Morgunblaðið - 11.03.1986, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUÐAGUR ll.MARZ 1986
t
Móðir mín, tengdamóðir og amma,
ÁSTA kjartansdóttir,
Follsmúla 4,
andaðist í Reykjalundi 8. mars sl.
Ingveldur Hilmarsdóttir, Jón Ingvarsson,
Erlendur Ingvar Jónsson, Kjartan Örn Jónsson,
Ásta Unnur Jónsdóttir.
t
Móðir okkar og stjúpmóðir,
GUÐBJÖRG TÓMASDÓTTIR,
Grettisgötu B7a,
lóst fimmtudaginn 6. mars á Elliheimilinu Grund. Jarðarförin fer
fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 14. mars kl. 15.00.
Sigurbjörg Snorradóttir,
Guðmundur Snorrason,
Egill Snorrason,
Snorri P. Snorrason,
Halldór Snorrason.
t
KRISTfN EINARSDÓTTIR
frá Prestshúsum, Mýrdal,
er látin.
Börn og tengdabörn.
t
Elskuleg dóttir okkar og systir,
MARÍA ÓSK JÓNSDÓTTIR,
Urðarstfg 6,
Hafnarfirði,
sem lést í barnadeild Landspítalans 5. mars sl., verður jarðsungin
frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði miðvikudaginn 12. mars kl. 13.30.
Hrönn G. Gunnarsdóttír,
Jón OddurJónsson,
Anna Lovfsa Jónsdóttir, Friðrlk Auðunn Jónsson,
Jón OddurJónsson.
t
ÞORGERÐUR EINARSDÓTTIR,
áður til heimllls á Öldugötu 13,
Hafnarflrðl,
andaðist að Hrafnistu miðvikudaginn 26. febrúar. Jarðarförin hefur
fariðfram.
Slgurður Einarsson,
Steinn T ryggvason,
Kristín Þráinsdóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
KJARTAN BJÖRNSSON,
Hringbraut 52,
Keflavfk,
lést 8. mars.
Fyrir hönd aðstandenda,
Katrín Kristjánsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Elskulegur eiginmaður minn,
KJARTAN TÓMASSON,
Skjólbraut 11,
lést að morgni 9. mars á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð, Kópavogi.
Lilja Ólafsdóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR H. GUÐMUNDSSON,
Sólvallagötu 2,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 12. mars kl.
10.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð.
Karólfna J. Lárusdóttir,
Lárus Sigurðsson, Valdfs Atladóttir,
Karólfna Lárusdóttir.
Málfríður Guðmunds-
dóttir — Minning
Fædd 21. mars 1923
Dáin 28. febrúar 1986
Þann 28. febrúar lést í Borgar-
spítalanum frænka mín, Málfríður
Guðmundsdóttir eða Fríða, eins og
hún var kölluð af okkur sem þekkt-
um hana best. Það er erfítt að trúa
að Fríða sé ekki lengur á Berg-
þórugötu 59. Hún hafði veikst
skyndilega, þá nýkomin heim úr
lagningu, en það var henni mikils
virði að vera vel til höfð. Mínar
fyrstu minningar um Fríðu eru
einmitt í gegnum slíkt. Þegar hún
var að setja í permanett. Ég var
ekki gömul þegar Fríða setti perma-
nett í mitt slétta hár, hvað mér
fannst ég vera mikil dama þegar ég
hljóp upp til mömmu, en upp segi
ég, því Fríða átti heima á mið-
hæðinni á Bergþórugötu 59 alla
mína bemsku. Hún var því mikið
meira en frænka fyrir mér. Hún
fylgdi alltaf minni fjölskyldu. Það
var gott að hafa hana og hennar
fjölskyldu í húsinu þegar ég svo fór
að búa á fyrstu hæðinni. Það vom
famar margar ferðir upp til Fríðu
bæði af mér og mínum strákum að
fá lánað hitt og þetta eins og gerist
hjá ungri frú sem gleymir ýmsu.
Það var sjaldan sem Fríða gat ekki
bjargað því. Þeir sögðu líka oft
strákamir mínir; við fömm bara til
Fríðu. Svo eftir að við fluttum suður
í Garðabæ, endaði bæjarferðin oft
á Bergþómgötu 59. Og það er lítil
Lóa sem geymir vel naglalakk og
varasalva sem Fríða gaf í einni
bæjarferðinni.
