Morgunblaðið - 27.04.1986, Síða 4

Morgunblaðið - 27.04.1986, Síða 4
JÓNAS Elíasson aðstoðarmaður iðnaðarráðherra, sem jafnframt er formaður stjórnar Orkustofn- unar, lýsti þeirri skoðun á árs- Messías í Langholts- kirkju: Aukatónleikar ÍSLENSKA hijómsveitin og Kór Langholtskirkju hafa haldið tón- leika undanfama daga á Akra- nesi, Selfossi og í Keflavík við mjög góðar undirtektir. Á fímmtudagskvöldið voru tón- leikar i Langholtskirkju og varð húsfyllir. Ákveðið hefur verið að hafa aukatónleika í dag, sunnudag, og he§ast þeir klukkan 16.30. „Flutningur Langholtskósins, ís- lensku hljómsveitarinnar og ein- söngvaranna Garðars Cortes, Halldórs Vilhelmssonar, Ólafar Kolbrúnar Harðardóttur og Sólveig- ar Björling á hinu stórbrotna og sigilda tónverki Messías eftir George F. Hándel gera tónleikana að viðburði sem enginn tónlista- runnandi ætti að láta fram hjá sér fara,“ segir í fí-étt frá íslensku hljómsveitinni. Stjómandi tónlei- kanna er Jón Stefánsson. INNLENT fundi Orkustofnunar í vikunni að endurmeta þyrfti virkjunar- kosti ísiendinga. Hann sagði að skoða þyrfti nánar smærri orku- öflunarkosti sem hentuðu orku- markaðnum betur en stærri virkjanir og nefndi sérstaklega möguleika á rafmagnsfram- leiðslu úr jarðhita í því sambandi. „Já, það má segja það,“ sagði Jónas þegar hann var spurður hvort hann væri að boða breytta stefnu stjómvalda í virkjunarmálum, „sannleikurinn er sá að eftir að nýja orkuspáin kom út, þar sem gert er ráð fyrir minni aukningu á raforku- markaðnum en áður var spáð, henta stórvirkjanir ekki eins vel og áður og smærri virkjanir gætu þá verið orðnar hagkvæmari." Nánar aðspurður um við hvað væri átt sagði Jónas að þeir virkjun- armöguleikar sem fælust í fram- leiðslu raforku með jarðgufu í samvinnu við hitaveitur gætu orðið hagkvæmir. í þessu sambandi nefndi hann Hitaveitu Suðumesja í Svartsengi, þar sem þegar fer fram raforkuframleiðsla í smáum stfl, og Hitaveitu Reykjavíkur á Nesjavöllum, þar sem möguleikar væm á raforkuframleiðslu í stærri stfl. Jónas sagði að Landsvirkjun virtist eiga fullt í fangi með að ljúka Blönduvirkjun og alþingi hefði samþykkt að næstu virlqanir yrðu Fljótsdalsvirkjun og Sultartanga- viriqun. „Ef markaðurinn vex ekki hraðar en gert er ráð fyrir, til dæmis með orkusölu til nýrrar stóriðju, sé ég ekki annað en að þessar stóro virkjanir verði óhagkvæmar stærð- arinnarvegna," sagði Jónas. Ljóðatónleikar í Norræna húsinu Ljóðatónleikar verða haldnir í Norræna húsinu þriðjudaginn 29. aprfl kl. 20:30. Sænska söng- konan Marianne Eklöf syngur við undirleik Stefans Bojstens. Á efnisskrá eru meðal annars 9 söngvar eftir Þorkel Sigur- björnsson við Ijóð eftir Jón úr Vör, söngvar eftir Wilhekn Sten- hammar, Wilhelm Peterson- Berger og Xavier Monsalvatge. Stefan Bojsten leikur verk eftir Chopin. Marianne Eklöf er fædd 1956 og nam söng við tónlistarháskólann í Stokkhólmi. Lauk þaðan söng- kennaraprófí 1980 og einsöngvara- prófí 1981. Hún hefur verið í tímum í Ijóðasöng hjá Erik Werba og Dorothy Irving auk þess sem hún hefur lært í New York og London. Marianne hefur sungið hlutverk Carmen f uppfærslu borgarleik- hússins í Malmö og hlutverk Che- robinos í Brúðkaupi Fígarós. Í vor syngur hún í verki eftir Stravinsky og í desember mun hún syngja í Kátu ekkjunni, í Malmö. Stefan Bojsten er fæddur 1955 og hóf pfanónám 7 ára gamall og lauk einleikaraprófí frá tónlistar- háskólanum í Stokkhólmi 1978. Hann hefur hlotið verðlaun og styrki fyrir frammistöðu sína, m.a. Sonning-tónlistarverðlaunin. Stef- an hefur haldið tónieika með helstu sinfóníuhljómsveitum Svíþjóðar auk tónleika í Finnlandi, Bretlandi, Frakklandi