Morgunblaðið - 27.04.1986, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 27.04.1986, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. APRÍL 1986 33 Stjörnu speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson „Ég á dóttur sem fædd er þann 07.03. 1973 kl. 09.40 í Reykja- vík. Mér þætti vænt um að fá einhveijar upplýsingar um stjörnukort hennar. Ég er sjálf fædd 19.06. 1946 í Reykjavík. Við mæðgumar höfum mjög ólíkt skap og ef mögulegt er vildi ég gjaman fá upplýsingar um hvemig hægt væri að gera samskipti okkar liprari. Hún er mjög bókelsk, en hefur einnig mjög gaman af að semja sínar eigin sögur, leikrit og kvæði. Með kveðju, móðir í Reykjavík." Svar: Dóttir þin hefur Sól, Merkúr og Venus í Fiskum, Tungl í Hrút í andstöðu við Úranus, Mars á Miðhimni í Steingeit og Tvíbura Rísandi. Hún er því samsett úr Fiskum, Hrút, Steingeit og Tvíbura. ViÖkvœm og kappsfull í þeim hluta bréfsins sem ekki er birtur gefur þú til kynna að um ákveðið vandamál sé að ræða án þess þó að segja nánar til um hvað það gæti verið. Því byggir eftirfarandi' á ákveðnum getgátum. Við skul- um fyrst líta á kort dóttur þinnar. Þú segir að hún sé bók- elsk og listræn. Hún er sem Fiskur einnig næm og er t.d. ákaflega móttækileg fyrir umhverfínu og viðkvæm á hljóð og raddblæ o.s. frv. Tungl í Hrút og Mars á Miðhimni tákn- ar að hún er einnig kraftmikil og kappsfull. Þegar kapp og næmi leggst saman koma oft upp ákveðin tilfinningagos. Einhver orð eru sögð sem virð- ast harkaleg fyrir viðkvæma sál og hún ríkur upp og fær reiðikast. Mér virðist annar viðkvæmur aðili vera í fjöl- skyldunni. Hann er hins vegar það mikið í loftsmerkjum (hugsun) að hætt er við að hann vilji ekki viðurkenna við- kvæmni sína. Því er hætt við að þau fari í taugamar hvort á öðru, með smáatriðum eins og raddblæ eða hljóðum, t.d. með notkun á útvarpi eða sjón- varpi. Hann hefur einnig Tungl-Mars afstöðu sem táknar að hann er fylginn sér, en getur átti til að vera uppstökkur. Hugsun Þú ert Tvíburi með Tungl í Vatnsbera. Þú ert því hugar- orkumanneskja. Þú vilt meta heiminn út frá skynsemissjón- armiði, vilt stjóma tilfínningum þínum og vera yfírveguð. Til að sambandið verði liprara þarft þú að gera þér grein fyrir því að dóttir þín er fyrst og fremst tilfínningavera. Þú get- ur ekki krafíst af henni að þið setjist niður og ræðið málin á þínum forsendum. Hún sér heiminn einfaldlega öðrum augum en þú. Tilfinningar Það sem þú þarft að gera er að viðurkenna að hún er við- kvæm. Þú ættir t.d. að varast að byrsta þig, ættir að hugsa um það hvaða tón þú notar þegar þú talar við hana. Þú ættir ekki að skipa fyrir, heldur biðja fallega. Dóttir þín hefur í sér mýkt, sem vel er hægt að höfða til. Þú ættir að sætta þig við draumlyndi hennar og hvetja hana til að nota það á uppbyggilegan hátt. Hún er einnig eirðarlaus og því kannski ekki úr vegi að hvetja hana til að hreyfa sig, að stunda ein- hveijar íþróttir, eins og t.d. jazzballet eða annað sambæri- legt. Þar sem dóttir þín hefur Satúmus ( spennuafstöðu við Sól ættir þú að varast of mikla gagnrýni. Hún hefur tilhneig- ingu til að taka mál of alvarlega og gæti því fengið minnimátt- arkennd og dregið sig inn í skel. X-9 DYRAGLENS H!!T!??!?ni.?!