Morgunblaðið - 23.02.1986, Page 59
59
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1986
PT-—■ —, ■'■•».» .'T>i'' ■< ‘ •
sat þá að störfum. Sögusagnir voru
á kreiki um að herstjómin ætlaði
að handtaka Mario Soares en til
þess kom aldrei, enda hefði þá allt
farið í bál og brand og kommúnista-
flokkurinn væntanlega áttað sig á
því. Hins vegar leit svo út um hríð
að Soares myndi hrökklast úr landi
á ný þar sem halaklipping flokks
hans hélt áfram.
Þegar Soares ákvað að virkja
flokksmenn sína til mótmælafunda
um gervallt landið í júlí 1975, eftir
að PS hafði farið úr stjóm, greip
herstjómin til ýmissa ráða. Fundur
í Lissabon var ákveðinn 19. júlí en
nokkm áður hafði verið fundur í
Oporto og hann hafði verið mjög
fjölmennur. Herstjómin hafði skotið
mann til bana, sem sagður var hafa
haft uppi áróður gegn henni, og
kommúnistar höfðu reynt að hleypa
upp fundinum.
Daginn fyrir Lissabonfundinn
bytjuðu kommúnistar að reisa götu-
vígi í úthverfum borgarinnar og
setja upp vegartálmanir á þeim
götum sem lágu að Almeda-svæð-
inu, þar sem fundurinn átti að vera.
Kommúnistar hótuðu að skjóta
hvem þann sem reyndi að rífa niður
vígin og menn gengu um með spjöld
þar sem hvatt var til að menn fjöl-
menntu á fundinn og hleyptu hon-
um upp, þar sem í hlut ættu „endur-
Soares og Vigdís Finnbogadóttir er hún var í opinberri heimsókn í
Portúgal 1984.
skoðunarsinnar og fasistar". Þessar
aðgerðir mæltust svo illa fyrir, að
herinn rak loks kommúnista frá
götuvígjunum og tók við eftirliti.
Varð algert umferðaröngþveiti á
leiðum til Lissabon, því að hver bfll
var stöðvaður og nokkrir vom
handteknir þegar þeir lýstu því yfír,
að þeirra erindi til Lissabon væri
að sækja nefndan útifund. Svo
alvarleg ögmn þótti þessi aðgerð
stjómarinnar, að meira að segja
forystu kommúnistaflokksins
blöskraði og gekk í málið. Síðdegis
fundardag var öllu eftirliti hætt og
tálmanir teknar niður. Þetta er eitt
út af fyrir sig einkennandi fyrir
ástandið í landinu um sumarið.
Þegar Lissabonfundurinn var
haldinn var ég í Portúgal og ákvað
vitanlega að sækja fundinn. í grein
sem ég skrifaði um hann nokkm
síðar segir m.a.: „Þegar ég kom til
Almeda-svæðisins tveimur tímum
áður en fundurinn hófst var sýnt á
öllu, að þar stóð mikið til. Verið var
að leggja síðustu hönd á að ganga
frá kröftugu hátalarakerfí og ræðu-
palli. Bílar þeyttu flautur sínar og
óku hring eftir hring um svæðið.
Fólk veifaði fánum sósíalista og
selt var blaðið þeirra sem einhvers
staðar hafði verið prentað á laun.
Þegar fundurinn hófst um hálf átta-
leytið var svæðið orðið þéttskipað
fyrir löngu og mannhafið var ótrú-
legt. Menn lýstu yfír samstöðu með
flokknum. íspinnasalamir höfðu átt
góða vertíð. Kommúnistar sáust
hvergi.
Þegar Mario Soares birtist á
ræðupallinum fór kliður um mann-
fjöldann. „Mario Soares — Mario
Soares, við treystum þér“ kvað við
þúsundraddað. Menn reyndu að
ryðjast nær ræðupallinum. Þar
hafði blaðamönnum verið búin að-
staða þótt að þeim þrengdist þegar
á fundinn leið.
Mario Soares veifaði lengi til
mannfjöldans við mikil fagnaðar-
læti. Hann var stillilegur og heims-
mannslegur í fasi. Þó fannst mér
hann stundum hálfþreytulegur,
þegar mannfjöidinn lét öllum illum
látum, og það hvarflaði að mér sú
hugsun, að alþýðleiki hans væri
honum frekar taminn en áskapaður.
