Morgunblaðið - 27.04.1986, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 27. APRtL 1986
Messias
________Tónlist
JónÁsgeirsson
Níundu áskriftartónleikar ís-
lensku hljómsveitarinnar voru
haldnir í Langholtskirkju og á efnis-
skránni var Messias eftir Handel.
Stjómandi var Jón Stefánsson og
flytjendur, auk íslensku hljómsveit-
arinnar, voru Kór Langholtskirkju
og einsöngvaramir Ólöf Kolbrún
Harðardóttir, Sólveig M. Björling,
Garðar Cortes, Halldór Vilhelmsson
og tveir kórfélagar Harpa Harðar-
dóttir og Ragnheiður D. Fjeldsted.
Orgelleikari var Gústaf Jóhannes-
son. Það þarf ekki að tíunda neitt
um gæði tónverksins, þó geta megi
þess, að það eigi ávallt sama erindi
til fólks, þar sem hvorki aldur verks-
ins eða tíska tímans breyta nokkru
um listrænt gildi verksins.
í heild var flutningurinn góður
og söngur kórsins alveg sérstak-
lega. Söngur Garðars Cortes var
glæsilegur og aðrir söngvarar voru
góðir, þó nokkuð væri söngur Hall-
dórs og Sólveigar hljómlítill á lág-
sviðinu, uppi á svölum að heyra.
Tveir kórfélagar fluttu smá tónles
og vekur slíkur söngur traust á
Jón Stefánsson
Garðar Cortes
ÞÚ ÞARFT ENGAR
ÁHYGGJUR AÐ
HAFA AF ÞRÓUN
VAXTAMÁLA
NÆSTU ÁRIN
EF ÞÚ KAUPIR
SPARISKÍRTEINI
T T
efðbundin spariskírteini
‘ * ríkissjóðs fást nú með allt að
9% ársvöxtum umfram verðtrygg-
ingu, tryggðum a.m.k. næstu 6 árin
(allan binditímann).
Þessu öryggi spariskírteina ríkis-
sjóðs verður ekki hnekkt þótt aðrir
vextir breytist. Að þessu leyti hafa
spariskírteini ríkissjóðs sérstöðu.
Skírteinin eru því bæði örugg og
arðbær fjárfesting - höfuðstóllinn
tvöfaldast á aðeins liðlega átta
árum.
Þér gefst ekki betri kostur á að
tryggja þér góða ávöxtun á fé þitt í
langan tíma.
Sölustaðir spariskírteina ríkissjóðs
eru Seðlabanki íslands, viðskipta-
bankarnir, sparisjóðir, nokkrir
verðbréfasalar og pósthús um land
allt.
RIKISSJOÐUR ISLANDS
RÍKISSJÓÐS
góðri raddskipan í kómum. Veikasti
hlekkurinn var hljómsveitin og mun
að sjálfsögðu nokkru valda reynslu-
leysi kórstjórans í að segja hljóð-
færaleikurum til og gagnrýna þá.
Til að nefna dæmi, var cellóleikur-
inn of sterkur í einsöngsþáttunum
og hljómsveitarmillispilin oft hljóð-
fallslega óviss. Það hefur verið sagt
um stjómendur, að þeir eigi það til
að gera ýmsar breytingar á tón-
verkum, til að koma á þau sínum
einkennum. Þessar breytingar hafa
á stundum þótt smekklegar en
aðrar ósmekklegri verið varðar sem
tilraun til að nálgast hið uppruna-
lega. Þar um hefur síðan verið deilt
öllum viðeigandi til óþurftar. Ein
breyting, sem þó var ekki nema að
mestu í einum þætti, var að kljúfa
„langa púnkteringu" með þögn og
það án tillits til þess hvort orð var
þar með slitið í sundur. Þá var gert
of mikið úr áherslum á nokkmm
stöðum, sem olli því að hratt tón-
ferti varð nokkuð „gusulegt". Sem
betur fór, þá var þetta „áherslu-
crescendo" ekki ríkjandi einkenni,
en slíkar breytingar minna á styrk-
leikabreytingar þær sem Reger
gerði á verkum barokkmeistaranna
og voru aðaleinkenni rómantískra
flytjenda. Þá má einnig deila um
hvort Handel hafi kunnað að greina
á milli einfaldrar og tvöfaldrar
„punteringar" og vilja margir halda
því fram, að þrátt fyrir að flytjendur
á ýmsum tímum hafi notað þá
„tvöfoldu", er víst að í handritum
Handels er hún nær ávallt einföld.
Hvað svo sem segja má um þessi
atriði, verður það að segjast eins
og er, að í heild var flutningur
verksins glæsilegur og sérstaklega
söngur kórsins, sem var bæði skýr
og raddlega vel útfærður, enda er
Jón Stefánsson frábærlega snjall
kórstjóri.
Fyrirlestur
um „Ferómon
og fiskgöngur44
MÁNUDAGINN 28. apríl mun
Hans Nordeng frá dýrafræði-
deild Oslóarháskóla halda fyrir-
lestur um „Ferómon og fisk-
göngur“ á vegum Líffræðifélags
Islands.
Sérsvið Hans Nordeng er vist-
fræði vatnafiska og er hann kunn-
astur fyrir rannsóknir sínar á Sal-
angen-vatnakerfinu í Norður-
Noregi. Leiddu þær rannsóknir til
þess að hann setti fram nýjar kenn-
ingar í vistfræði, þar á meðal
„Ferómínakenninguna" sem hann
ætlar að fjalla um á fyrirlestrinum.
„Ferómónakenningin" leitast við að
skýra hina nákvæmu ratvísi laxa
frá hafí og upp í sína heimaá með
því að gönguseiði á leið út úr ánum
skilji eftir sig lyktarslóð sem full-
orðni laxinn síðan fylgi í heimaána
og alla leið á fæðingarstað. Hefur
þessi kenning um ratvísi það ,fram
yfir aðrar kenningar að hún er sér-
hæfð og erfðabundin fyrir hvem
stofn og kemur í veg fyrir stofna-
blöndun. Einnig tekur hún tillit til
tímasetningar göngunnar þannig
að lax fer aldrei að ganga fyrr en
eftir að seiðin fara að ganga úr
ánum og gefa þannig til kynna að
ástandið í ánum sé eðlilegt og öllu
sé óhætt.
Kenningu þessa setti Nordeng
fyrst fram 1971 og.hefur hún verið
mjög umdeild meðal líffræðinga.
Nú á síðustu árum hefur Nord-
eng varað við þeirri hættu sem
villtum stofnum stafar af fiskeldi,
en fískur sem þaðan sleppur og nær
að hrygna í ám getur breytt gena-
samsetningu villta stofnsins og
þannig brotið niður aðlögun og
náttúruval sem staðið hefur um
þúsundir ára.
Fýrirlesturinn verður haldinn í
Odda, hugvísindahúsi Háskóla ís-
lands, stofu 101 oghefstkl. 20.30.
(Fréttatilkynning.)
.Ayglýsinga-
síminn er22480