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!l!!!!!!!!!!!H!!!!!!?!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!?!!?!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!?!!??!!!!!!!!n!!??!!!???!!!!!!!!!!!!! LJOSKA TOMMI OG JENNI ?!!!!!!!!!!!!!!!:!!!!!!!!!!!!!!!!!!!?!!!!!: FERDINAND SMÁFÓLK HEV, CHUCK..PIP MARYEVERWEAR 6LA55E5? WHAT PO VOU MEAN, "MARV WHO?" IN THE BIBLE! DOE5 IT 5AV ANYTHIN6 AB0UT MARY WEARIN6 6LA55E57 Heyrðu, Kalli... gekk María nokkuð með gler- augu? Hvað áttu við með „Hvaða María?“ mm í Biblíunni! Stendur nokk- uð þar um að María hafi gengið með gleraugu? THEN H0U) CAN MARCIE PLAY MARY IN5TEAP OF ME, ANP THE TEACHER © 5AY5 l'M 60IN6 TO BE I PLAVIN6 A 5HEEP7ÍÍ LUHY CANT I EVER BE A UIR0N6 NUMBER? Hvernig getur Magga þá leikið Maríu en ekki ég, og kennarinn sagt að ég eigi að Ieika rollu?!! Af hveiju get ég aldreí verið skakkt númer? BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Þorgeir Eyjólfsson og Guð- mundur Sv. Hermannsson unnu nýlega Butler-keppni Bridsfé- lags Reykjavíkur. í síðustu umferð áttu þeir í höggi við það par sem veitti þeim mesta keppni, þá Stefán Pálsson og Rúnar Magnússon. Fyrirfram lá ljóst fyrir að annað þessara para myndi vinna mótið, svo ekki mátti mikið út af bera. Guð- mundur og Þorgeir unnu lotuna naumlega, og munaði þar mest um góða sveiflu í þessu spili: Norðurgefur; N/S á hættu. Norður ♦ D92 VK4 ♦ Á1082 ♦ Á543 Vestur Austur ♦5 .. 4K10876 VD963 VG1082 ♦ 654 ♦ K7 ♦ KG62 ♦ 108 Suður ♦ ÁG43 VÁ75 ♦ DG93 ♦ D7 Sagnir voru snaggaralegar. Guðmundur vakti á einu eðlilegu laufí í norður, Stefán í austur ströglaði á spaða og Þorgeir lauk sögnum með þremur gröndum. Rúnari í vestur leist ekki á að spila út einspili sínu í spaða og valdi lítið hjarta. Þorgeir drap þáð strax í kónginn í blindum og spilaði litlu laufí á drottninguna. Rúnar drap á kónginn og hefði kannski gert best í því að spila áfram laufi, en í reyndinni hélt hann áfram hjartasókninni. Þorgeir drap á ásinn og spilaði aftur hjarta. Vömin tók slagina sína tvo á hjarta og spilaði laufi. En það var of seint. Þorgeir drap á laufásinn, og spilaði út spaða- drottningu, kóngur og ás. Síðan kom tígulás og meiri tígull. Stefán í austur átti nú ekkert nema spaða eftir og varð að gefa níunda slaginn á spaða- níuna. Spilamennska Þorgeirs er fullkomlega rökrétt. Það var orðið nokkuð augljóst að austur ætti skiptinguna 5—4—2—2, og eftir innákomuna var Stefán lík- legri til að eiga tígulkónginn. SKAK Umsjón Margeir Pétursson Þessi staða kom upp í skák- keppni stofnana og fyrirtækja í ár í viðureign þeirra Jóns Þorsteins- sonar, Verkamannabústöðum og Jóhannesar Gísla Jónssonar Há- skóla íslands. Síðasti leikur Jó- hannesar var mjög slæmur, 7. — Hf8-e8?? 8. Bxf7+! — Kh8 (Svartur missir drottninguna eftir 8. — Kxf7, 9. Rg5+ - Kg8, 10. Re6) 9. Bxe8 og hvítur hefur gjörunna stöðu með skiptamun og peði meira. Litlu munaði þó að Jóhannesi tækist að jafna taflið en allt kom fyrir ekki og Jón vann um síðir á liðsmuninum. Fyrir síðasta kvöldið í stofnanakeppninni var Búnaðar- bankinn efstur í A-riðli með 16 / v. Flugleiðir höfðu 14 / v. og Rík- isspitalaramir 14 v.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.