Morgunblaðið - 19.01.1986, Side 1

Morgunblaðið - 19.01.1986, Side 1
ið stökkbreytta gen sem veldur sjúkdómnum hefur erfst gegnum þtjár greinar og sex ættliði á um tvö hundruð ára tímabili og það leiðir sterkar líkur að því að sama stökkbreytingin liggi til grundvallar í öllum fjöldskyldunum og hana megi rekja til eins og sama forfor- eldrisins. Alls hafa 128 sjúklingar verið greindir með þennan arfgenga sjúkdóm í þessum átta fjölskyldum. Af þeim fjölda hafa 52 verið til rannsóknar á taugalækningadeild Landspítalans og fleiri deildum sjúkrahúsanna í Reykjavík. I 76 tilvikanna er eingöngu stuðst við greiningu á dánarvottorðum , sem ná aftur til 1911. Á síðustu 5 til 6 árum hefur verið unnið að yfírliti um þennan sjúkdóm. Flestar ofan- greinar upplýsingar eru úr grein eftir Ólaf Jensson lækni sem send verður til birtingar í Læknablaðinu innan tíðar. Ólafur Jensson er for- maður samstarfshóps um rann- sóknir á arfgengri heilablæðingu. Aðrir íslendingar í hópnum eru Alfreð Árnason, Leifur Þorsteins- son og Ingibjörg Pétursdóttir sem Byggðin í kringum Breiðafjörðinn hefur um nær tveggja alda skeið verið vettvangur fjöldskylduharmleiks sem enn sér ekki fyrir endann á. í átta fjöldskyldum sem að líkindum eiga uppruna sinn í sama forforeldri hefur ríkjandi erfðasjúkdómur orðið þess valdandi að ungt fólk hefur hrunið niður, ýmist dáið snögglega eða lifað við harmkvæli um árabil. Sjúkdómur þessi er arfgeng heilablæðing og mun hvergi þekktur nema á Islandi, en svipaðs sjúkdóms hefur orðið vart í Hollandi og hafa menn leitt getum að þvi að hann kunni að stafa frá íslenskum manni sem þar hafi komið fyrir löngu síðan, en það eru einungis getgátur. Arfgeng heilablæðing hefur verið mikið rannsökuð að undanförnu og hafa vísindamenn, bæði hér á landi og í Bandaríkjunum, Svíþjóð, Englandi og víðar fengið æ meiri áhuga á þessum rannsóknum enda tengjast þær á ýmsan máta öðrum rannsóknum sem fram hafa farið í þessum löndum að undanförnu. Sjá „Arfgeng heilablæðing á íslandi" á bls. HILDUR LEIFSDÓTTIR PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS SUNNUDAGUR19. JANUAR1986 BLAÐ Kort af íslandi þar sem merkt er inná það svæði þar sem arfgeng heilablæðing er upprunnin. I skugga válegrar ættarfylgju Rœtt við ÓlafJensson, Gunnar Guð- mundsson, Guðfinn Þórðarson og Hildi Leifsdóttur sem öll hafa haft náin kynni afþessum sjúkdómi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.