Morgunblaðið - 11.03.1986, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR ll.MARZ 1986
23
AF/Símamynd
Soares ásamt Mitterrand, Frakklandsforseta, eftir embættistökuna.
Soares er fyrsti portúealski forsetinn úr röðum óbreyttra boreara
frá árinu 1926.
Portúgal:
Stórmenni við emb-
ættistöku Soaresar
MARIO Soares sór í dag embætt-
iseið sinn sem forseti Portúgals,
sá fyrsti úr röðum óbreyttra
borgara frá árinu 1926. Þjóð-
höfðingjar og önnur stórmenni
víðs vegar að úr heimi voru við-
stödd athöfnina.
Fimm þjóðhöfðingjar, átta for-
sætisráðherrar, þrír varaforsetar og
margir aðrir háttsettir fulltrúar
erlendra þjóða voru viðstaddir
embættistökuna og af þeim sökum
var öryggisgæsla portúgölsku lög-
reglunnar meiri en áður eru dæmi
um. Alls um 7.500 lögreglumenn
gættu þess, að ekkert færi úrskeið-
is. _
I ræðu, sem Soares flutti við
embættistökuna, lagði hann áherslu
á, að hann ætlaði sér að vera „for-
seti allra Portúgala" og ekki draga
taum neins eins stjómmálaflokks.
„Ég mun gera allt, sem ég get til
að tryggja pólitískan stöðugleika
og núverandi minnihlutastjóm á
allan minn stuðning," sagði Soares,
sem einnig minntist félaga síns og
vinar, Olofs Palme, forsætisráð-
herra Svíþjóðar.
Soares hefur í dag átt viðræður
við ýmsa þjóðarleiðtoga, t.d. Mitter-
rand, Frakklandsforseta, Craxi,
forsætisráðherra Ítalíu, og Bush,
varaforseta Bandaríkjanna, og þeir
og aðrir embættismenn hafa einnig
notað tækifærið til að talast við um
ýmis mál. Matthías Á. Mathiesen,
utanríkisráðherra, var fulltrúi ís-
lensku ríkisstjómarinnar en einnig
var boðið til Jóni Baldvini Hanni-
balssyni, formanni Alþýðuflokksins,
en Soares er varaforseti Alþjóða-
sambandsjafnaðarmanna.
Ránið á frönskum sjónvarpsmönnum í
Beirút veldur stjórn Mitterrands hugarangri:
Ræningjarnir fúsir
til viðræðna við
stj órnarandstæðing
Beirút, 10. marz. AP.
ÖFGAFULL shítasamtök, Jihad,
sögðust enga ábyrgð bera á
hvarfi fjögurra franskra sjón-
varpsmanna, sem rænt var í
Beirút á laugardag, en af hálfu
frönsku stjórnarinnar er nú gerð
áköf tilraun eftir diplómatískum
leiðum til að tryggja frelsi fjór-
menninganna.
Jihad-samtökin sendu frá sér
myndir, sem þau sögðu vera af
Frakkanum Michel Seurat, sem þau
kváðust hafa tekið af lífi í síðustu
viku. í bréfi, sem fylgdi myndunum,
var því vísað á bug að samtökin
stæðu á bak við ránið á sjónvarps-
mönnunum. Maður, sem kvaðst
hringja í nafni samtakanna, hafði
samband við vestræna fréttastofu
á sunnudag og sagði þau hafa
Frakkana fjóra í haldi.
Sjónvarpsmennimir eru starfs-
menn frönsku stöðvarinnar An-
tenne-2. Þeim var rænt eftir að
þeir höfðu myndað fund rótttækra
shítasamtaka, flokks Guðs. Ránið
er framið aðeins viku fyrir frönsku
þingkosningarnar, en stjóm Jafnað-
armannaflokksins er spáð ósigri í
þeim. Stjómin sendi þijá fulltrúa
til Miðausturlanda í gær til að
freista þess að fá mennina lausa.
Yfirvöld í Teheran vildu þó ekki
veita þeim áheyrn og neituðu þeim
um vegabréfsáritanir.
Það veldur frönsku stjórninni
hugarangri að meintir ræningjar
fjórmenninganna segjast aðeins
vilja ræða við óháðan milligöngu-
mann, sem hóf að eigin fmmkvæði
tilraunir til að fá sjónvarpsmennina
leysta úr haldi; svo og fjóra Frans-
ara aðra, sem verið hafa í haldi
mannræningja um skemmri eða
lengri tíma. Hér er um að ræða
franska hjartalæknirinn Razah
Raad, sem fæddur er í Líbanon.
