Morgunblaðið - 19.01.1986, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR19. JANÚAR1986
B 17
VINSÆLDALISTAR
VIKUNNAR
Rás 2
1. ( D
2. ( 4)
3. ( 2)
4. ( 3)
5. ( 6)
6. ( 7)
7. ( 9)
8. ( 5)
9. ( 8)
10. (15)
11. (10)
12. (14)
13. (25)
14. (29)
15. (17)
16. (11)
17. (13)
18. (23)
19. (12)
20. (18)
Hjálpumþeim ...... Hjálparsveitin
GaggóVest ...... Gunnar Þórðarson
Allurlurkum laminn .. HilmarOddss.
Intheheatofthenight ...... Sandra
Segðumérsatt ........... Stuðmenn
Sentimental eyes ........ Rikshaw
Brothers in arms ..... Dire Straits
Fegurðardrotting ..... Ragnhildur
Gísladóttir.
Saving all my love for you ... Whitney
Houston
Gull ........... Gunnar Þórðarson
l’myourman ................. Wham
Keep me in the dark ..... Arcadia
The sun always shines on TV ... AHA
WestEndgirls ........ PetShopBoys
Himnalag ................. Grafík
Tótitölvukall ............. Laddi
BrokenWings ........... Mr. Mister
Kveldúlfur .... Bjartmar Guðlaugsson
Tangó .................... Grafík
Intotheburningmoon ...... Rikshaw
Eiríkur Hauksson syngur bœði Gaggó Vest
og Gull, lög sem virðast feikna vinsæl á meðal
hlustenda Rásar 2.
Bretland
.1. ( 1) WestEndgirls ...... PetShopBoys
2. ( 5) The sun always shines on TV ... AHA
3. ( 4) Hit that perfect beat ... BronskiBeat
4. (30) Walkoflife ......... DireStraits
5. (26) Youlittlethief .. Feargal Sharkey
6. (10) SaturdayLove .......... Cherilee
7. ( 7) Girlie Girlie .... SophieGeorge
8. (31) BrokenWings .......... Mr. Mister
9. ( 2) Saving all my love for you ... Whitney
Houston
10. (27) Alice I want you just for me . Full
Force
Bandaríkin
1.(3) That'swhatfriendsarefor . Dionnee
Warwick and friends
2. ( 1) Sayyousayme ........ LionelRichie
3. ( 2) Partyallthetime i.. EddieMurphy
4. ( 4) Alive and kicking . Simple Minds
5. ( 5) I miss you .............. Clymax
6. ( 6) SmallTown .......... JohnCougar
Mellencamp
7. ( 8) Talktome ........... StevieNicks
8. (12) Burning Heat ........... Survivor
9. (10) Walkoflife .......... DireStraits
10. ( 7) Tonightshecomes ........... Cars
sion:
Ekki
eitað
neinna
asmiða
Höfundur íslenska lagsins og textans sem flutt verður í Eurovision-söngvakeppn-
inni í Bergen 3. maí næstkomandi fær 200 þúsund krónur f slnn vasa og að sjálf-
sögðu ferð til Bergen í úrslitakeppnina. Búið er að framlengja frestinn til að skila
inn lagi til 25. janúar.
Um daginn sagði Hrafn Gunnlaugsson
í sjónvarpsviðtali að í bígerð væri að fá
5 tón- og textasmiði til að semja lög fyrir
undanúrslitakeppnina sem verður í sjón-
varpinu 15. mars. Hefur verið horfið frá
þeirri hugmynd, en það fyrirkomulag er
til dæmis í norsku útsláttarkeppninni.
Fyrirkomulagið veröur einfaldlega þannig
að enginn verður sérstaklega beðinn um
að semja lag fyrir sjónvarpið heldur verða
barasta allir að senda inn. 200 þúsund
krónurnar hefðu skipst milli þessara laga-
smiða, hver hefði fengið 40 þúsund krón-
ur fyrir að semja lagið. Hrafn Gunnlaugs-
son sagði á blaðamannafundi f vikunni
að eftir að hafa rætt við lagahöfunda,
starfsmenn á rás 2 og fleiri hefði sem
sagt verið horfið frá þessu (mikið geta
menn verið peningagráðugir!)
