Morgunblaðið - 27.04.1986, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. APRÍL1986
43
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Fiskeldi
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
Aðstoðarlæknar óskast til starfa á Rann-
§óknastofu Háskóians í meinafræði frá 20.
júlí nk. til eins árs. Um er að ræða námsstöðu
í almennri liffærafræði með áherslu á sér-
svið. Gert er ráð fyrir að viðkomandi aðstoð-
arlæknir taki þátt í rannsóknaverkefnum.
Umsóknir á umsóknareyðublöðum lækna
sendist skrifstofu ríkisspítalanna fyrir 26.
maí nk. Upplýsingar veitir forstöðumaður
Rannsóknastofu Háskólans í meinafræði í
síma 29000.
Aðstoðarlæknar (2) óskast við svæf-
inga- og gjörgæsludeild Landspítalans til
eins árs frá 1. júlí nk. Stöður þessar eru fyrst
og fremst ætlaðar þeim sem hyggja á sér-
nám í svæfingalæknisfræði. Umsóknir á
umsóknareyðublöðum lækna sendist skrif-
stofu ríkisspítalanna fyrir 26. maí nk. Upplýs-
ingar veitir yfirlæknir svæfinga- og gjör-
gæsludeildar í síma 29000.
Meinatæknar óskast til sumarafleysinga
við Landspítalann á rannsóknadeildir í
blóðmeinafræði, meinefnafræði og ísótopa-
stofu. Upplýsingar veita deildarmeinatæknar
viðkomandi deilda í síma 29000.
Starfsmaður óskast nú þegar við dag-
heimili ríkisspítala, Sunnuhlíð. Upplýsingar
veitir forstöðumaður dagheimilisins í síma
38160.
Hjúkrunarstjóri óskast til afleysinga í 6
mánuði frá 1. júní nk. við Kópavogshæli.
Upplýsingar veitir yfirlæknir Kópavogshæiis
í síma 38160.
Starfsfólk óskast til sumarafleysinga á
deildum Kópavogshælis. Upplýsingar veitir
framkvæmdastjóri Kópavogshælis í síma
41500.
Þroskaþjálfi óskast í fullt starf við leik-
fangasafn Kópavogshælis. Upplýsingar veitir
framkvæmdastjóri í síma 41500.
Starfsfólk óskast til ræstinga við Kópa-
vogshæli. Hlutastarf. Upplýsingar veitir
ræstingastjóri Kópavogshælis í síma 41500.
Hjúkrunarfræðingar óskast á gjör-
gæsludeild 12b og bæklunarlækningadeild
12g.
Hjúkrunarfræðingar óskast á vökudeild.
Hjúkrunarfræðingar óskast á Barnaspít-
ala hringsins á allar vaktir og einnig á fastar
næturvaktir um helgar eða virka daga.
Hjúkrunarfræðingar óskast í fasta vinnu
og til sumarafleysinga á kvenlækningadeild
og krabbameinsdeild 21 a.
Sjúkraliðar óskast í fasta vinnu og til
sumarafleysinga á sængurkvennadeildir 22a
og 22b.
Ljósmæður óskast til sumarafleysinga á
sængurkvennadeildir 22a og 22b.
Upplýsingar um ofangreind störf veitir hjúkr-
unarforstjóri Landspítalans í síma 29000.
Reykjavík 27. apríl 1986.
Sölu-/lagerstarf
— rösk stúlka
Heildverslun nálægt Hlemmi vill ráða í
áhugavert sölu- og lagerstarf strax.
Við leitum að stúlku sem er hress og kát,
heiðarleg og reglusöm. Þarf ekki að vera
vön. Bílpróf nauðsynlegt.
Eiginhandarumsóknir er tilgreini aldur og
fyrri störf sendist okkur fyrir 4. maí.
Q IfíNI ÍÓNSSON
RÁDCJÖF &RÁÐNI NCARÞJÓNUSTA
TÚNGÖTU 5. ÍOI REYKJAVlK - PÓSTHÓLF 693 SÍMI 621322
íslandslax hf. er fiskeldisfyrirtæki í eigu inn-
lendra og norskra aðila. Aðsetur er að Stað
vestan Grindavíkur.
Óskum eftir að ráða karla eða konur í eftirtal-
in störf:
1. Fiskeldismann til starfa við laxeldi.
Menntun og reynsla í fiskeldi nauðsynleg.
Ráðningartími er frá 1. júní nk.
2. Vélstjóra/fiskeldismann til starfa við
laxeldi, ásamt vélgæslu og minniháttar
viðhaldi á vélum. Vélstjóramenntun áskil-
in. Reynsla í fiskeldi æskileg. Ráðningar-
tími er frá 1. júní nk.
3. Fiskeldismann til starfa við lúðueldi.
Reynsla í fiskeldi æskileg. Ráðningartími
frá 1. júní nk.
4. Fiskeldismann til starfa í seiðaeldisstöð.
Menntun og reynsla í fiskeldi æskileg.
Ráðningartími frá 1. sept. nk.
Störfin krefjast búsetu í Grindavík.
Skriflegar umsóknir er tilgreini aldur, mennt-
un og fyrri störf skulu sendar til íslandslax
hf., pósthólf 55,240 Grindavík.
Umsóknarf restur er til 10. maí nk.
Fyrirspurnum ekki svarað í síma.
íslandslax hf.
