Morgunblaðið - 23.02.1986, Side 28
28
MORGUNBLÁÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. PEBRUáR 1986
Utanferðir
ríkisstarfs-
mannaí
sviðsljósinu
UTANLANDSFERÐIR ríkisstarfsmanna hafa verið í sviðsljósinu
undanfarna daga í framhaldi af ýtarlegu svari Þorsteins Pálssonar,
fjármálaráðherra, við fyrirspurn Kristínar S. Kvaran, þingmanns
Bandalags jafnaðarmanna, um það efni. í þessari grein er vikið að
nokkrum atriðum, er fram koma í skýrslu ráðherra og umhugsunar-
verð eru.
í svari fjármálaráðherra kemur
fram, að á tímabilinu 26. maí 1983
og til ársloka 1985 nam utanfara-
kostnaður ráðuneyta tæplega 85
milljónum króna (og þá er kostnað-
ur áranna 1983 og 1984 ekki fram-
reiknaður til núvirðis). Á síðasta
ári var þessi kostnaður samtals
39.5 milljónir króna, þar af fóru
18.6 m. kr. í fargjöld og 20,9 m.
kr. í dvalarkostnað. í þessum tölum
er ekki ferðakostnaður annarra rík-
isstofnana (Orkustofnunar, Lands-
virkjunar eða ríkisbanka, svo eitt-
hvað sé nefnt), en sennilega mundu
upphæðimar hækka mjög verulega
ef sá kostnaður væri tekinn inn í
myndina.
Þegar litið er til kostnaðar ein-
stakra ráðuneyta á síðasta ári
kemur ekki á óvart, að utanríkis-
ráðuneytið er þar efst á blaði (um
9,5 millj. kr.) og viðskiptaráðuneyt-
ið í öðru sæti (um 5,2 millj. kr.).
Iðnaðarráðuneytið er í þriða sæti
(um 4,6 millj. kr.) og menntamála-
ráðuneytið í fjórða sæti (um 4,5
millj. kr.), en síðan lækka upp-
hæðimar talsvert. Utanfarakostn-
aður félagsmálaráðuneytis er um
2,7 millj. kr., fjármálaráðuneytis
um 2,4 millj. kr., heilbrigðis- og
tryggingaráðuneytis um 2,2 millj.
kr., dómsmálaráðuneytis um 2,2
millj. kr., forsætisráðuneytis um 1,8
millj. kr., sjávarútvegsráðuneytis
um 1,1 millj. kr. og landbúnaðar-
ráðuneytis um 880 þús. kr.
A ferð og flugi
Af ráðhermm ríkisstjómarinnar
var kostnaður við 6 utanlandsferðir
Steingríms Hermannssonar, for-
sætisráðherra, og 9 ferðir Geirs
Hallgrímssonar, utanríkisráðherra,
mestur eða um 1,6 milljón króna
hjá hvomm um sig. Dýrasta ferð
forsætisráðherra var á afmælisfund
Sameinuðu þjóðanna, en hún kost-
aði um 438 þús. kr. Mestur ferða-
kostnaður utanríkisráðherra var
vegna setu hans á Allsheijarþingi
Sameinuðu þjóðanna, sem kostaði
um 550 þús. kr. Þriðji í röðinni var
Matthías Á. Mathiesen, þáverandi
viðskiptaráðherra, en útgjöld vegna
6 ferða hans námu um 1,5 milljón
kr. Dýmst var seta hans á ársfundi
Alþjóðabankans og heimsókn til
Japans í sömu ferð (um 721 þús.
kr.). Sjö ferðir Alberts Guðmunds-
sonar kostuðu um 780 þús. kr., 9
ferðir Ragnhildar Helgadóttur um
607 þús. kr., 6 ferðir Jóns Helga-
sonar um 492 þús. kr., 4 ferðir
Sverris Hermannssonar um 434
þús. kr., 3 ferðir Matthíasar Bjama-
sonar um 422 þús. kr., 1 ferð Alex-
anders Stefánssonar um 212 þús.
kr. og 3 ferðir Halldórs Ásgrímsson-
ar um 178 þús. kr.
Sá embættismaður í Stjómarráð-
inu, sem flestar utanlandsferðir fór
á síðasta ári, var 16 sinnum erlendis
og nam kostnaður vegna þeirra
ferða rúmlega 1,1 millj. kr. Hér er
um Jón Júlíusson, deildarstjóra í
viðskiptaráðuneytinu, að ræða og
tengjast flestar ferðir hans reglu-
legum fundum staðgengla sam-
starfsráðherra Norðurlanda. Nokk-
ur hópur embættismanna fór 7-10
utanlandsferðir á síðasta ári, en
algengara er að þeir, sem á annað
borð eru sendir utan, fari 4-5 ferðir
eða færri. Svo er auðvitað mjög
stór hópur ráðuneytismanna, sem
aldrei fer utan í opinberum erindum.
Reg'lugerðin var
aldrei sett
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Á leið úr landi.
