Morgunblaðið - 23.02.1986, Qupperneq 64
STAÐFEST1ÁNSTRAUST
WS4
ómissandi
SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR1986
VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR.
Staða samningamála í hádeginu í gær:
Flest frágengið
nema kaup og
kauptrygging
GERÐ nýrra kjarasamninga milli ASÍ og samtaka atvinnu-
rekenda var á lokastigi um hádegisbilið í gær, en þá hafði
samningafundur staðið látlaust í sextán tima í húsi Vinnu-
veitendasambands íslands við Garðastræti. Verulega miðaði
áfram á föstudagskvöldið og aðfaranótt laugardags, sam-
kvæmt upplýsingum, sem Morgunblaðið aflaði sér. Voru
nánast öll atriði frágengin — að undanskiidum kauphækkun-
ar- og kauptryggingarákvæðum samninganna, en allt var
háð því, að um þau atriði tækist samkomulag.
Mikið var unnið alla nóttina og
húsinu lokað fyrir utanaðkomandi
svo samningamenn fengju frið.
Engin bein tilboð eða gagntilboð
um kaup og kaupmáttartryggingar
fóru á milli samninganefndanna en
stöðugar þreifingar voru í gangi og
höfðu aðilamir nálgast verulega um
hádegið í gær. Var þá talið að
framvinda næstu klukkustunda
myndi ráða því hvort samningar
tækjust eða ekki.
Sáttafundur í deilu BSRB og rík-
isins var boðaður kl. 16 í gær og
var talið að hann gæti orðið langur,
ekki síst ef samkomulag væri orðið
eða um það bil að takast hjá ASI
og vinnuveitendum. Sáralítil hreyf-
ing hefur orðið í viðræðum BSRB
og ríkisins undanfama daga —
samningamenn BSRB töldu aug-
ljóst, að af hálfu ríkisins væri beðið
tíðinda úr samningum hins almenna
vinnumarkaðar — og eins, að þeir
samningar myndu verða forskrift
annarra samninga í landinu. Samn-
ingafundur viðræðunefnda BSRB
og ríkisins stóð fram að miðnætti
á föstudagskvöldið.
Mjólkurkvótinn:
Umsóknir í
hundraðavís til
Framleiðsluráðs
NOKKUR hundruð bændur
hafa þegar skrifað Fram-
leiðsluráði landbúnaðarins
bréf með athugasemdum við
útreikning mjólkurkvótans
eða óskir um aukningu sam-
kvæmt ákvæðum reglugerðar
um sijórnun mjólkurfram-
leiðslunnar. Framleiðsluráð
hefur óskað eftir fyrirmælum
landbúnaðarráðherra hvern-
ig með þessi bréf skuli fara.
Gunnar Guðbjartsson fram-
kvæmdastjóri Framleiðsluráðs
sagði að óhemju mikil vinna færi í
að flokka þessi bréf eftir efni þeirra
og ekki væri ljóst hver ætti að úr-
skurða um efni þeirra. Sum bréfin
væru augljóslega ekki á rökum
reist, í sumum væri beiðni um
aukningu úr milljón lítra pottinum
sem ráðherra úthlutar og öðrum
beiðni um aukningu úr 5% pottinum
sem heimamenn eiga að gera tillög-
ur um úthlutun úr.
Umsóknarfrestur um úthlutun úr
milljón lítra pottinum rennur úr 25.
ágúst og eiga menn að senda Fram-
leiðsluráði umsóknir sínar. Milljón
ítramir eiga fyrst og fremst að
ganga til að auka fullvirðisrétt
bænda með bú sem eru innan við
300 ærgildi. Frestur til að gera
athugasemdir við fullvirðisútreikn-
ingana rennur út 1. mars og eiga
menn einnig að snúa sér til Fram-
leiðsiuráðs með það.
Umsóknarfrestur um hlutdeild í
5% pottinum sem er til jöfnunar
innan búmarkssvæðanna rennur út
10. mars og skal umsóknum skilað
til viðkomandi búnaðarsambands.
