Morgunblaðið - 27.04.1986, Qupperneq 41
MQRGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. APRÍL1986
Ul
ÞINGBRÉF
eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON
Kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd:
Veruleikinn meira
virði en yfirlýsing
Norðurlönd eru kjam-
orkuvopnalaus, hvert
og eitt þeirra. Veru-
leikinn, í þessu efni
sem öðrum, er mun meira virði en
yfirlýsing. Engu að síður hafa þeir
aðilar verið allfyrirferðarmiklir í
umræðu um vamaröryggi Norður-
landa sem lagt hafa áherzlu á sér-
staka yfirlýsingu um kjamorku-
vopnalaus Norðurlönd.
Hinsvegar eru menn orðfærri um
kjarnavopn á Kolaskaga, svo að
segja í túnfæti Norðurlanda (Finn-
lands), að ekki sé talað um kjarna-
vopn við Eystrasalt, sem Norður-
lönd deila með Sovétríkjunum (þ.e.
þremur fýrrum sjálfstæðum smá-
ríkjum: Eistlandi, Lettlandi og Lit-
háen), eða vaxandi flota kjarnakaf-
báta, sem leggur leið sín um þvert
og endilangt N-Atlantshafið.
Umræðan um kjarnorkuvopna-
laus Norðurlönd skýtur af og til upp
kolli á Alþingi Islendinga. Hún
hefur sinn sess í skýrslum utanríkis-
ráðherra til Alþingis um utanríkis-
mál. Þingmenn af Norðurlöndum
funduðu sérstaklega um þetta efni
í Kaupmannahöfn í nóvembermán-
uði síðastliðnum. Ekki er úr vegi
að þingbréf tylli tám á málið.
Öryggi og friðargæzla
„Eg fæ ekki séð að sérstök yfir-
lýsing um kjamorkuvopnalaust
svæði á Norðurlöndum, varðandi
svæði sem þegar er kjarnorku-
vopnalaust, efli öryggi Islands,
annarra Norðurlanda eða friðar-
gæzlu í heiminum nema meira
komi til.“
Þannig komst Geir Hallgrímsson,
fyrrverandi utanríkisráðherra, að
orði í skýrslu til Alþingis um utan-
ríkismál árið 1985. Hann bætir við:
„Ástæða væri frekar til að beina
athyglinni að umræðum um útrým-
ingu kjamavopna þar sem kjama-
vopn em nú til staðar en að vera
með vangaveltur um svæði, sem em
kjamorkuvopnalaus. Þá á ég til
dæmis við víghreiðrin á Kolaskaga
og við Eystrasalt. Kjamorkuvopna-
kafbáturinn sem kom á ijörnr Svía
um árið minnti okkur óþyrmilega á
nálægð þessara ógnarvopna. Skil-
yrði þess að ný yfírlýsing um kjam-
orkuvopnalaus Norðurlönd hafí eitt-
hvert gildi er að slík vopn, sem
beina má til Norðurlanda, séu fjar-
lægð. Sovétmenn hafa nokkmm
sinnum gefíð í skyn að hugsanlega
megi ræða um tilslakanir af þeirra
hálfu, varðandi kjamorkuvopna-
laust svæði, en ítrekaðar beiðnir
norrænna ráðamanna um að Sovét-
menn geri nánari grein fyrir þessum
hugmyndum hafa ekki borið árang-
ur. Yfirlýsing um lq'amorkuvopna-
laust svæði hefur tæpast nokkurt
gildi nema sem þáttur í samningum
helztu kjamorkuvelda, sem bæm
abyrgð á að slíkt samkomulag yrði
virt. Við hljótum einnig að gera
okkur grein fyrir því að séum við
í varnarbandalagi og viljum njóta
góða af því, þá er eðlilegt og sjálf-
sagt að hafa samráð við bandamenn
okkar. Það er homsteinn í stefnu
vestrænna þjóða og öryggisvið-
búnaði að líta á bandalagssvæðið
sem eina heild, eitt og sama varnar-
svæðið ... “
Haf ið og landið
í skýrslu Matthíasar Á. Mat-
hiesen, núverandi utanríkisráð-
herra, um utanríkismál (1986) segir
um sama efni:
„Allt frá Kolaskaga, meðfram
landamæmm Finnlands, um
Eystrasaltsríkin, á Eystrasalti, jafn-
vel upp í landsteina Svíþjóðar, og
suður meðfram ,járntjaldinu“ aust-
anmegin hafa Sovétmenn myndað
belti kjamaflauga, sem miðað er
m.a. á Norðurlönd. Auk kjama-
vopna hafa Sovétmenn komið fyrir
fjölmennum herjum og birgðum
hefðbundinna vopna í nágrenni
Norðurlanda. Á sviði hefðbundinna
vopna er um gífurlega yfírburði
Sovétmanna að ræða. Fælingar-
stefna Atlantshafsbandalagsins,
sem m.a. byggist á kjamavopnum,
tryggir öiyggi aðildarríkjanna, þar
á meðal Islands, Noregs og Dan-
merkur, gegn þessum hemaðar-
mætti. Það hlýtur að vera ein af
forsendum fyrir samkomulagi um
Einn af
mörgnm
Myndin sýnir sovézkan kjarna-
kafbát, einn af mörgum, sem
siglir þau höf er tengja Græn-
land, Island, Færeyjar, England
og Noreg. Sovézkir kafbátar
fara og um Eystrasalt og Norð-
ursjó. Slíkir kafbátar eru ekki
gott innlegg í umræðuna um
kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd.
