Morgunblaðið - 12.03.1986, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR12. MARZ 1986
53
Tap gegn Bahrain:
„Kom ekki á óvart“
- sagði Guðni Kjartansson, aðstoðarþjálfari
qr'\ f
„ÞAÐ KOM mór nú ekki á óvart
að við myndum eiga í erfiðleik-
um í þessum leik,“ sagði Guðni
Kjartansson, aðstoðarþjálfari
íslenska landsliðsins í samtali
við Morgunblaðið í gœrkvöldi.
„Strákarnir höfðu flestir aðeins
fengið tveggja til þriggja tíma
svefn eftir meira en sólarhrings
vöku, og voru því eðlilega dálftið
sofandalegir í leiknum."
Landslið Bahrain sigraði í
leiknum með tveimur mörkum
gegn einu, eftir að hafa haft 2:0
yfir í hálfleik. Fyrra markið kom
eftir laglega sókn Bahrain-liðsins
upp miðjuna — stungusending
var gefin innfyrir íslensku vörnina
og sóknarmaður Bahrain komst
frír inn í vítateig og skoraði með
föstu skoti. Seinna markið var
langskot af 35 metra færi sem
sveif yfir Þorstein í markinu og
undir slána í netið.
í síðari hálfleik kom íslenska
liðið meira inn í leikinn, og eftir
tíu mínútur náði Halldór Áskels-
son, sem kom inná eftir leikhló,
að skora fallegt mark. Hann fékk
knöttinn inn í vítateig, og náði
að skjóta föstu skoti úr vítateigs-
horninu og í netið. Eftir markið
var jafnræði með liðunum, en í
heild var leikurinn fremur slakur.
íslenska liðið að sjálfsögðu æf-
ingalaust.
Leikurinn var sá fyrsti sem
landsliðið leikur undir stjórn
landsliðsþjálfarans nýja, Sigi
Held, og bar hann nokkurn keim
af því að liðið þekkti ekki hug-
myndir þjálfarans og að þjálfar-
inn þekkti ekki liðið. Þorsteinn
Bjarnason lék í markinu, og aft-
asti varnarmaður, „sweeper",
var Gunnar Gíslason. Fyrir fram-
an hann léku tveir miðverðir,
Loftur Ólafsson og Sævar Jóns-
son, og Viðar Þorkelsson og
Ormarr Örlygsson léku framliggj-
andi bakverði. Á miðjunni léku
síðan Ágúst Már Jónsson, Ólafur
Þórðarson og Pótur Ormslev. í
framlínunni léku Guðmundur
Steinsson og Guðmundur Torfa-
son í fyrri hálfleik, en Halldór
Áskelsson og Sveinbjörn Hákon-
arson í þeim síðari. í leikhlé kom
Kristján Jónsson einnig inn á fyrir
Pétur Ormslev.
Lið Sahrain er þjálfað af Bret-
anum Keith Birkinshaw, sem áð-
ur var framkvæmdastjóri Totten-
ham, og lék áberandi breskan
bolta, á meðan leikur íslenska
liðsins bar keim af þýskum sjón-
armiðum þjálfarans nýja. Um 25
Halidór Áskelsson skoraði mark
Íslandsígær.
stiga hiti var á meðan leikurinn
fór fram.
Knattspyrnulandsliðið:
Æfðu örfáum
klukkustundum
fyrir leikinn
ÍSLENSKA knattspyrnulandsliðið
hitti Sigi Held, hinn nýja þjálfara
sinn, f fyrsta skipti f London þar
sem hann kom til móts við liðið
á leið til Bahrain. Strákarnir lögðu
af stað frá fslandi eldsnemma á
mánudagsmorguninn, komu til
London um hádegið og eftir
nokkurra klukkustunda viðdvöl
þar var flogið til Bahrain. Þangað
iiiTmnra
var komið snemma morguns f
gœrmorgun, en leika átti kl. 16.30
sfðdegis. En f stað þess að fara
stystu leið í rúmin ákvað Sigi
Held að hafa lauflátta æfingu til
að ná ferðaþreytunni úr liðinu.
Landsliðsmennirnir drífu sig úr
ferðafötunum og f fþróttagalla og
tóku klukkustundarlanga æfingu,
eftir 20 tfma ferðalag, og aðeins
nokkrum klukkustundum fyrír
leik. Eftir æfinguna fóru menn í
rúmið og fengu tveggja til þriggja
tfma blund áður en fara þurfti á
leikvöllinn. Það er þvf greinilegt
að fslensku landsliösmennirnir
verða ekki teknir neinum vettl-
ingatökum af Sigl Held f framtfð-
Inni.
Bjarni stóð fyrír sfnu f Belgfu.
