Morgunblaðið - 23.02.1986, Síða 46
agexfLAU
í
1
t
I
?
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
BORGARSPÍTALINN
LAUSAR STÖDUR
Hjúkrunardeildarstjóri
Deildarstjóri óskast á skurðstofu kvensjúk-
dómadeildar Fæðingarheimilis Reykjavíkur
sem fyrst.
Nánari upplýsingar veita Guðjón Guðnason
yfirlæknir og Árni Ingólfsson læknir í síma
22544.
Hjúkrunarfræðingur
Heilsugæslustöðin í Fossvogi óskar eftir
hjúkrunarfræðingi í 50% starf. Um afleys-
ingastarf er að ræða.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma
685099 milli kl. 11.00-12.00.
Læknaritari
Staða læknaritara við endurhæfingadeildir
Borgarspítalans er laus til umsóknar. Starfs-
vettvangur verður móttaka, vélritun, sjúkl-
ingabókhald o.fl. við sjúkra- og iðjuþjálfun á
Borgarspítalanum í Fossvogi. Góð vélritunar-
kunnátta nauðsynleg.
Nánari upplýsingar veitir skrifstofustjóri í
síma 681200-350.
BORGARSPÍTALINN
<>681200
Skrifstofa Norrænu
ráðherranefndarinnar
óskar eftir að ráða:
ráðunaut á sviði utanríkisviðskipta
og þróunarmála og deildarritara við
fjárhalds- og stjórnsýsludeild.
Norræna ráðherranefndin var sett á stofn árið 1971. Verksviö nefnd-
arinnar er að taka ákvarðanir varðandi norræna samvinnu, sem tekur
til flestra sviða samfélagsins.
Skrifstofan í Osló og Menningarmálaskrifstofan í Kaupmannahöfn
annast daglegan rekstur norrænnar samvinnu.
Þar er unnin undirbúningsvinna og séð til þess að ákvörðunum ráð-
herranefndarinnar, og annarra stofnana, sé framfylgt.
Ákveðið hefur verið að sameina þessar tvær skrifstofur. Áætlað er
að því verki verði lokið i júni á þessu ári og veröur skrifstofan frá
þeim tíma i Kaupmannahöfn. Vegna fyrirhugaðrar sameiningar þarf
að fjölga starfsfólki.
Ráðunautur
Ráöunautnum er ætlað að starfa á sviöi utanríkisviðskipta og þróun-
armála. Hann mun í samvinnu við annan ráðunaut hafa umsjón með
þeirri vinnu sem innt er af hendi á skrifstofunni vegna norrænu
embættisnefndarinnar um utanríkisviöskipti auk þess mun hann
stjórna 4-5 verkefnum á hverjum tíma. Ráðunauturinn mun eiga
samstarf við ríkisstjórnir og ráðuneyti á Noröurlöndum. Þess er
einnig vænst að ráðunauturinn eigi frumkvæði að samnorrænum
verkefnum og geri fjárhagsáætlanir.
Ráðunautnum kunna einnig aö vera falin önnur verkefni en hér hafa
verið upp talin.
Þess er krafist aö viðkomandi hafi viöeigandi menntun og reynslu
af stjórnunarstörfum. Þeir umsækjendur, sem hafa sérþekkingu eöa
reynslu af ofangreindum málaflokkum munu ganga fyrir.
Ráðunauturinn þarf að hafa stjórnunarhæfileika, vera samvinnufús
og geta starfað sjálfstætt.
Stöðu þessari fylgja ferðalög innan Norðurlanda.
Deildarritari
Hann mun starfa við fjárhalds- og stjórnsýsludeild og sinna hefð-
bundnum störfum ritara fyrir ráðunauta og deildarstjóra. Þá mun
viökomandi samræma störf ritara deildarinnar auk þess að sjá um
gerð fundalista og fleira. Hann mun sjá um að flokka þann póst sem
berst og þjálfa nýliða i skrifstofustörfum.
Viðkomandi umsækjendur þurfa að vera samstarfsfúsir og geta
starfaö sjálfstætt. Krafist er reynslu af skrifstofustörfum, góðrar
vélritunarkunnáttu og reynslu af ritvinnslu.
