Morgunblaðið - 04.01.1986, Qupperneq 24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. JANÚAR1986
24
Fimm umferðum lokið á skákmótinu í Hastings:
Margeir Pétursson í fyrsta sæti
Skák
Bragi Kristjánsson
SEXTUGASTA og fyrsta jólaskák-
mótiö í Hastings á Englandi stend-
ur nú yfír. íslendingar eiga tvo
fulltrúa á þessu frægasta móti
skáksögunnar, Jóhann Hjartarson
stórmeistara og Margeir Pétursson
alþjóðlegan meistara. Hastings-
mótin hafa oröið tveimur eldri stór-
meisturum okkar mikilvægur
áfangi á skákferlinum. Friörik Ól-
afsson vakti fyrst verulega á sér
athygli á aiþjóðavettvangi þegar
hann sigraöi ásamt Kortschnoi á
móti 1955—56 og Guðmundur
Sigurjónsson náði stórmeistaratitli
á mótinu 1974—75, þegar hann
varð jafn Vaganjan í öðru sæti.
Ekki má heldur gleyma þriðja sæti
Guðmundar S. Guðmundssonar á
mótinu 1946—47 þegar þátttaka
íslendinga er rædd.
Töfluröð keppenda á mótinu
er nú þessi:
1. Rukavina, alþjóðlegur meist-
ari (Júgóslavíu).
2. Braga, alþjóðlegur meistari
(Ítalíu/Argentínu).
3. Margeir Pétursson, alþjóð-
legur meistari.
4. Plaskett, stórmeistari (Eng-
landi).
5. Balasjov, stórmeistari (Sov-
étríkjunum).
6. Formanek, alþl. meistari
(Bandaríkjunum).
7. Pia Cramling, stórmeistari
kvenna(Svíþjóð).
8. Federovicz, alþl. meistari
(Bandaríkjunum).
9. Conquest, FIDE-meistari
(Englandi).
10. Jóhann Hjartarson stór-
meistari.
11. Watson, alþl. meistari
(Englandi).
12. Greenfeld, alþl. meistari
(ísrael).
13. Mikhalchishin, stórmeistari
(Sovétríkjunum).
14. Bellon, stórmeistari (Spáni).
Þegar þessar línur eru ritaðar,
er lokið 5 umferðum. Margeir
hefur tekið forystuna á mótinu,
hefur 4 vinninga. Hann hefur
unnið þrjár skákir í röð og virðist
líklegur til stórræða. Jóhann
hefur þrjá vinninga og biðskák
við Englendinginn Conquest.
Jafnir Jóhanni í 2.-4. sæti eru
Greenfeld og Watson. ísraels-
maðurinn er sá eini sem líklegur
er til að vinna sína biðskák. í
5.-7. sæti koma Balasjov, Mik-
halscishin og Braga með 3 vinn-
inga hver. Mesta athygli hefur
vakið góð frammistaða Green-
felds, Braga og Conquest, en
slæm byrjun Piu Cramling hefur
einnig komið mörgum á óvart.
fsraelsmaðurinn er skákmeistari
heimalands síns, og er vafalaust
einhver efnilegasti skákmaður
sem komið hefur fram þar í
landi. Braga er Argentínumaður
sem um þessar mundir er búsett-
ur á Ítalíu og ferðast um Evrópu
til að tefla. Hann teflir ef til vill
undir fána ftalíu því sá argent-
ínski er ekki vinsæll í Englandi
eftir Falklandseyjastríðið. Con-
quest er einn margra ungra og
mjög efnilegra skákmanna í
Englandi. Við skulum nú líta á
tvær skákir frá mótinu.
1. umferð:
Hvítt: Margeir Pétursson.
Svart: A. Greenfeld (ísrael)
Drottningar-indversk vörn
1. d4 — Rf6, 2. c4 — e6, 3. Rf3 —
b6,4. Rc3
Margeir leikur venjulega 4. a3
eða 4. g3 í þessari stöðu en leikur-
inn í skákinni hefur varla komið
Greenfeld mjög á óvart, því hann
fylgdist vel með einvígi Margeirs
og Shvidlers í heimaborg sinni í
apríl í fyrra. Leikurinn í skákinni
reyndist Margeiri vel í því einvígi
svo að hann reynir hann aftur á
móti ísraelsmanni.