BJARNI Friðriksson náði mjög
góðum árangri á opna belgíska
meistaramótinu í júdó um helg-
ina. Bjarni lenti f þriðja sæti f sfn-
um þyngdarflokki, 95 kg flokkin-
um. Fjölmargir sterkir júdómenn
tóku þátt f mótinu og alls voru
þátttakendur 260 f rá 16 löndum.
Fyrsti Evrópuleikur-
inn við Frakka íhaust
ÍSLAND leikur tvo fyrstu leikina
f þriðja riðli Evrópukeppninnar f
knattspyrnu í haust. Og mótherj-
arnir eru þau tvö lið sem almennt
eru talin þau bestu f riðllnum -
Frakkar, sem leikið verður gegn
10. september, og Sovótmenn,
sem við ieikum við tveimur vikum
sfðar, þann 24. september. Báðir
leikirnir verða hór heima, en við
leikum einnig gegn Austur-Þjóð-
verjum f ár. Sá leikur fer fram í
A-Þýskalandi 29. október.
Það óvenjulega við leikdagana
er að á næsta ári leikum við tvo
leiki um mitt sumar, sem er afar
sjaldgæft þegar um leiki í Heims-
meistara- eða Evrópumóti er að
ræða. Við leikum 9. júlí við Norð-
menn hér heima og 23. júlí í Nor-
egi. Síðasti leikur okkar í riðlinum
fer fram í Sovétríkjunum 28. októ-
ber á næsta ári.
Leikir Islands í Evrópukeppninni
fara fram á þessum dögum:
Island-Frakkland 10. sept 1986
Island-Sovétríkin 24. sept. 1986
A-Þýskaland-Island 29. okt. 1986
Frakkland-lsland 29. apríl 1987
Island-A-Þýskaland 3. júní 1987
lsland-Noregur9. júlí 1987
Noregur-Island 23. júlí 1987
Sovétríkin-lsland 28. okt. 1987
Samið við
Bogdan til
rúmlega
tveggja ára
SEINT í gærkvöldi undirrituðu
Jón Hjaltalín Magnússon og
Bogdan Kowalczyk samnlng
þess efnis að Bogdan annlat
þjálfun fslenska handknattleiks-
landsliðsins fram yfir Olympfu-
leikana f Seoul 1986. Samning-
urinn er háður þeim fyrlrvara
að Bogdan fái leyfi pólskra yfir-
valda til að starfa hór á landi á
þessu tímabili. Bogdan hólt
utan til Póllands snemma f
morgun.
Fyrstu verkefni landsliðsins
eftir HM keppnina í Sviss verða
væntanlega í apríl næstkomandi,
þegar fyrirhugaðir eru nokkrir
landsleikir. Ef allt fer að óskum,
og Bogdan fær tilskilin leyfi mun
hann stjórna liöinu í þeim leikjum,
sem og öllum leikjum þess fram
yfirÓL 1986.
Jón Hjaltalfn Magnússon og Bogdan eftir undirritun samningsins f gærkvöldi.
Morgunblaöiö/RAX
Bikarúrslitin í
körfuknattleik:
Bandarískar
klappstýrur?
VERIÐ er að vinna í þvf af
hálfu KKf, Njarðvfkinga og
Hauka að fá heimsfrægar
bandarfskar „klappstýrur“ til
þátttöku f úrslitaleik bikar-
keppninnar í körfuknattleik f
Laugardalshöllinni annað
kvöld.
Svo vill til að hér á landi eru
nú staddar klappstýrur banda-
ríska fótboltaliðsins Dallas
Cowboys. Klappstýrur þessa
liðs eru víðfrægar fyrir hæfi-
leika í sinni grein, og ferðast
annað slagið um heiminn og
skemmta — án liðsins sem þær
eru kenndar við. Það er einmitt
erindi þeirra á íslandi. Þær
dvelja á Keflavíkurflugvelli og
hafa haldiö sýningar fyrir
bandaríska hermenn að undan-
förnu.
Ekki er að efa að þær munu
laða að nokkurn fjölda áhorf-
enda, ef þær fást til að koma
á leikinn í Höllinni.
Ribe vann
RIBE, lið Gunnars Gunnarssonar
og Gfsla Felix Bjamasonar, vann
stóran sigur f átta liða úrslltum
dönsku bikarkeppninnar f hand-
knattleik f gærkvöldl. Uðlð bar
þá slgurorð af HIK með 23 mörk-
um gegn 20. Gunnar áttl ágætan
leik og skoraði 4 mörk.
Æfingamót í
knattspyrnu
á Akureyri
um páskana
AkureyrMO. marz.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að halda
fimm liða æfingamót f knatt-
spyrnu um páskana á Akureyri.
Það er knattspyrnudeild Þórs
sem gengst fyrir mótinu. Þáttak-
endur verða Þór, KA, KR, Keflavík
og Völsungur frá Húsavík.