Menn geta sótt um aukningu úr
þeim potti á ýmsum forsendum, svo
sem vegna uppbyggingar búa,
stofnunar félagsbúa, þeir hafi orðið
fyrir einstaklingsbundnum áföllum
í mjólkurframleiðslu vegna búfjár-
sjúkdóma eða annars og fleira.
Morgunblaðið/ól.K.M.
Mastraskógur
Möstur hvalveiðibátanna eru tilkomumikil þó bátarnir liggi aðgerðarlausir í Reykjavíkurhöfn bíð-
andi verkefna sumarsins. Þegar þar að kemur verður líklega maður í hverri tunnu og hrópar:
„Hvalur á stjór“.
Með lýsi í farangrinum:
Tekinn fyrir eiturlyfjasmygl
ÍSLENDINGUR sem fyrir nokkru fór á sýningu í Hannover, varð
fyrir heldur óskemmtilegri reynslu, vegna lýsisflösku, sem hann
hafðiípússi sínu.
Flogið var til Amsterdam og
þaðan farið með lest til Vestur-
Þýskalands. í landamærabænum
Oldenzaal komu tveir vopnaðir
verðir inn í lestarklefann og hófu
rannsókn á farangrinum. Allt
gekk vel þar til fyrir þeim varð
lýsisflaska, sem hinn sanni íslend-
ingur hafði haft með sér. Fahnst
hinum borðalögðu það meira en
grunsamlegur metall, rifu allt upp
úr töskunum og rannsökuðu klef-
ann hátt og lágt.
Þegar það bar ekki árangur
skipuðu þeir Islendingnum með
sér, og fóru með hann og allt
hans hafurtask í skýli, sem þeir
höfðu til umráða. Var farangurinn
enn skoðaður svo og öll skilríki,
sýni tekin úr lýsisflöskunni og
einhveiju blandað saman við það.
Varð það samsull rauðleitt á lit
og úrskurður gefinn: Þetta er
ópíumolía.
íslendingurinn móðgaðist fyrir
lýsisins hönd og vildi alls ekki
viðurkenna að það væri ólyfjan.
Var hann þá umsvifaiaust fluttur
á virðulegri lögreglustöð og það
í fylgd Qögurra vopnaðra manna.
Þegar þangað var komið var
hringt í síma og nokkru síðar kom
náungi, sem sýnilega var yfirmað-
ur hinna. Var nú aftur gerð tilraun
með lýsið og útkoman var hin
sama: ópíumolía. Ekkert gagnaði
þótt íslendingurinn byðist til þess
að drekka úr flöskunni. Því var
hafnað. Sjálfsmorð vildu þeir að
sjálfsögðu ekki horfa upp á í sín-
um húsum.
Farangurinn var nú enn grann-
skoðaður, Islendingurinn yfir-
heyrður langa hríð og loks látinn
hátta sig úr hverri spjör og allt
vendilega rannsakað. Þegar flest
var „þjörmuðu" að honum einir
átta, og við dyr stóð ætíð vopnað-
ur maður.
Skýrslan, sem tekin var, var
upp á nokkrar vélritaðar síður.
Undir hana varð íslendingurinn
að skrifa vildi hann fá frelsi sitt
aftur. Það gerði hann þótt hann
vissi harla lítið undir hvað hann
skrifaði því hollenska er ekki hans
sterkasta hlið. Síðan var honum
tjáð að drykkurinn yrði sendur í
nákvæma efnagreiningu og
reyndist hann göróttur yrði „hinn
seki“ eftirlýstur sem eiturlyfja-
smyglari um allan hinn siðmennt-
aða heim.
Alls tók þetta umstang um
þrjár klukkustundir.
Það fyrsta sem íslendingurinn
gerði þegar heim kom var að
kaupa sér nýja lýsisflösku. Vildi
hann þegar bæta sér það upp að
hafa misst vikuskammtinn sinn á
meðan á sýningunni stóð.