Elsku Geir, Geirsi, Gugga og
Guðrún, tengdaböm og bamaböm
ykkar. Innilegustu samúð vottum
við ykkur öllum.
A.L. Marinósdóttir.
í dag er gerð frá Dómkirkjunni
útför frú Málfríðar Guðmundsdótt-
ur, en hún andaðist í Borgarspítal-
anum föstudaginn 28. febrúar síð-
astliðinn.
Málfríður fæddist að Korpúlfs-
stöðum 21. marz 1923, dóttir hjón-
anna Bjamveigar Guðjónsdóttur og
Guðmundar Þorlákssonar, síðar
bónda að Seljabrekku, Mosfells-
sveit.
Þann 2. febrúar 1946 giftist
Málfríður eftirlifandi manni sínum
Geir Herbertssyni, prentsmiðju-
stjóra, og eignuðust þau fjögur
mannvænleg böm: Geir, f. 4. júlí
1946, vélfræðingur við Búrfells-
virkjun, giftur Ónnu Sólmunds-
dóttur, og eiga þau tvo syni, Guðjón
og Kjartan Orra; Guðjón, f. 3.
desember 1951, dáinn 9. september
1967; Guðbjörg, f. 1. marz 1956,
gift Hálfdáni Örlygssyni, prentara,
og eiga þau þijár dætur, Evu, Fríðu
og Hildi; Guðrún, f. 11. maí 1964,
menntaskólanemi.
Á heimili þeirra Fríðu og Geirs
var ætíð gaman að koma enda
bæði mjög gestrisin, hreinskiptin
ogglaðvær.
Fríða var fríð kona og mörgum
góðum kostum búin. Hún var mjög
bamgóð og vildi helst vera sem
mest í návist bama sinna og bama-
bama. Við hjónin nutum þessa
einnig, því að hún var alltaf boðin
og búin að gæta bama okkar og
hafa þau á sínu heimili er okkur lá
á. Böm okkar hlökkuðu alltaf til
að fara til Fríðu frænku, eins og
þau kölluðu hana.
1. janúar 1971 gerðist Fríða
starfsmaður Borgarspítalans og
gegndi því starfí til æviloka. Hún
naut þessa starfs mikið.
Þau Fríða og Geir urðu fyrir
þeirri þungu sorg að missa yngri
soninn, Guðjón, haustið 1967, en
hann lést af slysförum. Guðjón varð
öllum harmdauði enda góður og
hlýr drengur.
í dag er við kveðjum Fríðu þökk-
um við henni mikla vináttu og
tryggð er hún sýndi okkur alla tíð
og biðjum Guð að blessa þessa góðu
konu.
Hrefna og Arni M. Jónsson
Góð og elskuleg kona er látin.
Kona sem öllum var hlýtt til er
hana þekktu. Hún lagði aldrei illt
til nokkurs manns. Enginn gat
kynnst henni án þess að fínna
mannkærleik hennar. Langt um
aldur fram kveður hún og lýtur í
lægra haldi fyrir þeim, sem alltaf
sigrar að lokum. Eftir stöndum við
hryggar í huga og reynum að sætta
okkur við orðinn hlut, en það er
erfítt, því hún sýndi okkur aldrei
annað en hjartagæsku og hlýju,
allt frá því að við vorum lítil böm.
Fyrir það þökkum við henni í dag
um leið og við óskum henni alls
hins besta i nýjum heimi.
Fríða var gift móðurbróður okk-
ar, Geir Herbertssyni. Þau og böm
þeirra hafa alltaf skipað sérstakan
sess í hugum okkar. Heimili þeirra
var okkur ávallt opið eins og reynd-
ar öllum öðrum. Hjá Fríðu og Geir
leið gestum eins og heima hjá sér.
Þar var gott að koma. Hér áður
fyrr var það hápunktur jólanna að
fara niður á Bergþórugötu og hitta
þau. Þar voru böm ekki fyrir og
aldrei of mikið af þeim, hversu há-
vær sem þau urðu.
