Morgunblaðið - 27.04.1986, Qupperneq 9
IÍHS/ ^aUOAa.JWilJZ ÖIQAJflKyOflOM JR
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. APRÍL1986---------------------------- 9
HUGVEKJA
I„Það er ekki auðvelt að sjá syndir sín-
ar, en það er auðvelt að sjá syndir
annarra ogdœma þá tilglötunar, en
sínar eigin syndir sér maður ekki?“
Jesús er að kveðja lærisveinana
og undirbúa þá til að halda áfram
því starfi sem Jesús hóf hér á
jörð. Þeir áttu fyrir höndum að
fara með fagnaðarboðskapinn um
Jesúm til allra manna, og leitast
við að gera þá að lærisveinum
Krists. Jesús var á förum til Guðs
sem hafði sent hann til jarðar til
þess að vinna hjálpræðisverkið.
Jesús sagði við lærisveinana:
„Það er yður til góðs, að ég fari
burt, því ef ég fer ekki, kemur
! hjálparinn ekki til yðar. En ef ég
fer, sendi ég hann til yðar.“ Jóh.
16,7. Jesús gaf lærisveinunum
fyrirheit um að senda þeim heilag-
an anda sem mundi hjálpa þeim
í öliu starfí þeirra og hugga þá í
sorgum þeirra. Fyrsta verk and-
ans er að sannfæra mennina um
syndir þeirra. „Þegar hann kemur,
mun hann sanna heim.inum, hvað
er synd og réttlæti og dómur."
Jóh. 16,8.
Það er ekki auðvelt að játa
syndir sínar, en það er auðvelt
að sjá syndir annarra og dæma
þá til glötunar, en sínar eigin
syndir sér maður ekki? Það sann-
ast oft það sem Jesús segir í fjall-
ræðunni: „Hví sér þú flísina í
auga bróður þíns, en tekur ekki
eftir bjálkanum í auga þínu.“ Við
að lifa syndalífí deyfum við sam-
viskuna og svæfum hana að lok-
um og þá er okkur glötun vís.
Davíð konungur féll í synd og
Drottinn sendi Natan spámann til
hans til þess að segja honum til
syndanna. Natan sagði Davíð
dæmisögu um syndugan mann.
Þá reiddist Davíð manninum í
dæmisögunni ákaflega mikið og
sagði: „Sá maður sem slíkt hefur
aðhafst er dauða sekur." En
Natan sagði við Davíð: „Þú ert
maðurinn." 2. Sam. 12,.
Samviska Davíðs vaknaði og
hann vitnar og segir: „Meðan ég
þagði, tærðust bein mín, allan
daginn kveinaði ég, því að dag
og nótt lá hönd þín þungt á mér,
lífsvökvi minn þvarr sem í sumar-
breiskju. Þá játaði ég synd mína
og fól ekki misgjörð mína... og
þú fyrirgafst syndasekt rnína," og
ennfremur: „Hann laut niður að
mér og heyrði kvein mitt og dró
mig upp úr glötunargröfínni, upp
úr hinni botnlausu leðju og veitti
mér fótfestu á kletti." Sálm. 32
og40.
Guðs orð fyrir heilagan anda
er lifandi og kröftugt: „og smýgur
inn í innstu fylgsni sálar og anda,
liðamóta og mergjar, það dæmir
hugsanir og hugrenningar hjart-
ans.“
Heilagur andi sannfærir ekki
aðeins um synd, heldur einnig um
réttlæti Guðs: „Ef vér játum
syndir vorar, þá er hann trúr og
réttlátur, svo að hann fyrirgefur
oss syndimar og hreinsar oss af
öllu ranglæti." 1. Jóh. 1,8. Fyrir-
gefning Guðs er fullkomin: „Ég
hef feykt burt misgjörðum þfnum
eins og þoku og syndum þínum
eins og skýi.“ Jes. 44,22. „Svo
langt sem austrið er frá vestrinu,
svo langt hefur hann fjarlægt
afbrot vor frá oss.“ Sálm. 103,12.
Það varð lærisveinunum sann-
arlega til góðs að Jesús hét þeim
heilögum anda, Hjálparanum,
sannleiksandanum sem leiddi þá
í allan sannleika. Jóhannes skírari
sagði: „Ég skíri með vatni til
iðrunar en sá sem kemur eftir
mig, er mér máttugri, og er ég
ekki verður að bera skó hans.
Hann mun skíra yður með heilög-
um anda og eldi.“ Þessa skím
fengu lærisveinamir að reyna og
hún stendur öllum til boða sem
trúa á Jesúm Krist.
