Morgunblaðið - 23.02.1986, Page 49
MÖRGrÚNÖLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. PEBRÖAR1986
49
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Meinatæknir
Óskað er eftir meinatækni til starfa við fisksjúk-
dómarannsóknir á tilraunastöð Háskólans í
meinafræði, Keldum. Upplýsingar í síma
82811.
Útlitshönnun
og textagerð
Tökum að okkur útlitshönnun tímarita, frétta-
bréfa, bæklinga og auglýsinga auk texta og
greinaskrifa.
Upplýsinga í símum 52072 og 671405 eftir
kl. 18.00 næstu daga.
Framkvæmdastjóri
Framleiðslufyrirtæki í matvælaiðnaði á höfuð-
borgarsvæðinu óskar að ráða framkvæmda-
stjóra tæknisviðs til að sjá um framleiðslu:
stjórn, innkaup og tæknimál fyrirtækisins. í
boði er áhugavert starf sem væntanlegur
starfsmaður mun eiga stóran þátt í að móta.
Leitað er eftir manni með háskóla- eða tækni-
fræðimenntun.
Umsóknir skilist til augld. Mbl. fyrir 4. mars
merktar: „V — 0620“.
Q
Útideild í Kópavogi
óskar að ráða tvo starfsmenn í hálfa stöðu
hvorn. Starfið er fjölbreytt með sveigjanleg-
um vinnutíma. Reynsla og/eða menntun
tengd unglingastarfi er æskileg. Umsóknar-
frestur er til 3. mars nk. Upplýsingar eru
veittar á Félagsmálastofnun í síma 41570.
Félagsmálastofnun Kópavogs.
Sölustjóri hjá
útflutningsfyrirtæki
Ungt útflutningsfyrirtæki í ullariðnaði óskar
eftir að ráða sölustjóra. Fyrirtækið flytur út
til allra helstu markaða í Evrópu og Skand-
inavíu. Starfi þessu fylgja mikil ferðalög er-
lendis. Viðkomandi þarf a.m.k. að tala og
rita ensku. Æskilegt væri að viðkomandi
hefði reynslu í útflutningi en er þó ekki skil-
yrði. Umsóknirsendistaugld. Mbl. merktar:
„R — 0619“ fyrir 5. mars nk.
Málarasveinar ath
Óskum eftir starfsmönnum í lengri eða
skemmri tíma. Mikil vinna framundan.
Upplýsingar veittar í símum 32617 og 79882
eftir kl. 20.00 á kvöldin.
Borgarmálun hf.
Framkvæmdastjóri
Landssamband fiskeldis- og hafbeitarstöðva
óskar eftir starfsmanni í hálfsdagsstarf til
að annast daglegan rekstur sambandsins.
Starfsmaðurinn þarf að hafa þekkingu og
reynslu í fiskeldismálum. Góð tungumála-
kunnáttaáskilin.
Umsækjendur sendi umsóknir til Jóns
Sveinssonar, Grundarlandi 12, 108, Reykja-
vík, fyrir 28. mars nk.
Offsetprentarar
Prentsmiðja á Stór-Reykjavíkursvæðinu
óskar að ráða góðan offsetprentara.
Góð vinnuaðstaða í nýjum húsakynnum.
Með fyrirspurnir verður farið sem algjört
trúnaðarmál.
Fyrirspurn merkt: „P — 8685“ sendist augld.
Mbl. fyrir 4. mars nk.
Við óskum
að ráða eftirtalda starfsmenn.
1. Kjötiðnaðarmenn eða menn vana kjöt-
skurði.
2. Afgreiðslumann í kjötiðnaðarstöð.
3. Starfsmann til sögunar á kjöti.
Nánari upplýsingar hjá starfsmannastjóra.
SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉIAGA
STARFSMANNAHALO
Starfsfólk óskast
Duglegt og vandvirkt starfsfólk óskast nú
þegar í fiskiðju Granda hf. við Norðurgarð.