Þetta hafði verið heitur dagur í
Lissabon, yfír '30 stig í forsælu, en
það kulaði þegar leið á kvöldið. En
enginn rótaði sér og hlýtt var á
ræður manna af athygli og tekið
undir hvatningarhróp af hinum
mesta þrótti. Um mitt kvöld kemst
þó allt í einu hreyfing á mannfjöld-
ann. Það er einhver að ryðja sér
braut að pallinum. Ungur fánaberi
er dreginn upp á pallinn. Maðurinn
virðist lémagna. Allt ætlar af göfl-
unum að ganga. Þeir Soares og
fánaberinn fallast í faðma og síðar
fellur hann í faðm flestra annarra
þama uppi á pallinum og mikil
geðshræring hefíir gripið um sig.
Þeir höfðu lagt af stað frá Co-
imbra, hópur stuðningsmanna PS.
Þegar þeir nálguðust Lissabon réð-
ust fylgismenn kommúnista á
göngumenn og logaði brátt allt í
slagsmálum, hermenn komu á vett-
vang og handtóku menn úr báðum
fylkingunum. Fánaberinn einn
komst undan og í skjóli myrkurs
brauzt hann enn um langan veg á
leiðarenda. Nú kveður við marg-
raddað öskur frá mannfjöldanum
„Cunhal til Síberíu! Cunhal til Síber-
íu“.
Næst síðastur á mælendaskrá er
Salgado Zenha. Geðþekkur maður
með afbrigðum og sýnilega mjög
dáður. En nú eru allir að bíða eftir
Soares. Fólk virtist ekki verða fyrir
vonbrigðum með ræðu hans, það
má af öllu merkja. Og þegar hann
talaði féll ég í leiðslu eins og aðrir.
Hann hefur nokkuð grófa rödd sem
stingur nokkuð í stúf við prútt útlit-
ið. Hann talaði hægt og skýrt af
Portúgala að vera, baðaði mikið út
höndunum. Ræða hans var óvægin
árás á kommúnista og herstjómina.
„Hann hefur sjaldan verið svona
stóryrtur," segir einn PS-maður við
mig, sem hefur leyft mér að setjast
á pallinn, við fótskör Soares.
Undanfama daga höfðu þing-
menn PS sumir reynt að nálgast
kommúnista í umræðum á þinginu
og mæltist það misjafnlega fyrir.
En þetta kvöld kvað Soares upp úr
með það, að flokkur hans vill ekki
kommúnisma af neinu tagi, hann
vill lýðræði, umfram allt lýðræði,
og það grundvallað á hugsjónum
portúgalska Sósíalistaflokksins."
Síðar í greininni segir frá því að
þegar fundi lauk hafði ég tækifæri
til að spyija Mario Soares hvort
hann hafi verið ánægður með fund-
inn og hvort hann haldi að þáttaskil
séu á næsta leyti. „Fundurinn hafði
staðið í þijá klukkutíma og þreytu-
merki sáust á ýmsum. Soares var
hress í bragði, en brosið var angur-
vært og lífsþreytulegt. Hann lýsti
ánægju sinni með þá órofa sam-
stöðu sem ríkti á fundinum og fjöl-
mennið fór fram úr glæstustu von-
um. Hann telur að herstjómin geti
ekki hundsað slíka viljayfirlýsingu
og hann hefur vonir...
Vonir um hvað?
Hann hefur vonir um að allt verði
gott að lokum. Ekkert hefst án
baráttu og fundir PS, sérstaklega
Lissabonfundurinn, hafa sýnt hver
er hugur fólksins til herstjómarinn ■
ar og annarra sérkennilegra afla í
landinu. Hann hefur trú á samtaka-
mætti og samstöðu, ofbeldi og öfgar
beri að forðast.
Svo brosir hann kurteislega því
brosi, sem margir telja að haldi líf-
inu í lýðræðisvon þorra landa hans
um þessar mundir. Hann tekur
undir hönd fánaberans frá Coimbra
og þeim er mdd braut gegnum
mannfjöldann."
