Morgunblaðið - 11.03.1986, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR ll.MARZ 1986
lnnilegar þakkir til sveitunga minna, Breið-
dœlinga, til safnaðanna í Heydala- og Djúpa-
vogsprestaköllum, Prestafélags Austurlands,
svo og annarra, sem glöddu mig með kveöjum,
gjöfum og heimsókn á sjötugsafmœlinu.
Kœrar kveÖjur og heillaóskir þeim öllum.
Kristinn Hóseason
Heydölum.
Fjármálaráðgjöf
Grundarstíg 2
Opið virka d. kl. 13—18 og laugard. kl.
9-13.
Viðtalstíma skal panta í síma 91 -622211.
Fjármálaráðgjöf er nýtt fyrirtæki sem
hefur það markmið:
1. að aðstoða einstaklinga við að skipuleggja
eiginfjármál
2. að annast fjármálastjórn fyrir einstaklinga,
þannig að þeir fái reglulega yfirlit yfir fjár-
hagsstöðu sína og spá um framvindu mála.
Fjármálaráðgjöf annast ekki sölu á fast-
eignum eða verðbréfum og er ekki með lána-
starfsemi. Fjármálaráðgjöf veitir því alger-
lega hlutlausa ráðgjöf.
Þeir sem eru að spara ættu að fá hlutlausa
aðstoð Fjármálaráðgjafar við að skipuleggja
sparnaðinn og meta vexti, áhættu, áhrif á
skatta o.fl.
Þeir sem ætla að kaupa fasteign ættu að fá
hlutlausa aðstoð Fjármálaráðgjafar við að meta
greiðslugetu sína, bera saman verðtilboð, at-
huga áhrif á skatta o.s.frv.
Allir ættu að hafa gott skipulag á fjármálum
sínum:
1. það bætir nýtingu tekna
2. það kemur í veg fyrir ýmsan aukakostnað
vegna vanskila eða gleymsku
3. það sparar tíma og fyrirhöfn
4. það dregur úr áhyggjum og eykur öryggi
Fjármálaráðgjöf leggur áherslu á góða en
jafnframt það ódýra þjónustu, að fáir hafa efni
á því að vera án hennar.
Góð
vinnuaðstaða
Tölvuborð og skrifborð
skapa eina heild.
Hæðarstilling á báðum borðum.
GÍSLI J. JOHNSEN
n i
NÝBÝLAVEG116 »P0 BOX 397 • 202 KÓPAVOGUR • SÍMI 641222
Snjóflóð í
Norður-Noregi:
Síðustu lík-
in fundin
Ósló, 10. mars. AP.
Lík hermannanna þriggja, sem
saknað var eftir snjóflóðið i
Norður-Noregi, fundust um helg-
ina. Er dánartalan þá komin upp
i 16 manns, en 15 hermenn
komust'lífs af, flestir með ein-
hver meiðsl.
Hermennimir, sem lentu í snjóflóð-
inu, voru þátttakendur í átta þjóða
vetrarheræfíngu, „Anchor ex-
press", á vegum NATO. Gegndu
þeir herþjónustu í skíðadeild hersins
og voru á aldrinum 20 - 23ja ára.
Æfingunni var aflýst daginn eftir
slysið, en þátttakendur í henni voru
alls 20.000 talsins.
Hátt á þriðja hundrað björgunar-
menn tóku þátt í leitinni, sem stóð
í fimm daga, og voru veðurskilyrði
á leitarsvæðinu erfið og sífelld
hætta á snjóflóðum.
Vamarmálaráðherra Noregs,
Anders C. Sjaastad, mun gefa þing-
inu skýrslu um málið á fostudag,
en þingið hefur skipað rannsóknar-
nefnd til að grafast fyrir um að-
draganda og orsakir slyssins.
Sri Lanka:
Yfir 3000 Tam-
ilar felldir á
síðasta ári
Colombo, Sri Lanka, og Nýju-Delhí, Ind-
landi. 10. mars. AP.
