Morgunblaðið - 06.06.1986, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 06.06.1986, Qupperneq 3
F MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 1986 3 Seattle fyrsti vinabær Reykjavíkur í Bandaríkjunum FYRIR skömmu samþykkti borg- arráð Seattle-borgar einróma að tengjast Reykjavík formlegum vináttuböndum. Borgin vestan- hafs var þó ekki orðin ýkja gömul þegar Islendingar stigu þar fæti. Það var vesturheims- farinn og landneminn Indriði Indriðason sem 1887 settist þar að fyrstur Islendinga. Seattle er stærsta borg norðvest- urstrandar Bandaríkjanna, íbúar hennar eru um 490 þúsund en af þeim eiga nálega 5.000 ættir að rekja til Islands. Borgin er reist á sjö hæðum milli Washington-vatns í austri og Elliott-flóa í vestri í Washington-ríki. Þrátt fyrir ungan aldur, en borgin tók fyrst að mynd- ast upp úr 1850, er hún öflug miðstöð atvinnulífs. Fiskiðnaður hennar stendur með miklum blóma og þar á Boeing-verksmiðjan höfuð- stöðvar sínar. Ræðismaður íslands í Seattle er Jón Marvin Jonsson en hann er sonur Þorbjöms Jónssonar frá Deildartungu í Borgarfírði og Bryn- hildar Steinunnar Erlendsdóttur frá Mörk í Húnavatnssýslu. Þrjú fiskiskip seldu erlendis VERÐ á fiskmörkuðunum í Hull og Grimsby er nokkuð mismun- andi þessa dagana og fer það mest eftir gæðum fisksins og framboði. Fyrir fyrsta flokks fisk fæst yfirleitt um og yfir 60 krónur fyrir hvert kíló. Ottó Wathne NS seldi á miðviku- dag rúmlega 146 lestir, mest þorsk, í Grimsby. Heildarverð var 8.516.000 krónur, meðalverð 58,28. Á fímmtudag seldi Gullberg NS 95 lestir, mest þorsk og ýsu í Grimsby. Heildarverð var 4.878.000 krónur, meðalverð 51,33. Aflinn skiptist jafnt milli fyrsta og annars gæða- flokks. Sama dag seldi Bergur tæplega 51 lest, mest þorsk og ýsu í Hull. Heildarverð var 2.820.000 krónur, meðalverð 55,48. Aðeins 10% aflans fóru í fyrsta flokk, 20% í annan, 60% í þriðja og 10% í Qórða. Á þriðjudag var selt úr gámum í Grimsby, samtals 113 lestir. Meðalverð var um 65 krónur á hvert kfló, en þetta var að mestu leyti þroskur, ýsa og koli. Á mettíma til London HEIMFARI, Boeing-þota Flugleiða, setti hraðamet á flugleiðinni Kefla- vík — London á miðvikudaginn. Venjuiegur flugtími er tvær klukku- stundir og 45 mínútur en að þessu sinni tók flugið aðeins tvær klukku- stundir og tvær mínútur. Flugstjóri var Geir Garðarson. Margrét Dana- drottning væntanleg í einkaerindum MARGRÉT Danadrottning er væntanleg til íslands í óopinbera heimsókn 4. júlí nk. Samkvæmt upplýsingum fr' skrifstofu forseta íslands drottningin til Vestmannaey Skaftafell og um Austurlai meðan á heimsókninni stendur. íslenskar björgunar- og hjálparsveitir eru kallaðar út oft á hverju ári. í flestum tilfellum fær útkallið góðan endi - okkur berast góðar fréttir. En reynslan hefur sýnt, að auk þekkingar og reynslu getur réttur búnaður skipt sköpum. Stöðug endumýjun þarf að eiga sér stað til þess að góður árangur náist. Til að afla fjár fyrir starfsemi hjálparsveitanna og til tækjakaupa, efnum við til stórhappdrættis. í boði verða 135 stórvinningar og 3000 aukavinningar. Markmið okkar er að hafa til taks harðsnúnar sveitir, hvenær sem hjálparbeiðni berst. STERKAR HJÁLPARSVEHIR - STERKAR LÍKUR Á GÍ»UM FRÉTTUM. ■13S» I STÓRVINNINGAR DREGIÐ12. JÍINÍ »3000» I HJÁLPARPAKKAR Á700 KR.STYKKIÐ FORD ESCORT CL 5 GÍRA ----1 ■| PFAFF1171 PIONEERSllO SHARP581 MYNDBANDSTÆKI SJÁLFÞRÆÐANDIMEÐ OVERLOCK SPORI HUÓMTÆKJASAMSTÆÐUR LANDSSAMBAND H JÁLPARSVEITA SKÁTA SPARISJÓÐUR VÉLSTJÓRA HEFUR AF STÓRHUG STYRKT ÞETTA HAPPDRÆTTI ÍINGAPJÖN'JSTAN/SlA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.