi, sem íslenska sjónvarpið
hefur meðal annars sýnt, gerði
hann fyrir þremur árum, árið 1982.
Castellani fæddist í sjávarþorp-
inu Finale Ligure við Genúaflóa
4. september 1913. Hann nam
arkitektúr í Mílanó en var kallaður
í herinn 1935 og sendur til Austur-
Afríku. Er hann kom aftur til
Ítalíu hóf hann að vinna að kvik-
myndagerð og vann í upphafi með
Blasetti, Salvador Rosa, Camerini
og fleiri þekktum kvikmyndaleik-
stjórum. Fyrsta kvikmynd hans
sem hlaut umtalsverða athygli á
Ítalíu og erlendis var „Tveggja
aura von“ eða „Due Soldi Di Sper-
anza“, eins og hún nefnist á frum-
málinu, sem hann gerði árið 1951.
Grænland:
Lungnakrabba-
mein vaxandi
- í kjölfar aukinna sígarettureykinga
Nuuk, 2.jan. Frá fréttaritara Morgunblaósin.s NJ.
MIKIL aukning sígarettureykinga á
Grænlandi hefur haft í for með sér
fleiri tilfelli af krabbameini í lung-
um á meðal Grænlendinga. Er það
haft eftir J. Brangstrup-Hansen,
aðstoðarlandlækni á Grænlandi, að
æ fleira fólk þar í landi fái lungna-
krabba og standi það vafalaust í
tengslum við vaxandi sígarettu-
reykingar.
Walesa-hjónin með áttunda barnið
AP/Símamynd
Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu í Póllandi, og Danuta, kona hans, eru orðin foreldrar í áttunda sinn. Er átt-
unda barnið stúlka, sem kom í heiminn 28. desember sl. Var þessi mynd tekin af þeim hjónunum á nýársdag
ásamt dótturinni, sem ekki hefur enn verið vatni ausin. nafnið hafa þau þó ákveöið, litla stúlkan á að heita
Brygida Katarzyna.
Ár glataðra tækifæra
í Póllandi segir Walesa
Bruun.
Á árinu 1983 veiktust 33 menn
af lungnakrabba á Grænlandi, en
árið 1968 — eða 15 árum áður —
voru þeir aðeins þrír. Grænlend-
ingar tóku að reykja sígarettur
eftir heimsstyrjöldina síðari. A
tímabilinu 1970 til 1983 hafa síga-
rrettureykingar þeirra aukizt
mjögeða úr 56 millj. í 150 millj.
Varsjá, 3. janúar. AP.
LECH Walesa, leiðtogi Samstöðu,
sagði að pólska ríkisstjórnin stjórn-
aði með „þvingunum og lygum“ og
varaði fólk við að ef svo færi sem
horfði stefndi í óefni með málefni
Póllands, í nýársávarpi til félaga
sinna í hinni óopinberu pólsku
verkalýðshreyfingu.
Hann lýsti síðastliðnu ári sem
ári glataðra tækifæra í Póllandi,
þar sem ríkti efnhagsleg stöðnun,
mannréttindabrot færðust í vöxt
og kerfi kommúnistaflokksins
hefði styrkst. Hann bætti við að
þessi þróun gæfi ekki ástæðu til
bjartsýni. „Stjórnvöld vilja ekki
leita stuðnings í ákveðnum lögum
samfélagsins og kjósa fremur
stefnu þvingana og lyga.“ Hann
sagði ennfremur að yrði reynt að
koma á í Póllandi strangtrúuðu
kommúnísku samfélagi myndi það
mæta andstöðu fjöldans og enda
með skelfingu.
Walesa sagði að á nýju ári byndi
hann helst vonir við þá breyttu
fjöldavitund meðal þjóðarinnar,
sem stofnun Samstöðu hefði meðal
annars valdið fyrir fimm árum
síðan. Benti hann á kosningarnar
í október til pólska þingsins, sem
sýndu að þjóðin væri ekki varnar-
laus. Þá hefðu milljónir Pólverja,
þrátt fyrir margs konar hótanir,
skráð sjálfa sig sem óvini stjórn-
valda, eins og því hefði verið lýst
af opinberum aðilum. Stjórnvöld
segja að 79% hafi kosið í kosning-
unum, en Samstaða segir að það
sé nær lagi að 66% hafi kosið.
Um ástandið í alþjóðamálum
sagði Walesa að fundur leiðtoga
stórveldanna í Genf gæfi ástæðu
til bjartsýni, en lagði áherslu á að
slökun milli austurs og vesturs
yrði að byggjast á fullveldi ríkja
og réttindum sérhvers þeirra til
að velja sér lausnir sem væru í
samræmi við hagsmuni og þjóðleg-
ar hefðir þeirra.
Heimsmeistaratignin í skák:
Reynir Korchnoi
einu sinni enn?
Frakkland:
Verða bréfdúfurnar
kallaðar í herinn?