og Rúmeníu. (Úr fréttatilkynningu) Fats í matarboðinu á Amarhóli. Tfl vinstri er Björgvin Halldórsson, sem hafði veg og vanda af heimsókn hans hingað til lands. Maðurinn með hvítu húfuna er lífvörður Fats, sem sjaldan víkur langt frá honum. Mun aldrei gleyma Islandi - sagði Fats Domino þegar hann kvaddi ROKKSTJARNAN Fats Dom- ino og hljómsveit hans fóru héðan til Chicago síðdegis á fimmtudaginn, en síðustu tón- leikar hans voru í Broadway á þriðjudagskvöldið. Hafði Fats á orði er hann kvaddi að hann myndi aldrei gleyma heimsókn sinni til landsins og þeim mót- tökum sem hann og félagar hans hefðu fengið hér á landi. Fats hafði heldur hægt um sig á milli tónleikanna og fór lítið út úr hótelsvftu sinni á Hótel Loft- leiðum, þar sem hann dundaði gjaman við matseld að hætti New Orleans-búa. Hann fór ekki í skoðunarferðir með félögum sín- um í hljómsveitinni og eitt sinn er honum var boðið í eina slíka um Reykjavík benti hann út um gluggann og kvaðst hafa ágætt útsýni yfír borgina. A miðvikudag brá hann þó út af vananum og þáði hádegisverð- arboð á Amarhóli. Fats lék á als oddi í matarboðinu og brá sér á píanóið á milli rétta og söng og spilaði fyrir viðstadda. Á matseðl- inum var hreindýrapaté, gufusoð- in rauðspretta með heilsteiktum humar og frönsk eplaterta. Lauk Fats miklu lofsorði á matinn. Fats skoðar efni hjá Sævari Karli. einkum þó sjávarréttina, sem er hans uppáhaldsfæða. Eftir matinn fór Fats í skoðun- arferð um bæinn og kom meðal annars við hjá Sævari Karli þar sem hann skoðaði efni og keypti sér gaberdín-frakka, en fyrir utan tónlistina og matinn hefur Fats mikinn áhuga á fötum. Einnig keypti hann bindi hjá Sævari Karli og svo ilmvatn, sem hann ætlaði að færa eiginkonunni Rose- maiy við heimkomuna. Áður en þeir félagar yfírgáfu landið á fímmtudaginn brogðu þeir sér í Bláa lónið og þótti mikið til koma. Voro þeir allir sammála um, að íslandsferðin hefði verið ævintýri líkust, enda mikið gert til að hafa ofan af fyrir þeim meðan á dvöl- inni hér stóð. Tillaga Verktakasambandsins: Jónas Elíasson aðstoðarmaður iðnaðarráðherra: Huga þarf betur að smærri virkjunum Raforkuframleiðsla með jarðgufu kemur vel til álita Hugmyndin góð og athugunarverð - segir Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra „MÉR finnst hugmyndin mjög góð og athugunarverð. Það er tvímælalaust til bóta að draga almennt úr sveifl- um sem verða á fram- kvæmdum í landinu og að því leyti tel ég þessar tillög- ur áhugaverðar," sagði Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra er hann var spurður álits á tillögum Verktakasambands íslands um að flýta vegagerðar- framkvæmdum sem fyrir- hugaðar eru samkvæmt langtímaáætiun ríkisstjórn- arinnar. Steingrímur sagði að hann hefði leitað til Þjóðhagsstofnun- ar vegna þessara tillagna Verk- takasambands íslands til þess að fá álit þeirra á því hvaða þjóðhagslegt gildi það hefði að færa til framkvæmdir sem þess- ar. Hann sagði að ákaflega erfítt væri að fá lánsfé á þessu ári og því næsta vegna mikillar ásóknar. Forsenda þess að hægt yrði að fara eftir þessum tillög- um væri því sú að fleiri krónur fengjust úr bensínsölunni til vegagerðar en nú. Ef bensín lækkaði meira en spáð hefur verið ætti að athuga þennan möguleika „Ég hygg að það sé rétt sem haft er eftir Þorsteini Pálssyni fjármálaráðherra að það verður erfítt að framkvæma þetta með viðbótarlánsfé. Rikissjóður þarf að fá mikið lánsfé hér innan- lands og það eru takmörk fyrir því hve mikið er til útlána. Auk þess heldur það uppi vöxtum ef mikið er leitað á þennan mark- að,“ sagði forsætisráðherra að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.