Um báðar þessar stöður gildir að krafist er mjög góðrar dönsku-,
norsku- eða sænskukunnáttu.
Skrifstofan hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um stöður
þessar. Viökomandi munu starfa i Kaupmannahöfn. Æskilegt er aö
þeir geti tekiö til starfa sumarið 1986.
Samningstiminn er venjulega 3 til 4 ár. Framlenging hans er hugsan-
leg. Rikisstarfsmenn eiga rétt á leyfi frá núverandi starfi. I boði eru
góð laun og ákjósanleg starfsskilyrði m.a. mun skrifstofan aðstoöa
við að útvega húsnæði i Kaupmannahöfn.
Umsóknarfresturertil 12. mars 1986.
Nánari upplýsingar veita Ragnar Kristoffersen, skrifstofustjóri (ad-
ministrationsshef) og Harald Lossius, ráöunautur, i sima: (Oslo)
11 10 52 eða Mette Vestergaard I síma: (Kaupmannahöfn) 11 47 11.
Seppo Suokko, deildarstjóri veitir einnig upplýsingar um stöðu ráöu-
nautar og einnig veitir Alf Nilsson, fjármálastjóri (budsjettsjef) upplýs-
ingar um stöðu ritara. Báðir eru þeir i síma (Oslo) 11 10 52.
Skriflegar umsóknir skal senda:
Nordisk Ministerrad,
Generalsekretæren,
Postboks 6753,
St. Oiavs Plass,
01300slo 1.
Atvinna óskast
Ég óska eftir góðu starfi. Hef mikla reynslu
af stjórnunarstörfum og almennum rekstri.
Undanfarin ár hef ég starfað við þróunarverk-
efni erlendis. Menntun er kandidatspróf í
búfræðum. Tilboð merkt: „Markaður —
3344“ sendist auglýsingadeild Morgunblaðs-
ins fyrir nk. föstudag. Með öll tilboð verður
farið sem trúnaðarmál.
Réttingarmenn
Okkur vantar nú þegar mann vanan blarétt-
ingum á verkstæði okkar, Lágmúla 5.
Mjög góð vinnuaðstaða.
Upplýsingar gefur þjónustustjóri sma
681555.
Gbbusa
Lágmúla 5, sími 81555.
Ritstjóri
Staða ritstjóra Orðabókar Árnanefndar er
laus til umsóknar. Staðan verður veitt frá
1. júlí 1986 eða sem fyrst eftir þann tíma.
Krafist er ítarlegrar þekkingar á bókmenntum
og tungum Norðurlandaþjóða auk mjög
góðrar dönskukunnáttu. Æskilegt er að við-
komandi kunni nútíma íslensku og hafi starf-
að að gerð orða- og/eða alfræðibóka.
Nánari upplýsingar um stöðu þessa veitir
ritari Árnanefndar í síma: 01 54 22 11 /2164.
Ráðning fer fram samkvæmt gildandi sam-
komulagi á milli danska fjármálaráðuneytis-
ins og stéttarfélags danskra magistera.
Sérstök nefnd mun leggja mat á þær um-
sóknir sem berast. Umsækjendum verða
sendar niðurstöður nefndarinnar. Nefndin
mun ákveða hver umsækjenda hlýtur starfið.
Óskað er eftir að þau ritverk og rannsókna-
verkefni, sem umsækjendur telja að komi
að haldi við mat á hæfni þeirra, fylgi með í
þríriti.
Umsóknir skal merkja Árnanefnd (Den arna-
magnæanske kommission) og senda þær
rektor Kaupmannahafnarháskóla, sem er
formaður nefndarinnar. Heimilisfangið er:
Frue Plads, 1168 Köbenhavn K.
Umsóknarfrestur rennur út þann 15. mars
kl. 10.00.
Fyrirtæki í Reykjavík er útflytjandi á frystum
og ferskum sjávarafurðum og innflytjandi á
veiðarfærum og umbúðum, einnig rekurfyrir-
tækið fiskvinnslustöð ásamt útgerð.
Útflutningur
sjávarafurða
Sölumaður
Útflutningsdeild okkar sem fer stöðugt vax-
andi vantar duglegan og framtakssaman
mann til að markaðssetja sjávarafurðir um
allan heim.
