Morgunblaðið - 11.03.1986, Blaðsíða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR U.MARZ 1986
Eyjafjöll:
50 metra breið
skriða lokar
veginum
Holti undir Eyjafjöllum, 10. mars.
SKRIÐA féll niður Steinafjall
hjá Steinahelli kl. 9:00 í morg-
un. Að því er best verður séð
er hér um að ræða hrun vegna
rigningarinnar úr skriðunni
sem féll 1979 og aftur 1984.
Lækur sem kemur niður hlíðina
á þessum stað í vatnavöxtum
hefur komið skriðunni af stað
og komist á þann hátt í sinn
gamla farveg.
Mjólkurbílar komu vestan að
til Steina kl. 9:10 í morgun en
nokkrum mínútum síðar fór bfll
austan að og kom þá að skriðunni
sem var um 2 metrar á hæð á
veginum á um 50 metra löngum
kafla.
Fyrst var óttast að bfll kynni
að vera undir skriðunni og fór
Sigurbergur Magnússon, bóndi á
Steinum, ríðandi niður mýrarfenin
fyrir neðan skriðuna til að kanna
þetta. Til allrar hamingju reyndist
svo ekki vera.
Stór björg hafa hrunið niður
hlíðina á milli staura í rafmagns-
línunni, sem liggur þama um og
stendur heil. Fljótlega eftir hádegi
var vegurinn opnaður af vega-
gerðinni en lækurinn og rigningin
orsakar að leiðin er alls ekki
örugg. Skriðan gæti haldið áfram
að falla niður hlíðina.
Fréttaritari.
Morgunblaðið/RAX
Unnið að viðgerð á þjóðveginum þar sem 50 metra breið aur-
skriða lokaði honum i gærmorgun milli Varmahlíðar og Steina
undir Eyjafjöllum.
Stálfélagið selur eignir sínar:
Iðnaðarráðuneytið telur að
byggingarmarkaðurinn sé hruninn
— seg’ir Leifur Hannesson stj órnarf ormaður
>t DAG er auglýst eftir tilboðum í allar eignir íslenska Stálfélagsins
og boðað til aðalfundar innan mánaðar þar sem fyrirtækið hefur
ekki náð að koma áformum sínum fram að sögn Leifs Hannessonar
stjómarformans félagsins. Framkvæmdir fyrirtækisins stöðvuðust
fyrir tæpum tveimur ámm. Eignirnar, sem em til sölu em lóð í
Hvassahraunslandi, 12 hektara eignarlóð með 612 fermetra þjónustu-
byggingu og verksmiðjulóð í Straumshrauni við kvartmilubrautina
sunnan Hafnarfjarðar. Er það leigulóð, sem að hluta til er afgirt
ogjöfnuð sem vinnusvæði.
í lögum var gert ráð fyrir því
að ríkið ætti 40% hlutafjár í Stálfé-
laginu, en þátttaka ríkisins var
skilyrt og þau skilyrði hefur félag-
inu ekki tekizt að uppfylla. Gert var
m.a. ráð fyrir því að viðskiptabanki
legði félaginu til rekstrarfé, en það
hefur ekki fengizt. Því hefur ríkið
ekkert greitt af hlutafjárloforðum
sínum. Leifur Hannesson taldi að
því hefði ekki borið skylda til þess,
en hefði framlag ríkisins komið,
hefði það vissulega örvað allan
gangfélagsins.
y Leifur Hannesson sao-Ai aó iðnað-
arráðuneytið teldi, að íslenski bygg-
ingarmarkaðurinn sé hruninn og
að hann komi ekki til með að ná
nema rúmum helming þess sem
hann hefur verið undanfarinn ára-
tug, á næstu árum.“ í þeim áætlun-
um sem Stálfélagið hefur gert fyrir
rekstri stálbræðslu er talið að verk-
smiðjan þurfí að ná tveimur þriðju
af markaði steypustyrktatjárr.s
miðað við notkun hér á landi á síð-
asta áratug þegar jafnvægi var í
byggingarframkvæmdum. Iðnaðar-
ráðuneytið gerir hins vegar ráð fyrir
að markaðurinn verði á næstu árum
helmingur þess sem hann var að
meðaltali á sama tíma. „I ráðuneyt-
inu virðast menn ekki reikna með
fólksfjölgun á næstu árum og telja
það staðreynd að virkjanir séu ekki
fyrirsjáanlegar í náinni framtíð,"
sagði Leifur.
Á aðalfundi félagsins verður
tekin afstaða til tilboða í eignir fé-
lagsins og þess hvort vilji sé hjá
félagsmönnum til að halda áfram án
þátttöku ríkisins. Leifur taldi það
mundi verða torsótt, félagið hefur
ekki fengið fyrirgreiðslu í bönkum
og meðan hún fæst ekki er ekki
hægt að nýta ríkisábyrgð til félags-
ins, sem Alþingi hefur samþykkt.
Ef raunhæf tilboð berast og inn-
heimta hlutafjárloforða gengur vel
þá á félagið fyrir skuldum. „Félagið
getur haldið áfram tilvist sinni þó
áformin sé lögð á hylluna í bili og
tapast hafí hlutafé og fjármunum
sem farið hafa í þjálfun starfs-
manna í Svíþjóð. Tap sem verður
vegna afgreiðslu sem félagið hefur
fengið hjá stjómvöldum síðustu tvö
ár. Stálfélagið á ekki kröfu á fjár-
framlögum frá ríkinu en telur að
orð skuli standa,“ sagði Leifur.