I fljótu bragði er erfitt að ímynda sér
að við íslendingar séum færir um að
halda Eurovision 1987 ef við skyldum nú
bera sigur úr býtum í Bergen. Hrafn
Gunnlaugsson er aftur á móti stórhuga
maður, það hefur hann nú þegar sýnt,
og sagði hann á fyrrnefndum blaða-
mannafundi að fyrir hönd sjónvarpsins
stefndi hann ekki á neitt annað en sigur
og þá myndum við bara halda keppnina;
Það yrði þá bara að sjá svo til að við
gætum það. Ákveðinn maður Hrafn.
Ekki er búið að velja menn f hinar ýmsu
dómnefndir sem fylgja þessu örstutta 3
mínútna lagi sem allt virðist snúast um,
og kannski ekki að furða? Það er greini-
lega ekkert smámál að taka þátt í svona
keppni og eitthvað kostar það líka.
Hrafn Gunnlaugsson hefur fengið til
liðs við sig félagana sem reká fyrirtækið
Hugmynd, þá Björn Björnsson og Egil
Eðvarðsson, til að gera fjárhagslega út-
tekt á ævintýrinu og þann 25. janúar
þegar skilafresturinn rennur út verður
Ijóst hve mikið þetta kostar allt saman.
„Eg vil að þetta standi á núlli og við getum
fjármagnað dæmið með auglýsingum,"
sagði Hrafn á blaðamannafundinum.
Jaeja, hættið að lesa þetta rugl og
byrjið að semja lög!
AÐALPOPPARINN
SVERRIR STORMSKER
Aðalpopparinn heitir Sverrir Storm-
sker. Ljóðskáld, laga- og textasmiður
með meiru. Honum þykir hvftvín gott
og býr í kjallara íTúnunum. Ákaflega
geðprúður náungi og brást Ijúflega við
ertil hans var leitað.
Hógværð Sverris kemur verulega á
óvart þvf hann er ekki með nema eitt
lag eftir sjálfan sig á lista og enga
plötu. En að öllu gamni slepptu þá
kemur hór fyrst lagalisti Sverris, þ.e.
hans uppáhaldslög og síðan uppá-
haldsplöturnar.
Uppáhaldslög
1. Öll Bítlalögin
2. AmericanTune PaulSimon
3. Hidein YourShell Supertramp
4. Ripples....-
5. Bohemian Rhapsody. Queen
7 Time Alan Parsons Project
8. AndanteCantabile....
fóníu Tchaikovskys
9. Aladdin Sane David Bowie
10. AilirpælaíSvala.. SverrirStormsker
Uppáhaldsplötur
1. allar Bítlaplöturnar.. Beatles
2. Plastic Ono Band.. JohnLennon
3. Sturla........ Spilverk þjóðanna
4. ísland........ Spilverk þjóðanna
5. Sumar á Sýrlandi... Stuðmenn
6. Fram og aftur blindgötuna. Megas
7. TugofWar....... Paul McCartney
8. Hinn ísl. þursaflokkur. Þursa-
flokkurínn
9. Gunnar Þórðarson...... Gunnar
Þórðarson (2falt)
10. Breyttirtimar............. EGÓ
Undankeppnin:
Valið lag en
ekki útsetning
eða söngur
Ágætu tón- og textasmiðir.
Hyggist þið senda lag í Eurovision-
keppnina verðiö þið að skila því á
nótum fyrir eitt hljóðfæri. Reyndar
megið þið alveg fara í hljóðver eða inn
í stofu og taka það upp, setja á
snældu og láta fylgja með. Hins vegar
er nokkuð Ijóst að ekki er alveg víst
að það borgi sig að eyða tugþúsund-
um króna í upptöku- og útsetningar-
kostnað.
Þeir sem munu skipa dómnefndina
sem velur lögin 10 sem keppa í undan-
úrslitakeppninni 15. mars eru aö velja
laglinu og texta, ekki útsetningu eða
söng. Enda áskilur sjónvarpið sér all-
an rétt til að fara með lagið eins og
því sýnist. Búið.
Nei, annars. Ekki búið. Segjum til
dæmis að Pálmi Gunnarsson myndi
syngja sigurlagið í undankeppninni
15. mars. Það þýðir alls ekki að hann
færi til Bergen og syngi það í sömu
útsetningu. Nei, nei, nei. Þá verður
lagið kannski fyrst sett í sparigalla
þann sem fylgir Eurovisionþátttökunni
og alveg eins víst að skipt verði um
söngvara. Núna búið.