AF INNLENDUM
VETTVANGI
eftir GUÐMUND MAGNÚSSON
athyglin beinist að utanlandsferð-
um ríkisstarfsmanna eða þær sæta
gagnrýni opinberlega. Fyrir hálfu
þriðja ári greindi Morgunblaðið frá
því, að tveir af þremur ráðuneytis-
stjómm í utanfaranefnd ríkisins
hefðu sagt sig úr nefndinni, þar sem
þeir töldu ekki nægilegt tillit tekið
til álits hennar. í framhaldi af þessu
lagði nefndin upp laupana, en henni
var ætlað að meta utanferðir ríkis-
starfsmanna og virka sem „bremsa"
á þær, og gekk af þeim sökum
undir nafninu „bremsunefnd." Síð-
an hafa ákvarðanir um utanlands-
ferðir embættismanna verið teknar
í hveiju ráðuneyti fyrir sig, en
upphæð dagpeninga er hins vegar
ákveðin af sérstakri ferðakostnað-
amefnd, sem skipuð er fjórum
mönnum. Albert Guðmundsson,
þáverandi fjármálaráðherra, lýsti
því að vísu yfir í samtali við Morg-
unblaðið 30. september 1983, að
hann hygðist setja nákvæma reglu-
gerð um utanlandsferðir opinberra
starfsmanna, sem miðaði að því að
fækka utanferðum til muna, en að
sögn Sigurðar Þórðarsonar, skrif-
stofustjóra í fjármálaráðuneytinu,
hefur þessi reglugerð aldrei verið
sett.
Misjafnar reglur
um ferðakostnað
Samkvæmt upplýsingum ferða-
kostnaðamefndar og fjárrnálaráðu-
neytis eru þrenns konar reglur í
gildi um greiðslur vegna opinberra
utanlandsferða ráðherra og emb-
ættismanna. Embættismenn (sem
ekki em ráðuneytisstjórar) fá far-
gjaldið greitt að fullu og auk þess
dagpeninga meðan þeir dveljast
erlendis, og eiga þeir að nægja fyrir
hótelkostnaði, fæði, ferðum erlendis
og öðrum brýnum nauðsynjum.
Þessir dagpeningar eru nú 120,5
SDR [„sérstök dráttarréttindi" -
jafngildi um 5.600 fsl. kr.], nema í
New York, þar sem hótelkostnaður
er mjög hár, 158 SDR. Dagpening-
ar skerðast hins vegar þegar menn
hafa verið 3 vikur eða lengur á
sama stað. Ráðuneytisstjórar fá
ferðir greiddar og sömu dagpeninga
og aðrir embættismenn, en að auki
eru hótelreikningar þeirra borgaðir
sérstaklega. Hótelkostnaður ráð-
herra er einnig greiddur sér, en auk
þess fá þeir 20% álag á dagpeninga
sfna.
Við það er miðað, að Ferðaskrif-
stofa ríkisins annist allar utanlands-
ferðir opinberra starfsmanna, þótt
frá því séu undantekningar, og er
þetta verulegur hluti af viðskiptum
ferðaskrifstofunnar. Forráðamenn
ferðaskrifstofa í einkaeign hafa
ekki verið ánægðir með þetta.
Þegar utanferðir ríkisstarfsmanna
voru til umræðu haustið 1983 lýsti
þáverandi formaður Félags ís-
lenskra ferðaskrifstofa því yfir, að
þær teldu sig oft geta gert hagstæð-
ari farseðlakaup, en Ferðaskrifstofa
ríkisins. „Það hlýtur og að teljast
eðlilegt, að allir, ríkisgeirinn þá
meðtalinn, megi versla við þá, sem
veitt geta góða þjónustu og ég er
vitaskuld ekkert að setja út á þá
þjónustu sem Ferðaskrifstofa ríkis-
ins veitir," sagði hann.
Má draga saman seglin?
Kostnaður vegna utanferða ráð-
herra og embættismanna í ráðu-
neytum nam, sem fyrr segir, tæpum
40 milljónum króna á síðasta ári.
Sú spuming vaknar hvort þetta sé
of há upphæð og hvort þama megi
spara umtalsverða íjármuni? Þetta
er auðvitað mikið álitamál, en hér
verður drepið á nokkur atriði til
umhugsunar í þessu samhengi.
Það er líklega opinbert leyndar-
mál, að í ráðuneytunum er öðrum
þræði litið á utanlandsferðir sem
uppbót á laun, sem ekki þykja nógu
há. Þeir, sem eiga t.d. vini eða
ættingja á hinum erlenda dvalar-
stað, fá oft inni hjá þeim og spara
sér þannig umtalsverð útgjöld, sem
færu í að greiða hótelreikninga.
Vitað er líka, að embættismenn
sækjast eftir því að samræma orlof
sitt og opinber erindi.
