Morgunblaðið - 06.06.1986, Síða 31

Morgunblaðið - 06.06.1986, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 1986 31 speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson í dag ætla ég að fjalla um sjálfsímynd okkar. Reynsla stjömuspekinga er sú að menn hafi tilhneigingu til að horfa einungis á jákvæðari þætti í eigin fari en eigi erfitt með að horfast í augu við neikvæð- ari þætti persónuleikans. JákvœÖ ímynd Að vissu leyti er eðlilegt að við reynum að skapa okkur jákvæða ímjmd. Við þurfum að keppa við aðra á öllum sviðum, m.a. í starfi, tilfinn- ingalífi og hvað varðar skipt- ingu veraldlegra gæða. Sem einstaklingar fáum við heldur lítið hrós og litla uppörvun. Hver maður verður því sjálfúr að hampa sér og byggja sig upp. Við vitum að maður sem er öruggur með sig hefur já- kvæð áhrif á aðra. Fólk segir gjaman: „Hann er ömggur með sig, honum hlýtur að ganga vel, sennilega er hann fær á sínu sviði" o.s.frv. NeikvœÖar hliÖar Sennilega er reynsla flestra sú að finna til sársauka og vanlfð- unar þegar þeim er bent á neikvæðar hliðar í eigin fari. Innst inni vilja flestir vera fullkomnir. Við viljum vera gáfuð, sterk og vel gerð. Vin- sældir ævintýramynda, t.d. um Superman sýna fram á þetta. Okkur er illa við galla, við verðlaunum atgervi en sýnum þeim lítilsvirðingu sem minna mega sín. Því er það að þegar náunginn bendir okkur á veik- leika finnst okkur við verða minni menn fyrir vikið. AfleiÖingar Afleiðingar þess að ekki er horft á neikvæðari þætti í eigin fari em einkum tvennar. f fyrsta lagi má segja: Ef ekki er tekist á við veikleika lagast viðkomandi mál ekki og við þroskumst ekki. í besta falli stöndum við f stað sem persón- ur, eða okkur fer aftur. f öðm lagi getum við lent í árekstmm við umhverfið. Þó viðkomandi sjái ekki neikvæðu hliðar sfnar eða kjósi að horfa framhjá þeim, sjá aðrir þær og setja honum stólinn fyrir dymar. Afleiðingar þess að takast ekki á við eigin skugga geta m.a. birst í því að við komumst ekki áfram í starfi eða að maki okkar gefst upp og fer frá okkur. f versta falli getur skugginn orðið það stór að hann leiði til hættulegra árekstra, s.s. ofbeldis og styij- alda. Breytt viÖhorf Tilgangur undirritaðs með þessum skrifum er sá að reyna að hvetja til þess að viðhorf okkar til neikvæðari eiginleika séu tekin til endurskoðunar. í stað þess að finna til minnkun- ar og reyna að fela veikleika okkar ættum við að fagna þegar okkur er bent á nei- kvæðar hliðar. Við ættum ekki að finna til minnkunar heldur gleðjast yfir því að hafa komið auga á þær, eigum beinlínis að leita þeirra af ákafa! Ástæð- an fyrir því er sú að einungis þegar við viðurkennum van- kanta okkar getum við lagfært þá. Ef bíll okkar er bilaður og við viðurkennum ekki að hann sé bilaður þá lagast hann ekki. Til að gera það skemmtilegt sem var erfitt getum við t.d. farið f leik og verðlaunað okkur fyrir hvem veikan punkt sem við finnum. Við getum sagt: einn veikleiki, eitt-núll, tveir, tvö-núll, o.s.frv. Við getum glaðst f þeirru vissu að með því að viðurkenna veikleika okkar erum við að styrkjast og öðlast aukinn þroska. Horf- um á neikvæðari hliðar okkar jákvæðari augum, tökumst á við þær og hreinsum til, það er okkur og umhverfi okkar til góðs. V Q A-y tfVÆRr fiöRVM V■ V/V HÚ- VHIL'? 