Morgunblaðið - 23.02.1986, Síða 23

Morgunblaðið - 23.02.1986, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1986 23 um dómi. Mig langar að nefna tvennt: ríkisbankakerfíð og skipu- lag vinnumarkaðarins. Það er nánast einsdæmi í okkar heimshluta, að allir stærstu við- skiptabankar hér eru ríkisbankar. Eins og allir vita er þeim stjórnað af fulltrúum stjómmálaflokkanna. Það er ekki tilviljun, heldur þvert á móti tilgangur slíks kerfís, að lánveitingar ráðast hvað eftir annað af stjómmálahagsmunum, ekki af venjulegum viðskipta- og hag- kvæmnisjónarmiðum. Þvf hafa óarðbær útlán bankakerfísins áreið- anlega verið miklu meiri en ef hér væm öflugir einkabankar, sem gerðu sanngjamar arðsemiskröfur. Vegna þess að mörg fyrirtæki hafa ekki þurft að lúta arðsemisaga einkabanka hefur peningaprentun, erlendar skuldir, verðbólga og of- veiði orðið verri viðfangs en ella. Mér sýnist að sjálft ríkisbankakerf- ið torveldi stjóm efnahagsmála, ekki vegna þess að ríkisbankar þurfi endilega að vera verr reknir en einkabankar, heldur af því að þeir stjómmálahagsmunir, sem rík- isbankamir lúta, stangast iðulega á við hagsmuni almennings. En það verður erfitt að breyta þessu, því það er aldrei auðvelt að fá stjóm- málamenn til að sleppa völdum, sem þeim hafa verið fengin. Skipulag vinnumarkaðarins hef- ur líka valdið alvarlegum skaða í efnahagslífi hér að mínum dómi. Allir vita hvemig vinnuveitendur og verkalýðsforingjar semja um kaup og kjör: Þeir ákveða tíma- eða vikukaup upp á svo og svo margar krónur, hvað sem öðru líður. Þetta er vond aðferð, því setjum svo, að það komi afturkippur í efnahagslíf- ið, t.d. vegna þess, að Bandaríkja- menn kaupi minni fisk. Hvað eiga fyrirtækin þá að gera? Ef þau eiga ekki gilda varasjóði og ríkið neitar að prenta peninga eða fella gengið verða þau að draga úr kostnaði. Þar sem vinnulaun em langstærsti kostnaðarliðurinn í flestum fyrir- tækjum verða þau annaðhvort að lækka kaup eða fækka fólki. Ef kaupið er fast samkvæmt kjara- samningi er ekki um annað að ræða en fækka fólki. í þessu kerfi hafa fyrirtækin ekki svigrúm til að bregðast við svona áföllum öðruvísi en með uppsögnum. Þess vegna er þetta vont kerfi. Ég held, að í nærliggjandi löndum sé umtalsverð- ur hluti atvinnuleysisins fólginn í þessu. íslenzka aðferðin hefur hins vegar verið sú að veita öllum áföll- um út í verðlagið með peninga- prentun og gengisfalli. Japanir fara öðru vísi að. Þar er ekki aðeins samið um fast kaup, heldur líka um fastan hlut starfs- fólks í hagnaði fyrirtækja. Þegar japanskt fyrirtæki verður fyrir skakkaföllum lækkar hlutur hvers í samræmi við minni hagnað, en enginn missir vinnuna. Með þetta í huga þarf engum að koma á óvart, að atvinnuleysi og verðbólga í Japan er miklu minni en í Evrópu og Ameríku og hagvöxtur meiri. Við getum lært af þessu. Á vinnumarkaðnum skiptir miklu máli hver semur við hvern. Lítum aftur á Japan. Þar er samið um kaup og kjör í hverju fyrirtæki fyrir sig. Þegar japanskir launþegar gera kaupkröfur vita þeir, að ef þeir spenna bogann of hátt, þá fer þeirra eigið fyrirtæki á hausinn og sjálfir missa þeir vinnuna. Þeir hafa því beinan hag af hófsamlegum kröf- um. En li'kt og í t.d. Danmörku og Englandi er hér samið um kaup eftir starfsgreinum. Þannig eru t.d. allir trésmiðir í tilteknum landshluta í sama verkalýðsfélagi, þó þeir vinni hjá ólíkum fyrirtækjum, sumum vel reknum, öðrum illa eins og gengur. Foringjar smiðanna semja um laun við fulltrúa allra þessara vinnuveit- enda. Meðalsmiður í meðalfyrirtæki hefur engan hag af hóflegum kröf- um, veit reyndar, að ef kaupið hækkar um of geta veikustu fyrir- tækin komizt í kröggur, en sjálfum er honum yfirleitt óhætt. Og þegar kaupkröfur eins eru í þann veginn að kosta annan vinnuna, segir ríkis- Það er til dæmis ekki nóg að skella skuldinni á almennt aðhaldsleysi í peningamálum án þess að hugleiða hvort það væri yfir höfuð vinnandi veg- ur að veita öflugt aðliald í bankakerf - ÉA inu sem