Suðurlandsbraut 32,
108 Reykjavík.
e’ ST. JÓSEFSSPÍTALI,
LANDAKOTI
Staða reynds
aðstoðarlæknis
við handlækningadeild Landakotsspítala er
laus til umsóknar. Staðan er veitt frá 1.
september til eins árs.
Umsóknir sendist inn fyrir 1. júní 1986 til
yfirlæknis deildarinnar sem jafnframt gefur
nánari upplýsingar.
Hjúkrunarfræðinga
vantar á vöknun og svæfingu. Upplýsingar
gefnar í síma 19600-220-300 alla virka daga.
Starfsfólk
vantar nú þegar og til sumarafleysinga.
Upplýsingar veittar í síma 31460.
Reykjavík 25. apríl 1986.
ffí IAUSAR STÖÐUR HJÁ
\W\ REYKJAVIKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftir-
talinna starfa. Starfskjör samkvæmt kjara-
samningum.
Starfsfólk óskast til eftirtalinna starfa við
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur.
Við heimahjúkrun:
Hjúkrunarfræðinga og sumarafleysinga á
dag-, og kvöld- og næturvaktir. Upplýsingar
gefur hjúkrunarforstjóri í síma 22400.
Við Heilsugæslustöð Hlíðarsvæðis —
Drápuhlíð 14—6:
Læknafulltrúa í 100% starf. Stúdentspróf
eða sambærileg menntun áskilin, ásamt
góðri vélritunar- og íslenskukunnáttu.
2 starfsmenn við símavörslu og móttöku í
60% starf hvorn. Upplýsingar gefur fram-
kvæmdastjóri heilsugæslustöðvar í síma
22400.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavfkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð,
á sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar
fást fyrir kl. 16.00 mánudaginn 5. maí.
Markaðsstjóri í
þjónustufyrirtæki
Stórt innflutnings- og þjónustufyrirtæki í
Reykjavík vill ráða markaðs- og sölustjóra. ]
Starfið er laust fljótlega. Fyrirtækið er mjög j
tölvu- og tæknivætt.
Starfið felst m.a. í að stjórna sölu- og
markaðsmálum fyrirtækisins ásamt yfirum-
sjón með fræðslu og þjálfun starfsfólks auk
skyldra verkefna.
Við leitum að aðila með góða viðskipta-
menntun ásamt reynslu á þessum vettvangi,
þarf að vera góður í mannlegum samskipt-
um, hugmyndaríkur, vinna sjálfstætt og
skipulega, hafa örugga og trausta framkomu,
hafa tilfinningu fyrir þörfum viðskiptavinar-
ins, opinn fyrir nýjungum og fljótur að tileinka
sér þær.
Góð laun í boði fyrir réttan aðila.
Allar umsóknir og fyrirspurnir trúnaðarmál.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun ásamt
starfsreynslu sendist skrifstofu okkar fyrir
4. maí nk.
(rt IDNT ÍÓNSSON
RÁÐCJÖF 8 RÁÐN I NCARMÓN USTA
TUNGÖTU 5 101 REYKIAVÍK — PÓSTHÓLF 693 SÍMI 621322
-----------=-----------------------
Nýtt tækifæri -
Framkvæmdastjóri
Stofnað hefur verið nýtt fyrirtæki í verkefna-
útflutningi, lcecon hf.
Stofnendur fyrirtækisins eru Sölumiðstöð ]
hraðfrystihúsanna, Samband íslenskra sam-
vinnufélaga og Sölusamband íslenskra fisk-
framleiðenda.
Tilgangur fyrirtækisins er að selja öðrum
þjóðum sérfræðiaðstoð og ráðgjöf, aðallega
í sjávarútvegi. Þá getur sala á vélum, tækjum
og búnaði tengst útflutningsstarfsemi þess,
auk aðstoðar við markaðssetningu.
Leitað er að framkvæmdastjóra fyrir þetta
fyrirtæki. Um einstakt tækifæri er að ræða
fyrir dugmikinn einstakling til að byggja upp
nýja útflutningsgrein.
Starfið felst í að þróa fyrirtækið frá grunni
og afia markaða fyrir íslenskt hugvit og
þekkingu ásamt almennri stjórnun fyrirtækis-
ins. Starfið mun fyrst í stað fela í sér umtals-
verð ferðalög erlendis.
Væntanlegir umsækjendur skulu vera á aldr-
inum 30—50 ára. Krafist er góðrar menntunar.
Þekking og reynsla í sjávarútvegi, viðskipta-
og markaðsmálum er æskileg. Umsækjendur
þurfa að hafa reynslu í stjórnun og vera liprir
og þægiiegir í umgengni.
í boði eru góð launakjör.
Umsækjendur skulu skila umsóknum, ásamt
ítarlegum upplýsingum um nám og fyrri störf
til auglýsingad. Morgunblaðsins fyrir 10.
maí nk. merktum: „ICECON“.
ÍSAFJARÐARKAUPSTAÐUR
Fóstrur
Starfsfólk vantar í eftirfarandi stöður:
Dagvistarfulltrúi um er að ræða 50% stöðu.
Fóstrumenntun áskilin.
Forstöðumaður leikskóla í Hnífsdal, staðan
er laus frá 15. júlí. Fóstrumenntun áskilin.
Einnig óskast fóstrur til starfa að dagheimili
og leikskólum.
Upplýsingar um störfin veitirfélagsmálastjóri
í síma 94-3722 eða forstöðumenn í símum
94-3685 og 94-3565.
Félagsmálastjórinn ísafirði.