kjarnorkuvopnalaust svæði, að jafn- I
vægi ríki á sviði hefðbundinna
hergagna."
Olafur G. Einarsson, þingmaður
Reyknesinga, komst svo að orði um
„kjamorkuvopnalaust svæði á
Norðurlöndum“ á Alþingi fyrir
skemmstu, þegar hann ræddi um
hafsvæði, sem heyra til Norðurlönd-
um, í tengslum við umræðuefnið:
„Ef svæðið frá Finnlandi til
Grænlands yrði lýst kjamorku-
vopnalaust svæði, þýddi það ekki
einungis að löndin sjálf, Finnland,
Svíþjóð, Noregur, Danmörk, Fær-
eyjar, Island og Grænland, væru
kjarnorkuvopnalaus, heldur einnig
allt hafsvæðið innan þess svæðis,
þ.e.a.s. sundið milli íslands og
Grænlands, Norð-austur-Atlants-
hafíð, Norðursjór og Eystrasaltið.
Sovétríkin em andvíg svo víðtækri
skilgreiningu á hugtakinu svæði,
og neikvæð afstaða Breta og
Bandaríkjamanna kann að vera af
sömu rót.“
Ólafur sagði og að í umræðu um
efnið skyti hvað eftir annað upp
spumingunni um það, hver vera
skuli mörk hins kjamorkuvopna-
lausa svæðis á Norðurlöndum; hvort
taka eigi hluta Sovétríkjanna með
í þá mynd og jafnvel hluta Norður-
Þýzkalands. j
Þessar mikilvægu hliðar málsins
hafa ekki fengið nægilega umljöll-
un. Meira ber á orðaflóði, skrifí og
skrafi, sem fleytir kerlingar á yfir-
borði tnála en fer ekki ofan í megin-
atriði, er vægi hafa. Mergurinn
málsins hlýtur að vera sá, að mark-
tækir samningar um afmörkuð
kjamorkuvopnalaus svæði séu hiuti
af víðtækara samkomulagi, víð-
feðmu afvopnunarsamkomulagi
austurs og vesturs, sem feli í sér
gagnkvæmni, það er afvopnun
beggja aðila, ogtrúverðugt eftirlit.
Einhliða afvopnun þjónar ekki
þeim megintilgangi að tryggja fríð
með frelsi þjóða og mannréttum
einstaklinga. Hún getur þvert á
móti þýtt að sá minnihluti mann-
kyns, sem býr við lýðræði, þingræði
og mannréttindi, í vestrænum skiln-
ingi þessara orða, yrði enn minni.
MALLORKA
Unaösreiturinn
í stiðrí
Brottfarardagur 6. maí. 8 sæti laus.
Brottfarardagur 25. maí. Uppselt.
Brottfarardagur 15. júní. 12 sæti laus.
Brottfarardagur 2. júlí. Laus sæti.
Brottfarardagur 23. júlí. Laus sæti.
Brottfarardagur 13. ágúst Uppselt.
Brottfarardagur 3. september Laus sæti.
Brottfarardagur 24. september. 18 sæti laus.
Brottfarardagur 22. október. Vikuferð, laus sæti.
(ItCOMTIK
FERÐASKRIFSTOFA, Iðnaðarhúsinu Hallveigarstígl.Símar 28388 og28580