Morgunblaðið - 23.02.1986, Side 54

Morgunblaðið - 23.02.1986, Side 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. PEBRÚAR1986 Olöf Halldórs- dóttir—Kreðjuorð Við hittumst fyrst á Sólvangi þessar þrjár; Ólöf heitin, Auðbjörg Albertsdóttir og ég. Svo hét eitt stúlknaherbergið í héraðskólanum í Borgarfírðinum okkar Ólafar, á Hvítárbakka. Ég var aðeins þar til bráðabirgða, eða þar til búið var að raða niður í herbergin. Dagmar Beck var ókomin að austan, en hún hafði búið á Sólvangi veturinn áður og fór þangað þegar hún kom. Þó samvera okkar þriggja, Auð- bjargar, Ólafar og mín yrði ekki löng á Sólvangi kviknaði sá vináttu- neisti þar, sem yijar og lýsir enn í dag og aldrei bar skugga á fyrr en þessi mikla sorg barði að dyrum, að ólöf fórst í bílslysi fyrir ári. Önnur stúlkan sem gisti Sólvang með mér þessa þijá sólarhringa var Auðbjörg Albertsdóttir, kvenkostur ágætur frá Neðstabæ í Norðurárdal j í Húnavatnssýslu. Hún er þekkt fyrir ljóð og óbundið mál, sem henni hefur tekist að skrifa þrátt fyrir mikil umsvif og vinnu á myndar- heimili í sveit, Hafursstöðum í Húnávatnssýslu, þar sem hún bjó með manni sínum og fímm bömum. Þau hjónin búa nú á Blönduósi. Aðallega í norðlenskum tímaritum hefur ýmislegt birtst eftir Auð- björgu, einnig í Húsfreyjunni. Hin stúlkan, Ólöf Halldórsdóttir frá Litlu-Skógum í Stafholtstung- um, var líka fríð sýnum og meðal- maður á hæð, grannvaxin og frekar ljóshærð og bauð af sér hinn besta þokka. Hún leysti allt prýðilega af hendi sem hún átti að gera, að öðru leyti fór mjög lítið fyrir henni. En ef veikindi bar að höndum þennan vetur eða einhver þurfti að láta halda á ljósinu fyrir sig þá var hönd Ólafar ævinlega til staðar. Við Ólöf fluttum báðar til Reykjavíkur, hún átti lengur heima í Borgarfírðinum, en flutti ásamt móður sinni suður. Faðir hennar var þá dáinn fyrir nokkrum árum. Hreinlæti og þokki var það sem mætti augum mínum, þegar ég kom til að heilsa upp á Ollu mína þó að Iftil væri íbúðin og ófullkomin. En þær mæðgur voru ekki lengi leigj- endur, en fluttu ásamt bróður Ólaf- ar í stóra íbúð í Hlíðunum, sem þá var nýtt hverfí. Ólöf vann alltaf úti en móðirin hugsaði um heimilið. Það var alltaf jafn gaman að hitta Ollu hvort sem ég skrapp til hennar eða hún leit inn til mín. Hún var alltaf jafn brosmild og hafði jrfír engu að kvarta. Og þannig liðu árin. Þar kom að, að móðirin eltist og lasnaðist. Þá keypti Ólöf sér vélar og tók að vinna heima, en stundaði móður sína þegar þess þurfti, einkum hin síðustu ár sem hún lifði. Þegar hún var dáin breytti Ólöf til og réð sig eitt ár í íslenska sendiherrabústaðinn í Danmörku, þar sem frænka hennar var ráðs- kona. Eftir árið kom hún heim aftur, fór að vinna á hóteli, en kaus t Móðir okkar og amma, ÞORBJÖRG INGIMUNDARDÓTTIR, Háaleitisbraut 18, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 25. febrúar kl. 10.30. Þeim sem vildu minnast hennar er vinsamlegast bent á Blindravinafélagiö. Ragnhildur Sigurðardóttir, Þórður Sigurðsson, Birna Elín Þórðardóttir, Sigurður Þór Garðarson. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi. JÓN G. KJERÚLF, Laugarnesvegi 80, verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju þriðjudaginn 25. febrúar kl. 13.30. Guðlaug P. Kjerúlf, Þórunn K. Ivey, David P. Ivey, Pétur Kjerúlf, Hafdís Ágústsdóttir, Vilborg Kjerúlf, Jens Nielsen, Ásta Haraldsdóttir, Hjálmar Sveinsson og barnabörn. t Sambýlismaður minn, faöir okkar og tengdafaöir, SÆMUNDUR GUÐBJÖRN LÁRUSSON bifreiðastjóri, Gnoðarvogi 20, verður jarösunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 24. febrúar kl. 15.00. Sigríður Geirlaug Kristinsdóttir, Hulda Sæmundsdóttir, Gerhard Olsen, Guðlaugur Sæmundsson, Ingibjörg Aðalsteinsdóttir, Kristján Sæmundsson, Guðrún Einarsdóttir, Anna Markrún Sæmundsdóttir, Baldur Þórðarson. t Maðurinn minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, EGGERT EGGERTSSON frá Hellissandi, Maríubakka 6, Reykjavík, veröur jarðsunginn frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 25. febrúar kl. 15.