við búum við. W V stjómin helzt ekki: „Þér var nær“, heldur prentar peninga eða fellir gengið, svo fyrirtækin haldist á floti. Þannig virðist mér samninga- kerfið hér hafa stuðlað að miklum ríkisafskiptum af kjarasamningum og mikilli verðbólgu. Meinsemdin í vinnumarkaðskerf- inu hér er því tvíþætt: Fyrirtækin hafa ekki svigrúm til að takast á við tekjumissi nema með því að fækka fólki eða heimta verðbólgu- ráðstafanir af ríkinu. Og launþegar hafa iðulega hag af því að knýja fram kauphækkanir, sem ríða fjölda fyrirtækja að fullu, nema ríkisvaldið hleypi vandanum út í verðlagið. Japanska kerfíð hefur hvorugan þennan galla. SD: En ef yfirburðir japanska kerfisins eru algerir, hvers vegna erum við þá ekki löngu búin að taka það upp? Einhverjir hljóta að eiga hagsmuna að gæta í óbreyttu ástandi eðahvað? ÞG: Einmitt og þar stendur hnífurinn í kúnni. Þegar japanskt fyrirtæki eða þjóðarbúið allt verður fyrir áfalli missa allir eitthvað en enginn allt, enginn missir vinnuna. Þegar sama gerist í Evrópu eða Ameríku halda allir öllu sínu nema þeir sem missa vinnuna. Meirihlutinn, sem tapar engu beint, heldur kannski, að hann hafi hag af þessu. En það er skammsýni. Ef núverandi vinnumarkaðskerfi okkar er sá verðbólgu- og atvinnu- leysisvaldur, sem ég held það sé, þá bitnar það á flestum eða öllum á endanum. SD: Meginviðfangsefni í efna- hágsmálum hér mörg undanfarin ár hefur verið verðbólgan. Af hveiju er verðbólga hættuleg? ÞG: Vegna þess að hún raskar öllu efnahagslífinu og mörgum öðrum þáttum þjóðlífsins og hlýtur að bitna á lífskjörum almennings, þegar til lengdar lætur. Riflum upp, þegar verðbólgan rauk upp hér fyrir rúmum áratug. Mörg ár liðu áður en vöxtum var breytt til hins betra til samræmis við verðbólguna. Eignatilfærslan, sem varð í millitíðinni, hefur að vísu ekki verið kortlögð, en var örugg- lega gríðarleg. Augljósustu fórn- arlömbin voru gamla fólkið. Sparifé þess brann á verðbólgubálinu, meðan unga fólkið baðaði sig í byggingarljóma. Hvers vegna gerði fólk ekki uppreisn gegn þessu arð- ráni? Kannski er ein ástæðan sú, að eignir fluttust ekki milli ólíkra þjóðfélagshópa fyrst og fremst, eins og gerðist í Þýzkalandi eftir fyrra stríð, þegar óðaverðbólgan þurrkaði út eignir þýzku miðstéttarinnar og Hitler köm í kjölfarið, heldur innan fjölskyldna. Ömmur og afar fóru ekki á mótmælafundi úr því bömin stóðu með pálmann í höndunum. En þetta er ekki allt. Sparnaður hætti að borga sig. Hagtölur frá þessum tíma sýna vel, að banka- sparnaður fólks og fyrirtækja minnkaði snarlega miðað við tekjur, og innlent ráðstöfunarfé bankanna minnkaði eftir því. Eina leiðin til að bankarnir gætu haldið áfram að lána fyrirtækjum var að prenta peninga og taka lán í útlöndum. Þannig má segja, að erlendi skulda- bagginn, sem við berum nú og er níðþungur á heimsmælikvarða, sé að sumu leyti bein afleiðing verð- bólgunnar. En þrátt fyrir öll erlendu lánin tókst ekki að koma í veg fyrir, að verðbólgan skerti lífskjör- in. Hagvöxtur hér hefur minnkað verulega síðustu árin, sumpart af völdum verðbólgunnar að mínum dómi, svo tekjur okkar hafa dregizt alvarlega aftur úr tekjum hjá öðrum þjóðum. Allt þetta mátti sjá fyrir og hefur verið margsagt. SD: Hvers vegna var látið reka á reiðanum allan þennan tíma? ÞG: Mér dettur helzt í hug, að tvennt, sem gerðist á sama tíma og verðbólgan rauk upp, hafi ruglað menn. Fiskaflinn jókst verulega í kjölfar landhelgisútfærslunnar og giftar konur flykktust út.