4. — Bb4,5. Bg5
Margeir lék 5. Db3 á móti
Shivdler.
5. — Bb7, 6. e3 — h6, 7. Bh4 —
Bxc3+
Önnur leið er hér 7. — g5, 8.
Bg3 — Re4, 9. Dc2 — Bxc3+, 10.
bxc3, o.s.frv.
8. bxc3 — d6, 9. Bd3 — Rbd7, 10.
0-0 — De7, 11. Rd2 — g5, 12. Bg3
— h5,13.h4I?
Eftir 13. f3 - h4, 14. Bf2 -
0-0-0, 15. e4 - Hdg8, 16. h3 -
Rh5, 17. c5 — dxc5, 18. Da4 —
Kb8, 19. Bb5 - Hd8, 20. Hfel
kemur upp flókin og vandtefld
staða. Margeir vill ekki gefa
andstæðingi sínum færi á þessari
leið og leikur því leik sem stöðvar
peðaframrás svarts á kóngs-
væng.
13. — Hg8
Sovéski stórmeistarinn Tuk-
makov mælir með 13. — Rg4 í
þessari stöðu. Eftir 14. Hxg5 —
Dxg5,15. Rf3 (hvað annað?) Dg7
hefur svartur mun meira spil en
í skákinni.
14. f3 — 0-0-0, 15. hxg5 — Hxg5,
16. Bh4 — hg7,17. Re4?!
Betra var að valda fyrst g2-
reitinn með 17. Hf2 — Hdg8, 18.
De2, en eftir það á svartur í
erfiðleikum með að verjast mörg-
um hótunum hvíts, 19. e4,19. Re4
eðajafnvel 19. Be4.
17. — Hdg8,18, Hf2
Árleg álfabrenna
haldin á þrettándanum
Akureyri, 3. janúar.
ÁRLEG álfabrenna íþróttafélagsins
Þórs verður haldin á svæði félagsins
í Glerárhverfi á þrettándanum, 6.
janúar, sem er á mánudaginn.
Álfakóngur og drottning koma
í heimsókn ásamt föruneyti sínu,
jólasveinar skemmta, Óskar frá
Iðnaðarbankanum kemur í heim-
sókn, púkar, tröll, Grýla og Leppa-
lúði verða á staðnum svo og Ánd-
rés utangátta og einnig hundar,
gíraffar og asnar. Siðast en ekki
síst verður Bjössi bolla á svæðinu
og Jóhann Már Jóhannsson söngv-
ari skemmtir.
Hjálparsveit skáta verður með
flugeldasýningu við álfabrennuna
eins og hún hefur verið með undan-
farin ár. Aðgangur er ókeypis svo
lengi sem húsrúm leyfir.
Orgelsónötur Bachs
fluttar í Dómkirkjunni
ORGELSÓNÖTUR J.S. Bach verða
fluttar í Dómkirkjunni sunnudaginn
5. janúar kl. 17 og 20.30.
Organisti Háteigskirkju, dr.
Orthulf Prunner, leikur allar org-
elsónöturnar bæði kl. 17 og kl.
20.30, svo að sem flestum gefist
kostur á að hlýða á þessa fögru
tónlist. Orgelsónöturnar hafa
aldrei verið fluttar í heild á íslandi
fyrr á einum og sömu tónleikunum.
í bókinni „Um Jóhann Sebastian
Bach, líf hans, list og listaverk"
segir Jóhann Nikolaus Forkel um
þessar sex sónötur: „Bach samdi
þær handa syni sínum Wilhelm
Friedmann og skyldi hann æfa þær
og búa sig þannig undir að verða
mikill organleikari, sem hann og
síðar varð. Af fegurð þeirra er
aldrei ofsagt. Þær urðu til eftir
að höfundur þeirra var kominn á
efri ár, og má telja þær helzta
verk hans sinnar tegundar."
(Fréttatilkynning.)