Ávöxtur andans er „Kærleiki,
gleði, friður, langlyndi, æska, góð-
viid, trúmennska, hógværð og
bindindi." Gal. 5,22. Er hægt að
hugsa sér betri gjafir þeim til
handa sem áður voru bundnir
viðjum sjmdarinnar.
Þekktur listamaður segin „Ég
óskaði mér auðæfa, frægðar og
heiðurs. Ég hlaut það allt, en svo
varð mér ljóst að þetta sem ég
hafði þráð var einskis virði, það
veitti ekki sanna gleði og frið í
sálinni."
Heimilisfriður fæst ekki fyrir
peninga, friður Guðs ekki heldur.
Hvað er betra en að eiga frið í
góðri samvisku. Frið við Guð og
frið við menn. Þegar Jesús kvaddi
lærisveinana sagði hann við þá:
„Frið læt ég yður eftir, minn
frið gef ég yður. Ekki gef ég yður
eins og heimurinn gefur. Hjarta
yðar skelfíst ekki né hræðist."
Jóh. 14,27.
Gleðin er einnig ávöxtur and-
ans: „Því að ekki er Guðs ríki
matur og drykkur, heldur réttlæti,
friður og fögnuður í heilögum
anda.“ Róm 14,17.
Engir hafa meiri ástæðu til að
gleðjast en þeir sem eiga samfélag
við Jesúm og heilagan anda.
H. Booth endar einn af sálmum
sínum á þessa leið:
Hann mun þínar sorgir svæfa,
sinnið hressa, veitafrið.
Létta kviða ogótta eyða,
allri hræðslu dauðann við.
Hann mun færa gleði, gleði,
gleði sem er varanleg.
Gleði þá, sem Guðs böm eiga
gleði, sem er eilífleg.
Það síðasta sem Jesús sagði
við lærisveinana áður en hann fór
til himna, van „En þér munuð
öðlast kraft, er heilagur andi
kemur yfír yður, og þér munuð
verða vottar mínir í Jerúsalem og
allri Júdeu, í Samaríu og allt til
endimarka jarðarinnar." Við að
öðlast kraft heilags anda gátu
lærisveinamir unnið verkið sem
þeim var falið. Nú hræddust þeir
ekki lengur og þeir vitnuðu djarf-
lega og undur og tákn gerðust.
Þeir voru fátækir að veraldlegum
auði en ríkir í Guði.
„Náðin Drottins Jesú Krists,
kærleiki Guðs og samfélag heilags
anda sé með yður öllurn."
Óskar Jónsson
Verk
heilags anda
eftir ÓSKAR JÓNSSON
Jóh. 16,5-15.
^ FJÁRFESTINGARFÉIACIÐ
UEMBBEfflMABKAÐURIHH
idag ^ april 1986 Markaðsfréttir
Sparifjáreigendur, athugið!
Raunávöxtun kjarabréfa og annarra
verðtryggðra verðbréfa helst óbreytt
þrátt fyrir vaxtalækkanir.
fjármál þín - sergrein okkar
Veðskuldabréf - verðtryggð Veðskuldabréf - óverðtr.
Lánst.
2afb.
áári
1 ár
2ár
3 ár
4ár
5ár
6ár
7ár
8 ár
9 ár
10 ár
Nafn-
vextlr
HLV
4%
4%
5%
5%
5%
5%
5%
5%
5%
5%
Sölugengi m.v.
mism. ávöxtunar-
kröfu
12% 14% 16%
95
91
90
88
85
83
81
79
78
76
93
90
87
84
82
79
77
75
73
71
92
88
85
82
78
76
73
71
68
66
Lánst.
1 afb.
áárl
1 ár
2ár
3ár
4ár
5ár
Sölugengl m/v.
mlsm. nafnvextl
20% HLV 15%
89
81
74
67
62
84
72
63
56
50
85
76
68
61
56
KJARABRÉF
Gengl pr. 25/4 1986 = 1,547
Nafnverð
5.000
50.000
Söluverð
7.735
77.350
íslenskur fjármagnsmarkaður
í apríl 1986
' Óverðtryggö
veðskuldabréf
Kjarabréf
Verðbrófasjóðsins
Skuldabréfaútboð
fyrirtœkja
'verðtryggð
veðskuldabréf
Spariskírteini
Ríkissjóðíi
Bankavextir
Áhœtta p
Fjárfestingarfélag íslands hf., Hafnarstræti 7, 101 Reykjavík. © (91) 28566, © (91) 28506 símsvari allan sólarhringinn