1 £/ £&? //v/r, -J?ó£/rc//?, JZ4V £/? /vár/ !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!?!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! DYRAGLENS LJOSKA AF t>VÍ AB) HANM ^ ER LlSTAVeKK ? tf. L—r- 1 l“l íi 1 ~ 1 1 /0-22 ISSOFI 1 TOMMI OG JENNI TT mm r m ■ i r i . ■ ■;—i r- i *.■ J ERU LÉTTARI EM KATTAR— / HLDNKUg^I- Z/IJ ( (t ( -« 11 lliilllllSI FERDINAND r-s r's A A D , . m // n vm=- - Tt " POSTCARDS SMAFOLK IT SAV5 MERE THAT THE TEAMTMAT'SINFIRST PLACE ON THE FOURTM OF JULY U5UALLV WIN5 THE PENNANT WE WERE IN LAST PLACE ON THE FOURTM OF JULY.. AL50 ON MEMORIAL PAY ANP MOTMER'S PAY... UUELL PR0BAE3LY BE IN LA5T PLACE ON LABOR PAY COLUMBUS PAY, THANKS6IVIN6, CMRI5TMA5 ANP YOUR BIRTMPAY!,1 Það stendur hérna að liðið sem er í fyrsta sœti 17. júní sigri yfirleit í deild- inni. Við vorum neðstir 17. júní, sömuleiðis 1. mai og á mæðradaginn. Við verðum vafalaust i neðsta sæti um verslunar- mannahelgina, á kvenna- daginn, á degi Sameinuðu þjóðanna, á jóladag og á ' af mælisdeginum þínum!! Mér er meinilla við að vera í neðsta sæti á afmælis- deginum mínum... BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Austur rétti suðri lykilinn að vinningsleiðinni í spilinu hér að neðan með vafasömu úttektar- dobli sínu á einum spaða. Suðurgefur; N/S á hættu. Norður ♦ ÁK864 V95 ♦ G65 ♦ KD8 Vestur 4 32 4 G10764 ♦ D742 476 Suður 4G10 4ÁD 4 ÁK1098 4G432 Austur 4 D975 VK832 43 4Á1095 Vestur Norður Austur Suður —■ — — 1 tígull Pass 1 spaði Dobl Redobl 2 hjörtu Pass Pass 2grönd Pass 3grönd Allir pass Vestur spilaði út hjartasexu og suður drap kóng austurs með ás. Sérðu vinningsieiðina á opnu borði? Sagnhafi á svo sem nóg af slögum, en vandinn er að fjölga þeim upp f níu áður en vömin nær að bijóta hjartað. Eins og sést verður að gefa slag bæði á tfgul og spaða til að fría þá liti og það hrekkur ekki nema upp i átta slagi. Vömin notar inn- komuna til að hrekja sfðustu hjartafyrirstöðu sagnhafa f burtu og bíður svo í rólegheitum með laufás og fríhjörtun. Sagn- hafí á þann möguleika að fara í laufíð og treysta á að fría þar þtjá slagi, en það gengur ekki heldur úr því liturinn brotnar 4-2. Lausnin byggist á dobli aust- urs. Eftir það hlýtur hann að eiga laufásinn. Því er besta spilamennskan að fara inn á blindan spaða og spila laufátt- unni á gosann heima! Ef austur gefur fæst mikilvægur slagur án þess að missa tempó, og þá er óhætt að fría þá tvo sem vantar á tígul. Fari austur á hinn bóginn upp með laufás fást örugglega þrír slagir á lauf. SKAK Umsjón Margeir Pétursson Á alþjóðlegu móti í Dresden í A-Þýzkalandi í vetur kom þessi staða upp f skák A-Þjóðveijanna Griinberg og Tischbierek, sem hafði svart og átti leik. Svarta drottningin virðist vera fönguð en það er ekki allt sem sýnist: 22. — Hxe2+I, 23. Dxe2 - Dxcl, 24. De8+ - Kh7, 25. Bh3 - Dxb2+, 26. Ke3 - Df6 og hvítur gafst upp.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.