Þau straumhvörf sem spáð var
reyndust skammt undan, eins og
margsinnis hefur verið sagt frá í
yfirlitsgreinum um portúgölsk
stjómmál. Eanes var kjörinn forseti
og hefði án efa varla náð því ef
ekki hefði komið til stuðningur
Soares. Síðan hefur gengið á ýmsu
í pólitíkinni og eins og áður er vikið
að hefur Soares valdið vonbrigðum
sem forsætisráðherra en þeirri
stöðu hefur hann gegnt þrisvar
sinnum á þessum tíu ámm. Að vísu
tók hann við þrotabúi í efnahags-
málum og ringulreið í þjóðmálum,
og þótt enginn vilji draga góðan
hug hans í efa, að vinna þjóðinni
sem bezt, fór það fyrir lítið. Fylgi
hefur sömuleiðis hranið af flokkn-
um einkum í síðustu þingkosningum
og meðal annars þess vegna álitu
margir að sigurmöguleikar Soares
nú væm takmarkaðir. Það kom í
ljós í skoðanakönnunum, að yngri
kynslóðin hafði flykkzt til að kjósa
do Amaral, en miðaldra og roskið
fólk studdi margt Soares. Með þró-
un síðasta áratugs í huga verður
það — þótt það hljómi e.t.V. mót-
sagnakennt — að teljast eðlilegt um
margt.
Mario Soares er sagður mikill
skapmaður og hefur það komið
fram í samskiptum hans og Eanes
forseta margsinnis. Hann er snjall
ræðumaður og á sérstaklega auð-
velt með að laða fólk að sér með
málflutningi sínum. Hann er sagður
heiðarlegur pólitíkus og lýðræðis-
sinni út í fíngurgóma.
Kona hans er Maria Barroso og
eiga þau hjón son og dóttur. Kona
hans var þekkt leikkona og hefur
síðustu árin verið skólastjóri í Lissa-
bon. Soares hefur unun af lestri
samtíðarbókmennta og heimspeki-
rita og er sagður áhugasamur mál-
verkasafnari.
Mario Soares verður fyrsti forseti
Portúgals í sextíu ár, sem kemur úr
röðum óbreyttra borgara.
Samantekt: JÓHANNA
KRISTJÓNSDÓTTIR
er úðunarefni úr hreinni
jurtaolíu sem kemur í veg
fyrir að kakan festist í
forminu eða maturinn á
pönnunni.
sparar smjör og smjörlíki
og er drjúgt í notkun,
því dósin úðar 100 sinn-
er fyrir allan bakstur,
kökumar detta úr form-
á pönnuna, fyrir i>önnu-
kökur, spæld egg og alla
steikingu.
hindrar ísmyndun sé því
úðað í frystihólfið.
F.mkauinboð á lulaodi.
ÞÞÞ.ÞORGRÍMSSQN&CQ
—^ 'Arnlula 16 * Reykjavik ■ sími 38640
fjölgarekki hitaeining-
-um og er upplagt fyrir
fólk sem forðast fitu- og
kolvetnaríka fæðu.
Corona ATP ferðatölvan er
samræmd ÍBM-PC-AT, og er
hraðvirkasta AT tölvan á
markaði hérlendis!
En hún er jafnframt sú
minnsta.
* 512k minni (má stækka)
* 20Mb fastur diskur
* Innbyggð grafík
* Serial og Parallel tengi
* Verð kr. 235.000
MICROTOLWM!]
Siöumúla 8 - Símar 830A0 og 83319
^\uglýsinga-
síminn er 2 24 80
Psoriasis-
sjúklingar
Ákveðin er ferð fyrir psoriasis-sjúklinga 16. apríl
nk. til eyjarinnar Lanzarote, á heilsugæslustöðina
Panorama.
Þeir sem hafa þörf fyrir slíka ferð snúi sér til húð-
sjúkdómalækna og fái vottorð hjá þeim.
Sendið það merkt nafni, heimilisfangi, nafnnúmeri
og síma til Tryggingarstofnunar ríkisins, Laugavegi
114, 3. hæð. Umsóknir verða að berast fyrir 10.
marz.
Tryggingastofnun ríkisins.
Blaðburöarfólk
óskast!
Austurbær Laugarásvegur 1-37
Hvassaleiti 18-30 Kópavogur
(Blokkir!). Sunnubraut