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Hjartavernd. Jensfna Óskarsdóttir, Sigurður Eggertsson, Elfnborg Gfsladóttir, Minnie Eggertsdóttir, Sigmundur Þórisson og barnabörn. svo heldur svipaða vinnu og hún áður hafði stundað og réð sig hjá Bláfeldi. Næst þegar ég heimsótti Ollu vinkonu mína var hún flutt í fjögurra herbergja íbúð í Stigahlíð 20, sem hún átti ein. Þangað átti ég eftir að koma oft til hennar og stundum að gista, jafnvel við fjórða mann í boði Ólafar á árunum sem ég dvaldi utanbæjar. Það voru böm sem með mér voru og var alltaf mikil tilhlökkun að koma í bæinn, ekki síst að mega gista hjá Ollu. „Hafí einhver verið fædd fóstra, þá var það hún Olla frænka mín,“ segir Áslaug í sínum fögru og sönnu kveðjuorðum við útför Olafar. Ólöf Halldórsdóttir var merkileg persóna, hraust og létt á fæti gekk hún í og úr vinnu, eins kom hún oft gangandi þegar hún leit inn um helgar. Hún var alltaf. eftirsóttur og góður gestur og greip gjaman eitthvað upp í hendumar til hjálpar heldur en að láta hafa fyrir sér, einkum ef hún vissi að heilsan var ekki í besta lagi hjá þeim sem hún kom að heimsækja. Hún talaði lítið um sjálfa sig, þó sagði hún mér einu sinni, að sig hefði aldrei vantað dag í vinnu, hvorki vegna veikinda eða af öðmm ástæðum, og aldrei beðið um frí þegar hún átti að vinna, og aldrei komið of seint í vinnu, bætti ég við. Hún var snill- ingur í því sem öðm að hlusta á aðra rekja raunir sínar, létta þannig á hjarta sínu, en ef svo var spurt, „en hvað segir þú af sjálöi þér?“ var svarið „það er ekkert af mér að frétta, ég hef það ágætt“. Manni gat flogið í hug að þetta gæti ekki alltaf verið sannleikanum samkvæmt. En þegar hún missti heilsuna um tima sagði hún satt og blátt áfram frá því: „Ég var að koma úr ferðalagi og skrikaði fótur þegar ég fór út úr bílnum, fékk kvöl í bakið og niður í fót, varð að segja upp vinnunni hjá Bláfeldi." Við læknisskoðun kom í ljós að bijóskið í bakinu var orðið mjög slitið, að öðm leyti var hún ágæt- lega hraust. Eftir að hún kom heim af spítal- anum lá hún mikið í rúminu og las og hlustaði á útvarp. Verkurinn í bakinu var lengi að hverfa. En sumarið eftir kom hún gangandi til mín, þvert yfír holt og hæðir frá Stigahlíð uppá Laugarás og varð ekki meint af. Hún fékk eklri slæmt kast í bakið aftur svo ég vissi. Við töluðum saman í síma daglega. Það var oftast á kveldin, þá vomm við einar heima. Það var svo gaman. Ef ég missti t.d. lestur úr útvarpssögu eða frétt úr blöðunum, sem ég hefði viljað sjá, þá var ekki annað en að hringja f Ollu. Hún var fljót að bæta úr þvf, minnug og kunni listina sem var virt háu verði í mínu ungdæmi, þá að kunna að segja skýrt og rétt frá, helst orðrétt. Ólöf sagðist ekki ætla að taka neina vinnu. Hún þyrfti þess ekki, enda komin á eftirlaunaaldurinn. „Auramir mínir endast mér,“ sagði hún. Þó var það svo að síðasta árið var hún farin að vinna í hádeginu á blindraheimilinu f forföllum ann- t Útför móður okkar, tengdamóöur og ömmu, JÓNÍNU EMILÍU ARNUÓTSDÓTTUR, Hátúni 10, fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 25. febrúar kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Hjartavernd. Bryndís Guðmundsdóttir, Gissur Simonarson, Hannes Guðmundsson, Hallgerður Gunnarsdóttir, Jón Levý Guðmundsson, Stefanfa Sófusdóttir og barnabörn. t Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móöur okkar, ömmu og langömmu, SÚSÖNNU GUÐJÓNSDÓTTUR, Stórholti 24. Sigríður Sigurðardóttir, Guðlaug Ería Sigurðardóttir, barnaböm og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir færum við þeim sem sýndu okkur samúö og hlý- hug við andlát og útför eiginmanns míns og föður okkar, JÓNS JÓSTEINS GUÐMUNDSSONAR frá Kleifum, Kaldbaksvík. Margrét Kristjánsdóttir og böm. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, MATTHÍASAR HELGASONAR, Skólavegi 14, Keflavík. Sérstakar þakkir til alls starfsfólks á deild 4a, Borgarspítalanum fyrir frábæra hjúkrun og umönnun. Stefanfa Bergmann, Hulda Matthfasdóttir, Magnús Björgvinsson, Stefán B. Matthfasson, Ingunn Ingimundardóttir, Ingólfur H. Matthíasson, Sóley Birgisdóttir, Magnús B. Matthfasson, Mekkfn Bjarnadóttir, Guðlaug B. Matthfasdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. arra, og fannst sér ekki verða neítt umþað. í fyrrahaust fékk hún kvefræmu og fór ekki út að óþörfu til þess að losna við hana. Ég var líka dálít- ið bundin heima, en við töluðumst alltaf við f síma og var það mín besta skemmtun. Eitt kvöld í nóvember sagðist hún vera orðin góð af kvefínu og færi að koma. Seinna var dagurinn ákveðinn. „En ég verð ekki komin fyrr en klukkan §ögur,“ sagði Olla. En klukkan þijú þann daginn var dyrabjöllunni hringt. Grafalvarleg opnaði ég hurðina, en þá stóð Ólöf Halldórsdóttir hlæjandi fyrir utan. „Hvað, fékkstu frí?“ „Nei, ég er ekkert fastráðin. Ég fór bara í fyrra lagi.“ Það var gott veður og ánægjulegt að fá Ollu í heimsókn. Okkur leið svo vel þennan dag. Hún lék mikið við 16 mánaða gamlan vin, sem ég var að passa. Hann var einþykkur og vanafastur, en nú brá svo við þegar við fórum að borða að hann seildist upp á borðbrúnina og færði diskinn með matnum sínum til Ólaf- ar og vildi að hún mataði sig. Við brostum og mér datt í hug: Vinurinn hefur með sínu bamslegu töfrum krækt sér í góða vinkonu, sem öllum fremur er líkleg til að taka um litla hönd og leiða hann spölkom ef hann þyrfti þess með. „En þeim var ekki skapað nema að skilja." Fljótlega eftir matinn sagðist Ólöf ætla að ganga niður á Lang- holtsveginn, „veðrið er svo gott og þá þarf ég heldur ekki að skipta um vagn“. Það hafði hún gert oft áður, svo að mér fannst það eðlilegt. Morguninn eftir fékk ég sorgar- fréttina. ÓLöf vinkona mín var dáin. Enn einu sinni hafði verið ekið ógætilega fram hjá strætisvagni í kyrrstöðu með þeim afleiðingum að hún OHa slasaðist svo, að hún var dáin fyrir miðnætti. „Tíminn græðir manna rnein." Ekki fínnst mér hann hafí grætt þetta djúpa sár á árinu sem liðið er síðan Olla mín fórst. Ég sakna hennar alltaf jafn mikið. Þegar ég hugsa um líf hennar svo fagurt og lýtalaust, þá finnst mér það helst líkjast alparósinni minni, sem veldur undmn allra sem til þekkja. Allt árið stendur hún þijá mánuði í einu alsett stómm rósum og byijar alltaf aftur eftir dálitla hvfld. Og svo er eins og hún segi: „Ég skal ekki breiða of mikið úr blöðunum mínum, svo að ég þrengi ekki að öðmm eða taki birt- una frá þeim.“ Það er huggun harmi gegn, að mér fínnst oft að hún Olla sé hjá mér, þó að ég sjái hana ekki. í þeirri von að svo sé ætla ég að biðja hana og hennar fólk vel- virðingar á þessum fáu línum. Guðrún Brynjólfsdóttir Ég sit hér hljóð og hugsa til minnar gömlu vinkonu, Ólafar. Upp í hugann koma minningamar um það hve hún var ætíð indæl og blíð. Okkar samvemstundir mun ég geyma um leið og ég minnist trygg- lyndis hennar, ástrikrar vináttu og göfugleika. Ólöf var sannarlega geisli á heimili vina sinna. Auðbjörg Blómastofa FriÖjinm Suðurtandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið ölt kvötd til kl. 22,- einnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.