Morgunblaðið - 23.02.1986, Síða 37

Morgunblaðið - 23.02.1986, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR1986 Það er tónlist þessa manns sem ræður ríkjum í kvöld og annað kvöld á Gauki á Stöng. m GAUKURA STONG - fffff . Lennon-kvold BÍTLA VINAFÉLAGIÐ FL YTUR 30 LÖG EFTIR KAPPANN í KVÖLD OG ANNAÐ KVÖLD 30 lög eftir John heitinn Lennon verða flutt á Gauki á Stöng í kvöld og annað kvöld. Kvöld þessi kallar Guffi á Gauknum hreinlega Lenn- on-kvöld og hef ur hann fengið til liðs við sig nýstofnaða hljómsveit sem loksins hefur hlot- ið nafn; Bftlavinafélagiðl Bítlavinafélagið skipa þeir Rafn Jónsson, Eyjólfur Kristjánsson, Stefán Hjörleifsson og Haraldur Þorsteinsson. Svo má ekki gleyma hljómborðsleikaranum en nafni hans hefur Popparinn steingleymtl Bítlavinafélagið hefur verið iðið við aefingar undanfarna daga og hafa tónar úr smiðju Lenn- on ómað viö Rauöarárstíginn og Miklubrautina, vegfarendum vonandi til mikiliar ánægju. Meðlimir Bítlavinafélagsins segjast styðjast í öllum aðalatriðum við upphaflegar útsetningar laganna sem flutt verða. Ekki ku Eyjólfur og hljómborðshárkollan þó gera mikið í því að herma eftir söngrödd Lennons enda engum greiði gerður með því. Þessi 30 lög Lennons spanna allan hans feril, frá upphafsárum Bítlanna til dauðadags hans. Gestir Gauks á Stöng geta hlýtt á lög eins og Please please me, Come together, A day in the life, Help, Nobody told me, Oh Yoko, Lucy in the sky with Diamonds, Woman, Starting over, Imagnie og allar þessar geðþekku perlur sem vinurinn lokkaði úr dægurlagasænum silfraða. Bítlavinafélagiö hyggst ekki rekja feril Lenn- ons í máli og myndum og ekki muna þeir leika lögin í réttri tímaröð. „Við hrærum þessi bara saman og sjáum svo til hvernig smakkast," sagði einn liðsmanna félagsins. Ef aðsókn á Lennon-kvöldin tvö sem verða í kvöld og annað kvöld verður ógnvænleg er aldrei að vita nema því þriðja verði bætt við. Hljóðfærasláttur og söngur hefst á slaginu tíu bæði kvöldin. Óstaðfestar fregnir herma að vegleg verðlaun verði veitt þeim sem tekst best upp í að líkjast Yoko Ono. Verðlaunin yrðu þá Uncle Beans hrísgrjón. M PAXVOBIS uassaleikara- skipti ■i <c. JakobMagnússon í stað Skúla Sverrissonar Eftirmaður Skúla Sverris- sonar í Pax Vobis er fundinn. Sá leikur auðvitað á bassa eins og Árbæingurinn og heitir Jakob Mangússon og hefur gert garðinn frægan með TappaTíkarrassi, Das Kapital og Grafík meðal annars. Jakob er góður bassaleikari og reynd- ar með allt annan stíl en Skúli og hefur ósjaldan nögl sértil fulltingis. Það verður spenn- andi að sjá og heyra hvort tón- list Pax Vobis mun taka stakka- skiptum við þetta. Popparinn segir nú bara: „Strákar mínir. Vegniykkurvel." Jakob Magnússon, nýr bassaleikari Pax Vobis er hér á fullri ferð SMÁSKÍFUR VIKUNNAR Sú besta Public Image Ltd. — Rise Johnny Lydon syngur eins og engili. Er það ekki saga til næsta bæjar? Hljóðfæraleikurinn er einfaldur en vandaður en einn maður stendur þó upp úr. Það er gítarleikarinn Steve Vai. Popparinn er enn að jafna sig eftir að hafa hlýtt á lagið. Lagið er engu líkt og Popparinn er enn að leita að einhverri samlíkingu. Það gengur ekki vel. Svona eiga sýslumenn að vera. Aðrar ágætar Alarm — Spirit of ’76 Þetta er gott rokk. Eurythmics — It’s alright Nú ætlar Popparinn að hætta OBOXERS ERU HÆTTIR Joboxers eru hættir. Sean McClusky, Chris Bostock og Rob Marche eru nú að leita að söngvara sem getur samið texta. Ef einhver sem þetta les er spenntur fyrir starfinu þá má hinn sami senda mynd af sér og upp- töku með eigin rödd til Englands. Heimilisfangið er: Starcrest, Management, 163 Caledonian Road, London N1, England. Nýtt lag með John Taylor á leiðinni Hinn ekki mjög svo ómynd- arlegi meðlimur Duran Duran, John Taylor sendir frá sór ílok þessa mánaðar lag sem hann samdi sjálfurog syngur. Lagið er úr kvikmyndinni „ Nine and a halfweeks". AFFJÖLSKYLDU FEARGALS SHARKEY Oskemmtileg lífsreynsla Móðir og systir Feargal Sharkeys urðu fyrir heldur óskemmti- legrilífsreynslu fimmtudagsmorguninn 13. febrúar. Þærvoruí heimsókn hjá vinafólki þegar byssumenn IRA hersins lögðu undirsig húsið og sátu þar fyrir öryggissveitum. Ekki særðust þær neitt mæðgurnar en móðir næturgalans Sharkeys féll i yfirlið. Sybil Sharkey er reyndar nýflutt til Spánar en var stödd iLondonderry þar sem verið varað jarða fjölskylduvin. að lemja höfðinu við steininn og bara viðurkenna að þau skötu- hjú, Lennox og Stewart, eru mikið gáfufólk sem kann að fara með raddbönd og hljóðfæri. Sálin er mjkil í þessari melódíu og söngur Önnu er í sérflokki. * Five Star — System Addict Gott danslag. Hér er ekki verið að nota öll hljóðfæri heimsins bara til þess að nota þau heldur snyrtimennskan númer eitt, tvö og þrjú. Það er allt of sjaldgæft í svona tónlist. Lagið er nokkuð skemmtilegt. Arcadia — Goodbye is forever Aldrei hélt Popparinn að Arcadia myndi komast í þennan flokk, en kraftaverkin gerast enn. Le Bon syngur betur en«, „ áður og tekst vel upp þegar hann notar falsettutæknina. Nú þarf hann bara að klippa kjökrið í enda hvers orðs af og þá myndi Popparinn glaður bjóða honum að syngja bakraddir á næstu plötu. Gítarleikur í þessu lagi er skemmtilegur og lagið vel sam- ið. Það vinnurvel á. Elvis Costello — Don’t let me be misunderstood Þetta er ekkert frumlegt en samt alveg frábært. Costello svíkur sjaldan eða aldrei og fer vel með þetta gamla Animals- lag Það munaði litlu að þetta V* færi í efsta flokk. Talk Talk — Live is what you make it Öðruvísi? Hvort það er. Hér er til dæmis enginn bassaleikur heldur djúpar flygilnótur notaðar í staðinn. Hugmyndaauðgi pilt- anna í þessari sveit eru engin takmörk sett og það ber að virða. Lagið er í sjálfu sér ekkert svo merkilegt en söngur og út- setning í sérflokki. ^ Afgangurinn Peter Frampton — Lying Má ég þá frekar biðja um Huey Lewis?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.