SKÆRULIÐAR tamíla á Sri
Lanka felldu í dag sjö óbreytta
borgara úr röðum Sinhalesa í
þorpinu Maroawewa I austur-
hluta landsins, að sögn öryggis-
máiaráðuneytisins á Sri Lanka.
Talsmaður ráðuneytisins sagði,
að þorpið hefði verið yfírgefið fyrir
nokkm eftir margendurteknar ár-
ásir skæruliða, en fáeinir hefðu þó
snúið heim, eftir að hægðist um.
í fréttatilkynningu, sem skæru-
liðar gáfu út á sunnudag, sagði,
að yfír 3.000 tamílar, karlar, konur
og böm, hefðu fallið í árásum her-
sveita stjómarinnar á Sri Lanka á
undanfömum 14 mánuðum.
í tilkynningunni sagði, að í
nokkrum tilvikum hefði fólki verið
kastað inn í brennandi hús sín, eftir
að kveikt hafði verið í þeim. Hefði
stjómarherinn kveikt í yfír 3.500
húsum tamíla í norður- og austur-
hémðum landsins.
Ingemar Hedman, einn fremsti lásasérfræðingur Svíþjóðar, reynir
að opna læsingarnar með hor. Sérfræðingar lögreglunnar þurftu
fjóra sólarhringa til að opna skápinn.
Oruggur
peningaskápur
— stóðst bæði atlögxi þjófanna og lögreglunnar
Lundi, 10. marz. Frá Pétri Péturssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
FYRIR nokkru keyrðu bíræfnir
ræningjar á stolnum trukk í
gegnum vegg verzlunarmið-
stöðvar hér í Lundi og höfðu á
brott með sér forláta peninga-
skáp með skartgripum fyrir
rúma milljón sænskra króna
(tæpar sex milljónir isl. kr.).
Þjófunum reyndist ekki auðvelt
að opna peningaskápinn. Bfllinn
fannst úti í skurði ásamt skápn-
um. Verksummerki sýndu að það
hafði verið reynt að opna skápinn
með alls kyns tólum, logsuðutækj-
um, bor og sleggju. Lögreglan tók
hann í vörslu sína. Tóku nú sér-
fræðingar hennar við, þar sem
þjófamir höfðu frá horfíð. Þeir
áttu við hann í íjóra sólarhringa,
bæði dag og nótt, áður en þeim
tókst að ljúka honum upp.
Skápurinn kostar um 300 þús-
und íslenzkar krónur og það kost-
aði álíka mikið að opna hann.
Enginn græddi á þessu ævintýri
nema fyrirtækið sem framleiðir
peningaskápa af þessari gerð.
Skápafræðingurinn Erling Skoog baksar árangurslaust við skáp-
inn.
Leiðtogar sex ríkja:
Frestið tilraunum
með kjarnorkuvopn
New York, 10. mars. AP.
LEIÐTOGAR sex þjóða, þar á
meðal Svíþjóðar, Grikklands,
Indlands og Argentinu, hafa
skorað á Bandaríkj amenn og
Sovétmenn að fresta öllum til-
raunum með kjarnorkuvopn
fram að fyrirhuguðum fundi
leiðtoga stórveldanna siðar á
árinu.
Það var eitt af síðustu verkum
Olof heitins Palme, forsætisráð-
herra Svía, að undirrita áskorun-
ina en aðrir eru þeir Raul Alfons-
in, forseti Argentínu, Rajiv
Gandhi, forsætisráðherra Ind-
lands, Miguel de la Madrid, forseti
Méxíkó, Julius Nyerere, fyrrum
forseti Tanzaníu, og Papandreou,
forsætisráðherra Grikklands. Að
áskoruninni stóðu einnig alþjóðleg
þingmannasamtök, sem „Heimsá-
tak“ kallast.
Sovétmenn segjast hafa frestað
öllum tilraunum með kjamorku-
vopn en sá frestur rennur út nú
í mánaðarlok. Bandaríkjastjóm
hefur hins vegar ekki viljað fallast
á frestun eða bann við tilraunum
að svo stöddu.
INNLENTT