Oft er það mikið vafaatriði hve-
nær stjómvöld eiga að senda full-
trúa sína á fundi og ráðstefnur
erlendis. Stundum komast þau
naumast hjá því vegna skuldbind-
inga, sem fylgja aðild að alþjóða-
stofnunum eða alþjóðlegum sátt-
málum. Norræn samvinna heimtar
sitt og er kannski einna drýgsti
utanfaraþátturinn, en þar eru fund-
ir þó auðvitað misjafnlega mikil-
vægir, eins og á öðrum vettvangi.
__________Brids
Arnór Ragnarsson
Gengið frá kaupunum
á Sigtúni 9
Bridssamband íslands og
Reykjavíkurborg hafa gengið frá
kaupum á Sigtúni 9 þar sem
Dansstúdíó Sóleyjar er til húsa.
Húsnæðið er um 350 fermetrar
og er kaupverðið 9 V2 milljón
króna.
Bridssambandið hyggst nota
húsnæðið undir eigin starfsemi
en þá munu Reykjavíkurfélögin
einnig eiga innskot í húsnæðið.
Reykjavíkurborg hyggst hins
vegar nota húsnæðið á daginn
undir tómstundastarf eldri borg-
aranna.
Eins og bridsáhugamenn vita
gaf Guðmundur Kr. Sigurðsson
Bridssambandinu íbúð sína í vetur
en hún kemur sem greiðsla frá
sambandinu upp í kaupin. Hús-
næðið verður afhent 15. desember
nk.
Bridsfélag Hveragerðis
Þremur umferðum er lokið í
Esso-sveitakeppninni en 7 sveitir
taka þátt í keppninni.
Staðan:
Einar Sigurðsson 71
Jón Guðmundsson 47
Hans Gústafsson 43
Ragnheiður Guðmundsdóttir 42
NielsBusk 41
Sturla Þórðarson 41
Bjamþór Bjamþórsson 38
Næsta umferð verður á þriðju-
daginn í Félagsheimili Ölfusinga.
Hefst keppnin kl. 19.30.
Bridsdeild Breiðfirð-
ingafélagsins
Nú er aðeins 6 umferðum ólokið
í barometerkeppninni og er staða
efstu para þessi:
Guðmundur Thorsteinsson
— Gísli Steingrímsson 730
Helgi Nielsen
— Alison Dorosh 673
Jón Stefánsson
— Magnús Oddsson 602
Sveinn Þorvaldsson
— Hjálmar Pálsson 602
Sveinn Sigurgeirsson
— Baldur Ámason 548
Jóhann Jóhannsson
— Kristján Sigurgeirsson 505
Öm Scheving
— Steingrímur Steingríms. 398
Albert Þorsteinsson
— Sigurður Emilsson 391
Halldór Jóhannsson
— Ingvi Guðjónsson 386
Guðlaugur Karlsson
— Óskar Þráinsson 365
Þorsteinn Laufdal
— Þröstur Sveinsson 356
Guðmundur Aronsson
— Sigurður Ámundason 302
Bridsféiag Reykjavíkur
Nú er aðaltvímenningskeppnin
hálfnuð. Þessi pör hafa yfir 100
stig í plús.
Jón Baldursson
— Karl Sigurhjartarson 486
Hrólfur Hjaltason
— Oddur Hjaltason 385
Ragnar Magnússon
— ValgarðBlöndal 358
Guðm. Sv. Hermannsson
— Bjöm Eysteinsson 289
Jón St. Gunnlaugsson
— Björgvin Þorsteinsson 234
Jón Hjaltason
— Hörður Amþórsson 222
Stefán Guðjohnsen
— Þórir Sigurðsson 195
Rúnar Magnússon
— Stefán Pálsson 193
Jón Hilmarsson
— Logi Þormóðsson 166
Kristján Blöndal
— Einar Jónsson 153
Sigurður Sigurjónsson
— Júlíus Snorrason 145
Þórarinn Sigþórsson
— Þorlákur Jónsson 127
Hrannar Erlingsson
— Matthías Þorvaldsson 100
Bridsdeild
Barðstrendinga-
félagsins
Staðan í aðalsveitakeppni fé-
lagsins eftir 12 umferðir:
Þórarinn Ámason 231
Sigurður ísaksson 220
Gunnlaugur Þorsteinsson 218
Viðar Guðmundsson 210
Guðmundur Jóhannsson 200
Síðasta umferð verður spiluð
mánudaginn 24. febrúar nk.
„Barometer" hefst síðan mánu-
daginn 3. mars nk. og er þegar
fullbókað í þá keppni. Spilað er í
Síðumúla 25 og hefst keppni
stundvíslega kl. 19:30. Keppnis-
stjóri verður Hermann Lárusson.
Bridsdeild Rangæinga-
félagsins
Sjö umferðum af 9 er lokið í
sveitakeppninni og er staða efstu
sveita þessi:
Gunnar Helgason 154
SigurleifurGuðjónsson 147
Gunnar Alexandersson 142
Gunnar Guðmundsson 108
Auðséð er að „Gunnurunum“
verður ekki þokað úr efstu sætun-
um en næstsfðasta umferðin verður
spiluð 26. febrúar í Ármúla 40.
I