Sure.snes, Frakklandi, 2. janúar. AP.
FRANSKI herinn, sem fyrir
skemmstu seldi þeim bandaríska
fjarskiptabúnað fyrir 4,3 milljaröa
dollara, treystir ekki á tæknina
einvörðungu. Ef til styrjaldar
kemur og tækniundrin bregðast
verður þaö þrautalendingin að
notast við bréfdúfur.
Áttunda fjarskiptadeild
franska hersins hefur aðsetur á
Valerien-fjalli, hæsta fjallstind-
inum á Parísarsvæðinu, og hefur
hún m.a. í fórum sínum 100 bréf-
dúfur. Þær eru þó aðeins lítill
kjarni því að til eru áætlanir um
almennt herútboð meðal bréf-
dúfna ef til stríðs kemur. í
Frakklandi eru um 35.000 menn,
sem eiga bréfdúfur, og ef þörf
kremur verða þeir skikkaðir til
að afhenda þær hernum.
Bréfdúfa
„Menn hafa notað bréfdúfur í
5000 ár,“ sagði Jean-Pierre
Fauvez, 22 ára gamall hermaður,
sem ber ábyrgð á bréfdúfunum.
„Egypsku faraóarnir notuðu þær,
Grikkir einnig og Rómverjar
urðu fyrstir til að átta sig á
gagnsemi þeirra í stríði."
Þegar Karl Martel sigraði
Araba við Poitiers árið 732 og
forðaði þar með Evrópu frá því
að játast spámanninum í Mekka
skýrði hann frá sigrinum í skila-
boðum, sem hann sendi með bréf-
dúfu. „Sarracenti obtriti", „Serk-
irnir sigraðir", sagði í bréfinu.
í fyrri heimsstyrjöldinni komu
bréfdúfur Frökkum að góðum
notum en í þeirri síðari tóku
Þjóðverjar Frakkland með svo
skjótum hætti að varla gafst tími
til að sleppa fuglunum. Franski
herinn notaði bréfdúfur síðast í
Alsírstríðinu.
Tel Aviv, Locarno, 2. janúar. AP.
VIKTOR Korchnoi, sem nokkrum
sinnum hefur sóst árangurslaust eftir
heimsmeistaratigninni í skák, er
ekki fráhverfur því að gera eina
atlögunaenn.
Korchnoi sagði fyrr á árinu, að
hann væri staðráðinn í að tefla
aldrei framar við Anatoly Karpov,
fyrrverandi heimsmeistara, og
sagði hann um Karpov, að hann
væri „ímynd hins sovéska kerfis,
allt of valdamikill og enginn
happadráttur fyrir skákíþróttina".
Korchnoi var um áramótin í borg-
inni Beersheba í ísrael þar sem
stjúpmóðir hans hefur búið frá
árinu 1982 og í símaviðtali við
hann sagðist hann vera að hugsa
um að reyna enn einu sinni við
heimsmeistaratignina, nú þegar
Kasparov væri orðinn heimsmeist-
ari.
„Kasparov er drengskaparmað-
ur og sinn eigin herra. Hann er
hvalreki fyrir skákíþróttina,"
sagði Korchnoi.
FIDE, Alþjóðaskáksambandið,
hefur gefið út nýja lista yfir sterk-
ustu skákmenn í heimi. Er núver-
andi heimsmeistari, Garri Kasp-
arov, efstur með 2720 stig, Karpov
er næstur með 2700 stig og í þriðja
sæti eru tveir sovéskir skákmenn,
Rafael Vaganian og Artur Yus-
upov, ásamt Jan Timman frá
Hollandi. Eru þeir með 2665 stig.
Efst kvenna er sovéska skákkonan
Maya Chiburdanidze með 2455 stig
og næstar henni þær Pia Cramling
frá Svíþjóð og Zsuzsa Polgar frá
Ungverjalandi með 2400 stig.
Pólland:
Sex létust í
nýársveislu
Varsjá, 3. janúar. AP.
NÝÁRSSAMKVÆMI í borginni
Nova Sol í Póllandi fékk válegan
endi: Sex unglingar létust í svefni í
vcislunni af karbon-monoxíð eitrun
frá ósandi kolaofni.
' Áður en þeir féllu í svefn að
loknum næturlöngum fögnuði,
kyntu unglingarnir upp í kolaofni
í sumarbústað sínum og sakir
eysukulda lokuðu þeir öllum glugg-
um kyrfilega.
Einn drengur vaknaði um morg-
uninn, fór til síns heima og skildi
vini sína eftir sofandi í herberginu.
Súlkurnar fjórar og drengirnir
þrir fundust meðvitundarlaus í
hægindastólum ogfletum.
Fimm unglinganna voru látnir
þegar þeir fundust, einn lést á leið
á sjúkrahús og tókst að bjarga lífi
einnar stúlkunnar.