Morgunblaðið - 27.04.1986, Qupperneq 5
MORGUNBLABIÐ, SUNNUDAGUR 27. APRÍL1986
Djass í Djúpinu
I KVOLD verður leikinn djass í Djúpinu, Hafnarstræti 15. Það verður
Kjallarakvartettinn sem leikur og hefjast tónleikamir kl. 21.00.
Frá þingi Málm- og skipasmiðasambands íslands í Loftleiðahótelinu.
Morgunblaðið/Emilía
Málm- og skipasmiðasambandið:
ASI móti efnahags- og kjara-
málastefnu til nokkurra ára
- þungar áhyggjur af ástandi í málmiðnaði
MÁLM- og skipasmiðasamband
íslands hefur hvatt til að verka-
lýðshreyfingin setji fram efna-
hags- og kjaramálastefnu til
nokkurra ára þar sem markmiðið
sé að ná fram og tryggja vaxandi
kaupmátt launa í áföngum.
Ályktun þessa efnis var sam-
þykkt á 12. þingi sambandsins,
sem haldið var í Reykjavík 17.
til 19. apríi.
í kjaramálaályktuninni er einnig
sett fram það sjónarmið að samn-
ingslegt verksvið Alþýðusambands
íslands skuli í framtíðinni vera að
ná samkomulagi við ríkisvald og
samtök vinnuveitenda um grund-
vallaratriði í efnahags- og kjara-
málum. Þá er og lögð á það áhersla,
að sérgreinasamböndum og ein-
stökum verkalýðsfélögum verði
skapað svigrúm til sérsamninga
eftir aðstæðum í viðkomandi starfs-
grein og fyrirtækjum. í slíkum
samningum verði tekið mið af
menntun, ábyrgð, starfsreynslu og
vinnuaðstæðum, segir í ályktuninni.
í fréttatilkynningu frá samband-
inu segir að í ályktun þingsins um
atvinnumál sé lýst áhyggjum af
samdrætti í skipasmíðastöðvum og
við bifreiðayfirbyggingar. I álykt-
uninni segir m.a.: „Dregið verði eins
og kostur er úr innflutningi á
sambærilegum tækjum og vél-
búnaði og framleiddur er innan-
lands, eða unnt er að smíða hjá
innlendum málmiðnaðarfyrirtækj-
um.“ Þá er hvatt til þess að skipa-
smíðastöðvum verði gert kleift að
halda áfram jafnri og stöðugri smíði
fiskiskipa þó þau séu ekki fyrirfram
seld, enda sé endumýjun fiskiskipa-
flotans óhjákvæmileg.
í ályktun þingsins um vinnuvemd
segir meðal annars, að vinnustaðir
málmiðnaðarmanna séu ekki í
samræmi við tæknilega og félags-
lega þróun í landinu — málmiðnað-
armenn skerði heilsu sína um leið
og þeir selji vinnuafl sitt. Þingið
taldi að óheppilegt húsnæði og
verkfæri, léleg og röng stjómun,
ónóg loftræsting og hávaðavemd
væru meðal ástæðna þessa ástands
og einnig „það sem er alvarlegast:
stjómendur og starfsmenn halda
ekki vöku sinni um vinnuvemd, em
samdauna ástandinu."
Þingið hvatti til aðgerða til að
spoma gegn þessu ástandi og segir
í ályktun sinni, að brýnasta verkefn-
ið sé að efla öryggismálastarfið á
vinnustöðum með því að kosnir
verði öryggistrúnaðarmenn á hveij-
um vinnustað, haldin verði nám-
skeið fyrir öryggistrúnaðarmenn,
svæðaöryggistrúnaðarmenn starfi á
vegum verkalýðsfélaga (lands- eða
svæðasambanda) á hveiju sviði,
verkalýðsfélögin sinni betur að-
búnaði á vinnustöðum, efnt verði
til upplýsingaherferðar og komið
verði á reglubundnum læknisskoð-
unum á vegum verkalýðsfélaganna.
Guðjón Jónsson, formaður Félags
jámiðnaðarmanna, var endurkjör-
inn formaður miðstjómar sam-
bandsins. Varaformaður var kjörinn
Guðmundur Hilmarsson, Félagi
bifvélavirkja, ritari Hákon Hákon-
arson, Félagi málmiðnaðarmanna á
Akureyri, gjaldkeri Kjartan Guð-
mundsson, Sveinafélagi málmiðn-
aðarmanna á Akranesi, vararitari
Einar Gunnarsson, Félagi blikk-
smiða og meðstjórnendur Björgvin
H. Ámason, Iðnsveinafélagi Suður-
nesja, Guðmundur S.M. Jónasson,
Félagi jámiðnaðarmanna, Krist-
fínnur Jónsson, Félagi bifreiða-
smiða, og Öm Friðriksson, Félagi
jámiðnaðarmanna. Þessir menn
mynda sambandsstjóm félagsins
ásamt tólf öðrum.
Þingfulltrúar vom 104 frá 19
félögum. Á þinginu flutti Páll Kr.
Pálsson, fræðsluráðgjafi Félags ís-
lenskra iðnrekenda, erindi um stöðu
atvinnugreinarinnar og framtíð
hennar.
NAMSKEIÐ
í SJÁLFSSTYRKINGU
FYRIR KONUR
(assertiveness training)
í samskiptum manna á milli kemur
óhjákvæmilega til vandamála og togstreitu.
í slíkum tilvikum er aukið sjálfstraust,
sjálfsvitund og þekking hverjum manni
styrkur á sama hátt og það er undirstaða
ánægjulegra samskipta.
Námskeiðið er sniðið að bandarískri
fyrirmynd og lögð áhersla á að gera þátt-
takendum grein fyrir hvaða rétt þeir og aðrir
eiga í mannleguni samskiptum og hvernig
þeir geta komið fram málum sínum af festu
og kurteisi án þess að láta slá sig út af laginu
með óþægilegum athugasemdum.
Ennfremur að læra að líða vel með sjálfum
sér og hafa hemil á kvíða, sektarkennd og
reiði með vöðvaslökun og breyttum
hugsunarhætti.
Upplýsingar í síma 27224 sunnu-
dag og í síma 19156 virka daga.
Athugið að fjöldi þátttenda ertak-
markaður.____________________
/4NNk
NKLDilMkRSDÓTTIR
sálfræðingur
Bræðraborgarstig 7
Sveit — börn
Óska eftir plássi í sumar á góðu
sveitaheimili fyrir 2 stráka 11 og 12
ára, einnig fyrir 15 ára gamla stúlku.
Allt hörkuduglegir krakkar.
Uppl. i sima 667086.
Góóan daginn.
AÐALFUNDUR VINNU-
VEITENDASAMBANDS
ÍSLANDS 1986
verður haldinn þriðjudaginn 29. apríl í Súlnasal Hótel Sögu.
Dagskrá:
Kl. 11:00 Fundarsetning. Ræða formanns, Gunnars J. Frið-
rikssonar.
Kl. 11:40 Að ná árangri. Erindi: Magnús Gustafsson, for-
stjóri.
Kl. 12:15 Hádegisverðuraðalfundarfulltrúaoggesta.
Kl. 13:30 Skýrslaframkvæmdastjóra.
Kl. 14:00 Framleiðni og lífskjör. Erindi: Brynjólfur Bjarna-
son, framkv.stj. Hörður Sigurgestsson, forstjóri
og Valur Valsson, bankastjóri.
Almennar umræður.
Kl. 16:00 Framhald aðalfundarstarfa.
Kl. 17:00 Fundarslit.