Okkur er í dag hugsað til frænda
okkar og bama hans. Sorg þeirra
er mikil, en þeir sem hafa átt mikið
hljóta einnig að missa mikið. Minn-
ingin um góða konu mun lifa áfram
í hugum þeirra sem syrgja hana. í
lífinu vega sorgin og gleðin salt
eins og hinn mikli viskumaður
Kahlil Gibran bendir okkur á í ljóða-
bókinni Spámanninum:
Skoðaðu hug þinn vel, þegar þú ert glaður
og þú munt sjá, að aðeins það, sem valdið
hefiir hryggð þinni, gerir þig glaðan.
Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur
hugaþinn, ogþú muntsjá, aðþúgrætur
vegna þess, sem var gleði þín.
Nú þegar Fríða hefur kvatt hlað-
ast minningamar upp. Flestar eru
þær tengdar bemsku okkar. Er
foreldrar okkar voru erlendis hér
áður fyrr, vom Fríða og Geir ávallt
tilbúin að gæta okkar. Hjá þeim
voru ekki boð og bönn, heldur reynt
að fara að með lagni og góðu. Það
var því alltaf tilhlökkunarefni að fá
að vera hjá þessum góðu hjónum.
Það iýsir Fríðu vel, að enda þótt
hún hafí átt flögur böm sjálf og
nóg hafí verið að snúast hjá henni,
taldi hún ekki eftir sér að gera
öðrum bömum greiða. Það voru ófá
skiptin, sem við systumar skörtuð-
um grímubúningum, náttfötum eða
einhveiju öðru fati sem Fríða hafði
saumað. Allt bar það merki sér-
stakrar natni og vandvirkni. Jóla-
pakkamir frá henni voru sérstakir
og fátt gladdi bamshugann meir.
Var það vegna þess að innihald
þeirra var sérstakt og allt öðruvísi
en það sem aðrir áttu. Einnig var
auðfundið að gefíð var af ánægju,
en Fríða var ætíð veitandi en ekki
þiggjandi. Okkur systmnum þótti
alla tíð mjög vænt um Fríðu og
framan af héldum við að hún væri
frænka okkar. Við urðum því von-
sviknar þegar við komumst að því,
aðsvovarekki.
Fríða var falleg kona. Hún var
grannvaxin, hafði fallega húð, fal-
t
Þökkum af alhug samúð og vlnarhug við andlát og útför,
INGIBJARGAR ELÍSABETAR ÁSBJÖRNSDÓTTUR,
Vik f Mýrdal.
Ólafur Jónsson,
Sigriður Ólafsdóttir.
legt hár, var ávallt mjög fín og vel
til fara. Hennar fallega framkoma
varð til að undirstrika hversu lagleg
hún var, en hún var brosmild, rólynd
og dagfarsprúð svo af bar. Minn-
umst við þess að hafa sem litlar
telpur setið hugfangnar við að dást
að þessari fallegu og góðu konu.
011 vissum við að Fríða var ekki
heilsuhraust, en samt sem áður kom
andlátið á óvart. Ef til vill hefur
hún fundið fyrir einhveijum að-
draganda, en vegna tillitssemi
hennar við aðra er erfítt að vita
hvort svo hafí verið.
Við systumar sendum Geir
frænda okkar, bömum hans,
tengdabömum og bamabömum
innilegar samúðarkveéjur og biðjum
góðan guð að styrkja þau í þeirra
miklu sorg. Skarðið sem nú hefur
mjmdast er stórt og það verður
ekki fyllt. Fríða var gull af manni
og hennar er sárt saknað.
Farþú ífriði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt
GekkstþúmeðGuði,
Guðþérnúfylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V.Briem.)
Ólaf ía og Hertha Árnadætur
Siglufjörður:
Ný barnafata-
verslun opnuð
Bráðvantar fólk í fisk
Siglufirði, 7. mars.
HÉR á Siglufirði var opnuð í dag
ný versiun, Verslunin Nes, og
mun hún aðallega hafa á boðstól-
um barnafatnað og sportfatnað.
Eigandi hennar er Margrét Þórð-
ardóttir.
Verslunin er til húsa í Aðalgötu
6 sem var lengi vel eign Haralds
Böðvarssonar. Það er verið að
endurlífga Aðalgötuna neðan til og
líst mér vel á að bæjarlífíð færist
nær sjónum.
Nú er feikilega mikil vinna hér
á Siglufírði og bráðvantar fólk til
fískvinnu. Hér er unnið fram eftir
öllum kvöldum og um helgar líka.
— Matthías
V^terkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!