Morgunblaðið - 19.01.1986, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 19.01.1986, Blaðsíða 24
24 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR19. JANÚAR1986 * Aster___ ... að borða spaghettíið sam- an. sjússakynningu á tísku- kynningum? HÖGNI HREKKVÍSI Þessir hringdu . . Páli Gíslasyni þökkuð for- ganga 7094-6181 hringdi: „Ég vil þakka heiðursmanninum Páli Gíslasyni borgarfulltrúa fyrir for- göngu hans um að reisa þjónustu- miðstöð og íbúðir fyrir aldraða á homi Vesturgötu og Garðastræt- is, ásamt stórri bflageymslu á neðri hæðum. Þetta tel ég vera mjög skynsamlega tillögu sem kemur til með að bæta úr biýnni þörf á tveimur sviðum. Þar að auki ætti þessi fyrirhugaða bygg- ing, ef hún verður vel hönnuð, að verða til prýði fyrir þennan bæjar- hluta sem hefur vægast sagt orðið útundan hjá borgaryfirvöldum á undanfömum árum. Þama hefur mikið landsvæði og heldur óhijá- legt staðið að mestu ónotað ára- tugum saman rétt við miðborgina, án þess að nokkuð hafi verið að gert. Er óskandi að borgarstjóm láti nú hendur standa fram úr ermum og komi byggingunni upp sem allra fyrst. Til þess er henni vel treystandi með hinn dugmikla Davíð borgarstjóra í broddi fylk- ingar." Fáninn tákn þjóðarinnar — en ekki eitthvert leiktjald Hrefna Tynes hringdi: „Mig langar til að lýsa óánægju minni með það að hafa íslenska fánann á gólfinu í þessum leik „Rauð- hóla-Ransý“. Mér finnst þetta svo mikil óvirðing við fánann. Og burtséð frá því hvort þetta er ólög- legt eða ekki, eins og talað er um í Morgunblaðinu á föstudag, þá er þetta óvirðing við fánann okkar og mér finnst að engum ætti að líðast að fara á þennan hátt með íslenska fánann. Mér finnst þetta mjög ósmekklegt. Fáninn er tákn þjóðarinnar en ekki eitthvert leiktjald." Setjum upp björgunarhringa við bryggjur og hafnarbakka Þorsteinn Pétursson hringdi: „Mig langar til að koma því á framfæri í sambandi við óhappið sem varð á Akureyri fyrir skömmu, er ung stúlka féll út af bryggju, að mér þykir undarlegt að ekki sé komið fyrir björgunar- hringjum á stöðum sem þessum. í fréttum sem birtust um þetta kom fram að pilturinn sem bjarg- aði stúlkunni náði taki á einhveiju með tveim fingrum og gat þannig haldið sér og henni upp úr sjónum í um 20 mínútur. Þegar menn komu á vettvang var hvorki kaðal- stigi né björgunarhringur til taks, og hefði þarna getað farið illa fyrir bragðið. Nú er björgunar- hringur ekki dýrt tæki — varla er það ofviða fyrir slysavamar- menn að koma björgunarhringjum upp sem víðast við bryggjur og hafnarbakka. Það er allt of al- gengt að fólk drukkni vegna þess að það fellur milli skips og bryggju. Oft er áfengisneyslu kennt um en það er ekki nærri alltaf orsökin. Það þarf að gera átak f þessum málum. Víkveiji skrifar Víkveiji var fyrir skömmu á ferð á Akureyri og hafði þá ekki komið til höfuðstaðar Norðurlands í nokkum tíma. Viðbrigðin vom mikil. Hönd stöðnunar og samdrátt- ar hafði lagzt yfir þennan íjörmikla og fallega bæ. Menn vom yfírleitt svartsýnir á ástandið í atvinnumál- um, jafnvel þótt ástandið virðist hafa lagazt örlítið síðustu mánuði. Einn viðmælenda Víkveija flutti til Akureyrar frá Reykjavík fyrir nokkmm ámm. Þá var vemlegur uppgangur á Akureyri og nóg að gera í hans fagi, byggingaiðnaðin- um. Starfandi vom 19 byggingar- fyrirtæki og íbúðir sem byijað var á ár hvert skiptu hundmðum. í dag em byggingafyrirtækin teljandi á fingmm annarrar handar. Hin hafa annaðhvort verið lögð niður eða tekin til gjaldþrotameðferðar. Nú telst það til tfðinda ef byijað er á nýjum íbúðarhúsum. „Éf rífa á þetta byggðarlag upp aftur verður að koma til stóriðja af einhveiju tagi,“ sagði þessi viðmælandi Vík- veija. Þessi maður hefur góða atvinnu á Akureyri og hefur ekki yfir neinu að kvarta f þeim efnum. En