Morgunblaðið - 19.01.1986, Síða 10

Morgunblaðið - 19.01.1986, Síða 10
10 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR19. JANÚAR1986 4 m HEKLAHF Laugavegi 170 -172 Sími 21240 JÓRUNN KARLSDÓTTIR fundizt það eitthvað svo tilgangs- laust. Maður verður þreyttur og leiður, og svo stirður að erfitt reynist að gera eitthvað af viti. En fyrir hálfu öðru ári gerðist nokkuð sem leiddi til þess að ég skipti um skoðun. Amma mín lét innrita sig hjá félagsstarfí aldraðra, og hefur það valdið svo miklum breytingum á lífí hennar að ég hef átt erfítt með að fýlgjast með hvað var að ger- ast. Núna stundar hún leikfími, leikur billjarð, lærir tauþrykk, þjóðdansa o.fl. Og ef hún hefur ekki mætt síðustu tvö, þrjú skiptin, er hringt og spurt hvemig hún hafí það. Hvort hún sé orðin leið á þessu eða veik. Amma er orðin svo ung á sál og líkama. Nú er svo auðvelt að tala við hana og við getum gert svo margt saman. Þar af leiðir að mig langar meira til að heimsækja hana, og það gerir okkur báðum gott. Mér fínnst að allir, sem komnir eru til ára sinna, ættu að reyna þetta félags- starf. Sjálf hef ég að minnsta kosti ekkert á móti því lengur að verða gömul! Of seint að iðrast Það var einu sinni mamma sem átti svo annríkt. Allan daginn var hún að þrífa og pússa, og þegar frænkumar komu í heimsókn horfðu þær öfundaraugum á íbúð- ina og sögðu: „Ó, það er svo fínt hjá þér, hvemig getur þú alltaf haft allt í svona röð og reglu?" Hversdagsleikanum fylgir hamingja Hér sit ég við eldhúsborðið mitt með kaffilögg fyrir framan mig. Ég var að senda þá yngstu í skól- ann. Hún á að fara til skólalæknis- ins svo það var nóg að gera í morgun, en annars erum við vön að taka lífinu með ró og kveikja á eldhúsborðinu meðan við borðum morgunverðinn. Við höfum ákveð- ið að hittast hjá skólalækninum, og þar sem ég sit hér og horfi á fuglana, sem eiga lítið fuglahús fyrir utan gluggann, er ég fegin því að hafa tíma til að fara með henni. Hún minntist á stelpu sem verður að fara ein, því móðir henn- ar hefur ekki tíma. Og í gærkvöldi sagði hún mér frá einum strákanna í bekknum, sem eins var ástatt hjá. Skólalæknirinn vill að við komum, en þær hafa ekki tíma til þess þar sem þær eru útivinnandi. Ég vildi að fleiri vissu að það eru þessir hversdagslegu hlutir sem færa okkur hamingju í stað þess að vera sífellt á þönum að vinna fyrir meiri peningum. Já, þeir veita okkur hamingju, þótt við verðum enn að bíða eftir nýju húsgögnunum, sem við ef til vill höfum verið að óska okkur í mörg ár. í þetta skiptið er Dyngjan nokk- uð öðruvísi en venjulega. í sumum erlendum tímaritum, sem stöku sinnum berast inn á borð Dyngju- höfundar, er talsvert um bréf frá lesendum um margvísleg efni. Hér á eftir fara glefsur úr þremur svona bréfum, sem nýlega birtust í tímaritum á Norðurlöndum. Ekkert á móti því að eldast! Ég hef alltaf verið hrædd við það að verða gömul. Mér hefur Þessi mamma átti einnig böm. Meðan þau vom lítil, spurðu þau hana oft hvort hún gæti ekki lesið fyrir þau sögu. En hún hafði sjald- an tíma til þess. „Þið verðið að bíða þartil í kvöld,“ sagði hún. En þegar kvöldaði voru bæði hún og bömin orðin svo þreytt að ekkert varð úr sögulestri. Nú em bömin orðin stór með eigin áhugamál utan heimilisins. Mamman situr ein á kvöldin, og hún þarf ekki að hafa áhyggjur af því að einhverjir komi í heim- sókn og róti til á heimilinu En það er svo tómlegt, og hún hugsar oft: En hvað tíminn líður hratt. Það er ekki langt síðan bömin vom lítil og vildu hlusta á sögur. Hún minnist og iðrast. Ósköp hef ég verið heimsk, hugsar hún. Ég hefði ekki þurft að vera svona einstreng- ingsleg varðandi húsverkin. Hefði ég þess í stað varið meiri tíma í bömin, þá hefðu þau ef til vill komið til mín nú með áhyggjur sínar og trúnaðarmál. Já, tíminn líður hratt og það er ekki hægt að snúa klukkunni til baka. Það em vissulega til betri minningar fyrir bæði móður og böm en glampandi gólf og ryklaus húsgögn. V2000 myndbandaleiga. Myndbandaleigan Video Sport, Nýbýlavegi 28 Kópavogi, hefur fest kaup á öllum V2000 myndunum úr myndbandaleigu Heimilistækja hf. Stór sending af nýjum myndum er nýkomin og enn stærri sending væntanleg á næstu dögum. Heimilistæki óska nýjum eigendum góðs gengis. PÝSKUR KOSTAGRIPUR með íramhjóladrií VOLKSWAGEN JETTA Búnadur eítii vali: # Dieselvél - 2 geröir. # Bensínvél ■ 4 geröir. # Sjálfskipting meö íríhjólun. # Handskipting - 4 gíra/5 gíra m.sparnaöargír. # 0.íl. V.W. JETTA er allt í senri: # Heíðbundinn heimilisbíll. # Forlátagóöur íeröabíll. # Snaggarlegur sportbíll. # Og íyrsta ílokks íjáríesting. Verö írá kr. 530.000 r? ........... JETTA íellur jaínan vel ad umhveriinu -------V inu. \ ±1 - ■ 1 *■ Til umhugsunar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.