Um er að ræða starf sem byggist mikið á
samskiptum við innlenda og erlenda aðila.
Krafist er góðrar enskukunnáttu ásamt kunn-
áttu í a.m.k. einu Norðurlandamáli. Einnig
þarf viðkomandi að hafa innsýn í veiðar og
vinnsluáfiski.
Viðkomandi þarf að geta starfað sjálfstætt
og hafa góða samstarfshæfileika.
í boði er góð starfsaðstaða í krefjandi starfi
hjá fyrirtæki þar sem er góður starfsandi.
Laun fara eftir hæfileikum.
Allar umsóknir verður farið með sem trúnað-
armál og öllum verður svarað.
Umsóknir sendist augl.deild Mbl. merkt:
„K — 0490" fyrir 5. mars nk.
22ja ára maður
óskar eftir vel launuðu starfi. Hefur stundað
ýmis verslunarstörf og unnið 1 ár í banka.
Hefur góða reynslu sem sölumaður. Upplýs-
ingar í síma 99-2380.
Hagvangur hf
RÁÐNINCARPJÓNUSTA
CRENSÁSVECI 13, 108 REYKJAVÍK
SÍMAR: 83666 - 83472 - 83483
Rekstrar- og tækniþjónusta Námskeiöahald
Markaðs- og söluráögjöf Tölvuþjónusta
Þjóöhagfræðiþjónusta Ráðningarþjónusta
Skoöana- og markaöskannanir
Þórir Þorvarðarson
Katrín Óladóttir og Holger Torp.
Einkaritari (353)
Fyrirtækið er heildsölufyrirtæki í Reykjavík.
Vinnutími: frá kl. 9.00 til 13.00.
Starfssvið: erlendar og innlendar pantanir,
vélritun, tollútreikningur, bréfaskriftir, telex,
skjalavarsla, útskrift reikninga, tölvuritun o.fl.
Við leitum að ritara með nokkurra ára starfs-
reynslu, góð enskukunnátta skilyrði.
í boði er fjölbreytt og krefjandi starf.
Góð laun.
Einkaritari (354)
Fyrirtækið er innflutningsfyrirtæki í Reykja-
vík.
Starfssvið: útskrift reikninga, innlausn vara
úr tollvörugeymslu, sala til verslana og fyrir-
tækja.
Við leitum að: manni með reynslu af sölu-
mennsku, góða framkomu og hæfileika til
að starfa sjálfstætt.
Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi bíl.
í boði er hlutastarf, vinnutími samkomulag.
Ritari (355)
Fyrirtækið er þjónustufyrirtæki í Reykjavík.
Starfssvið: telex, vélritun, skjalavarsla o.fl.
Við leitum að ritara með góða ensku- og
vélritunarkunnáttu.
í boði er sveigjanlegur vinnutími, góð laun
og traust framtíðarstarf.
Laust strax.
Bókari (346)
Fyrirtækið er þjónustufyrirtæki í Reykjavík.
Starfssvið: merking fylgiskjala, afstemming-
ar, uppgjör, frágangurtil endurskoðenda.
Við leitum að manni með góða verslunar-
menntun og/eða reynslu af bókhaldi.
Nauðsynlegt er að viðkomandi geti unnið
sjálfstætt og skipulega.
Laust strax.
Fatahönnuður (6)
Óskum að ráða „free-lance“-fatahönnuð til
starfa hjá þekktu fyrirtæki á framleiðslu ullar-
fatnaðartil útflutnings.
Við leitum að ungum velmenntuðum og
hugmyndaríkum hönnuði.
Æskileg sérmenntun eða sérþekking á hönn-
un ullarfatnaðar.
Áhugasamir hafi samband við Þóri Þorvarð-
arson eða sendi umsóknir merktar „Fata-
hönnuður (6)“ til skrifstofu okkar.
Vinsamlegast sendið umsóknir á eyðublöð-
um sem liggja frammi á skrifstofu okkar
merktar númeri viðkomandi starfs.
Hagvangur hf
Sl'RH.Æ - n RÁÐNINOARPJÓNUSTA
BYCC.U Á G/'.ONKVÆMUM TRÚNA0I