Morgunblaðið - 27.04.1986, Síða 1
104SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
92. tbl. 72. árg.
SUNNUDAGUR 27. APRÍL 1986
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Finnland:
Verkfallið
komið á
fjórðu viku
Helsinki. AP.
VERKFALL opinberra starfs-
manna er nú í fjórðu vikunni
og engin lausn virðist í augsýn.
Samningaviðræður hafa ekki
verið boðaðar.
Verkfallið hófst 2. apríl er
launakröfum opinberra starfs-
manna var hafnað. Talið er að
verkfallið kosti ríkissjóð um 30
milljónir marka daglega, eða rúm-
lega 24 millj. ísl. kr.
Verkfallið hefur nær lamað
flug- og járnbrautarsamgöngur,
pósthúsum hefur verið lokað, há-
skólakennsla hefur fallið niður og
þjónusta ýmiss konar er í lág-
marki. Útflutningsatvinnuvegimir
áætla að tekjutap þeirra nemi um
200 milljónum marka á mánuði
eða 1.650 milljónum íslenzkra
króna.
Norður-írland:
Skæruliði
drepinn
Belfast, Norður-írlandi. AP.
HERMENN drápu mann sem
grunaður er um að vera skæru-
liði írska lýðveldishersins og
særðu annan, snemma i gær-
morgun. Herma óstaðfestar
fregnir að hinn látni hafi verið
á meðal 38 skæruliða IRA, sem
flúðu úr Maze-fangelsinu fyrir
utan Belfast 1983. Er þetta
mesti flótti úr bresku fangelsi
frá upphafi. Fangaranir drápu
einn fangavörð á flóttanum.
Fregnir herma að maðurinn
heiti Seamus Mcilwaine, 25 ára
að aldri, sem var dæmdur til lífs-
tíðarfangelsis árið 1982, fyrir
morð á hermanni og lögreglu-
manni árið 1980.
Þrír lögrelumenn særðust í
fyrrinótt í átökum við kaþólska
unglinga. Sambandsflokkur mót-
mælenda, hefur skorið á tengsl
sín við Ihaldsflokk Margaretar
Thatcher, til að mótmæla á tákn-
rænan hátt samkomulagi ríkis-
stjóma Bretlands og írlands um
málefni Norður-írlands.
5 -
Hæstiréttur
Bandaríkjanna:
Rógbornir
verða að
sanna sak-
leysi sitt
Washington. AP.
FJÖLMIÐLAR þurfa ekki að
sanna ærumeiðandi ummæli,
sem leiða til meiðyrðamála, að
mati Hæstaréttar Bandarikj-
anna. Taldi naumur meirihluti
dómara, að bandaríska stjórn-
arskráin legði þeim, sem lög-
sækja fjölmiðla vegna niðrandi
ummæla, þá skyldu á herðar
að sanna sakleysi sitt.
Hæstiréttur kvað upp dóm í
máli dagblaðsins The Philadelphia
Inquirer á mánudaginn var, þar
sem blaðið var sýknað í slíku máli
með atkvæðum fímm dómara.
Fjórir dómaranna níu voru á
öndverðri skoðun. Sú meginregla
hefur gilt í bandarísku réttarfari,
að opinberir embættismenn og
fólk í opinberu lífí þurfí að sanna
sakleysi sitt vegna áburðar í §öl-
miðlum og samkvæmt þessum
dómi gildir hið sama um almenna
borgara.
Sandra Day O’Connor, hæsta-
réttardómari, sem samdi álit
meirihluta réttarins, segir að
sumir kunni að þurfa að sæta
því að sitja undir áburði, sem þeir
geti ekki sannað að sé rangur.
Hinn kosturinn sé, að fjölmiðlar
greiði bætur vegna þess sem þeir
segja satt en geta ekki sannað.
Þessi kostur „leiði aðeins til þess
að leggja hömlur á málfrelsi, sem
sé tryggt í stjómarskránni".
Alit minnihlutans var hins
vegar það, að þessi túlkun laganna
muni einungis verða ábyrgðar-
lausum og meinfysnum ijölmiðl-
um í hag.
Sprengjutilræði gegn Bret-
um og Bandaríkjamönnum
Beirút, Lyon, London. AP.
GÍFURLEGT tjón varð í öflugri
sprengingu í byggingu Brezka
Miðausturlandabankans í Beirút
í dögun i gærmorgun en engan
sakaði. Þá kviknaði eldur í skrif-
stofum American Express í Lyon
í Frakklandi eftir að sprengja
sprakk i byggingunni.
Alzheimer-sjúkdómurinn:
Prótín vekur vonir
New York. AP.
VÍSINDAMENN við Albert
Einstein-Iæknaskólann í New
York hafa fundið í heila Alz-
heimer-sjúklinga prótín, sem
virðist ekki fyrir hendi í heila
heilbrigðra.
Þessi vísbending eykur vonir
manna um að þekking manna á
sjúkdómnum eflist og að um síðir
verði unnt að greina hann. Alz-
heimer er hrömunarsjúkdómur.
Ekki er vitað hvað veldur honum
og lækning hefur ekki reynst
möguleg.
Vísindamenn við meina- og
taugafræðideild Albert Einstein-
læknaskólans fundu prótínið við
krufningu 28 látinna Alzheimer-
sjúklinga. Fannst það í heila
þeirra allra. Við samanburðarat-
hugun reyndist prótínið ófínnan-
legt í heila heilbrigðra. Það hefur
heldur ekki fundizt í fólki sem
þjáðist af öðrum taugakerfis-
sjúkdómum en Alzheimer.
Samtök, sem hingað til hefur
ekkert verið vitað um, „Hópur 219
FA“, segjast bera ábyrgð á spreng-
ingunni í Beirút. Maður hringdi í
útvarpsstöð kristinna manna og
kvað samtökin lýsa ábyrgðinni á
hendur sér. Síðustu tvo daga höfðu
menn skotið á byggingu bankans úr
bifreið, sem ekið var hratt framhjá.
Einn maður slasaðist lítillega er
sprengja sprakk í lyftugöngum í
skrifstofum American Express í
Lyon. Hann varð fyrir fljúgandi
glerbrotum handan götunnar, sem
byggingin stendur við. Enginn hafði
lýst abyrgð á hendur sér, en lögregl-
an fann veggskrift í nágrenninu þar
sem letrað var rauðum stöfum:
„American Express, Black and
Decker, Control Data, U.S. Go
Horne".
Talið er að sprengjutilræðin í
Beirút og Lyon séu verk manna,
sem vilji hefna loftárása Banda-
ríkjamanna á Líbýu.
Walter F. Mondale, keppinautur
Ronalds Reagan í forsetakosning-
unum 1984, lýsti í gær stuðningi
við loftárásina á Líbýu. Hann sagði
Reagan ekki hafa átt annarra kosta
völ þegar sannanir lágu fyrir um
aðild Líbýu að hryðjuverkum, sem
beindust gegn Bandaríkjamönnum.
Aðgerðir hefðu og verið óhjákvaemi-
legar fyrst Evrópuríkin reyndust
ófáanleg til samstarfs um efna-
hagslegar refsiaðgerðir, sem Líbýu-
menn hefðu átt að fínna fyrir.
Mondale sagði að ákæra bæri
Khadafy og lýsa eftir honum og
bjóða há laun þeim sem klófesti
hann. Mondale sagði það góðan
árangur ef loftárásin yrði til þess
að Evrópuríkin kæmu Bandaríkjun-
um til aðstoðar í baráttunni gegn
hryðjuverkum.