Stálfélagið hf. er þriðja fjölmenn-
asta hlutafélag landsins, telur um
1.100 hluthafa. Innborgað hlutafé
er um 10 milljónir króna að núvirði,
en ógreidd skuldbundin loforð nema
að núvirði um 5 milljónum króna.
Þá eru þessi skilyrtu loforð opin-
berra aðila um 25 milljónir króna,
en aldrei hafa verið greidd. Þannig
taldi Leifur Hannesson að heildar-
verð hlutafjár með þessum loforðum
væri rúmlega 40 milljónir króna.
Félagið fékk greiðslustöðvun í
janúar síðastliðnum og taldi Leifur
Hannesson að farið yrði fram á
framlengingu hennar nú er hún
rynni út í þessum mánuði. Nauðsyn-
legt yrði að fá greiðslustöðvun
áfram unz aðalfundur hefði tekið
ákvörðun um framtíð félagsins og
afstöðu til væntanlegra tilboða í
eignir félagsins.
Úrkoma mæld-
ist 41 mm á
Kirkjubæjar-
klaustri
MIKIL úrkoma var á sunnan-
verðu landinu í fyrrinótt og fram
eftir degi í gær. Mest mældist
hún á Kirkjubæjarklaustri eða
41 mm, sem telst mjög mikið,
samkvæmt upplýsingum frá
veðurstofunni. Ný lægð með
svipaðri úrkomu nálgast landið
sunnan úr hafi og verður hennar
farið að gæta á sunnanverðu
landinu síðdegis og aðra nótt.
Skil sem fóru fremur hægt austur
með suðurströndinni ollu þessari
miklu úrkomu sem var að meðaltali
20 til 30 mm um sunnanvert landið.
Sem dæmi má nefna að rigningin
mældist 24,2 mm í Reykjavík sem
telst mikið.
Um það leyti sem aurskriðan féll
milli Varmahlíðar og Steina undir
Eyjafjöllum um níuleytið í gær-
morgun gekk þar yfír suð-austan
hvassviðri með stórrigningu sem
olli leysingum í sjö stiga hita. Þjóð-
vegurinn var opnaður fyrir allri
umferð á ný skömmu eftir hádegi.
Suðurlandsvegur fór aftur sund-
ur seinna um daginn fyrir austan
Mýrdalssand, skammt sunnan við
Laufskálavörðu, vegna vatnavaxta.
Samkvæmt upplýsingum frá vega-
gerðinni verður gert við veginn í
dag. Að öðru leyti var góð færð um
allt Iand.
Patreksfj örður:
Sigurður Viggós-
son efstur í
skoðanakönnun
Patreksfirði, 10. mars.
SKOÐANAKÖNNUN fór fram
sunnudaginn 9. mars meðal
stuðnings- og félagsmanna
Framsóknarfélags Patreksfjarð-
ar.
Niðurstöður urðu þær að efstur
varð Sigurður Viggósson, í öðru
sæti Jensína Kristjánsdóttir, í þriðja
sæti Snæbjöm Gíslason og í fjórða
sæti Ólafur Sæmundsson. Uppstill-
inganefnd félagsins mun síðan raða
endanlega á framboðslistann. Próf-
kjör mun fara fram mjög fljótlega.
Framsóknarmenn hafa tvo af sjö
hreppsnefndarmönnum.
- SÖL
Framsóknarflokkurinn
á Akureyri:
Sigurður Jóhann-
esson í fyrsta sæti
Akureyri, 10. marz.
SIGURÐUR Jóhannesson, forseti
bæjarstjórnar, var kjörinn í
fyrsta sæti á lista Framsóknar-
manna fyrir bæjarstjórnarkosn-
ingarnar á Akureyri í vor, en
kjörfundur var hjá Framsóknar-
félaginu í bænum á laugardag.
Kosið var um eitt sæti í einu,
byijað á því fyrsta og hlaut
Sigurður yfirgnæfandi meiri-
hluta greiddra atkvæða í það
sæti — nær öll atkvæðin. Kosning
í átta sæti var bindandi.
í öðru sæti í kjörinu varð Úlf-
hildur Rögnvaldsdóttir,_ bæjarfull-
trúi, og í þriðja sæti Ásgeir Am-
grímsson. Hann er nýr á lista Fram-
sóknarmanna — en Jón Sigurðar-
son, þriðji bæjarfulltrúi flokksins á
yfírstandandi kjörtímabili, gaf ekki
kost á sér að þessu sinni. Fjórða í
kjörinu varð Kolbrún Þormóðsdótt-
ir, Þórarinn Sveinsson varð fimmti,
Unnur Pétursdóttir sjötta, Sigfús
Karlsson sjöundi og Ársæll Magn-
ússon áttundi.
Að sögn Gísla Kristins Lórenz-
sonar, formanns kjömefndar, verð-
ur raðað fljótlega í þau sæti á listan-
um sem eftir eru, líklega í næstu
viku. Rúmlega 100 manns mættu
á kjörfundinn og tóku þátt í kosn-
inguni.