ef hann og kona hans hygðu á flutning til Reykjavíkur vandaðist málið. Mjög erfitt er að selja fasteignir á Akur- eyri um þessar mundir því sárafáir em í þeim hugleiðingum að flytja þangað. Það er helzt að verkalýðs- félög í Reykjavík séu í íbúðakaupa- hugleiðingum á Akureyri. íbúðimar leigja þau félagsmönnum sfnum til orlofsdvalar. Raunverð íbúða hefur lfka lækkað veralega og andvirði 4 herbergja íbúðar á Akureyri dugir ekki nema fyrir 2 herbergja íbúð í Reykjavík. XXX Akureyringar glíma við marg- víslegan vanda og á það ekki sízt við um hitaveituna þar í bæ. Af viðtölum við ýmsa menn á Akureyri verður ekki annað skilið en ýmislegt hafi farið úrskeiðis í uppbyggingu hitaveitunnar og oft hafi verið unnið meira af kappi en forsjá. Skuldir hitaveitunnar munu nema hátt á annan milljarð króna og þessi staða birtist notendum á innheimtuseðlunum. Eigandi 200 fermetra íbúðar sagðist borga 5.000 krónur á mánuði fyrir heita vatnið og síðan þá hefur enn ein hækkun orðið. Þetta er margfalt hærra verð en t.d. í Reykjavík. Rétt er að geta þess að nú mun unnið að því kappsamlega að koma hitaveitunni á réttan kjöl, m.a. með nýju mælakerfí, sem draga á stór- lega úr vatnsnotkun. En það verk- efni mun að öllum líkindum taka langan tíma. Vonandi ná Akureyringar tökum á þessum vanda sem og öðmm, sem hijá bæjarfélagið nú um stundir. Brýnast virðist aðkomumanni að rennt verði frekari stoðum undir atvinnulífið. Án blómlegs atvinnu- lífs þrifst ekki blómlegur bær. XXX Ný tegund strætisvagna er komin á götur höfuðborgar- innar, Scania Vabis. Áður hafa eingöngu verið vagnar af Volvo- og Mercedes Benz-gerð. Nýju vagn- amir era hljóðlátir og sætin í þeim em einkar þægileg. Vagnamir em búnir merkilegri nýjung, þeir lækka um nokkra tugi sentimetra þegar staðnæmzt er á biðstöðvum og er það gert til að auðvelda farþegum uppgöngu. Þessi snjalla nýjung kemur fyrst og fremst eldra fólki til góða. Víkvetji fer oft í strætisvagni til og frá vinnu og tekur gjaman vagninn fram yfír einkabílinn. Það er ódýr og þægilegur ferðamáti að nota strætisvagna og tekur í mörg- um tilfellum litlu meiri tíma en ef ekið er í einkabfl. Þægindi em ekki sízt fólgin í því að þurfa ekki að hafa áhyggjur af akstrinum og geta í þess stað notað tímann til að velta fyrir sér málum sem ekki gefst næði til að hugsa um á erilsömum vinnustað. XXX Mönnum hefur að undanfömu orðið tíðrætt um breytingar á Ríkisfjölmiðlunum. Óumdeilanlega hefur verið hresst upp á bæði útvarp og sjónvarp og em þessar breyting- ar fyrst og fremst raktar til hins nýja útvarpsstjóra. Eitt af því sem hefur breytzt til batnaðar em íþróttafréttir útvarps- ins. Með ráðningu tveggja íþrótta- fréttamanna í stað eins áður opnuð- ust möguleikar til flölbreyttari og nútímalegri þjónustu. íþróttafrétta- mennimir senda nú beinar lýsingar af tveimur eða fleiri leikjum sam- tímis og inn á milli em leikin létt lög. Hlustendur verða fyrir bragðið beinir þátttakendur í því sem fram fer á íþróttasviðinu. Gott dæmi um þessa þróun er handknattleiksmót- ið, sem fer fram í Danmörku um þessar mundir. Fólk fylgist spennt með, jafnvel þótt gengi íslenzka landsliðsins hafi verið misjafnt. XXX Víkveiji hefur undir höndum skrá yfir flugvélar skráðar á íslandi, gefin út af Flugmálastjóm. Hún heitir ekki „íslenzk flugvéla- skrá“ heldur „Icelandic aircraft register" gefna út af „Directorate of civil aviation". Allar upplýsingar em á ensku, t.d. segir að TF-STR, flugvél af Cessna-gerð, sé eign „Hjálmar Halldórsson & others" og vélin sé „operated by Flugfar hf., Reykjavík". Það er gjörsamlega óþolandi að opinber íslenzk stofnun skuli senda svona skrá frá sér á ensku hér á íslandi. Þar til bær yfírvöld verða að taka í taumana. 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.