á vinnu- markaðinn. Hvort tveggja bætti lífskjörin mikið, þrátt fyrir verð- bólguna. Annars held ég við hefðum brennt okkur fyrr og verr á verð- bólgunni. Ég held líka, að okkur hefði nýtzt landhelgisútfærslan og vaxandi vinna kvenna utan heimils miklu betur hefði verðbólgan ekki grafið undan afrakstrinum. SD: Þú leggur áherzlu á, að verðbólgan hafi grafið undan inn- lendum spamaði framan af. Sparifé brann lengi, áður en vextir voru hækkaðir. Má líta svo á, að stjóm- málamenn í bankakerfinu hafí ekkert verið að flýta sér að breyta þessu, því þeir gátu beint niður- greiddu lánsfé, þangað sem þeir kusu? ÞG: Jú, ég held, að hefðum við búið við einkabankakerfi, þegar verðbólgan fór úr böndum, hefðu vextir trúlega lagazt fyrr að verð- bólgunniog hún orðið minni. SD: Ýmsum þykja vextir hér háir. Hvað segirðu um vexti núna? ÞG: Raunvextir hér hafa að undanfömu verið ívið lægri en í mörgum löndum í kring. Þeir em að vísu allmiklu hærri en áður en það er erfitt fyrir lítið land að halda raunvöxtum fyrir neðan raunvexti nágrannanna til lengdar. Ég trúi varla, að gagnrýni á raunvaxta- stefnu stafi af því, að fólki þyki óeðlilegt að endurgreiða lán að fullu, þ.e. með verðbótum auk vaxta. Raunvextir af húsnæðislán- um em enn yfirleitt neikvæðir, að greiddum sköttum. Ég held að gagnrýni stafi frekar af því kaup- máttur launa hefur minnkað mikið síðan vísitölubinding launa var afnumin, meðan lán em yfirleitt verðtryggð. Þess vegna em margir húsbyggjendur og aðrir að sligast undan skuldum sínum. SD: Sem sagt, það hefur verið klippt af kaupinu, en ekki af vöxt- um, svo fólk þarf að borga sívax- andi hluta launa í vexti af lánum? Hvað er til ráða? ÞG: Það er nú ekki mín deild, heldur langar mig til að spyija annarrar brennandi spumingar á móti: Hvers vegna em vinnuveit- endur í landinu ekki borgunarmenn fyrir hærra kaupi, en raun ber vitni? Mér sýnist ein ástæðan sú, að hér hefur ekki orðið nægileg endurnýj- un í ýmsum greinum efnahagslífs- ins. I gamla miðbænum í Reykjavík em sífellt að skjóta upp kollinum nýjar og nýjar verzlanir, þar sem aðrar vom fyrir. Þar á sér stað stanzlaus endurnýjun, enda er verzlun blómleg og bærinn fallegur eftir því. Hvemig ætli værí umhorfs í bænum, ef búðareigandinn færi beint í bankann sinn, hvenær sem búðin kæmist í kröggur, og fengi lán til að halda taprekstrinum gangandi og reikningnum væri svo vísað á almenning með peninga- prentun og gengisfellingu? Þá væri ljótt við Laugaveginn er ég hræddur um, auk þess sem tapreksturinn væri dragbítur á lífskjör almenn- ings. Ef aðrar atvinnugreinar fengju frið til sams konar endurnýj- unar, held ég, að efnahagslífið allt gæti orðið jafn blómlegt og búðirnar í bænum. Texti: Sigrún Davíðsdóttir NÁMSKEIÐ Myndræn tjáning — „Art Therapy11 tækni Námskeiðið er ætlað kennurum, þroskaþjálfum, fóstrum, fangelsisvörðum og fólki úr heilbrigðis- stéttum. Byggt er á þvi viðhorfi að mikils ósamraemis gæti á milli hinna andlegu og veraldlegu þátta i lífi nútima- mannsins. A námskeiðinu kynnsst þótttakendur: ★ Markvissri sjálfstjáningu I eigin myndsköpun. ★ Markvissri sjálfsskoðun í gegnum eigin myndsköpun. Námskeiðið verður haldið að Klapparstfg 26 hvert mánu- dagskvöld frá 3. mars til 14. aprfl nk., milli kl. 18 og 21. Leiðbeinandi verður Sigríöur Björnsdóttir listmeðferðarfræð- ingur. Innritun og upplýsingar í sima 17114 fyrir hádegi. © ... það er ekki það sama að selja og afgreiða Þetta er nýstárlegt námskeið í sölutækni sem samið hefur verið sérstaklega fyrir kaupmenn og starfsfólk í verslunum þar sem leggja verður áherslu á persónulega sölumennsku ef árangur á að nást. Á námskeiðinu verða þátttakendur þjálfaðir í því að byggja upp söluna og Ijúka henni. Unnin verða raunhæf verkefni í sölutækni fengin úr umhverfi þátttakandans. Námskeiðið er árangur af samstarfi Verslunar- skóla íslands og Kaupmannasamtaka íslands. Námskeiðstími: Mánud. og miðvikud. kl. 13.30—15.00, námskeiðið hefst 3. marz nk. og lýkur 12. mars. Kennsla fer fram í húsakynnum Kaupmannasam- taka íslands, Húsi verslunarinnar, 6. hæð. Leiðbeinandi á námskeiðinu verður Helgi Baldurs- son, viðskiptafræðingur. Þátttaka tilkynnist til skrifstofu Kaupmannasam- taka íslands, Húsi verslunarinnar, í síma 687811. JUDO Ný byrjendanámskeið fyrir drengi hefjast 27. febrúar. Þjálfari Þóroddur Þórhallsson. Innritun og upplýsingar í síma 83295, alla virka daga frá kl. 13—22. Júdódeild Armanns Ármúla 32.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.