Um er að ræða störf við pökkun og snyrt-
ingu. Akstur í vinnu og aftur heim, á morgn-
ana, í hádeginu og á kvöldin. Mötuneyti á
staðnum. — Góð starfsmannaaðstaða.
Upplýsingar og umsóknir hjá starfsmanna-
stjóra í Norðurgarði eða í síma 29424 kl.
10.00-12.00 og 13.00-15.00.
Grandi hf.
Tæknimenntun
Magnús Kjaran hf. innflytjandi og söluaðili
á heimsþekktum skrifstofutækjum vill ráða
rafeindavirkja í þjónustudeild til viðhalds
og viðgerða.
Til greina kemur að ráða aðila með aðra
tækni eða fagþekkingu.
Leitað er að liprum, snyrtilegum og reglu-
sömum aðila sem er þjónustusinnaður.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og
starfsreynslu sendist skrifstofu okkar fyrir
1. mars nk.
QJÐNIÍÓNSSON
RÁÐCJÓF & RAÐNI NCARÞJÓN USTA
TÚNGÖTU 5. 101 REYKJAVIK - PÓSTHÓLF 693 SÍMI 621322
JLhúsið
auglýsir eftir:
1. Stúlkum í matvörumarkað.
2. Stúlkum í kjötafgreiðslu.
3. Stúlku í söluturn.
Umsóknareyðublöð hjá deildarstjóra.
Atvinna óskast
Ungur maður (guðfræðimenntaður) óskar
eftir góðri vinnu. Margt kemurtil greina.
Upplýsingar í síma 10952.
Ég hugsa mértil
hreyfings
Hef starfað sem framkvæmdastjóri hjá ca.
30 starfsmanna iðnfyrirtæki undanfarin ár.
Góð ensku- og dönskukunnátta fyrir hendi.
Er rúmlega 30, lærður framleiðslutæknir. Allt
kemurtil greina. Tilboð leggist inn á
augl.deild Mbl. merkt: „13“.
Fulltrúi
Útflutningsfyrirtæki í örum vexti óskar eftir
að ráða starfskraft. Starfið er mjög fjölbreytt
og krefst þess að viðkomandi hafi frumkvæði
og geti unnið sjálfstætt. Meðal þeirra verk-
sviða sem starfið nær yfir eru:
— Umsjón með bókhaldi.
— Gjaldkerastörf.
Við leitum að manni eða konu sem er tilbúin
að axla ábyrgð og vinna mikið ef þörf krefur.
Viðkomandi þarf að vera opinn fyrir nýjung-
um og eiga auðvelt með að tileinka sér nýja
starfshætti. Fyrir réttan aðila er hér um að
ræða starf sem býður upp á mikla framtíðar-
möguleika.
Umsóknir vinsamlegast sendist augld. Mbl.
merktar: „P — 0618“ fyrir 1. mars nk.
Útréttingar
og viðskipti í Kaupmannahöfn
Tek að mér að aðstoða kaupsýslumenn og
aðra sem þurfa aðstoð varðandi viðskipti og
hvers konar útréttingar í Kaupmannahöfn.
Hef reynslu, tala góða dönsku og er þaul-
kunnugur í borginni.
Reynir Engilbertsson,
Esromgade 4A th.,
DK-2200 Köbenhavn N,
sími9045-(01) 1-812930.
mlAUSAR STÖÐUR HJÁ
m REYKJAVIKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsmann til eftir-
talins starfs. Starfskjör samkvæmt kjara-
samningum.
Gjaldkeri óskast til allra almennra gjald-
kera- og innheimtustarfa hjá Reykjavíkur-
höfn.
Nokkurrar bókhaldskunnáttu er krafist,
þar sem gjaldkeri þarf að geta aðstoðað
aðalbókara við ýmiskonar bókhaldsstörf.
Upplýsingar gefur Bergur Þorleifsson í
síma 28211.
Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð
á sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar
fást fyrir kl. 16.00 mánudaginn 3. mars nk.