Hann héit til Sýrlands í gær og
hefur dregið upp málamiðlunartil-
lögu, sem hann mun leggja fyrir
helztu leiðtoga shíta í Líbanon,
Nabih Berri, dómsmálaráðherra í
stjóm Amins Gemayel, og Mo-
hammed Hussein Fadlalla, valda-
mesta trúarleiðtoga shíta. Tillaga
Raad gerir ráð fyrir því að mildaðir
verði dómar yfir fimm írönskum
hryðjuverkamönnum, sem reyndu
að ráða Bakhtiar, fyrrum forsætis-
ráðherra írans, af dögum í París
198°.
Andstæðingar
NATO halda
fund í Madrid
Madrid, 10. mars. AP.
ANDSTÆÐINGAR aðildar Spán-
verja að Atlantshafsbandalaginu
fylktu liði þúsundum saman í
lystigarði í Madrid á sunnudag
til að hlusta á ræður og tónlistar-
flutning gegn NATO og Ronald
Reagan, Bandaríkjaforseta.
Óháða fréttastofan „Europe
Press“ sagði að um 70 þúsund
manns hefðu safnast saman, en
aðstandendur fundahaldsins sögðu
að hálf miljón hefði verið viðstödd.
Stjóm Felipe Gonzalez, forsætis-
ráðherra, hvetur Spánveija til að
styðja ákvörðunina um áframhald-
andi aðild að NATO án þess að
herafli Spánar verði tekinn inn í
varnarbandalagið í þjóðaratkvæða-
greiðslunni á miðvikudag.
Gengi
gjaldmiðla
Lundúnum, 10. mars. AP.
BANDARÍSKI dalurinn hækkaði
skyndilega gegn flestum helstu
gjaldmiðlum heims á gjaldeyris-
mörkuðum í dag, þrátt fyrir
lækkun vaxta í Bandaríkjunum.
Er þessi hækkun talin stafa af
kaupum spákaupmanna. Þannig
kostaði breska pundið 1,4425
dali, en kostaði fyrir heigi
1,4610.
Gengi dals gagnvart nokkmm
öðmm gjaldmiðlum var sem hér
segir, innan sviga gengið frá því á
föstudag. Dalurinn kostaði:
2,2785 vestur-þýsk mörk (2,2325)
1,9332 svissneska franka (1,8875)
7,0075 franska franka (6,8650)
2,5740 hollensk gyllini (2,5215)
1.548,50 ítalskar límr, (1.518,50)
1,3995 kanadíska dali, (1,4055).
uníc
TERMOSTAT
með fjarvísun
fyrir loft og vatn
40 60
Stöðugt eftirlit er
vörn gegn skaða
= HEÐINN =
VÉLAVERSLUN, SÍMI 24260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA- LAGER
III Ijlliltt
Flísar flísaefni verkfæri Komið í sýningarsal okkar og skoðið möguleikana á notkun Höganás flísa í húsið. Veljiðsíðan Höganas fyrirmynd annarreflísa S HÉÐINN S S0JAVEGI2, REYKJAVIK
SfDROG
STERK DEKK
FYRIR VÉLAR
OGTÆKI
Við kappkostum að hafa ávallt til afgreiðslu
flestar dekkjastærðir fyrir lyftara, stærri tæki og
vélar. Bjóðum dekk frá V-Þýskalandi, Japan,
Belgíu, Taiwan, Frakklandi og Ameríku. Sér-
pöntum „Massiv“ og „Trukush“ dekk með stutt-
um fyrirvara.
18x7-8......... 16 pr
18x7-8.......... 14 pr
500-8 .......... 8 pr
600-9 .......... 10 pr
650-15 ......... 12 pr
10,5/11-20 .... 10 pr
650-10 ......... 10 pr
23X9-10......... 16 pr
700-12 ......... 12 pr
27x10-12 .... 12 pr
27x10-12 . . . . . 14 pr
12,0-18 . . . . . . 12 pr
550-15 . . . 8 pr
750-15 . . 14 pr
815-15 . . 12 pr
825-15 . . 14 pr
250-15 . . 16 pr
600-15 . . . 8 pr
16,9/17-28 . . . . 10 pr
Eigum einnig fyrirliggjandi flestar stærðir dekkja
fyrir fólksbifreiðar.
/4usturbakki hf.
BORGARTÚNI 20. SÍMI 2 84 11
BJARNI DAGUR/SlA