Vinsældalisti rásar 2:
3. vika íslensku
hjálparsveitar-
innar í efsta sæti
VINSÆLDALISTI rásar 2 var valinn
sl. fimmtudag. Hann lítur þannig út:
1. ( 1) Hjálpum þeim/íslenska
Leiðrétting
FÖÐURNAFN ljósmóðurinnar,
sem tók á móti nýársbarninu og
getið var í Morgunblaðinu í gær,
misritaðist. Ljósmóðirin heitir
Fjóla Þorleifsdóttir og eru hlutað-
eigendur beðnir velvirðingar á
þessum mistökum.
hjálparsveitin
2. ( 2) IntheHeatofthe
Night/ Sandra
3. (10) Fegurðardrottning/
Ragnhildur Gísladóttir
4. ( 3) Gaggó Vest/Gunnar
Þórðarson
5. ( 7) Allur lurkum laminn/
Bubbi Morthens
6. ( 4) Tóti tölvukarl/ Laddi
7. ( 9) Sentimental Eyes/
Rikshaw
8. ( 6) Tangó/Grafík
9. ( 9) I’m YourMan/Wham!
10. (17) Segðu mér satt/
Stuðmenn
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Glerárkirkja á Akureyri. Austurgaflinu blasir við en framan við hann keraur turninn 25 metra upp í ioftið.
Akureyri:
Vonast er til að taka hluta
Glerárkirkju í notkun á árinu
Akurcyri, 2. janúar.
VONIR standa til að taka einhvern
hluta Glerárkirkju í Síðuhverfi á
Akureyri í notkun á þessu ári. „Bygg-
ingin stendur þannig nú að við reikn-
um með að ganga til samninga um
byggingu þaks á kirkjuskipið næstu
daga, og það verk tekur um 8—10
vikur ef veður leyfir,“ sagði Ingi Þór
Jóhannsson, formaður bygginga-
nefndar kirkjunnar, í samtali við
Morgunblaðið en að öðru leytl er
búið að semja um uppsteypu á allri
byggingunni.
Kirkjan er á tveimur hæðum,
efri hæðin er 1100 m2 en sú neðri
900 mz. í vesturálmu kirkjunnar
verður safnaðarheimili en í suður-
álmunni verður aðstaða fyrir
prest, kapella, aðstaða fyrir safn-
Leiðrétting
í FRÉTT um tónlistarsögusýningu
í Norræna húsinu sem birtist í
blaðinu í gær misritaðist í mynda-
texta nafn sr. Bjarna Þorsteins-
sonar á Siglufirði. Þá kom fram
að sýningin væri opin milli kl. 14
og 22 en það er ekki rétt. Hún er
opin frá kl. 14 til 19. Beðist er
velvirðingar á þessum mistökum.
aðarstjórn og húsvörð, fundarher-
bergi ogfleira.
Fystu skóflustunguna að bygg-
ingunni tók biskupinn yfir íslandi,
herra Pétur Sigurgeirsson, fyrrum
sóknarprestur á Akureyri, 31. maí
1984. Ingi var spurður hvort bygg-
ingin gengi skv. áætlun: „Það held
ég hljóti að vera. Ég held að engan
SEINNI hluta desember var um
6.600 tonnum af loðnumjöli skipað
út hjá Sfldarverksmiðjum ríkisins á
Siglufirði, tvisvar í Suðurlandið og
einu sinni í Keflavíkina. Mjölið fór
m.a. til Noregs, Svíþjóðar og Finn-
lands og er sjaldgæft að þaö fari á
þennan markað. Byrjað verður að
bræða í kvöld eða fyrramálið hjá
verksmiðjunum.
Hjól atvinnulífsins eru nú að
byrja að snúast eftir hátíðirnar.
hafi órað fyrir því að það myndi
ganga svo vel. Við höfum getað
unnið við kirkjuna stanslaust frá
byrjun og vonumst til að svo verði
áfram,“ sagði Ingi.
Þess má geta að 25 metra hár
turn verður frístandandi austan
kirkjunnar og þegar hafa undir-
stöður undir hann verið byggðar.
Togararnir voru allir inni nema
Sveinborgin sem veiðir fyrir sigl-
ingu. Bátarnir eru byrjaðir eftir
áramótin og sumir búnir að leggja
net. Sæmilegur afli er hjá línubát-
unum. Siglfirðingur fór út í nótt,
Stálvík og Sigluvík fara í dag og
Skjöldur á morgun.
Jól og áramót voru góð og frið-
sæl hér á Siglufirði. Veðrið er
mjög gott, og mikið af snjó.
— Matthías
Siglufjörður:
Hjól atvinnulífsins
byrjað að snúast
Siglufirði, 2. janúar.