Morgunblaðið - 23.02.1986, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR1986
29
IMá ekki sinna drjúgum parti hinna
opinberu samskipta við aðrar nor-
rænar þjóðir með símtölum og
bréfaskrifum eða fjarskiptum af
öðrutagi?
Sumar utanlandsferðir eru bein-
línis óhjákvæmilegar, einkum þær
sem tengjast stjómmálasambandi
og viðskiptum okkar við önnur ríki.
Það getur t.d. kostað umtalsverða
peninga, að senda hóp embættis-
manna til að kanna nýja markaði
fyrir íslenska framleiðslu, en þau
útgjöld geta að sjálfsögðu skilað sér
margfaldlega til baka. Ýmis kostn-
aður vegna utanríkisþjónustu sting-
ur þó í augu, einkum í tengslum
við það þegar sendiherrar afhenda
trúnaðarbréf og kveðja. Sú spum-
ing hlýtur að vakna, hvort nauðsyn-
legt sé að rækta á þennan hátt
stjómmálasamband við flölmörg,
flarlæg ríki.
Vafamál er ennfremur, að tfkið
eigi að standa straum af ferðum
ráðherra, þegar þeir em ekki í
opinberum erindum. Eitt dæmi um
það er för Steingríms Hermanns-
sonar á fund Alþjóðasambands
ftjálslyndra flokka í Madrid í fyrra-
haust, sem greidd var úr ríkissjóði.
Loks má velta því fyrir sér hvort
ekki sé fullkominn óþarfi, að láta
ráðuneytismenn sitja margra vikna
fundi alþjóðastofnana, þegar ör-
uggt er að uppskeran er í engu
samræmi við tilkostnað. Hér er t.d.
átt við þing Alþjóðavinnumálasam-
bandsins.
Upplýsingaskylda
stjórnvalda
Fram hefur komið, að það kostaði
fjármálaráðuneytið hvorki meira né
minna en 160 þúsund krónur að
taka saman svarið við fyrirspum
Kristínar S. Kvaran, enda er um
að ræða rit upp á 46 blaðsíður. Af
lestri ritsins má ætla, að það sé
unnið í nokkrum flýti. Sums staðar
er uppgefið tilefni ferðar mjög óná-
kvæmt („menningarmál", „fundur
í Feneyjum", „ferð til Englands",
„Stóriðjunefnd", „dagvistarmál",
„skattamál", „orkumál" o.s.frv.). Á
nokkrum stöðum er tilefni ferða
hreinlega ekki nefnt og fyrir kemur
að dagsetningar vantar.
Af þessu tilefni virðist við hæfi
að spyija, hvort ekki sé einfaldast
að ráðuneytin og allar stofnanir rík-
isins taki reglulega (árlega, árs-
flórðungslega eða mánaðarlega)
saman skýrslu um opinberar utan-
landsferðir starfsmanna sinna og
slíkar skýrslur verði gerðar að-
gengilegar öllum, sem áhuga hafa
á að kynna sér þær? Þetta ætti
ekki að þurfa að vera mikið verk-
efni, þegar það er unnið jafnt og
þétt, en í slfkri samantekt er aug-
ljóslega fólgið nokkurt aðhald fyrir
viðkomandi ráðuneyti og stofnanir,
svo ekki sé minnst á hitt, að skatt-
borgaramir hljóta að eiga siðferði-
legan rétt á upplýsingum af þessu
tagi. Það eru þeir, sem á endanum
borga brúsann.
gististaðirnir
Sömu
Royal Jardin de Mad
-íSSíSííK"
•æsæí-
ATLANTIK býður, sjötta sumarið í röð, sólarferðir
til MALLORKA
Brottfarardagar:
26. mars 23. júlí
9. apríl 13. ágúst
25. maí 3. september
15. júní 24. september
2. júlí 22. októbert
Beint leiguflug — dagflug
rnfxvrn
FERÐASKRIFSTOFA, HALLVEIGARSTÍG 1,
SÍMAR 28388 - 28580
I
Hraðlestrarnámskeið
Viltu auðvelda þér námið og vinnuna?
Viltu margfalda lestrarhraða þinn?
Viltu bæta náms- og vinnutækni þína?
Viltu margfalda lestiu- þinn á fagurbókmenntum?
Viltu auka frítíma þinn?
Ef svörin eru játandi þá skaltu drífa þig á
næsta hraðlestrarnámskeið sem hefst þriðju-
daginn 4. mars.
Skráning á kvöldin kl. 20-22 í síma 611096.
Hraðlestrarskólinn.
Viðtalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík
^ Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokkslns veröa til víötals i Valhöll,
J Háaleitisbraut 1, á laugardögum frá kl. 10—12. Er þar tekið á
I móti hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum og er öllum
k borgarbúum boöiö að notfæra sér viðtalstíma þessa.
^ Laugardaginn 22. febrúar, verða til viðtals Katrin Fjeldsted,-
® formaður Heilbrigðisráðs og í stjórn Umferðarnefndar Reykja-
víkur, og Július Hafstein, formaður iþróttaráðs Reykjavikur,
j samstarfsnefndar um ferðamál og í stjórn SVR.